Morgunblaðið - 18.03.1980, Side 5

Morgunblaðið - 18.03.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980 Píanótónleikar á Kjarvalsstöðum Svissneskur píanóleikari, próf- essor Sava Savoff frá Ziirich, mun halda tónieika í kvöld á Kjarvalsstöðum. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir Franz Schubert. Undanfarna daga hefur prófessor Savoff hald- ið námskeið um túlkun píanó- verka Schuberts í Tónlistarskól- anum i Reykjavík. Sava Savoff fæddist í Varna í Búlgaríu, en hlaut menntun sína í Þýzkalandi hjá Max Pauer og Eduard Erdmann. Hann á langan og farsælan feril að baki sem tónlistaruppalandi, fyrst í Þýzka- landi en síðan í fjóra áratugi í Sviss. Prófessor Savoff var 1 rúman áratug rektor Tónlistarháskólans í Zúrich og hefur lengi verið yfirmaður píanódeildar þessa skóla. Hann hefur haldið tónleika víða um Evrópu og er sérstaklega virtur fyrir túlkun sína á verkum Schuberts. Bann við togveiðuin á Strandagrunni Sjávarútvegsráðuneytið gaf í gær út reglugerð um bann við veiðum með fiot- og botnvörpu á svæði á Strandagrunni, sem markast af línum dregnum milli eftirgreindra punkta: 1. 66°59’0 N, 2. 67°02’4 N, 3. 66°50’0 N, 4. 66°46’0 N, 22°45’0 V 21°47’0 V 21°36’0 V 22°31’0 V Bann þetta, sem gildir um óákveðinn tíma, er sett að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar þar sem smáþorsks hefúr endurtekið orðið vart á þessu svæði og til skyndilokana hefur komið af þeim sökum. Hafrannsóknastofnun mun áfram fylgjast með ástandi fisks á þessu svæði. Á meðfylgjandi korti er þetta nýja svæði þverstrikað en svæðið norðan þess er friðaða svæðið norður af Kögri, sem að mestu hefur verið óbreytt í nokkur ár. Sava Savoff píanóleikari Góð byrjun hjá Jóni og Margeiri i Lone Pine ÍSLENZKU skákmeisturunum Margeiri Péturssyni og Jóni L. BSRB: Erindi um líf- eyrissjóðinn KRISTJÁN Thorlacius, formað- ur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja mun flytja erindi um lifeyrissjóðsmál að Grettisgötu 89, miðvikudaginn 19. marz klukkan 20,30. Kristján á sæti í stjórn Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríksins og er ástæða til þess, segir í fréttatil- kynningu frá BSRB, að hvetja félagsmenn til þess að að koma og fræðast um þessi viðkvæmu og þýðingarmiklu mál. Ástæða er til að minna á að nýverið hefur stjórn sjóðsins tekið ákvörðun um verðtryggingu lífeyrissjóðslána og sýnist sitt hverjum um ágæti þeirrar ráðstöfunar. Kristján Thorlacius mun að auki fjalla um aðildarrétt að sjóðunum, stofnun sjóðsins, lána- réttindi og lánaskilmála. Árnasyni gekk vel í 1. umferð Luis D. Statham skákmótsins í Lone Pine í Bandarikjunum, sem hófst sl. sunnudag. Jón vann bandariska stórmeistar- ann Christiansen en Margeir gerði jafntefli við stórmeistar- ann Torre frá Filipseyjum. Christiansen hafði hvítt gegn Jóni og tefldi stíft til sóknar á kóngsvæng en Jón blés til sóknar á drottningarvæng. Tefldi Jón skákina mjög vel og vann í 47 leikjum. Margeir hafði svart gegn Torre, sem fékk hagstætt tafl en hann komst ekkert áleiðis gegn öruggri taflmennsku Margeirs og var jafntefli samið eftir 30 leiki. Hamrahlíðarkórnum vel f agnað á Húsavík Húsavik, 17. marz. HAMRAHLÍÐARKÓRINN skemmti Húsvikingum sl. laug- ardag með söng og hljóðfæra- slætti undir frábærri stjórn Þor- gerðar Ingólfsdóttur við mikla hrifningu áheyrenda. Aðsókn var góð, þvi menn eru hér minnugir fyrri heimsóknar kórsins fyrir 3 árum. Það vekur menn til umhugsunar hvernig Menntaskólinn við Hamra hlíð hefur getað haft starfandi kór í 13 ár, sem að gæðum er á heimsmælikvarða, en aðrir sam- bærilegir skólar hafa enga kóra. Rússarnir koma 20. marz EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Mikið mannaval er að vanda á þessu móti, ekki færri en 23 stórmeistarar en keppendur eru alls 43 að tölu. Stigahæstu menn eru Georghiu, Balashov, Larsen, Geller, Miles, Gligoric, Browne, Panno og Torre. Það vakti veru- lega athygli að í 1. umferðinni tapaði Browne fyrir kornungum landa sínum Benjamin og Erm- enkov varð að lúta í lægra haldi fyrir ungum Bandaríkjamanni Wilder að nafni. Luis D. Statham er milljóna- mæringur, sem stendur fyrir mótinu og eru verðlaunin þau ríflegustu sem þekkjast eða 6 milljónir fyrir 1. sætið. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad- kerfi. Leiðrétting í Mbl. á sunnudaginn var frétt um fund sem verður í Laugarnes- kirkju í kvöld á vegum Kristilegs félags heilbrigðisstétta. Fyrirsögn á frétt þessari misritaðist en rétt er hún þannig: Svar við gátu þjáningarinnar. Eru hlutaðeig- endur beðnir velvirðingar á þess- um mistökum. Ekki væri sanngjarnt að gera kröfu til þess, að allir skólar hefðu jafngóða kóra og Hamrahlíðar- kórinn er, en þeir ættu a.m.k. að geta látið til sín heyra. Eða er ekki til í landinu nema ein Þorgerður? Þessi heimsókn Hamrahlíðar- kórsins er menningarviðburður hér úti á landsbyggðinni og ætti ríkisvaldið að gera kórnum fjár- hagslega fært að fara sem víðast um landið. Rektor skólans, Guð- mundur Arnlaugsson, var farar- stjóri og má það vera honum ánægja að fylgja slíkum æsku- hópi. Fréttaritari siglinga og fiskileitartæki frá SIMRAD lausn sem skipstjóranum líkar! SKIPPER 802 8 tommu þurrpappir, 4 aðalsvið að 2100 metrum, Ijóstölu dýpis- teljarl innbyggður, rofi milli metra, faðma og fet. Spenna 10,5-48 volt jafnstraum eða 220 volt riðstraum, 750 watta sendl- orka. SKIPPER 603 6 tommu þurrpappir, 4 aðalsvið að 1100 metrum, sambyggður Ijóstölu dýpisteljarl, 300 watta sendlorka, spenna 11—40 volt jafnstraumur. SKIPPER 701 4 tommu þurrpappir, dýptarsvið að 560 metrum, 100 watta sendiorka, 50 kf lórlða tiðni, 11-40 volta jafnstraumur. SKIPPER DX 60 résa Duplex ör- bylgjustöð, sendlorka 25 wött og 1 watt, auðveld að koma fyrir á vegg, borði eða i loft, 24 volta jafnstraumur. SKIPPER SJÁLFSTÝRING Sjálf- stýring í allar gerðlr báta, hentugar við allar gerðir kompása. l FRIDRIK A.-IO.\SSO\ HF. BRÆÐRABORGARSTIG 1 — SIMAR 14135- 14340

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.