Morgunblaðið - 18.03.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
23
Valur Islandsmeistari
Þórir hitti á „draumaleikinn" þegar mestu máli skipti
KR-ingar koma eflaust tvíefldir
til leiks næsta vetur eftir von-
brigðin í vetur og vafalaust veita
þeir Valsmönnum verðuga keppni.
Lið með þá Keit Yow, Geir Þor-
steinsson, Garðar Jóhannsson og
Jón Sigurðsson innanborðs þarf
ekki að kvíða framtíðinni en
breiddin mætti vera meiri. í gær-
kvöldi báru þeir af Yow og Jón
Sigurðsson.
Dómarar voru Guðbrandur Sig-
urðsson og Sigurður Valur Hall-
dórsson og dæmdu þeir mjög vel.
STIG Vals: Þórir Magnússon 32,
Tim Dwyer 28, Kristján Ágústs-
son 15, Torfi Magnússon 11, Jón
Steingrimsson 6, Jóhannes Magn-
ússon 4, Ríkharður Hrafnkelsson
4 stig.
STIG KR: Keit Yow 45, Jón
Sigurðsson 24, Garðar Jóhanns-
son 12, Geir Þorsteinsson 5,
Birgir Guðbjörnsson 4, Árni Guð-
mundsson 2 stig.
Að leik loknum afhenti
Kristbjörn Albertsson formaður
KKÍ Valsmönnum sigurlaunin og
var þeim að vonum vel fagnað.
-SS.
Sagt eftir leikinn:
„Loksins íslandsmeistari
eftir 19 ár í körfunni“
— sagöi Þórir Magnússon, sem átti stórleik er Valsmenn uröu íslandsmeistarar
ÞÓRIR Magnússon hefur eflaust sofnað sæll og glaður i gærkvöldi. í
19 ár hefur hann keppt i meistaraflokki i íslandsmótinu i
körfuknattleik, fyrst með KFR og siðan með Val eftir að þar var
stofnuð körfuknattleiksdeild. 1 gærkvöldi fékk hann draum sinn
uppfylltan þegar Valur vann KR og varð íslandsmeistari og þar með
varð Þórir Islandsmeistari i fyrsta skipti. En sagan er ekki öll sögn
ennþá. Þórir átti draumaleikinn i gærkvöldi, það var hann sem öðrum
framur lagði grunninn að sigri Vals með stórkostlegum leikkafla i
seinni hálfleik þegar hann skoraði 20 stig á skömmum tima. Valur
náði þá svo góðu forskoti, að KR-ingar náðu ekki að jafna leikinn þótt
litlu munaði i lokin. Alls urðu stigin 32 hjá Þóri. Hann skyggði á aðra
leikmenn i gærkvöldi, sannarlega maður leiksins. Sigur Vals var
verðskuldaður. 100:93 eftir að staðan hafði verið 57:46 i hálfleik.
Verðskuldaður sigur Vals i leiknum og verðskuldaður sigur Vals i
þessu spennandi og skemmtilega tslandsmóti. Það var engin furða
þótt Valsmenn og stuðningsmenn þeirra dönsuðu villtan gleðidans á
fjölum Laugardaishallarinnar i gærkvöldi, erfið barátta var að baki
og uppskeran rikuleg.
Mikil áföll í vetur dæmdu
KR-inga úr leik í keppninni um
íslandsmeistaratitilinn en þeir
veittu Val harða keppni í gær-
kvöldi. Og Bandaríkjamaðurinn í
KR-liðinu, Keit Yow, sýndi það og
sannaði í leiknum i gærkvöldi að
hann mun styrkja KR-liðið mjög
næsta vetur verði hann með því
áfram. Geysisterkur leikmaður,
sem eflaust mun verða KR-ingum
jafndrjúgur og Tim Dwyer hefur
verið Valsmönnum í vetur.
Gangur leiksins
En snúum okkur að leiknum.
