Morgunblaðið - 15.03.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980
25
LAXVEIÐI SUMARIÐ 79
Þessir voru atfá’ann í Laxá í Leírársveit.
Laxgengd var aö venju mikil í
Elliöaánum og laxamagniö meö
ólíkindum er leið á sumarið. En
hann safnaðist gjarnan í gríöar-
legar torfur og þegar svo ber
undir tekur hann oft illa. Myndin
er frá Fossinum í Elliöaánum, það
er einn af þeim vænni sem
rennir sér upp flauminn.
Sjötta bezta
þrátt fyrir allt
64.228 laxar á land þrátt fyrir vorkulda og síðsumarsþurrka
Komnar eru heildartölur um laxveiðina á síðasta
sumri og var heildarveiðin um tuttugu af hundraði
minni en sumarið 1978. Vert er þó að taka með í
reikninginn, að 1978 var um metveiðiár að ræða. Engu
að síður var veiðin síðasta ár u.þ.b. f jórum af
hundraði meiri heldur en meðalveiði síðustu 10 ára, en
þessi tíu ár hafa verið langbestu laxveiðiárin hérlendis
frá upphafi. Er fyrir að þakka gífurlegri ræktun.
Sjötta besta sumarið
Tala veiddra laxa hér á landi
var 64.228 stykki, heildarþunginn
var 225.280 kílógrömm. Þrátt fyrir
afleit skilyrði til laxveiða mikinn
hluta sumars, var því eigi að síður
um sjötta besta laxveiðiárið að
ræða og er óhætt að taka undir
þau ummæli Einars Hannessonar
í viðtali við Mbl. í haust, að það
væri í rauninni með ólíkindum hve
vel veiddist þrátt fyrir slæma tíð.
Það þarf varla að rifja upp, að
laxinn gekk 2—3 vikum síðar en
hann er vanur vegna vorkulda.
Langvarandi þurrkar í ágústmán-
uði og haustkuldar bættu ekki úr
skák.
Laxinn er lúsugur
Brá svo við, einkum í ám sem
mjög eru háðar úrkomu og verða
mjög vatnslitlar í þurrkatíð, að
laxar veiddust mjög síðla sumars,
voru þeir bæði rauðleitir en einnig
lúsugir, en yfirleitt fylgist slíkt
ekki að, þar sem sjólúsin lætur
lífið fáeinum sólarhringum eftir
að laxinn yfirgefur saltið fyrir
fullt og allt. Verður því að álykta
að þessir fiskar hafi verið að
væflast í hálfsöltu meðan þeir
biðu þess að vöxtur kæmi í ána og
þeir gætu gengið upp. Varð þessa
fyrirbæris vart t.d. í Álftá á
Mýrum og víðar. Og í Korpu var
laxinn að stökkva úti á flóa fram
eftir öllum ágústmánuði. Þegar
hann síðan freistaði uppgöngu og
var veiddur í fossunum, kom í ljós
að hann var ótrúlega lúsugur.
Mátti telja í sumum tilvikum
40—50 lýs á hverjum fiski, flestar
afar smáar, minni en þær sem á
honum sitja nýgengnum. Margir
hafa tekið eftir því á mjög nýleg-
um löxum úr sjó, að á lúsunum
hanga hvítir þræðir, en þeir
hverfa löngu áður en að lúsin sjálf
skilur við laxinn. Eru þræðir
þessir merki þess að laxinn hafi
sennilega rétt í því verið að renna
sér úr sjónum. Þræðir þessir eru
eggjahylki og er þá nokkuð fjarri
lagi að álykta að hinn mikli
lúsafjöldi á Korpulaxinum hafi
stafað af því að þessi hylki
klöktust út áður en þau hurfu af
fiskinum?
