Morgunblaðið - 18.03.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
Grindavík:
Starf frystihússins
með eðlilegum hætti
LÖGREGLAN í Grindavík var á
föstudagskvöld kvödd í verbúðir
vegna kvartana sem þaðan höfðu
borizt vegna óláta.
Hafði verka-
fólk er þar býr haldið fund fyrr
um daginn og þar höfðu nokkrir
ákveðið að yfirgefa búðir farand-
verkafólksins og hætta vinnu hjá
Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða hf.
og um kvöldið var efnt til kveðju-
hófs.
Urðu nokkur háreysti í verbúðun-
um og er þeir sem tóku ekki þátt, í
honum og hugðust mæta til vinnu
að morgni fengu ekki svefnfrið var
lögreglan kvödd á staðinn og beðin
að stilla til friðar. Kvaðst lögreglan
tvívegis hafa komið í verbúðirnar,
um miðnættið og síðar rétt fyrir kl.
2 og voru þrír menn teknir í vörzlu
lögreglunnar.
Að sögn fréttaritara Mbl. í
Grindavík efndi maður, er unnið
hafði hjá frystihúsinu, en var
rekinn er hann neitaði að vinna
eftirvinnu, til fundar með starfs-
fólkinu kl. 17 á föstudag, en þá stóð
yfir vinna, og var þar rætt um kjör
og aðbúnað farandverkafólks. Mun
vera einhver misskilningur á ferð-
inni varðandi kjör hins erlenda
farandverkafólks, sem ráðið var til
frystihússins, en það hefur nú látið
af störfum. Enn býr nokkuð af
starfsfólki í verbúðunum og fengust
nokkrir starfsmenn í stað þeirra
15—20 sem hættu störfum um
helgina og hefur því starfsemi
frystihússins verið með eðlilegum
hætti.
Akureyri 17. marz.
Félagar í Hamrahlíðarkórnum,
sem hér eru á söngferðalagi,
urðu fyrir tilfinnanlegu fjár-
hagstjóni i gærkvöld þegar stol-
ið var frá þeim 80 — 90 þús.
krónum í sjálfri Akureyrar-
kirkju.
Góð byrjun á grá-
sleppuvertíðinni
Siglufirdi, 14. marz.
GRÁSLEPPUKARLAR komu úr
fyrsta róðrinum í dag. Voru þeir
beztu með allt upp í 3 tunnur af
hrognum, svo ekki verður annað
sagt en vertíðin byrji vel.
Stálvík var að leggja af stað
með 135—140 tonn af fiski, sem
togarinn mun selja í Bretlandi
eftir helgina. _ m.j.
Dýrasta bókin sleg-
in á 300 þúsund kr.
KLAUSTURHÓLAR héldu
bókauppboð á laugardaginn og
voru 200 númer á uppboðsskrá.
Hæst verð fékkst fyrir Paradis-
Likel Martins Möller, sem er
fyrsta bókin, sem prentuð
Akureyrarkirkja:
Stolið peningum úr
yfirhöfnum kórfélaga
Margir skoðuðu
rallbílana
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykja-
víkur stóð um helgina fyrir sýn-
ingu á rallbílum í sal bílasölunnar
Brautar í Reykjavík. Voru þar
sýndir rallbílar og keppendur-í
rallakstri voru þar til viðtals,
sýndu bílana og greindu frá ýms-
um gögnum leiðakortum, merkj-
um o.fl. sem notuð eru í rallakstri
og skýrðu frá gangi slíkrar
keppni. Að sögn félaga í BÍKR var
sýningin allvel sótt, en einnig
voru sýndir „rallíkross" bílar og
ýmislegt fleira er tengist þessari
grein bílaíþrótta. Meðfylgjandi
myndir tók Kristján Ari.
SVR:
Tillögur um
Volvo vagna
Afgreiðslu frestað
STJÓRN Strætisvagna Reykja-
vikur ræddi í gær á fundi sínum
um tilboð i nýja vagna sem
ráðgert er að kaupa á árinu, en
tilboð bárust frá 8 aðilum, ýmist í
vagna með eða án yfirbyggingar.
Að sögn Sigríðar Ásgeirsdóttur,
sem sæti á í stjórn SVR, komu á
fundinum í gær fram 2 tillögur.
Var önnur frá fulltrúa vagnstjóra
þar sem lagt er til að keyptir verði
vagnar frá Volvo verksmiðjunum
sænsku og byggt yfir þá á íslandi.
Hin tillagan var frá fulltrúum
sjálfstæðismanna í stjórn SVR og
gengur hún í sömu átt og tillaga
fulltrúa vagnstjóra. Er í tillögu
vagnstjóra bent á að 2/3 af 62
vögnum SVR séu yfirbyggðir hér-
lendis og farið er fram á að ekki
verði keyptir lélegri vagnar en
verið hafa í rekstri undanfarin ár.
Ekki var tekin ákvörðun á
þessum fundi stjórnar SVR þar
sem samþykkt var frestunartil-
laga frá formanni stjórnarinnar
og verður málið næst tekið fyrir á
fimmtudag og áætlað að útkljá
það þá.
