Morgunblaðið - 18.03.1980, Page 29

Morgunblaðið - 18.03.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980 29 Hvaö hefur gerst í Kröflueldunum? ÞÓTT enn einu sinni hafi orðið vasaútgáfueldgos á Kröflusvæð- inu þar sem áætlað er að 3—4 millj. rúmmetrar af hrauni hafi komið upp á yfirborð jarðar, þá er í rauninni um miklu meira eldgos að ræða og samkvæmt jarðsigi og sprungumyndunum á gossvæðinu má ætla að ekki minna en 100 milljón rúmmetrar alls af hrauni hafi verið á ferðinni í þessari lotu. Hraungos varð á tveimur stöðum á liðlega eins kílómetra langri gígsprungu á hvorum stað, en um tveir kílómetrar voru á milli hinna virku eldstöðva. Hins vegar fundust nú sprungur á mun lengra svæði en því sem hraun kom uppá, eða frá Hrútafjöllum og suður í Hrossadal sem er aðeins nokkra kílómetra norðan við Reykjahlíð við Mývatn. Sjáanleg lengd gossprungunnar er því um 30 km. Allmiklar sprungur mynduðust í Hrossa- dal, en það var einmitt þar sem eldgos skelfdi mjög Mývetninga árið 1727 er kvikuhlaup rann og snarpir jarðskjálftar fóru um með miklum hávaða. í þeim 14 goshrinum sem hafa orðið á Kröflusvæðinu frá því í Jarðfræðingur kannar nýja hraunið í gær, en hillingar af hitanum slá hvítri slikju á hraunið. Ljósmyndir Mbi.: Ragnar Axelsson. 500 milljón rúmmetra hraunrennsli á 5 árum en aðeins 1% ofanjarðar desember 1975 hefur hraun kom- ið fjórum sinnum upp á yfir- borðið, eða um það bil í þriðju hverja hrinu, en í hin skiptin hefur kvikuhlaup orðið neðan- jarðar. Frá 1975 til gossins nú er áætlað að um 400 milljón rúm- metrar af hrauni hafi hlaupið í svokölluð kvikuhólf neðanjarðar, en á Mývatnssvæðinu er grynnst á íslandi niður á hraunkviku. Hafa mælingar sýnt að kviku- hlaupin verða á 2—7 kOómetra dýpi í jarðskorpunni. Innan við 1% af þessum 400 milljón rúmmetrum hefur því komið upp á yfirborðið, en með síðustu hrinu s.l. sunnudag má áætla að sú tala hafi komizt upp í 500 milljón rúmmetra og er það mesta kvikuhlaupið á gostíma- bilinu frá 1975. Gosá 2kmaf 30 km Til samanburðar á stærðar- gráðu þeirrar kviku sem hefur verið á ferðinni tiltölulega grunnt undir Mývatnssvæðinu á þessum 5 árum má nefna að í Heklugosinu 1947 kom upp tæp- lega ein milljón rúmmetra, í Öskju 1961 komu upp 160 millj. rúmm., í Surtseyjargosinu 1963 til 1967 komu upp um 1200 millj. rúmm., í Heklugosinu 1970 komu upp um 200 millj. rúmm. og í Heimaeyjargosinu 1973 var gosmagnið sem upp kom um 240 millj. rúmm. Síðan 1975 hefur tuga kíló- metra breitt og langt svæði norðan Mývatns nær stöðugt risið og sigið með fyrrgreindum 14 goshrinum alls, 10 neðan jarðar, fjórum ofan jarðar. Fyrsta hraungosið varð 20. des. 1975 og hraunmagnið varð um 400 þús. rúmm., eða 0,4 millj. rúmm. Stóð það gos í nokkrar klukkustundir en meginhluti hraunsins rann á fyrstu 10 mínútunum. Annað hraungosið varð 27. apríl 1977 og er það minnsta gos sem sögur fara af á íslandi, eða aðeins 10 þús. rúmmetrar. Þriðja hraungosið varð 10. sept. 1977 og stóð það í nokkrar klukkustundir og hraunmagnið varð um 2 millj. rúmmetrar ofan jarðar og að auki vörubílshlass af hrauni, um það bil 3 tonn, sem kom upp úr borholu í Bjarnar- flagi. 10 km voru á milli borhol- unnar og aðalgígsins. Fjórða gosið varð 16. marz 1980 og stóð aðalgosið yfir í um þrjár klst. en gosvirkni var í 6—8 klst. Hraunmagnið í kvikuhlaupun- um 10 neðanjarðar hefur verið frá 20—70 millj. rúmmetrar og hefur verið grynnst niður á kvikuhlaupin nálægt Leirhnjúk eða um 2 km. í samtali á gosstöðvunum í gær við Eystein Tryggvason jarðfræðing sem varð vitni að því er nyrsti hluti virku sprung- unnar hóf að gjósa, sagði hann að þetta gos hefði verið ákaflega hljóðlátt. Ekki hefði heyrst púff fyrst þegar landið opnaðist, en hins vegar hafi yerið komin „kokhljóð" þegar fór að fjara út. I Heklugosinu 1970 og Heima- eyjargosinu 1973 var tiltölulega mikill hávaði. Eysteinn var við lengdarmæl- ingar við Þeystareykjarbungu á sunnudag og varð fyrst um kl. 4 var við strók sem honum þótti goslegur. Hélt hann þegar áleið- is að stróknum og fylgdist með nyrðra hraunflóðinu, en þar rann hraun á liðlega 1 km langri sprungu og stöðvaðist þegar það hafði runnið um það bil 1000 metra. Syðra hraunflóðið náði hins vegar aðeins nokkur hundr- uð metra lengd, en þykkt beggja hraunbreiðanna er liðlega einn metri. Sigið í þessu gosi var það hraðasta sem um getur á sl. 5 árum og í gær hafði Eysteinn mælt allt upp í 30 sm styttingu á línum sem eru 2—3 km á lengd. Hefur landið keyrst talsvert saman á svæðinu við eldsum- brotin. -á.j. gossprungu sl. sunnudag Gigbarmarnir á sprungunni eru ekki háir miðað við venjuleg eldgos á Islandi, en þarna stendur maður á botni dýpsta gigtappans. Gigtappinn lengst til hægri er sá sami og nærmynd er af hér við hliðina, en þessi mynd var tekin sl. sunnudag. Víða stigu gufur upp af sprungunni i gær og allviða sást i gkið þótt ekkert hraun rynni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.