Taugaveiklunar gætti allnokkuð í
byrjun og var lítið skorað til að
byrja með. En síðan fóru bæði
liðin í gang svo um munaði og
skiptust á um að hafa forystuna
fram í miðjan hálfleik. En þá tóku
Valsmenn góðan sprett og þá
sérstaklega Þórir, sem skoraði 8
stig í röð og Vaiur var kominn á
sigurbraut. Staðan í hálfleik var
57:46, góð forysta Vals.
í byrjun seinni hálfleiks hófst
Þóris þáttur Magnússonar. Hann
skoraði hvorki meira né minna en
20 stig úr 12 skottilraunum á
fyrstu 10 mínútum seinni hálf-
Ieiksins og réðu KR-ingar hreint
ekkert við hann. Á þessum kafla
var munurinn mestur 15 stig. En
úr því fóru Valsmenn að hægja á
sér í sókninni, boltinn barst nán-
ast aldrei út á kantinn til Þóris og
spilið varð vandræðalegt. KR-ing-
ar gengu á lagið og áður en menn
vissu af var staðan orðin 91:87,
aðeins fjögurra stiga munur þegar
5 mínútur voru eftir og allt gat
gerst. KR-ingar fengu reyndar
tækifæri til þess að minnka mun-
Valur-
KR
100:93
TVEIR aðrir leikir í úrvalsdeild-
inni í körfu fóru fram um helg-
ina. Stúdentar sigruðu í R í Haga-
skóla með 106—104 og Njarðvík-
ingar báru sigur af Fram, einnig
í Hagaskóla, 79—76. Vegna
þrengsla verður umsögn um þá
að bíða um sinn. Lokastaðan i
úrvalsdeildinni varð:
Valur 20 16 4 1813:1685 32
Njarðv, . 20 14 5 1692:1581 30
KR 20 11 9 1672:1608 22
ÍR 20 10 10 1815:1831 20
ÍS 20 6 14 1707:1805 10
Fram 20 2 18 1565:1747 4
Fram fellur í 1 . deild og i sæti
Fram i úrvalsdeildinni tekur
Ármann.
lögð fram, margfaldlega. í fyrra
sagðist ég ætla að koma fjár-
hagnum í lag — og ég fékk
marga góða menn í lið með mér í
stjórnina. Við stefndum á meist-
aratign í vetur. Það hefur tekist
og á miðvikudag vinnum við
bikarinn. Nú Tim Dwyer hefur
unnið stórkostlegt starf í vetur.
Hvort hann verður ráðinn? Það
á alveg eftir að ræða — við
munum setjast niður þegar tími
gefst. Nú er bikarinn efst í huga
okkar."
Valsmenn eiga sigurinn
fyllilega skilið
„Valsmenn eiga sigurinn fylli-
lega skilið — þeir hafa verið með
heilsteyptasta liðið í vetur,"
sagði Jón Sigurðsson. lands-
liðsmaðurinn góðkunni úr KR.
„Það hefur skipt sköpum að
Valsmenn hafa ekki orðið fyrir
skakkaföllum eins og hefur orðið
raunin með öll önnur lið. Það
gerði gæfumuninn fyrir þá. En
sigurinn eiga þeir skilið — þeir
sýndu góðan leik í kvöld og ég
óska þeim til hamingju jafn-
framt því að ég heiti því, að
þetta verði ekki svona auðvelt
fyrir þá næsta vetur," sagði Jón
Sigurðsson.
H Halls.
„LOKSINS, loksins íslands-
meistari eftir 19 ár í körfunni,"
sagði Þórir Magnússon, Vals-
maðurinn snjalli sem í gær-
kvöldi sýndi allar sínar gömlu
góðu hliðar og skoraði hverja
glæsikörfuna af annarri fyrir
Valsmenn. „Það var að duga eða
drepast — það kom ekkert annað
til greina en að standa sig,“
sagði Þórir ennfremur.
Hann var kátur og ánægður
eftir sigurinn. „Ég fann fjölina
mína, þegar körfuskotin fóru
niður þá var það sama tilfinning
og í gamla daga.“ Ætlar þú að
leggja skóna á hilluna nú þegar
íslandsmeistaratign er í höfn og
bikarinn á miðvikudag. „Nei, ég
held ótrauður áfram — næsta
vetur er það Evrópukeppnin,"
sagði Þórir og brosti.
