Morgunblaðið - 15.03.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980
23
Boðar Carter
samdrátt í rík-
isfjármálum?
Frá fréttaritara Morgunblaðsins
í Washington, Önnu Bjarnadóttur í gær
JIMMY Carter. Bandaríkjafor-
seti, mun skýra frá nýrri stefnu
sinni gegn sívaxandi verðbólgu
síðdegis eftir að verðbréfamörk-
uðum hsfur verið lokað. Hann
hefur fram til þessa reynt að
hefta verðbólguna með takmörk-
uðu peningaframboði og vaxta-
hækkunum, en í dag mun hann
einnig boða samdrátt i ríkis-
fjármálum. Carter lagði fyrir
bandaríska þingið fyrir aðeins
tæpum tveimur mánuðum fjárlög
fyrir árið 1981, sem hljóða upp á
615.8 milljarða dollara og eru
ríkisútgjöld 15.8 milljörðum doll-
ara umfram tekjur ríkisins. Þess
er vænst, að uppistaðan i tillög-
um Carters í dag verði niður-
skurður á fjárlögum til að eyða
þessum halla.
Þingmenn úr báðum deildum
þingsins hafa unnið saman að
undanförnu við að finna hvar má
skera niður á fjárlögum. Þeir og
forsetinn eru sammála um, að
ekki megi draga úr framlögum til
varnarmála en að aukinn kostn-
aður við þau eigi að greiðast með
frekari skattheimtu. Búist er við,
að Carter boði niðurskurð á aðstoð
við stórborgir, dregið verði úr
útgjöldum til opinberra starfa
handa atvinnulausum og ungu
fólki og útburður á pósti á laugar-
dögum verði lagður niður.
Niðurskurður er óvinsælli og því
erfiður á kosningaári eins og í ár.
Carter gæti átt í erfiðleikum með
að koma tillögum sinnum í gegn-
um þingið. Hann gæti því gripið
til þess ráðs, sem hann þarf ekki
samþykkt þingsins til, að leggja
innflutningsgjald á olíu eða 10
centa skatt á hvert gallon af
benzíni. Það myndi auka tekjur
ríkisins og draga um leið úr
eftirspurn eftir innfluttri olíu.
Carter er á móti verð- og
Líflátsdómi
ákaft fagnað
Chicago, 14. marz. AP.
ÆTTINGJAR og vinir fórnarlamba
létu i ljós fagnaðarlæti og klöppuðu
þegar John W. Gacy var dæmdur til
lífláts í rafmagnsstólnum fyrir kyn-
ferðisleg morð á 12 piltum og
drengjum, en dómnum verður áfrýj-
að.
Louis B. Garippo úrskurðaði að
aftaka Gacys skyldi fara fram 2. júní,
en hann var fundinn sekur um að
hafa myrt alls 33 pilta og drengi.
Gacy átti dauðadóm yfir höfði sér
þar sem 12 morðanna, sem voru
framin á árunum 1972 til 1978, áttu
sér stað eftir að lög um dauðarefsingu
tóku gildi ' 1977. Tuttugu og sex
fórnarlömb Gacys fundust grafin
undir húsi hans norðvestur af Chic-
ago og þrjú önnur annars staðar hjá
húsi hans. Fjögur lík fundust í
nálægri á.
Auk Gacys bíða 20 menn aftöku í
Illinois-ríki. Síðasta aftakan í ríkinu
fór fram 1962.
Týndist í Prag,
birtist í London
kaupstöðvun, en hann hefur farið
fram á við verkalýðsfélög og
vinnuveitendur að þau takmarki
samninga sína við 7% kauphækk-
anir. Talið er, að hann hækki
þessa tölu upp í kringum 8Vi%.
Þessi stefna Carters hefur haldið
niðri launahækkunum, en hún
hefur sama og engin áhrif haft á
vöruverð.
Bandaríski seðlabankinn dró
mjög úr peningamagni s.l. haust
og gaf útlánsvaxtahækkanir
frjálsar til að draga úr eftirspurn
eftir peningum. Vextir hafa síðan
hækkað úr um 9% í 18,5%, en ekki
hefur enn tekizt að stöðva verð-
bólguna.
London, 14. marz. AP.
BREZKUR stúdent, Angus Car-
gill, sem var saknað eftir að hann
var handtekinn í Tékkóslóvakíu
og rekinn úr landi, kom heill á
húfi til London í dag.
Cargili er 18 ára og með próf
frá Eton-skóla. Hann var hand-
tekinn á miðvikudag þegar árás
var gerð á íbúð í Prag þar sem
heimspekingurinn Julius Tomin
prófessor flutti fyrirlestur.
Snemma í morgun skaut Cargill
upp kollinum á heimili foreldra
sinnar í London og seinna sagði
hann fréttamönnum að hann hefði
ekki haft hugmynd um að mál
hans hefði valdið jafnmiklu
fjaðrafoki. Handtaka hans var
forsíðufrétt í brezku blöðunum.
