Morgunblaðið - 15.03.1980, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980
Gylfi Guðjónsson arkitekt, fulltrúi í skipulagsnefnd:
Um „aðgerðaleysi“ og „glund-
roða“ í skipulagsmálum Rvíkur
í tilefni greina Birgis ísleifs
Gunnarssonar og Hilmars Ólafsson-
ar í Morgunblaðinu að undanförnu.
Inngangur
Eins og kunnugt er hafa að
undanförnu átt sér stað miklar
umræður í skipulagsnefnd, borgar-
ráði og borgarstjórn um þá endur-
skoðun aðalskipulags Reykjavíkur,
sem samþykkt var i borgarstjórn
vorið 1977.
Aðal tilefni þessara umræðna er
greinargerð frá Borgarskipulagi
Reykjavíkur, sem ber heitið „Um-
sögn Borgarskipulags Reykjavíkur
um staðfestingu á aðalskipulagi
Reykjavíkur 1975—1995.
I niðurstöðum greinargerðarinnar
segir meðal annars:
„Hæpnar og breyttar forsendur
valda því, að staðfesting Skipulags-
stjórnar ríkisins á endurskoðuðu
aðalskipulagi getur ekki á nokkurn
hátt greitt fyrir þeirri skipulags-
vinnu, sem framundan er, hvorki
hvað snertir ný byggingarsvæði né
endurskipulagningu eldri byggðar,
en gæti fremur orðið skipulagsvinn-
unni fjötur um fót“.
Athuganir og ábendingar Borg-
arskipulags Reykjavíkur leiddu
síðan til þess, að borgarstjórn
Reykjavíkur samþykkti á fundi
sínum síðastliðinn fimmtudag, að
endurmeta ákveðna þætti aðalskipu-
lagsins, sem samþykkt var í borgar-
stjórn vorið 1977. Hér er um að ræða
framtíðarbyggð Reykjavíkinga á
svonefndu Ulfarsfellssvæði.
Aðgerðaleysi fyrr-
verandi meirihluta
varðandi staðfestingu
endurskoðaðs aðal-
skipulags.
Greinilegt er, að Birgi Isleifi
Gunnarssyni er það mikið persónu-
legt metnaðarmál að fá umrætt
skipulag staðfest óbreytt, en eins og
kunnugt er bera sjálfstæðismenn í
borgarstjórn undir hans forystu
meginábyrgð á því verki, sem unnið
var á árunum 1974—1977.
Einhver kann að spyrja, hvers
vegna í ósköpunum umrædd stað-
festing sé ekki fyrir löngu um garð
gengin. Endurskoðun aðalskipulags-
ins var tiltölulega ágreiningslítið
samþykkt í borgarstjórn í apríl 1977.
Þegar nýr meirihluti tók við stjórn
Reykjavíkur sumarið 1978, hafði
endurskoðað aðalskipulag Reykja-
víkur enn ekki hlotið staðfestingu
Félagsmálaráðuneytis. Þáverandi
meirihluti hafði þó haft rúmt ár eða
þrettán mánuði til þess að ganga frá
skipulagstillögunum og fá þær lög-
formlega staðfestar.
Ástæða þess var sú, að ýmislegt
vantaði upp á, að skipulagsgögnin
væru þannig úr garði gerð, að
skipulagsstjórn gæti endanlega
fjallað um þau. Bæði skorti þar á
efnisatriði og formsatriði, sem ekki
verða rakin hérna.
Þannig var staðan, þegar ný
skipulagsnefnd tók að fjalla um
skipulagsmálefni borgarinnar
sumarið 1978, eftir 13 mánaða að-
gerðarleysi þáverandi meirihúta í
staðfestingarmálum aðalskipulags-
ins, en þá vantaði Skipulagsstjórn
ríkisins enn gögn vegna staðfest-
ingar. Nú var það prentað landnotk-
unarkort, sem krafðist mikillar
vinnu á Þróunarstofnun Reykja-
víkurborgar.
Staðfesta á
skipulagið
Það hefur alltaf verið ijóst, að
núverandi meirihluti stefnir að því
að staðfesta umrætt skipulag.
Hinsvegar kom fljótlega í ljós
eftir meirihlutaskiptin, að undirbún-
ingi staðfestingar. að hendi fyrrver-
andi meirihluta var mjög ábótavant
eins og fram kom hér að framan.
Einnig bentu nýjar upplýsingar um
tiltekin mál svo og breyttar skipu-
lagsforsendur til þess, að einstakir
þættir þyrftu nánari athugunar við.
