Morgunblaðið - 18.03.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.03.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980 21 Ásdís og Árni eru efst í bikar- keppni S.K.Í. Bikarmót í alpagreinum fór fram í Bláfjöllum um helgina. en mótið er iiður í Bikarkeppni Skíðasambands íslands. Ofærð og rafmagnsleysi gerðu mótshaldið erfitt, þar sem starfsmenn og keppendur urðu að fara á vélsleðum á mótsstað í Kóngsgili. Veður var hinsvegar ágætt og tókst að ljúka mótinu á tilsettum tíma á sunnudag. Mótsstjóri Þorsteinn Þorvaldsson afhenti verðlaun og sleit mótinu. Á mótinu voru notuð ný mjög fullkomin tímatökutæki. hönnuð og smíðuð af fyrirtækinu Rafagnatækni í Reykjavik, en verið er að taka í notkun sams konar tæki í tveim öðrum héruðum. Skíðadeild Ármanns annaðist framkvæmd mótsins. Staða efstu manna í Bikarkeppni SKÍ er nú þessi. Konur: stig 1. Ásdis Alfreðsdóttir R. 145 2. Nanna Leifsdóttir A. 105 3. Steinunn Sæmundsd. R. 103 4. Halldóra Björnsdóttir R. 83 Círslit i stórsvifti kvenna: Rdð 1 Ásdis Alfreðsson R. 2. Steinunn Sæmundsdóttir R. 3. Nanna Leifsdóttir A. 4. Halldóra Björnsdóttir R. 5. Ásta Ásmundsdóttir A. 6. Hrefna Magnúsdóttir A. 7. Anna Eðvarðsdóttir A. 8. Björk Harðardóttir R. 9. Marta Óskarsdóttir R. 10. Lena Hallgrimsdóttir A. 11. Ragnhildur Skúladóttir R. 12. ’ Bryndís Pétursdóttir R. Stórsvig karla: 1. Árni Þór Árnason R. 2. Haukur Jóhannsson A. 3. Valdimar Birgisson 1. 4. Helgi Geirharðsson R. 5. Bjarni Sigurðsson H. 6. Björn Vikingsson A. 7. Einar Úlfsson R. 8. Elias Bjarnason A. 9. Jónas Ólafsson R. 10. Bjarni Bjarnason A. 11. Guðmundur Gunnlaugsson R. 12. Guðmundur Jakobsson R. 13. Einar Þiir Bjarnason R. 14. Ægir Þór Jónsson R. Svig konur: 1. Ásdis Alfreðsdóttir R. 2. Nanna Leifsdóttir A. 3. Halldóra Björnsdóttir R. 4. Ásta Ásmundsdóttlr A. 5. Anna Eðvarðsdóttir A. 6. Hrefna Magnúsdóttir A. 7. Lena Hallgrimsdóttir A. Svig karla: 1. Haukur Jóhannsson A. 2. Karl Frimannsson A. 3. Kristinn Sigurðsson R. 4. Bjarni Sigurðsson H. 5. Valdimar Birgisson í. 6. Elias Bjarnason A. 7. Bjarni Bjarnason A 8. Guðmundur Jakobsson R. 9. Árni Sigurðsson R. 10. Rikharð Sigurðsson R. 11. Halldór Ingólfsson R. kariar Alpatvikeppni: Haukur Jóhannsson A. 16.43 Valdimar Birgisson í. 61.52 Bjarni Sigurðsson II. 66.11 Elias Bjarnason A. 89.18 Bjarni Bjarnason A. 116.87 Guðmundur Jakobsson R. 210.55 Karlar: , stig 1. Árni Þ. Árnason R. 120 2. Haukur Jóhannsson A. 110 3. Sigurður Jónsson í. 83 4. Bjarni Sigurðsson H. 55 1. Ferð 2. Ferð Samtals 53.89 51.85 105.74 55.36 52.19 107.55 55.23 53.67 108.90 57.12 54.43 111.55 57.49 54.90 112.39 58.29 55.58 113.87 59.08 57.22 116.30 59.44 57.12 116.56 59.28 57.43 116.71 60.53 56.43 116.96 59.33 58.71 118.04 60.49 58.07 118.56 54.59 50.12 104.71 56.00 50.94 106.94 57.22 51.37 108.59 56.59 52.82 109.41 56.80 52.63 109.43 59.26 51.15 110.41 58.97 51.87 110.84 59.18 52.32 111.50 59.09 52.95 112.04 59.59 53.29 112.88 60.80 53.07 113.87 61.38 61.67 123.05 61.69 61.67 123.36 68.97 58.03 127.00 51.43 55.56 106.99 