Mjög er misjafnt hve árnar gáfu
hver fyrir sig, eins og venja er, en
flestar gáfu minni afla heldur en
1978. Undantekningar voru þó og
sú allra stærsta var í sambandi
við Þverá í Borgarfirði, úr henni
voru dregnir fleiri laxar á stöng
heldur en dæmi eru til áður hér á
landi, eða 3558 laxar. Þarf ekki að
taka fram að Þverá var besta áin á
síðasta sumri. Laxá í Aðaldal var,
eins og vænta mátti, í öðru sæti
með 2327 laxa. Síðan kom Miðfj-
arðará með 2132 laxa, Norðurá
með 1995 laxa og Víðidalsá ásamt
Fitjá með 1948 laxa. Langá var
sjötta með 1893 laxa, Laxá á Ásum
sjöunda með 1650 fiska, Laxá í
Kjós var með áttundu bestu út-
komuna, 1633 laxa, númer níu var
Grímsá ásamt Tunguá með 1527
laxa og í tíunda sæti var Vatns-
dalsá með 1413 laxa. Þverá hefur
sýnilega mikla yfirburði, en Laxá
á Ásum er alltaf sama undrið, en
þessi mikli afli sem úr henni er
dreginn fæst á tvær stangir á dag,
en það samsvarar 825 löxum á
hvora stöng á 90 dögum. Er
ólíklegt að önnur eins meðalveiði á
þessari fisktegund finnist annars
staðar í veröldinni. Laxá á Ásum
er líklega besta laxveiðiá í heimi.
Af 64.228 löxum, veiddust 68% á
stöng, en 32% í net. Inn í síðari
töluna reiknast hins vegar þeir
laxar sem gengu í laxeldisstöðvar
þrjár sem hafa laxinn á hafbeit.
Er hér átt við Kollafjarðarstöðina
þar sem gengu 1400 laxar, Lárós-
stöðina sem fékk 600 laxa og
fiskhaldstöðina að Botni í Súg-
andafirði, þar sem rúmir 70 laxar
skiluðu sér. Hér fer á efti.r listi
yfir afla í laxveiðiám landsins á
síðasta sumri. Skýrslur höfðu ekki
borist úr fáeinum ám er Veiði-
málastofnun gekk frá skýrslum
sínum. Til viðmiðunar fylgja afla-
tölur úr viðkomandi ám síðustu
fjögur sumur.
Eitt sem mjög er athyglisvert
við tölur þessar, er áberandi minni
meðalþungi í mörgum ám, t.d. í
Haukadalsá, Víðidalsá og Stóru-
Laxá í Hreppum, en í tveim þeim
síðarnefndu var meðalþunginn
1978 um 10 pund. Mbl. frétti t.d. af
einum veiðimannin sem datt í
lukkupottinn á þriðja svæðinu í
Hreppunum. Fékk hann fimm
laxa á einum degi sem þykir
afbragðsveiði í þeirri á og flestir
veiða þar mun minna á jafnlöng-
um tíma, margir ekkert. En með-
alþunginn var aðeins 6.4 pund, en
einhvern tíma hefði hann hins
vegar verið um 10 pund. Þannig
mætti lengi telja. Verður að vona
að þetta hafi verið sveifla frá
náttúrunnar hendi, en ekki eitt-
hvað varanlegt. Mbl. hafði ekki
spurnir af stærri laxi í sumar en
27 punda. Þeir voru víst tveir og
báðir úr Víðidalsá, sem er óðum að
stela til sín nafnbótinni „mesta
stórlaxá landsins" nafnbót sem
Laxá í Aðaldal hefur borið með
sóma um langan aldur.
97 veiðiár Fjöldi Meðalþ. 1978 1977 1976 1975
laxa pund
Elliðaár 1336 5.5 1383 1328 1692 2071
Úlfarsá (Korpa) 215 4.4 327 361 406 438
Lyirvogsá 386 4.9 463 474 544 739
Laxá í Kjós 1508 6.4 1648 1677 1973 1901
Bugða 125 5.9 136 263 410 269
Meðalfeilsvatn 67 50 78 148
Brynjudalsá 98 173 185 271
Botnsá 302 5.0 211 181 198 239
Laxá í Leirársveit 899 6.2 1252 1154 1288 1654
Andakílsá 138 6.2 237 187 262 331
Grímsá og Tunguá 1527 5.9 1952 1103 1439 2116
Flókadalsá 377 5.0 547 263 432 613