Kórinn hélt samsöng í kirkj-
unni fyrir Tónlistarfélag Akur-
eyrar í gærkvöld, en söngfólkið
hafði skilið eftir yfirhafnir og
veski niðri í kapellunni og fata-
geymslu við hlið hennar í kjallara
kirkjunnar.
í hléi urðu nokkrir kórfélaga
þess varir, að peningar höfðu
horfið úr veskjum þeirra. Þegar
málið var kannað betur köm í
ljós, að 8 kórfélagar söknuðu
peninga úr vösum eða veskjum,
alls 80—90 þ.kr. Þeir tveir, sem
mest niisstu, urðu um 30 þ.kr.
fátækari hvor. Kapellan var
ólæst og enginn varzla höfð þar
meðan á söngskemmtuninni stóð,
enda flaug engum í hug þjófnað-
arhætta í vígðu húsi.
Málið var þegar kært til lög-
reglunnar og vinnur hún nú að
rannsókn þess. Sv.Þ.
Verður varðskip leigt til
olíuleitar í Norðurhöfum?
TIL ATHUGUNAR er nú í diimsmálaráðuncytinu og hjá landhelgisgæslunni,
hvort lcigja eigi eitt varðskipa Gæslunnar í sumar til bandarískra aðila scm
gert hafa um það fyrirspurnir. Hér mun vera um að ræða varðskipin Óðinn
eða Þór, og leigutími yrði að öllum likindum þrír til fjórir mánuðir.
Fyrirtæki það sem lýst hefur áhuga sinum á að fá skip leigt, er bandariskt
olíuleitarfyrirtæki. Mun ætlun fyrirtækisins að leita að olíu við Svalbarða og
víðar í Norðurhöfum.
ar
var
Skálholti, en hún var prentuð árið
1686. Fór bókin á 298.900 krónur
með söluskatti. Hálfir skósólar
Þórbergs Þórðarsonar voru slegn-
ir á 195.200 krónur með söluskatti
og Steinsbiblía var slegin á
146.400 krónur með söluskatti.
Friðjón Þórðarson dómsmálaráð-
herra sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær, að athuganir á
hugsanlegri leigu varðskipa stæðu í
sambandi við olíuleit í Norðurhöfum,
norður af íslandi og við Grænland.
Friðjón kvaðst ekki vita nánar um
málið enn sem komið væri, en það
væri nú til athugunar hjá starfs-
mönnum dómsmálaráðuneytisins, og
kvaðst ráðherrann ekki vita hvaða
fyrirtæki um væri að ræða.
Pétur Sigurðsson forstjóri Land-
helgisgæslunnar sagði í gær að málið
væri nú til athugunar hjá Gæslunni,
og væri enn of snemmt að segja til
um hvað lagt yrði til að gert yrði.
Pétur kvaðst hins vegar vilja minna á
að Gæslan gæti hvorki svarað beiðn-
um af þessu tagi játandi né neitandi,
heldur væri það í höndum dómsmála-
ráðuneytisins að gefa endanlegt svar.
Landhelgisgæslan myndi hins vegar
skila áliti sínu til ráðuneytisins,
væntanlega síðar í þessari viku. Vildi
Pétur ekki tjá sig um, hvort beiðninni
yrði tekið jákvætt eða neikvætt af
hálfu Landhelgisgæslunnar.
Pétur kvaðst hins vegar vilja leggja
á það áherslu, að þetta væri ails ekki
í fyrsta skipti sem beiðnir af þessu
tagi bærust íslenskum yfirvöldum.
Oft áður hefði verið falast eftir
skipum Landhelgisgæslunnar til
leigu, þótt ekki hefði orðið af því.
Hefðu þar bæði verið á ferðinni aðilar
í Bandaríkjunum og víðar.
Baldur Möller ráðuneytisstjóri
dómsmálaráðuneytisins sagði í gær
síðdegis, að málið væri enn á algjöru
frumstigi. Það væri hins vegar ekki í
sjálfu sér fráleitt að leigja út skip í
fjóra mánuði í sumar, enda væri þá
rólegasti tíminn í landhelgisgæslunni
og öðrum störfum varðskipanna.
Baldur sagði að falast væri eftir skipi
með þyrlupalli, og kæmu af þeim
sökum öll skipin til greina. Varla yrði
þó um að ræða að leigt yrði annað
skip en Þór, eða hugsanlega Óðinn.
Baldur sagði ekki enn vitað hvaða
aðilar hér væru á ferðinni, því þeir
hefðu haft samband við ráðuneytið
fyrir milligöngu þriðja aðila. Líklegt
væri hins vegar að ráðuneytið byði
þeim hingað til lands til frekari
viðræðna, og myndi málið þá skýrast
en fyrr ekki.
Baldur kvaðst ekki vita frá hvaða
landi hugsanlegir leigutakar væru, né
hvaða leigu þeir væru reiðubúnir til
að greiða, né heldur til hvers þeir
ætluðu nákvæmlega að nota skipið.
Þar væri þó um að ræða einhvers
konar jarðfræðikannanir norðvestan
og norðaustan íslands, „langt fyrir
norðan íslensk farvötn" eins og Bald-
ur orðaði það.
