Morgunblaðið - 18.03.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.03.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980 11 Mozart-Tónleikar Einsöngur í Norræna húsinu Solveig Faringer sópransöng- kona og píanóleikarinn Eyvind Möller fluttu söngva frá Norð- urlöndum, Frakklandi og Þýzka- landi. Það sem er sérkennilegt við efnisskrána, er að flestir höfundar söngvanna eru fæddir á sjöunda tug 19. aldarinnar og lifðu umbrot aldamótanna. Tón- leikarnir hófust á þremur söngv- um eftir Per Gunnar Fredrik de Frumerie, sem einnig var þekkt- ur sem góður píanóleikari. Hann er yngstur höfundanna, fæddur 1908, og bera söngvar hans merki þess að hann hefur lagt eyrun við franskri tónlist. Næst á söngskránni voru söngvar eftir Carl Nielsen, (1856—1931), sem nú á síðustu áratugum hefur öðlast heimsfrægð fyrir tóns- míðar sínar. Fínast af öllu fínu á Norðurlöndunum er auðvitað franskt og í sönglist er það Debussy og á seinni árum Erik Satie (1866—1925). Satie vann fyrir sér sem kabarett-píanóleik- ari, nefndi tónsmíðar sínar ein- kennilegum nöfnum, gerði grín að listrænum virðuleika og há- leitum listrænum markmiðum, en er nú orðinn viðfangsefni þeírra sem hann hæddi. Bæði Debussy og Ravel litu á Satie sem snilling og eiga honum margt að þakka, en aðrir töldu hann „óþekktarorm, sem ekkert vildi læra“. Chancons du Chat, fjórða lagið eftir Satie, var eitt best sungna lagið á tónleikunum. Þá komu næst þrjú lög eftir Stenhammar (1871—1927), sem um aldamótin var talinn mesta tónskáld Norð- urlanda og hafinn yfir samjöfn- uð við Carl Nielsen og Sibelíus. Flickan kom ifran sin álsklings möte, eftir Stenhammar, er góð tónsmíð og var fallega flutt af söngkonunni. Tónleikunúm lauk svo með átta söngvum eftir Hugo Wolf og var Das verlass- ene Magdlein sérlega vel sungið. Solveig Faringer er góð söng- kona, hefur bjarta og fallega klingjandi sópranrödd, en hættir til oftúlkunar. Eyvind Möller er smekkvís og traustur undirleik- ari. Jón Ásgeirsson Kammermúsikklúbburinn stóð fyrir Mozart-tónleikum nú um helgina og voru flutt þrjú verk, fyrst tríó fyrir píanó, víólu og klarinett K.498, sem var gefið út undir nafninu „Trío fyrir Clavisembalo eða Forte Píano með undirleik fiðlu og lágfiðlu". Þá fylgdi með ábending, að: „Fiðlurödd- ina má leika á klarinett." Það er talið að Mozart hafi samið verkið fyrir kunningja fjöl- skyldu (Jacquin) og sjálfur leikið á lágfiðluna, en vinur hans, Anton Stadler, á klarin- ettið og heimasætan á píanóið. Mozart-fræðimenn telja að síðasti kaflinn gefi sterka ábendingu um breytingar á tónsmíðatækni tónskáldsins, þar sem merkja má hvernig hann er að vaxa frá venju- bundnum aðferðum varðandi form og rithátt. Verkið í heild er elskulegt, fullt af vinarhlýju og þarf að koma meira til en samstilling í flutningi slíkra verka. Hljóðfæraleikararnir þurfa að tala sama mál, túlka eina hugmynd, en ekki þrjú mismunandi viðhorf. Philip Jenkins fór með píanó-hlut- verkið, Einar Jóhannesson lék á klarinettið og Mark Reed- man lék á lágfiðluna, allir ágætir tónlistarmenn, en náðu ekki að gæða leik sinn þeirri samhygð í túlkun, sem nauð- synleg er í kammertónlist. Það er annað að spila en að túlka og kom það fram í næsta verki, fiðlusónötu K.296, sem þeir léku saman Philip Jenkins og Mark Reedman. Þar