Reykjadalsá 105 5.9 120 112 185 275
Þverá 3558 6.9 3132 2368 2330
Norðurá 1995 5.9 2089 1470 1675 2132
Gljúfurá 286 5.1 461 400 356 522
Langá 1893 5.5 2405 1720 1.568 2131
Urriðaá 202 5.5 112 84
.Álftá 255 6.4 386 300 204 341
Hítará 314 7.2 649 346 351 525
Haffjarðará 701 7.8 950 624 595 609
Straumfjarðará 391 7.0 648 466 433 755
Vatnsholtsós
og vötn (Vf. Lýsa) 325 290
Fróðá 234 5.1 225 254 199 182
Gríshólsá og Bakkaá 61 125 70 75
Setbergsá
á Skógarströnd 167 5.3 244
Valshamarsá 14 5.8 18 10
Laxá á
Skógarströnd 196 179 190 114 167
Dunká 142 4.5 76 83
Skrauma 23
Hörðudalsá 51 55 55
Miðá í Dölum 203 6.2 135 146 121 245
Haukadaisá 630 6.0 926 826 904 914
Laxá í Dölum 630 7.9. 533 419 488 547
Fáskrúð 261 6.4 226 242 136 298
Kjallaksstaðaá
(Flekkudalsá) 509 5.0 467 342 343 462
Krossá á Skarðsstr
önd 156 5.5 106 81 109 120
Búðardalsá 120 100
Hvolsá og
Staðarhólsá 90 5.9 180 163 185 136
Laugardalsá
í ísafjarðardj. 596 6.3 703 681 245 601
ísafjarðará 25 4.2 29 52 27
Langadalsá 277 6.7 203 189 170 172
Hvammadaæs a 101 120 56
Staðará
í Steingrímsfirði 95 7.4 101 124 108 100
Víðidalsá
í Steingrímsfirði 104 7.5 93 61 54 49
Krossá í Bitru 125 7.7 7140 4968
Víkurá 219 7.3 121 68 92 438
Bakkaá 100 93 66
Laxá í Hrútafirði 40 17 23 18 32
Hrútafjarðará og Síká 312 6.6 346 262 228 291
Miðfjarðará 2132 7.1 2337 2581 1601 1414
Tjarnará á Vatnsnesi 82 6.4 112 34
Víðidalsá ,
og Fitjaá 1948 8.3 1851 1792 1238 1140
Vatnsdalsá 1413 8.1 1466 1203 571 832
axá á Ásum 1650 6.6 1854 1439 1270 1881
Blanda 906 8.2 2147 1367 1485 2363
Svartá 469 7.5 295 46 96 232
Laxá ytri 146 7.1 94 71 41 58
Hallá á
Skagaströnd 190 171
Fossá i Skefiisstaðahr. 98 6.4 62 34
Laxá
í Skefilsstaðahr. 220 7.3 200 140 73 134
Sæmundará
(Staðará) 112 8.4 303 212 160 116
Húseyjarkvísl 84 7.6 194 158 141 118
Kolka 12 6.2
Hrolleifsdalsá 65 6.4 41 41 28 24
Flókadalsá
í Fljótum 40 71
Fljótaá 199 8.8 316 269 173 189
Fnjóská
í Eyjafirði 446 8.0 554 273 250 268
Skjálfandaftjót 317 7.5 336 288 412 67
Laxá í Aðaldal 2372 9.4 3063 2699 1777 2136
Reykjadalsá
og Eyvindarlækur 492 7.2 657 . 593 133 264
Mýrarkvísl 497 7.0 221 181 121 201
Ormarsá á Sléttu 119 8.0 286 275 147 117
Deildará á Sléttu 164 7.5 357 224 168 189
Svalbarðsá 158 9.7 257 240 155 172
Sandá 411 9.2 418 474 315 238
Hölkná 66 8.9 130 219 92 118
Hafralónsá 264 9.4 276 312 227 302
Miðfjarðará
við Bakkaflóa 135 6.9 242 248 183 144
Selá í Vopnafirði 767 7.9 1394 1463 845 711
Vesturdalsá
í Vopnafirði 268 7.0 498 513 326 329
Hofsá i Vopnafirði 599 8.3 1336 1273 1253 1117
Selfljót 19 7.6 32 77
Fjarðará
í Borgarf. eystra 13 4.9 27 44
Breiödalsá 248 6.7 412 248 76 123
Geirlandsá í V-Skaft 88 6.3 91 99 59 162
Eldvatn í V-Skaft. 45 6.4 33 43 13 41
Tungufljót
í V-Skaft. 74 8.4 43 34 14 3
Kálfá
í Gnúpverjahr. 4 9.7 4 42 69
Stóra-Laxá
í Hreppum 272 7.3 571 266 293 340
Brúará 49 6.8 64 49 57 84
Sogið 439 8.1 620 537 589 593
Hvítá í Árnessýslu 1028 8.6 1169 1159 1175
Ölfusá 503 7.7 825 549 298
Hvítá
í Borgarfirði 573 6.7 788 401 388 521
Baugsstaðarós
og Volalækur 13 6.4 8
Rangárnar 98 6.4 82 46 95 57