Morgunblaðið - 15.03.1980, Qupperneq 41
fólk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980
41
+ Fyrir nokkru var brezki kvikmyndaleikarinn frægi, David Niven í Rómaborg. —
Við það tækifæri hafði leikarinn gengið fyrir Jóhannes Pál páfa. Hafði þeim fundi
lokið með því að leikarinn hlaut sérstaka blessun páfans. — Myndin er tekin er
páfinn tekur á móti hinum fræga leikara og heilsar honum.
+ Fyrir skömmu fór forseti Kýpur, Spiros Kyprianou, í heimsókn til
Ítalíu — Myndin er tekin viö komu hans þangað. En hér er hann að
kanna heiðursvörð italskra hermanna. — I Rómaborg ræddi hann við
stjórnvöld landsins, þá Sandro Pertini forseta og forsætisráðherrann
Francesco Cossiga. — Snerust þær umræður um málefni Miðjarðar-
hafsianda. Höfðu þær verið mjög einlægar, sagði 1 fréttum af
heimsókninni. — Áður en Kýpurforseti hélt heim aftur gekk hann á
fund páfans i Vatikaninu.
Hann
brenndi
lík
Hitlers
+ Látinn er í V-Þýzka-
landi fyrrum húsvörður
í kanslarahöll Adolfs
Hitlers í Berlín, Heinz
Linge, 67 ára að aldri.
Hann hafði undirfor-
ingjatign í þýzka hern-
um, var obersturmfúhr-
er. — Hann sat í fanga-
búðum í Sovétríkjunum
í 10 ár, frá 1945 til 55.
Hann framfleytti sér
m.a. á því að selja viku-
blöðum endurminningar
sínar, en þar bar hæst,
er hann segir frá því er
hann hafi brennt lík
einræðisherrans, eftir
að hann hafði framið
sjálfsmorð, í garði
kanslarahallarinnar.
+ Dönsk blöð segja frá því að þessi kona, fari huldu höfði
í Danmörku. — Konan er 64 ára gömul, fyrrum kennari,
frá Sri Lanka. — Hún hafði fengið tilk. um að dvalarleyfi
hennar í landinu yrði ekki framlengt. — Hún hafði fengið
leyfi til ársdvalar í Danmörku. Var hún á heimili
tengdasonar síns í Kaupmannahöfn. Konan heitir Leslie
Dharamantes. — Þjóðþingskonan Inge Fischer Möller
segir frá því í blaðasamtali að er hún hafi komið heim frá
Reykjavík af fundi Norðurlandaráðs, hafi tengdasonur
konunnar hringt til sín og gert sér grein fyrir stöðunni í
málinu. — Segir Inge Fischer að hún vonist til þess að fá
tækifæri til að ræða þetta brottvísunarmál kennslukon-
unnar við ráðherra í ríkisstjórninni.
Mynd Mbi. RAX.
Þeir Knútur Hallsson og Erlendur Sveinsson hampa spólunni frá
Danmörku en hún er eina spólan i eigu Kvikmyndasafns lslands.
Ein mynd í eigu
kvikmyndasafnsins
«Við eigum i fórum okkar eina spólu cn þaó er för islenzkra alþingismanna til
Kaupmannahafnar árið 1906. Þessa spólu fengum við frá danska sjónvarpinu.“
sagði Erlendur Sveinsson, forstöðumaður Kvikmyndasafns íslands, á fundi með
fréttamönnum í gær. Safnið tók til starfa í fyrra og að sögn Erlends hefur fyrsta
starfsárið einkum farið i að ieita að húsnæði. Safnið hefur nú fengið inni i
Skipholti 31 og þar hefur verið komið fyrir eldtraustri geymslu og
skrifstofuaðstöðu.
Kvikmyndasafn íslands varð í fyrra
aðili að FIAF, alþjóðasamtökum kvik-
myndasafna. „Við höfum samið við
Regnbogann um afnot af sal þar, bæði
til að skoða myndir og halda sýningar.
Fjármálin eru hins vegar okkar helsti
höfuðverkur. A síðasta ári var safninu
úthlutað 5 milljónum af fjárlögum og í
ár er gert ráð fyrir 7 milljónum. Þessi
fjárveiting nægir engan veginn til að
safnið geti gegnt skyldu sinni sam-
kvæmt lögum. Þannig er Erlendur
Sveinsson aðeins í hlutastarfi hjá
safninu," sagði Knútur Hallsson, for-
maður safnstjórnar.
Kvikmyndasafn íslands hefur skrif-
að öllum þeim, sem hafa fengist við
kvikmyndagerð hér á landi, í upplýs-
ingaskyni og einnig flestum aðildar-
löndum FIAF, en víða eru myndir sem
tengjast íslandi á einn eða annan hátt.
í stjórn Kvikmyndasafns íslands eru
Knútur Hallsson, formaður, Jón Þórar-
insson, Magnús Jóhannsson, Árni
Björnsson og Erlendur Sveinsson.
Sveitaheimili
óskast nú þegar
til lengri eöa skemmri tíma fyrir 11 ára gamlan dreng
sem átt hefur viö námserfiöleika aö etja.
Uppl. gefur Sigrún Óskarsdóttir í síma 25500.
--------------\
C-vítamínbætt
sælgæti
með lakkrís
bragöi
Halda hálsinum
hreinum og
andardrætti
ferskum
Sérlega
góðar ffyrír
reykingafólk.
Reynið sjálf.
MÍHfyl . .
cMmzriótzci\
Tunguhálsi 11,
sími 82700.
LÆRIÐ BRIDGE
— BETRI BRIDGE
Næstu námskeiö hefjast 22. og 24. marz.
Bridge-kynningardagur í Félagsheimili
Hestamannafélagsins Fáks á morgun,
sunnudag kl. 14—17.
LÆRIÐ BRIDGE
— námskeið fyrir byrjendur.
BETRI BRIDGE
— námskeið f. lengra komna.
ÁSINN,
Bridgeskólinn í Reykjavík,
Páll Bergsson, s. 19847.