Enginn getur stöðvað
okkur nú
„Nú getur enginn stöðvað okk-
ur — við vinnum bikarinn á
miðvikudag og þar með okkar
þriðja titil í vetur. íslandsmeist-
aratitillinn og Reykjavíkur-
meistaratitillinn eru í höfn.
Næst er það bikarinn — enginn
skal stöðva okkur," sagði Tim
Dwyer, Bandaríkjamaðurinn í
liði Vals sem á sínu öðru ári í
íslenzkum körfuknattleik leiddi
Val til sigurs í íslandsmótinu.
Hann hefur án nokkurs vafa
verið jafnbezti leikmaður ís-
landsmótsins í vetur.
Hvernig er það að vera ís-
lenzkur meistari? „Það er stór-
kostlegt. Þessi titill er mér
mikils virði en strákunum í
liðinu enn meira virði. Þeir eiga
þetta skilið. KR lék mjög vel í
kvöld en strákarnir sýndu kar-
akter sinn og stóðust eldraunina.
Öll pressan var á okkur, engin á
KR-ingum.“ Verður þá þriðja
árið á Islandi. „Það hefur ekkert
verið um það rætt svo ég hef
ekki hugmynd um það — stjórn-
arinnar er að ákveða það,“ sagði
Dwyer.
Samstaðan með
ólíkindum
„Samstaða strákanna í vetur
hefur verið með ólíkindum —
æfingasóknin mjög góð og sam-
heldni einstök," sagði Halldór
Einarsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar Vals, kampa-
kátur eftir sigur sinna manna í
gærkvöldi. „Strákarnir spiluðu
toppleik, enda þurftu þeir þess
líka þar sem KR sýndi verðuga
mótspyrnu. Og enginn á sigurinn
betur skilið en Þórir Magnússi
sem hefur verið í körfunni í 19
Langþráð stund — Þórir hamp-
ar bikarnum.
og loks nú verður hann ís-
landsmeistari."
Nú er þetta annað árið, sem þú
ert formaður og íslandsmeist-
aratign í höfn. Hvað er þér efst í
huga? „Þetta er auðvitað svo
stórkostlegt að erfitt er að lýsa
því. Á svona stundum skilar sér
hin mikla vinna, sem hefur verið
inn niður í eitt stig en það
tækifæri gekk úr greipum þeirra.
Á síðustu mínútunum kom
reynsla Dwyers Valsmönnum að
góðum notum. Hann róaði spilið
niður, lengdi sóknarloturnar og
tvær körfur hans í röð á mikilvæg-
um augnablikum tryggðu sigur
Vals endanlega. Undir lokin léku
Valsmenn eins og þeir sem valdið
hafa og sigur þeirra var stað-
reynd, verðskuldaður sigur 100:93.
Verðugir meistarar
Það getur enginn borið á móti
því að Valsmenn voru verðugir
sigurvegarar í þessu íslaijdsmóti.
Innanborðs hafa þeir bezta út-
lendinginn, Tim Dwyer, geysi-
sterkan bæði í vörn og sókn.
Ómetanlegur leikmaður fyrir Val.
Aðrir burðarásar í liðinu eru
fyrirliðinn Torfi Magnússon, sem
átti jafnan og góðan leik í gær-
kvöldi, Kristján Ágústsson, sem
Ljósm. Emina.
hefur verið geysisterkur í vetur og
einn af beztu leikmönnum móts-
ins. Ríkharður Hrafnkelsson, sem
er einn bezti bakvörður okkar þó
ekki hafi hann verið í stuði í
gærkvöldi, Jón Steingrímsson,
sem sýnt hefur miklar framfarir í
vetur, Þórir Magnússon, en leikur-
inn í gærkvöldi var hápunkturinn
á ferli hans, og bróðir hans
Jóhannes, sem komið hefur inná á
mikilvægum augnablikum og
aldrei brugðist.
— íslandsmeistarar Vals í körfuknattleik 1979 —
1980.
STAÐAN