Morgunblaðið - 15.03.1980, Side 31

Morgunblaðið - 15.03.1980, Side 31
Tillaga sjálfstæðismanna MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 31 Frjáls verðmyndun þar sem samkeppni er næg Verðlagskerfi það, sem við íslendingar einir þjóða höfum búið við, hefur leitt til óhagstæðari verðlagsþróunar en dæmi eru um meðal ná- grannaþjóða, þar sem samkeppnin hefur fyrir löngu leitt höftin af hólmi, sagði Eyjólfur Konráð Jónsson (S) í umræðu um verðlags- frumvarp sjálfstæðismanna á Alþingi sl. mið- vikudag. Hér á eftir verður lítillega rakinn efnisþráður umræðna í málinu. Sonne-frumvarpið EKJ rakti efni verðlags- frumvarps, sem viðreisnar- stjórnin flutti á haustþingi 1969, Sonnefrumvarpsins, sem nafn dró af dönskum sérfræð- ingi, er að undirbúningi þess vann með íslenzkum aðilum. Þar var stuðst við reynslu V-Evrópuþjóða, ekki sízt Norðurlanda. Einn þingmaður þáverandi stjórnarflokka (al- þýðuflokksmaður) greiddi atkvæði gegn verðlagsákvæð- um frumvarpsins, illu heilli, og því sitjum við enn í hafta- kerfinu og þeirri verðlags- þróun, sem hvert heimili þekk- ir. Ríkisstjórn Geirs Hall- grímssonar tekur málið upp að nýju 1978, að vísu nokkuð breytt, og var þá samþykkt frumvarp um frjálsa verð- myndun þar sem samkeppni er næg, eins og víðast tíðkast, lög nr. 56/1978. Reynslan af höftunum EKJ rakti síðan reynslu- dæmi af verðlagshöftum hér á landi í samanburði við verð- þróun erlendis, hvar sölu- samkeppni heldur verðlagi í hófi. Minnti hann á skýrslu verðlagsstjóra, sem staðhæfir, að innkaupsverð vara til íslands sé 20—25% hærra, en vera myndi, ef heilbrigðari viðskiptahættir væru ríkjandi, hvað verðlagsákvæði viðvéki. Kerfið, eins og það er og hefði verið, er ekki hvati til hag- stæðra innkaupa, heldur hið gagnstæða; sú væri reynslu- niðurstða haftanna og pró- sentuálagningarinnar. Auk verðlagshaftanna kem- ur fjársvelti verzlunar hér við sögu, sagði EKJ. Ekki er hægt að gera hagstæð innkaup nema hafa aðgang að fjár- magni, því miklu skiptir, hvort innflutningur er í stórum pöntunum (magnafsláttur) eða smáum. Það sem þarf að gera er að leyfa kaupsýsluaðil- um að taka vörukaupalán er- lendis, auðvitað á eigin áhættu, til að fjármagna hag- stæðari vörukaup en nú er hægt að gera, ef á heildina er litið. Þar að auki ætti að leyfa einhvers konar gjaldfrest á tollum, á sumum vörutegund- um a.m.k. Allt þetta myndi ýta undir hagkvæmni í vöru- kaupum og sölusamksppru, 5CIT. hvárvetna hefur leitt til hagstæðari verðþróunar en héf, enda hefur haftakerfið hér kostað þjóðina ótrúlegar upphæðir og í raun skert almenn lífskjör. Þetta gerðu menn sér grein fyrir þegar á 7. áratugnum, þegar Sonnefrum- varpið var á dagskrá, þó það slys henti, að verðlagsþáttur- inn næði ekki fram að ganga. Mesta verðhækkunarárið Verðmyndunarþáttur lag- anna frá 1978, um frjálsa verðmyndun þegar samkeppni er næg, komst aldrei til fram- kvæmda, því miður. Vinstri stjórnin síðasta breytti þess- um lögum og gerði þau óvirk. Sett voru tvenn svokölluð „verðstöðvunarlög" á þessu stjórnartímabili. Niðurstaðan af þeim varð sú, að árið 1979 reyndist mesta verðlagshækk- anaár í íslenzkri sögu frá því útreikningar vísitölu hófust 1914, eða um 61% hækkun. Ég vil minna á, sagði EKJ, að á áratugnum 1960—1970, þegar minnst var um verzlun- arfjötra hérlendis, var verð- lagið stöðugast og svipað og í nágrannalöndum. Með til- komu vinstri stjórnar í upp- hafi sjöunda áratugarins var þessu jafnvægi kollvarpað. Ég vil og minna á, að þær þjóðir, sem losuðu sig við verzlunar- og verðlagshöftin upp úr síðari heimsstyrjöldinni, þ.e. vel- f lestar V estur landaþj óðir, hafa búið við allt annað og stöðugra verðlag en við. Hvert sem litið er er reynslan sú sama í þessu efni. Niðurtalning verðlags Síðan vék EKJ að niðurtaln- ingu, svokallaðri, í málefnas- amningi ríkisstjórnarinnar. Hvern veg er hægt, spurði hann, að skammta t.d. íslenzk- um iðnaði segjum 5% verð- hækkun, lögbundið, ef fram- leiðslukostnaður hækkar á sama tíma 10% eða 20% ? Er slíkt framkvæmanlegt í raun? Eða er stefnt að því að setja Eyjólfur: Lærum af eigin reynslu og annarra atvinnuvegi á hausinn og inn- leiða atvinnuleysi? Hann minnti og á að Verð- lagsráð, sem skipað er 9 mönnum úr ýmsum greinum þjóðlífsins, hefði tekið afstöðu gegn niðurtalningarreglugerð viðskiptaráðherra. Hér hefði verið um að ræða fulltrúa allra stærstu hagsmunasam- taka landsins. Segði það sína sögu. EKJ sagðist vonast til að frumvarp sjálfstæðismanna nú um frjálst verðlag þar sem samkeppni væri næg, hefði byr gegnum þingið. Vitnaði hann til ummæla núverandi viðskiptaráðherra, Tómasar Árnasonar á aðalfundi Verzl- unarráðs, þar sem hann stað- hæfði m.a. „að frjálsari stefna í verðlagsmálum sé miklu líklegri leið til þess að lækka vöruverð í landinu heldur en aðhaldssöm prósentuálagn- ingaraðferð ...