var leikið beint af augum án þess að gera nokkra verulega tilraun til annars en vera stundvís, sem er einkenni „rútínumennsk- Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON unnar“. C-dúr sónatan K.296 er ein af svo nefndum Mann- heimsónötum sem Mozart er talinn hafa samið, er hann dvaldist í Mannheim 1778. Hann var þá undir mjög sterk- um áhrifum af Johanni Crist- ian Bach, en í C-dúr sónötunni fitjar hann upp á ýmsu óþekktu í samspili fiðlu og píanós. Síðasta verkið á efnis- skránni var svo Kvartett fyrir þrjá strengi og píanó, K.493. Snemma á árinu 1786 gefur Hoffmeister út kvartett eftir Mozart og mun hafa haft í huga að gefa út tvo aðra, sem ekki varð af, vegna þess að viðskiptavinunum fannst sá fyrsti vera of erfiður. Það var ekki aðeins að Kvartettanir K.478 og 493 væru erfiðir, heldur var á þessum tíma ekki mikið til af píanókvartettum yfirleitt og slík hljóðfæraskip- an þá nokkuð nýmæli. Þeir sem stóðu að flutningi kvart- ettsins voru Philip Jenkins á píanó, Mark Reedman fiðlu, Stephen King víólu og Carmel Russill selló. Margt var fallega gert í þessu verki en sem heild var það ekki miklu meira en samspil, án samhæfðrar túlk- unar. Jón Ásgeirsson Frá keppni hjá Bridgefélagi Reykjavíkur en þar stendur yfir sveitakeppni með 7 spila leikjum. Ljósm. Arnór. Brldge Umsjóní ARNÓR RAGNARSSON Bridgeklúbbur hjóna Barometerkeppni félagsins lauk sl. þriðjudag með glæsi- legum sigri Guðmundar Péturs- sonar og Esterar Jakobsdóttur sem hlutu 369 stig yfir meðal- skor. Staða efstu para varð annars þessi: Guðríður — Sveinn 257 Dröfn — Einar 165 Erla — Gunnar 149 Ólöf — Hilmar 131 Gunnar — Sólveig 121 Jón — Dúa 102 Gísli — Ólöf 94 Bjarni — Valgerður 92 Þorvaldur — Svava 68 Alls tóku 30 pör þátt í keppn- inni. Síðasta keppnin á vetrinum verður fjögurra kvölda hrað- sveitakeppni, sem hefst 25. marz. Spilað er í Rafveituhúsinu við Elliðaár. Tafl- og bridge- klúbburinn Fimmtudaginn 13. mars voru spilaðar 7 umferðir í Barometer hjá félaginu. Staða 8 efstu para eftir 14 umferðir er þessi: Þorsteinn Kristjánsson — Rafn Kristjánsson 136 Þórhallur Þorsteinsson — Bragi Björnsson 128 Hilmar Ólafsson — Ólafur Ásmundsson 119 Baldur Ásgeirsson — Hermann Jónsson 103 Finnbogi Guðmundsson — Hróðmar Sigurbjörnsson 101 Viðar Jónsson — Skafti Jónsson 98 Bragi Jónsson — Dagbjartur Grímsson 69 Guðrún Jörgensen — Vigfús Pálsson 56 Fimmtudaginn 20. mars verða spilaðar 7 umferðir (15—21) í Barometer keppninni. Spilað verður í Domus Medica, spilarar mætið stundvíslega kl. 19.30. Bridgedeild Breiðfirðinga Átján umferðum af 41 er lokið í barometertvímenningi félags- ins og er staða efstu para nú þessi: Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigvaldi Þorsteinsson 255 Gísli Víglundsson — Þórarinn Árnason 230 Magnús Oddsson — Þorsteinn Laufdal 218 Albert Þorsteinsson — Sigurður Emilsson 203 Gunnlaugur Karlsson — Guðmundur Sigurst. 191 Guðlaugur Karlsson — Óskar Þór Þráinsson 146 Jón Pálsson — Kristín Þórðardóttir 145 Jón Stefánsson — Magnús Halldórsson 140 Guðjón Kristjánsson — Þorvaldur Matthíasson 139 Ása Jóhannsdóttir — Sigríður Pálsdóttir 125 Næstu umferðir verða spilað- ar á fimmtudaginn kemur í Hreyfilshúsinu og hefst keppnin stundvíslega kl. 19.30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.