/
1
Launamismunur milli Dagsbrúnarmanna og annarra:
Getur skipt mörg-
um tugum þúsunda
á hverjum mánuði
LAUNAMISMUNUR milli fé-
laga í Verkamannafélaginu
Dagsbrún annars vegar og
Verzlunarmannafélagi Reykja-
vikur og Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja hins vegar
er talsverður, eins og fram
hefur komið í fréttum Morg-
unblaðsins undanfarið. Hefur
Dagsbrún látið fara fram könn-
un á þessum mismun og gert
viðsemjendum sinum grein
fyrir honum. Ber Dagsbrún
saman laun, sem að mati félags-
ins eru greidd fyrir sömu eða
svipuð störf.
Launamismunur bifreiða-
stjóra á mánuði er 27.900 krónur
eða 10,3%. Félaginn í Verzlun-
armannafélagi Reykjavíkur fær
í mánaðarlaun fyrir dagvinnu
298.153 krónur, en Dags-
brúnarmaðurinn 270.253 krónur.
í þeim samanburði, sem Dags-
brún hefur framkvæmt eru
jafnframt borin saman laun
lagermanna hjá VR og pakk-
hússmanna hjá Dagsbrún.
VR-maðurinn fær í mánaðar-
laun 46.768 krónum meira en
Dagsbrúnarmaðurinn eða
17,37% hærri laun. VR-maður-
inn hefur í mánaðarlaun 312.274
krónur, en Dagsbrúnarmaðurinn
265.506 krónur á mánuði.
Þá hefur Dagsbrún jafr.framt
borið saman laun aðstoðar-
manna í járnsmiðjum Hitaveitu
Reykjavíkur og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og laun aðstoðar-
manna í fagvinnu, sem eru
félagar í Dagsbrún. Aðstoðar-
mennirnir í járnsmiðjum Raf-
magnsveitunnar og Hitaveitunn-
ar eru félagar í Starfsmannafél-
agi Reykjavíkurborgar, sem er
eitt aðildarfélaga BSRB og taka
laun samkvæmt kjarasamningi
opinberra starfsmanna. Launa-
mismunur milli þessara manna
er 58.668 krónur á mánuði Dags-
brún í óhag og nemur það
22,56% Opinberi starfsmaðurinn
fær í laun á mánuði 318.674
krónur, en Dagsbrúnarmaðurinn
260.006 krónur.
Ný stjórn kiörin
Félagi starfsfólks
í veitingahúsum
STJÓRNARKJÖR fór fram um
helgina i Félagi starfsfólks í veit-
ingahúsum, en þar voru tveir listar
i kjöri, A-listi stjórnar og trúnað-
armannaráðs og B-listi, sem borinn
var fram af Sigurði Guðmundssyni
og fleiri. Niðurstaðan var að B-list-
inn sigraði, hlaut 183 atkvæði, en
A-Iistinn hlaut 108 atkvæði. Nýkjör-
inn formaður er þvi Sigurður Guð-
mundsson, sem starfað hefur á
Loftleiðahótelinu og tekur hann við
af fráfarandi formanni, Kristrúnu
Guðmundsdóttur á aðalfundi félags-
ins, sem enn hefur ekki verið
ákveðið, hvenær verður haldinn, en
lög félagsins segja að eigi að haldast
fyrir marzlok.
Sigurður Guðmundsson, nýkjörinn
formaður, kvað ástæðurnar hafa
verið fyrir framboði hans til for-
manns þær, að hann hefði verið
ráðinn starfsmaður félagsins hinn 1.
nóvember síðastliðinn. Síðan kvað
hann hafa komið upp óánægju
stjórnarinnar með hann og hefði
stjórnin þá ákveðið að segja sér upp,
„eða raunar gefa mér kost á að segja
upp, sem ég neitaði og var mér þá
skrifað uppsagnarbréf og er ég laus
hér sem starfsmaður frá og með
næstu mánaðamótum. Þá mannaði
ég mig upp í að bjóða fram gegn
stjórninni og þessi varð niðurstað-
an.“
Morgunblaðið spurði Sigurð, hver
hefði verið óánægja fráfarandi
stjórnar og kvað hann stjórnina hafa
talið, sig hafa verið allt of linan við
vinnuveitendur og því ekki hæfan í
starfið. „Voru þetta ákaflega létt-
vægar ástæður, samtíningur, sem
ekki hafði við rök að styðjast, sumt
hreinn uppspuni. Þegar ég síðan fór
að kynna málin, var mér mjög vel
tekið, sérstaklega á Loftleiðahótel-
inu, þar sem ég hafði starfað í 7 ár og
átt mjög gott samstarf við vinnufé-
laga mína þar.
Með Sigurði Guðmundssyni í
stjórn nú eru: Málfríður Ólafsdóttir,
Matthildur Einarsdóttir, Guðlaug
Þórarinsdóttir, Sjöfn Þorgeirsdóttir,
Vigdís Bjarnadóttir og Ingibjörg
Guðmundsdóttir.
Sigurður Guðmundsson, nýkjör-
inn formaður í Félagi starfsfólks
i veitingahúsum.