Hann sagði að hann hefði orðið
fyrir óhugnanlegri reynslu, en
tékkneska lögreglan hefði verið
kurteis. Brezka sendiráðið í Prag
missti af Cargill og lét í ljós ugg
um öryggi hans þegar tékkneskir
embættismenn höfðu sagt að hann
hefði verið settur í gæzluvarðhald
fyrir „afskipti“ af tékkneskum
innanríkismálum. ■
Cargill, sem er í þann mund að
hefja nám við Cambridge-háskóla,
sagði að hann hefði dvalizt hjá
vinum sínum í Tékkóslóvakíu
síðan í janúarbyrjun. Um fyrir-
lestur Tomins sagði hann: „Mér
datt ekki í hug að það væri rangt
að sækja hann — ég var enn
haldinn brezkum hugmyndum um
málfrelsi."
Kaupmenn
hýddir
Lusaka. 14. marz. AP.
214 kaupsýslumenn í Zambíu
voru húðstrýktir í fyrra fyrir
of mikla álagningu á lífs-
nauðsynjar í verzlunum
sinum.
203 voru fangelsaðir í fyrra
fyrir arðrán á alþýðufólki.
Þessar upplýsingar komu fram
í þingræðu viðskipta- og iðnað-
arráðherra Zambíu, Remmy
Chisupa.
Þetta gerðist 15. marz
1969 — Blóðugir bardagar
Kínverja og Rússa á landamær-
um.
1963 — Tillaga Bandaríkja-
manna um „heita línu“ milli
Washington og Moskvu.
1960 — Afvopnunarráðstefna 10
ríkja hefst í Genf.
1944 —-Bandamenn hefja árasir
á Þjóðverja á Monte Cassino.
1939 — Þjóðverjar ráðast inn í
Bæheim og Mæri.
1917 — Rússakeisari leggur
niður völd.
1916 — Pershing hershöfðingi
sendur með 12.000 manna lið til
Mexíkó.
1874 — Annam í Indókína
verður franskt verndarríki.
1848 — Ungverska byltingin
hefst í Búdapest.
1607 — Karl IV formlega krýnd-
ur konungur Svíþjóðar.
1603 — Franski sæfarinn Sam-
uel de Champlain siglir til Nýja
heimsins.
1495 — Kólumbus fer til Maj-
orca eftir fund Ameríku.
493 — Odoacer veginn af Theo-
doric, konungi Austgota.
44 f. Kr. — Júlíus Cæsar ráðinn
af dögum.
Afmæli. Andrew Jackson,
bandarískur forseti (1767—1845)
— Melbourne lávarður, brezkur
stjórnmálaleiðtogi (1779—1848)
— Charles de Montalembert,
franskur rithöfundur (1810—
1870).
Andíát. 1842 Luigi Cherubini,
tónskáld.
Innlent. 1953 Þjóðvarnarflokkur
stofnaður — 1303 d. Jón Einars-
son lögmaður — 1861 Tímamóta-
tilskipun í vegamálum — 1890
Kambránsfé finnst að hluta —
1945 Hótel Gullfoss á Akureyri
brennur — 1964 Áskorun
60-menninga til Alþingis um
lokun Keflavíkursjónvarpsins —
1967 Vínlandskortið sýnt í
Reykjavík — 1979 Efnahags-
málafrumvarp Ólafs Jóhanness-
onar — 1952 d. Sigfús Sigur-
hjartarson — 1962 33 st. frost í
Möðrudal.
oOrð dagsins. Ef guð væri ekki
til væri nauðsynlegt að finna
hann upp — Voltaire, franskur
heimspekingur (1694—1778).
Ljósm.: Emilía
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra greindi frá ýmsum verkefnum iðnaðarráðuneytisins á fundi
með fréttamönnum í gær.
Nefnd undirbúi könn-
un staðarvals stein-
uUarverksntíðjunnar
Iðnaðarráðuneytið skipaði í
gær nefnd til að gera tillögu um
forsendur fyrir samanburði
vegna staðarvals fyrir steinullar-
verksmiðju. Er nefndinni falið að
hafa í huga áhrif staðarvals á
stofnkostnað, hagkvæmni í
rekstri og samkeppnishæfni svo
og samanburður út frá þjóðhags-
legum viðhorfum, mannafla og
áhrifum á byggðaþróun.