52.96 57.41 111.37 53.41 58.09 111.50 56.15 61.09 117.24 58.08 61.91 119.76 58.50 62.26 120.76 57.22 66.12 123.34 46.63 48.67 95.30 49.13 48.15 97.28 49.68 48.97 98.65 50.65 48.61 99.26 50.94 48.50 99.44 51.46 48.88 100.34 51.96 50.74 102.70 53.82 52.42 106.24 54.53 53.10 107.63 57.43 51.91 109.34 58.49 54.62 113.11 Konur: Ásdís Alfreðsdóttir R. 0.00 Nanna Leifsdóttir A. 54.24 Halldora Björnsdóttir R. 73.89 Ásta Ásmundsdóttir A. 118.88 Hrefna Magnúsdóttir A. 152.15 Anna Eðvarðsdóttir A. 163.61 Lena Hallgrimsdóttir A. 199.49 • Ásgeir Sigurvinsson í baráttu um knöttinn. Verður hann belgískur meistari í knattspyrnu eftir langa bið? fltli líklega til Dortmund um páskana „ÞAÐ er möguleiki á því að ég fari út til Dortmund strax um páskana og skoði aðstæður hjá liðinu og til frekari viðræðna við forráðamenn félagsins,“ sagði Atli Eðvaldsson í samtali • Willy Reinke sat í Laugardalshöll um helgina og fylgdist vel með Atla Eðvaldssyni í leikjum Vals. Á innfelldu myndinni handf jatlar Atli íslandsmeistara bikarinn sem Valur tryggði sér með glæsibrag. við Mbl. í gær, en hér á landi er nú staddur umboðsmaður frá vestur-þýska stórliðinu Boruss- ia Dortmund. Hefur hann átt viðræður við Atla og Valsmenn, en hann hverfur af landi brott í dag. „Þetta er óneitanlega mjög spennandi, þetta er eitt af topp- liðum Vestur-Þýskalands og ég held að maður geti varla byrjað ofar. Auk þess eru engir útlend- ingar hjá liðinu og myndi minn hagur vænkast við það, en þýsku liðin mega aðeins nota tvo er- lenda leikmenn í einu,“ sagði Atli ennfremur. Vissulega er þetta eitt af bestu liðum Vestur-Þýskalands, var meira að segja í efsta sæti deildarinnar lengi framan af vetri. Liðið þjálfar hinn kunni Udo Lattek, maðurinn sem gerði Bayern Miinchen og Borussia Mönchengladbach að stórveldum á sínum tíma. Að sögn Atla hefur umboðs- maðurinn, sem reyndar heitir Willy Renke, aðeins nefnt nafn Dortmundar-liðsins. Hins vegar vinnur Renke þessi fyrir önnur lið og Mbl. telur sig hafa góðar heimildir fyrir því að þrjú önnur lið hafi mikinn hug á að ræða við Atla, en það eru Feyenoord í Hollandi, Royal Antwerpen og Lokeren í Belgíu. — gg. Ðikarkeppni HSÍ Valur - FH í kvöld Matti fór í Val! MATTHÍ AS Hallgrímsson gekk um helgina frá félagaskiptum úr ÍA og yfir í Val. Um nokkurt skeið hefur Matthías veriðóráð- inn og mætti t.d. m.a. á æfingu hjá Fram. Þá kom einnig til niála að hefja æfingar á ný með íA, en sem sagt, varð ofan á hjá kappanum að ganga í Val. Matthías er mjög leikinn og reyndur knattspyrnumaður og ætti að geta styrkt lið Vals, sem hefur séð af leikmönnum að undanförnu, eins og t.d. Herði Hilmarssyni til Svíþjóðar og Hálfdáni Örlygssyni til KR. Og missir Vals yrði enn meiri ef Atli Eðvaldsson færi i atvinnu mennsku eins og ýmislegt virð- ist benda til. STÓRLEIKUR fer fram í bik- arkeppni HSÍ i kvöld i Laugar- dalshöllinni er FH mætir Val í átta liða úrslitum keppninnar. Þau lið sem nú hafa þegar tryggt sér sæti i 4 liða úrslitum keppninnar eru KA, KR, Hauk- ar og svo annað hvort Valur