“ Lifum í samsteypustjórnum Tómas Árnason, viðskipta- ráðherra, sagðist ekki hafa skipt um skoðun frá því er hann studdi lög um frjálsari verðlagningu 1978. En við lif- um í samsteypustjórnarfyr- irkomulagi, sagði hann. Ástæðan fyrir því að ég stóð að breytingu (og frestun) á þessum lögum 1979 var sú, að það var liður í stjórnarsam- starfi, sem ég átti þátt í, og það er sú skýring, er ég gef á afstöðu minni þá. Og ég vil segja, að illu heilli verðum við að lifa við þetta fyrirkomulag samstjórna. Ég fer ekki leynt með það, hins vegar, að ég álít bezta verðlagseftirlitið í þessum málum það, að heilbrigð sam- keppni milli samvinnuverzlun- ar og einkaverzlunar ríki. Ég tek undir það með EKJ. sagði TÁ, að það er fásinna að festa verðlag nema aðrir kostnaðarþættir gangi eftir — í takt. Með því móti myndi allt atvinnulíf í landinu verða lagt að velli á stuttum tíma. Stefna núverandi ríkisstjórnar um niðurtalningu verðbólgunnar er að mínu mati háð því að aðrir þættir gangi eftir, þar á meðal launastefna, eins og sú er fjárlagafrumvarp stjórnar- innar byggir á. Síðan fór TÁ nokkrum orðum um niðurtaln- ingu. Ég vil vera hreinskilinn, sagði TÁ; „eins og nú er ástatt mun hann (flutningsmaður EKJ) ekki geta vænzt stuðn- ings af minni hálfu til að drífa þetta (væntanlega frjálsa verðmyndun) í lög, en hver veit nema Eyjólfur hressist síðar meir — og við stöndum þá aftur saman að því að gera þetta að lögum og framkvæma þau“. Hér bætti EKJ við: „Það ættum við að reyna.“ Hefur gengið sér til húðar Kjartan Jóhannsson (A) sagði m.a. að það verðlagn- ingarkerfi, sem við búum við, hefði gengið sér til húðar, væri úrelt; ekki væri hægt að ákveða verðlag í landinu með handauppréttingu út í bæ ára- tugum saman. Síðan rakti KJ afskipti sín af verðlagsmálum í viðskiptaráðherratíð hans og taldi þau hafa þokað málum í frjálsræðisátt. KJ sagði ekki hægt að tryggja verzlun eða öðrum atvinnuvegum rekstr- arfjármagn, ef ekki ætti sér stað heilbrigð sparifjármynd- un í landinu. Núverandi ríkis- stjórn rembdist við að koma í veg fyrir að sá sparnaður gæti átt sér stað. KJ sagði ráðstafanir minni- hlutastjórnar Alþýðuflokks hafa fikrað verðbólgu niður. Sannleikurinn væri sá, að það væru ekki launin ein, sem hér skiptu máli, heldur stefnan í ríkisfjármálum og peninga- málum, að því þyrfti ríkis- stjórnin að hyggja. KJ rakti síðan stöðu heild- söluverzlunar og smásölu- verzlunar, eins og hún er að hans mati. Hann sagði heild- söluverzlun ná þeim tekjum, sem til þyrfti, utanlands, ann- að hvort í hærra verði eða umboðslaunum, ef heima- álagning hrykki ekki til. Nú- verandi verðlagskerfi ýtti und- ir gjaldeyrisvanskil og jafnvel skattsvik. Ég held að það sé rétt, sagði hann, að fikra sig yfir á braut frjálsrar verð- myndunar á sviði innflutn- ingsverzlunar. KJ taldi smásöluverzlun í miklu fjársvelti. Nauðsynlegt væri að auka fjármagnssvigr- úm í smásölu. Slíkt myndi auka verulega á samkeppni á sviði smásölunnar og koma henni úr þeirri kreppu sem hún er í. KJ taldi kerfi það, sem komið hefði verið upp í bygg- ingariðnaði, gersamlega ónýtt. Þar standa vinnuveitendur og launþegar sömu megin samn- ingaborðs. Kaup meistara hækkar með kaupi sveinsins, hlutfallslega. Því er naumast að vænta heilbrigðrar verð- myndunar þár. Allt verðmyndunarkerfið þarfnast endurskoðunar. Ég held að sú tillaga, sem hér er flutt, að færa mál í upphafleg- an búning (laga frá 1978) stefni til réttrar áttar — en mér er til efs, að það muni nægja. Ég tel að þurfi meir af nýrri hugsun inn í þetta verð- myndunarkerfi okkar. Tómas: Stöndum saman að breytingu — síðar Kjartan: Fikrum okkur á braut frjálsrar verðmyndunar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.