Nefnd þessari er ekki ætlað að
kanna sjálfir hagkvæmast stað-
arval, heldur aðeins undirbúa
samanburðarkönnun, en að fengn-
um tillögum nefndarinnar mun
ráðuneytið taka til athugunar
hvort fela eigi nefndinni að hafa
umsjón með samanburðarkönnun
á staðsetningu. Er nefndinni ætl-
að að hraða störfum sínum og
ljúka þeim helzt fyrir vorið að þvi
er Hjörleifur Guttormsson iðnað-
arráðherra upplýsti á
fréttamannafundi þar sem þetta
mál var kynnt. Lokið er á vegum
ráðuneytisins almennri könnun á
rekstrarhagkvæmni steinullar-
verksmiðju og hafa tveir aðilar
látið í ljós áhug á rekstri slíkrar
verksmiðju og báðir með þátttöku
ríkisins, en þeir eru Steinullarfé-
lagið hf. í Skagafirði og Jarðefna-
iðnaður hf. á Suðurlandi.
I nefndina hafa verið skipaðir:
Dr. Vilhjálmur Lúðvíksson,
framkv. stj. Rannsóknaráðs og
form. Samstarfsnefndar um iðn-
þróun, formaður, Hörður Jónsson,
frkv.stj. , Iðntæknistofnun
Islands, Bjarni Einarsson, fram-
kvæmdastj. Byggðadeildar Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins, Svavar
Jónatansson, yfirverkfræðingur,
og Þorsteinn Þorsteinsson bæjar-
stjóri, Sauðárkróki.
Lán til atvinnuvega komi
frá innlánsstofnunum
NEFND er iðnaðarráðhcrra skip-
aði í marz 1979 til að gera tillögur
um hvernig auka megi fram-
leiðslu- og rekstrarlán til iðnaðar
með sérstöku tilliti til þarfa
samkeppnisiðnaðar, hefur nýlega
skilað áliti sínu. Telur nefndin að
breytingar þær er hún leggur til
muni umfram það að auka lán-
veitingar til iðnaðar verða til þess
að bæta stjórn peningamála og
jafnframt að rekstrarfjármögnun
atvinnuveganna verði þannig
fyrirkomið með skynsamlegri
hætti en nú gerist.
Á fundi mcð fréttamönnum
kynnti iðnaðarráðherra niðurstöð-
ur nefndarinnar en þær eru m.a..
Að hlutur iðnaðar í heildarútlán-
um innlánsstofnana verði ekki
aukinn nema breyting verði gerð á
endurkaupakerfi framleiðslulána
atvinnuveganna, samhliða því að
bankar og sparisjóðir fái hvatn-
ingu og svigrúm til að auka sín lán
til iðnaðar. Leggur nefndin til að
dregið verði úr endurkaupakerfinu
á 3—5 árum og rekstrarfjármögn-
un atvinnuveganna verði þannig
færð til innlánsstofnana á ný.
Byggja tillögurnar á þeirri for-
sendu, að átt geti sér stað samhæfð
aðlögun meginatvinnuvega þjóðar-
innar að þessum breytingum.
Höfuðatriði að auka
nýtingu og hag-
kvæmni í skipasmíðum
STARFSHÓPUR um áætlanagerð
varðandi uppbyggingu innlends
skipaiðnaðar með hliðsjón af end-
urnýjunarþörf fiskveiðiflotans
hefur skilað áliti sínu, en hann
telur að leggja verði megin-
áherzlu á að bæta núverandi
aðstöðu viðgerða- og nýsmíða-
stöðva hvað hagkvæmni snertir
og er ekki tekið undir áform um
að reisa nýjar skipasmíðastöðvar
umfram það sem þegar hefur
verið ákveðið.
Segir m.a. svo í niðurstöðum
starfshópsins: Höfuðatriði til að
bæta nýtingu og auka hagkvæmni
er að gerðir verði viðlegukantar við
skipasmíðastöðvar á 6 stöðum í
landinu, Akranesi, Stykkishólmi,
ísafirði, Keflavík — Njarðvík,
Hafnarfirði og Garðabæ. Enn-
fremur leggur starfshópurinn til
að settir verði upp 80—100 tonna
bátalyftarar á ísafirði, Skaga-
strönd og Húsavík, en ekki verði
ráðist í b.vggingu dráttarbrauta á
tveimur síðasttöldu stöðunum.
Sett er fram þriggja ára áætlun
um þær framkvæmdir, sem lagt er
til að ráðist verði í, og er kostnaður
ráðgerður tæpir 3 miiljarðar króna
yfir tímabilið á núverandi verðlagi
og væri hiutur ríkissjóðs skv.
hafnarlögum um 1.773 m. kr. Þá
telur starfshópurinn brýnt að
halda áfram á þeirri braut er
iðnaðarráðuneytið markaði á sl.
ári að skipasmíðastöðvar og drátt-
arbrautir eigi aðgang að stofn- og
hagræðingarlánum hjá Iðnlána-
sjóði. Einnig telur starfshópurinn
æskilegt markmið að árleg nýsmíði
fiskiskipaflotans sé um 3.500
brúttórúmlestir og stefnt verði að
því að öll nýsmíði fyrir íslenzka
flotann eigi sér stað innanlands.