Þessi afstaða meirihlutans kemur
greinilega fram í eftirfarandi sam-
þykkt meirihluta borgarstjórnar í
ársbyrjun 1979:
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkir, að flýtt verði sem unnt er
staðfestingu endurskoðaðs aðal-
skipulags Reykjavíkur. Borgarstjórn
álítur ekki tímabært að hefja prent-
un landnotkunarkorta, þar sem ýms-
um undirbúningi til staðfestingar
skipulagsins er ekki lokið. Enn
fremur telur borgarstjórn rétt, að
beðið sé ráðningar nýs forstöðu-
manns Þróunarstofnunar og honum
gefinn kostur á að kynna sér aðal-
skipulagið og hafa umsjón með því,
að endanlegum frágangi þess verði
lokið með staðfestingu í huga.
Hræðsluáróður
Hins vegar er nauðsynlegt, að það
komi hér skýrt. fram vegna síendur-
tekinna yfirlýsinga Birgis ísleifs
Gunnarssonar og Hilmars Ólafsson-
ar, að að jafnaði er ekkert samhengi
á milli staðfestingar aðalskipulags
og lóðaframboðs, því að hægt er að
deiliskipuleggja svæði á grundvelli
samþykkts aðalskipulags.
Yfirlýsingar þess efnis, að yfirvof-
andi sé lóðaskortur í Reykjavík, ef
endurskoðað aðalskipulag verður
ekki staðfest þegar í stað er út í hött
og á ekki við nein rök að styðjast.
Ekki verður séð fyrir afleiðingar
slíks hræðsluáróðurs og í raun
vandséð, hvernig slíkt fær sam-
ræmst hagsmunum Reykvíkinga.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um áhrif þessara óábyrgu yfirlýs-
inga á lóðaverð á Reykjavíkursvæð-
inu svo ekki sé meira sagt.
Viðbrögð Sjálfstæðis-
manna við greinar-
gerð Borgarskipulags
Viðbrögð minnihluta skipulags-
nefndar við greinargerð Borgar-
skipulags sem minnst var á i upphafi
voru með endemum.
Áður en efnisatriði umsagnarinn-
ar höfðu verið rædd lögðu fulltrúar
minnihlutans fram bókun, þar sem
þeir með ósæmilegum hætti veittust
að starfsmönnum borgarskipulags
og brigsluðu þeim um ófagleg vinnu-
brögð. Rétt er að geta þess, að flestir
núverandi starfsmenn borgarskipul-
ags unnu áður undir stjórn fyrrver-
andi meirihluta á Þróunarstofnun
Reykjavíkurborgar.
Ég held, að umrædd bókun sjálf-
stæðismanna í skipulagsnefnd hljóti
að véra einsdæmi í nefnd á vegum
borgarinnar. Óneitanlega læðist að
manni sá grunur, að skortur á
málefnalegum rökum hafi att sjálf-
stæðismönnunum út í að saka
reynda starfsmenn Reykjavíkur-
borgar um ófagleg vinnubrögð.
Hér fer ég ekki frekar út í það
karp, hártoganir og deilur, sem fylgt
hafa í kjölfar umsagnar Borgar-
skipulags Reykjavíkur. Ég vil hins
vegar gera nokkrum efnisatriðum úr
úttekt Borgarskipulagsins frekari
skil, einkum þeim, er varða fram-
tíðarbyggð Reykvíkinga á Úlfars-
fellssvæðinu sem borgarstjórn
Reykjavíkur ákvað að endurmeta á
fundi sínum siðastliðinn fimmtudag
eins og að framan greinir.
Ég vek sérstaka athygli á því, að
meirihluti borgarstjórnar sam-
þykkti aðeins að endurmeta afmark-
aðan þátt aðalskipulagsins, þ.e.
framtíðarbyggð Reykvíkinga á Úlf-
arsfellssvæði.
Aðgerðarleysi fyrr-
verandi meirihluta
varðandi Keldnaland
Margumrædd endurskoðun aðal-
skipulags gerir ráð fyrir fyrsta
áfanga framtíðarbyggðar (15000
manna byggð) á Keldnaholti. Veru-
legur hluti þess svæðis er hins vegar
alls ekki í eigu borgarinnar, heldur
Tilraunastöðvarinnar á Keldum.
Að sögn borgarverkfræðingsins í
Reykjavík hafa samningsumleitanir
við ríkisvaldið um kaup eða maka-
skipti á löndum þeim, er hið nýja
endurskoðaða aðalskipulag nær til
staðið allt frá árinu 1970. Málið
hefur lítið sem ekkert gengið og þess
vart að vænta, að því geti lokið með
samkomulagi.
