Morgunblaðið - 15.03.1980, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980
Stjarnan og UBK
einokuðu UMSK-mótiö
mn it'.tt *
m lasi tob 1 ’
INNANHÚSMÓT UMSK í
knattspyrnu íór íram tvær
siðustu helnarnar, en þau lið sem
þar kepptu voru UBK, Stjarnan,
Grótta, UMFA og ÍK. Um siðustu
helgi var keppt í meistaraflokki
og sigraði þar Stjarnan úr Garða-
bæ. Vann liðið ÍK og UMFA með
miklum yrirburðum. UBK 4—3,
en tapaði stigi gegn Gróttu, 4—4,
eftir að hafa komist í 4—0.
Breiðablik sigraði í 2. flokki,
Stjarnan í 3. flokki, Breiðablik i
4. og 5. flokki og Stjarnan í 6.
flokki, þannig að þessi tvö félög
einokuðu gersamlega keppnina.
Snjall Dani með nám-
skeið á vegum KSÍ
ALMENNT knattspyrnuþjálfara-
námskeið á vegum Tæknineíndar
K.S.Í. verður haldið dagan 22. og
23. mars n.k. (laugard. og
sunnud.) Aðalkennari þessa nám-
skeiðs er Jörgcn Hvidemose, sem
er þekktur þjálfari i sinu heima-
landi og víðar. og starfsmaður
Danska knattspyrnusambands-
ins.
Ilvidemose er fyrrverandi
landsliðsmaður í knattspyrnu og
lék m.a. hér á landi.
Efni þessa námskeiðs verður
auglýst síðar, en námskeiðið er
opið öllum þjálfurum, sem sótt
hafa hin ýmsu námskeið Tækni-
nefndar og þeir hvattir til að
notfæra sér þá þekkingu sem hr.
Hvidemose lætur í té.
Þátttaka tilkynnist í síðasta
lagi á fimmtudag 20. mars til
skrifstofu K.S.Í. og er þátttöku-
gjald kr. 10.000.
„Hrækja a mann
SPÆNSK knattspyrna fær ekki
háa einkunn hjá portúgalska
landsliðsmanninum De Ölivera,
sem var með Real Betis um skeið.
Hann lagaði sig aldrei að
spænsku knattspyrnunni og þeg-
ar hann hvarf aftur heim á leið,
hafði hann á orði: „Það er
útilokað að leika knattspyrnu á
Spáni, leikmenn þar hugsa ekki
um annað en að berja menn,
sparka i þá, reka olnbogana í þá
og hrækja, helst framan í mann,
boltinn er algert aukaatriði“.
• Þessi ungmenni tóku þátt i
firmakeppni i sundi sem fram fór
í Vestmannaeyjum fyrir skömmu.
Kepptu þau fyrir Morgunblaðið
og unnu til þeirra verðlauna sem
sjá má þau hampa á myndinni.
Þau heita Hrefna Einarsdóttir og
Smári Harðarson.
Einkunnagjöf í
körfuknattleik
KR:
Jón Sigurðsson
Garðar Jóhannsson
Þröstur Guðmundsson
Ágúst Líndal
Árni Guðmundsson
Gunnar Jóakimsson
Guðjón Kristjánsson
Sigurður Hjálmarsson
Einar Bollason
ÍR:
Kristinn Jörundsson
Kolbeinn Kristinsson
Þorsteinn Hallgrimsson
Jón Jörundsson
Sigmar Karlsson
Sigurður Bjarnason
Stefán Kristjánsson
VALUR
Torfi Magnússon
Kristján Ágústsson
Jón Steingrímsson
Ríkharður Hrafnkelsson
Gústaf Gústafsson
Jóhannes Magnússon
Þórir Magnússon
Sigurður Hjörleifsson
Njarðvík:
Gunnar Þorvarðarson
Guðsteinn Ingimarsson
Jónas Jóhannsson
Jón Matthíasson
Brynjar Sigmundsson
Smári Traustason
Július Valgeirsson
Valur Ingimundarson
4
2
2
1
2
2
1
1
1
3
2
2
2
2
1
1
4
4
2
3
2
2
2
1
2
3
3
2
2
2
2
2
Þessir frjálsiþróttamenn stunda æfingar í San Jose í Kaliforníu, í efri röð eru (fv): Ásgerður Ólafsdóttir
KA, Sigurður Einarsson Á, Vilmundur Vilhjálmsson KR, Kristján Gissurarson Á, Þorvaldur Þórsson ÍR,
Vésteinn Hafsteinsson KA, Gunnar Páll Jóakimsson ÍR, Þráinn Ilafsteinsson ÍR og Oddur Sigurðsson KA.
Oddur er nú kominn heim, en í hans stað kom Guðlaugur Þorsteinsson spretthlaupari úr ÍR. í fremri röð
eru (fv): Siguriður Kjartansdóttir KA, Katrin Sveinsdóttir Á, Þórdís Gisladóttir ÍR og Dýrfinna
Torfadóttir KA. Á myndina vantar Erlend Valdimarsson ÍR, Stefán Ilallgrimsson UÍA og Elias Sveinsson
FH.