eða FH. Mikið er í húfi þar sem sigur í bikarkeppni tryggir Evrópukeppni í haust. Lið FH og Vals hafa leikið tvo leiki í vetur og báðir hafa verið jafnir og spennandi. Má því búast við miklum hörkuleik er liðin mæt- ast i kvöld. —Það verður hörku- keppni um titilinn — ÞAÐ verður hörkukeppni um titilinn, sagði Ásgeir Sig- urvinsson i samtali við íþnitta- siðuna á sunnudagskvöldið, en fyrr um daginn hafði lið hans Standard Liege unnið RWD Molenbeek á heimavelli 3:1 og skotist upp i 2. sætið i belgísku deildarkeppninni. Lið Arnórs Guðjohnsens, Lokaren, sem lengi vel hafði forystu i deild- inni varð fyrir þvi áfalli að tapa 1:2 á heimavelli fyrir Winter- slag og missti þar með tvö dýrmæt stig. Það voru 30 þúsund áhorf- endur á leiknum á sunnudaginn og mikil stemmning. Molenbeek byrjaði vel, skoraði mark á fyrstu minútum leiksins. Well- ens jafnaði metin með skalla- marki um miðjan hálfleikinn og Graf kom Standard yfir 2:1 á siðustu minútu f.h. með þrumu- skoti af löngu færi., Á 20. minútu s.h. innsiglaði Önal sig- ur Standard þegar hann skor- aði eftir frábæran einleik Ralf Edström. FC Briigge vann CS Briigge 3:2 og hefur tveggja stiga forystu eftir 27 umferðir eða 39 stig. Standard er í 2. sæti með 37 stig, Lokaren og Molenbeek hafa 36 stig og Anderlecht er í fimmta sæti með 34 stig. Sjö umferðir eru nú eftir. Lokaren átti í basli við Wint- erslag og varð að þola tap á heimavelli. Að sögn Ásgeirs spil- aði Arnór Guðjohnsen með Lok- aren og skoraði mark en það var dæmt af vegna þess að knöttur- inn hafði farið út fyrir enda- mörk áður en hann var gefinn á Arnór. Winterslag er ósigrað eftir áramótin en nokkru fyrir jól tapaði liðið 12:0 fyrir Stand- ard en vann síðan Standard 1:0 um fyrri helgi, en þá lék Ásgeir ekki með, þar sem hann var í leikbanni. Um næstu helgi ieikur Stand- ard við Anderlecht í undanúr- slitum bikarkeppninnar á heimavelli og er þegar uppselt á leikinn. Fyrri leikur liðanna endaði með jafntefli 1:1. Af öðrum íslenzkum knatt- spyrnumönnum í Belgíu er það að frétta að lið Ólafs Sigurvins- sonar, Searing, stefnir í sigur í 3. deild, hefur 8 stiga forystu og er taplaust. í 2. deild tapaði La Louviere, lið þeirra Karls Þórð- arsonar og Þorsteins Bjarnason- ar 0:1 á heimavelli fyrir neðsta liðinu og er í bullandi fallhættu. Karl lék með en Þorsteinn hefur ekki verið í aðalliði félagsins nú um nokkra hríð. Belgia: Anderlecht — Antwerp 3:1 Waterschei — FC Liege 4:0 Waregem — Beveren 1:0 Lokaren — Winterslag 1:2 Hasselt — Beerschot 1:2 Lierse — Charleroi 3KI Cercle Brugge — FC Brugge 2:3 Berchem — Beringen 1:0 Standard — Molenbeek 3:1 FC Brugge hefur nú forystuna. hefur 39 stig eftir 17 leiki. Standard er i öðru sseti með 37 stig, en hefur aðeins leikið 15 leiki. Siðan koma Lokeren og Molenbeek með 36 stig hvort fólag. Lokeren eftir 16 leiki. en Molenbeek eftir 14 leiki. Af þessu má sjó. að staða Standard er afar sterk, en óilu lakari hjá Lokeren. sem leiddi deildina lengi framan af vetri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.