Hilmar Ólafsson segir hins vegar í
blaðagrein sinni: „Ekki hefur á það
reynt, hvort Keldnaland sé ófáan-
legt“. Hér staðfestir Hilmar algjört
aðgerðarleysi í 8 ára áþreifingum við
Keldnamenn.
Sannast sagna voru samningar
strand og málið í algjörum hnút
þegar nýi meirihlutinn tók við í
Reykjavík.
Málið er þeim mun alvarlegra, þar
sem hér er um að ræða fyrsta áfanga
Gylfi Guðjónsson
framtíðarbyggðar bæði til íbúðar- og
atvinnustarfsemi, sem átti að nægja
Reykjavíkurborg næstu 5—10 árin.
Slík vinnubrögð eru vægast sagt
furðuleg og geta engan veginn talist
samræmast hagsmunum Reykvík-
inga.
Við skipulag á Keldnaholti hafði
nánast ekkert samráð verið haft við
landeigendur, og ég hef fyrir satt, að
margir borgarfulltrúar vissu heldur
ekki, hvernig í pottinn var búið,
þegar þeir samþykktu í borgarstjórn
að hefja deiliskipulag á Keldnaholti.
Fyrrverandi meirihluti hafði gert
lítið úr málinu, og enn verður vart
séð hverjar afleiðingar aðgerðarleysi
þeirra mun hafa fyrir Reykvíkinga.
Birgir ísleifur hefur lýst því yfir í
borgarstjórn, að hann styðji eign-
arnám Keldnalands og þess vegna
vilji hann láta staðfesta skipulagið
óbreytt frá því sem þar er.
Hann vill kalla yfir skattborgara
Reykjavíkur milljarðastaðgreiðslu á
landi.
Staðreyndir í Keldnamáli er ein
ástæða ákvörðunar meirihluta borg-
arstjórnar um endurmat nýbygg-
ingasvæða Reykvíkinga á Úlfars-
fellssvæði.
Jsl. Gunn-
Olafssonar
Aðgerðaleysi varð-
andi fólksflutninga
frá Reykjavík
til nágrannasveitar-
félaganna
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að á síðari árum hefur tölu-
vert borið á flutningum fólks frá
Reykjavík til nágrannasveitarfélaga
í húsnæðisleit. í nágrannasveitarfé-
lögum hefur fólk á miðjum aldri haft
aðgang að svonefndum sérbýlishúsa-
lóðum.
Það liggur því í augum uppi, að
nauðsynlegt er að hafast eitthvað að
og hafa til reiðu umtalsvert framboð
sérbýlishúsalóða til þess að stemma
stigu við umræddri þróun.
Athuganir Borgarskipulags
Reykjavíkur á þéttleika framtíðar-
byggðar á Úlfarsfellssvæði hafa hins
vegar leitt í ljós, að þar eru áætlanir
um blokkabyggingar mjög ráðandi.
50.000 manna byggð mun að mati
borgarskipulags þar tæpast rúmast
nema að verulegu leyti í þéttu
fjölbýli. Þessi staðhæfing er síðan í
hrópandi ósamræmi við þá stefnu-
mörkun aðalskipulagsins, að auka
skuli hlutdeild einbýlis- og raðhúsa-
byggðar miðað við Breiðholtshverf-
in.
Máli minu til stuðnings skal bent ,
á að samkvæmt margumræddu aðal-
skipulagi skal Keldnaholt rúma
15000 manna byggð.
Keldnaholtið er að stærðinni til
því sem næst sambærilegt við Ár-
bæjar- og Seláshverfið, sem allir
Reykvíkingar þekkja.
I því hverfi fullbyggðu munu 65%
íbúða verða í fjölbýli. Samanlegt
munu þar rúmast 5715 íbúar. Menn
hafa leikið sér með tölur á báða
bóga, en ekki alltaf sambærilegar.
Þetta dæmi, sem allir hljóta að
þekkja sannar á tryggjandi hátt að
byggð á Keldnaholtssvæðinu var
fyrirhuguð meira en helmingi þétt-
ari en hverfin í Árbæjar- og Selási.
Fyrirhugaður þéttleiki byggðar
mun því óhjákvæmilega stuðla að
áframhaldandi fólksflótta frá
Reykjavík til nágrannasveitarfélaga.
Umræddan þéttleika byggðar eða
byggingarrýmd vill núverandi meiri-
hluti borgarstjórnar endurmeta.