16 frjálsíþróttamenn æfa
af fullum krafti í San Jose
TVEIR TUGIR islenzkra frjáls-
iþróttamanna dveljast við æf-
ingar í Bandarikjunum, þar af 16
i San Jose i Kaliforníu. íþrótta-
mennirnir hafa margir hverjir
verið ytra frá því snemma í
haust, en þorri þeirra frá því um
síðastliðin áramót. Ilyggjast
flestir vera ytra fram á sumar.
Sumir koma þá heim á Frón, en
aðrir halda að líkindum rakleiðis
til Evrópu til þátttöku i mótum.
Það sem fyrst og fremst hefur
hvatt frjálsíþróttafólkið til þess-
ara löngu æfingaferða er vonin
um þátttöku í Ólympíuleikunum í
sumar. En flest stefnir íþrótta-
fólkið til stórra afreka, og þá eru
langdvalir erlendis, á eigin kostn-
að að mestu, nauðsynlegar, þar
sem skilyrði til æfinga og keppni
eru miklu betri.
Eins og að framan greinir, kosta
íþróttamennirnir dvöl sína í út-
löndum að mestu leyti sjálfir.
Flestir njóta ferðastyrkja frá fé-
lögum sínum, en bróðurpartinn
borgar íþróttafólkið sjálft. Að
Þráinn Hafsteinsson og Þórdis
Gísladóttir hafa verið i Kanada
við æfingar frá því í októbcr, en
eru nú komin til Kaliforníu, og er
ætlun þeirra að vera þar til loka
apríl og hverfa aftur til Ontarió
þegar hlýna tekur á norðurslóð-
um. Þórdis vann gullverðlaun og
Þráinn silfurverðlaun á innan-
hússmeistaramóti Kanada á dög-
unum.
þessu leyti er aðstaða íslenzks
íþróttafólks frábrugðin því sem
gerist og gengur í nágrannaríkj-
unum, svo ekki sé talað um
Austur-Evrópuríki. Sýnir það bezt
djörfung og dug einstaklings-
íþróttamannanna, og vilja þeirra
til að skara fram úr, að þeir leggja
á sig miklar fjárhagslegar fórnir
til þess að bæta árangur sinn um
sekúndubrot og sentimetra. Þeir
taka sér frí úr vinnu og fresta
námi. Þeir kvarta þó ekki sáran
þar sem þeir gera fyrst og fremst
kröfur til sjálfra sín. En ömurlegt
er til þess að vita að ekki skuli
vera hægt að styðja betur við
bakið á þessu fólki. Það nýtur
jafnvel ekki fyrirgreiðslu né
styrkja frá sínu sérsambandi. Og
ekki nýtur það styrkja frá Ól-
ympíunefnd, jafnvel ekki þeir sem
náðu Ólympíulágmörkum í fyrra-
sumar, og er þar um afturför að
ræða. Það er t.d. vitað að
Ólympíunefndin hafði ekki rætt
eitt né neitt við einn af Kali-
forníuförunum fyrir mánuði, en
náði hann þó í haust lágmarki til
þátttöku í leikunum í Moskvu.
Nei, þeir kvarta ekki sáran,
heldur stunda æfingar af fullum
krafti. Meðfylgjandi myndir eru
frá æfingabúðum frjálsíþrótta-
mannanna í San Jose, en flestir
æfa íþróttamennirnir tvisvar á
degi hverjum í sólinni og hitanum.
— ágás.
Gunnar Pall Jóakimsson og fimm 400 og 800 metra hlauparar San
Jose State-skólans kasta mæðinni eítir erfiða æfingu. Gunnar Páll
hefur æft mikið með þessum hlaupurum ytra, en honum til hægri
handar er norskur hlaupari, sem stundar nám við SJS og á 47,7
sekúndur i 40 metra hlaupi og 1:49 i 800 m hlaupi.
Stefán Hallgrimsson (th) og Oddur Sigurðsson ljúka spretti á æfingu
á iþróttavelli San Jose City Coilege í Kaliforniu. Nokkrir þeidökkir
hlauparar skólans virða hina fótfráu vikinga fyrir sér.
Vésteinn Hafsteinsson, Erlendur Valdimarsson og Stefán Hall-
grimsson (snýr baki i myndavélina) ræða við fyrrum heimsmethafa i
kringlukasti, Bandarikjamanninn John Powell. Powell er enn í
fremstu röð og er jafnframt þjálfari fyrir kastgreinar hjá San Jose
State-háskóla. Ilefur hann áhuga á að fá þá Véstein, sem kastar
kringlu yfir 50 metra, og Sigurð Einarsson, sem kastar spjóti yfir 70
metra, i lið háskólans á næsta hausti.
»