Nýjar íbúaspár
fyrir Reykjavík
Nýjar íbúaspár frá borgarskipu-
lagi og Framkvæmdastofnun gefa
vísbendingu um mun hægari byggð-
arþróun í Reykjavík en þær spár,
sem lágu til grundvallar umræddu
aðalskipulagi. Hér er um að ræða
breytingu á veigamikilli skipulags-
forsendu. Meirihluti borgarstjórnar
vill skoða framtíðarbyggingasvæði í
Reykjavík í ljósi þessara upplýsinga.
Mismunur á eldri og nýrri spám
nemur um 20.000 manns á næstu 20
árum, en láta mun nærri, að um
20.000 manns búi í Breiðholtsbyggð.
Það skakkar því hvorki meira né
minna en heilu Breiðholti.
Kaup Reynivatnslands
Nýlega var gengið frá kaupum
borgarinnar á hluta af landi jarðar-
innar Reynisvatns. Núverandi meiri-
hluti vill athuga, hvort þessir land-
vinningar opni ekki nýja möguleika
fyrir þróun byggðar í borginni,
jafnvel kosti, sem væru hagkvæmari
í uppbyggingu en þau svæði, sem
hingað til hafa verið til umræðu.
Nýjar hugmyndir um
vatnsverndunarmörk
Ljóst er af þróun vatnsöflunar-
mála fyrir Reykjavík, að þess er
skammt að bíða, að álitleg bygg-
ingarsvæði í nágrenni Reykjavíkur
losni undan vatnsvernd. Sumir halda
því jafnvel fram, að aflétta megi
núverandi vatnsverndunarmörkum á
vissum svæðum þegar í stað. Aðrir
eru varkárari og tala um 5 ár í því
sambandi. Allt ber þetta þó að þeim
sama brunni, að nýir og hagkvæmari
byggðarþróunarmöguleikar fyrir
Reykjavík geti opnast í náinni
framtíð.
Niðurlag
Ég hef hér að framan rakið í
megindráttum ástæður þess, að end-
urmat framtíðarbyggðar á Úlfars-
fellssvæði var óumflýjanlegt að mati
meirihluta skipulagsnefndar.
Birgir ísleifur Gunnarsson hefur
hins vegar í fjölmörgum greinum um
skipulagsmálefni Reykjavíkur í
Morgunblaðinu ekki séð ástæðu til
að gera efnisatriðum málsins nein
skil. Hann hefur talið sig gegna
hagsmunum Reykvíkinga betur með
því að klifa sífellt á órökstuddum
fullyrðingum um glundroða, aðgerð-
arleysi og ósamkomulag núverandi
meirihluta í pólitískum, en lítt
málefnalegum stfl.
Ég tel hins vegar, að margir
lesendur Morgunblaðsins vilji kynn-
ast efnisatriðum málsins.
Aðalskipulag er áætlun, sem í eðii
sínu er sifelldum breytingum undir-
orpin. Hún er hvorki áreiðanlegri né
óvissari en þær forsendur, sem hún
byggir á, enda gerir löggjafinn ráð
fyrir reglulegri endurskoðun aðal-
skipulagsáætlana á 5 ára fresti.
Það kann því ekki góðri lukku að
stýra, þegar aðalskipulag verður
persónulegt metnaðarmál ákveðinna
stjórnmálamanna, sem ekki eru fús-
ir til þess að skoða málið á ný út frá
breyttum forsendum með hagsmuni
borgaranna fyrir augum.
I tilefni greina Birgis
arssonar og Hilmars
,iiNiM.A4Hii. 8UNNIIDAGUR *
Birgir lal. Gunnarsgon:
Glundroðakenn-
ing í framkvæmd
hipulaf, Ruvkj»*lhar fr» h«orf» l»»r »»l AlþýAwff
7 Allar uairaAur '■* i„» hjt i þ»trn for»rr*
•Ui IhUuo hMhJ .fgaAth. -tloúa ^ I h
Heilt ár
leið í
Lóðaskortur
. Málsmeðferð , 'e'u"
Vinstn athuguð aðgerðarleysi Ennfj^
flokkarnir "* **n,n,H" h',h u ------
„Lóðaskortur yfirvofandi Á
par sem dráttur hefur _
orðið á staðfestingu aðal-
skipulags borgarinnar,“ VI
— segir llilmar Ólafsson fyrr- 'í?
verandi forstoðumaður Síit ittrS ÍJT;. S
Þróunaratofnunar Reykjavikur "TSZZZZ