Morgunblaðið - 18.03.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
Fréttir um mismunandi launakjör manna, sem vinna sömu
störf eftir því, hvort þeir eru félagsmenn í Verkamannafé-
laginu Dagsbrún eða aðilar að Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur eða BSRB hafa að vonum vakið verulega athygli. Svo
virðist sem Dagsbrúnarmenn geti búið við allt að 20—30% verri
launakjör en félagsmenn í Verzlunarmannafélaginu eða aðilar
að BSRB, þótt þeir vinni allir sömu störf. Óánægjan innan
Dagsbrúnar með þennan launamun er orðin svo mögnuð, að
Dagsbrún hafa borizt fjöldauppsagnir starfsmanna á einum og
sama vinnustað og hafa þessir félagsmenn sótt um aðild að
Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur.
Við því er að búast, að launþegar sætti sig ekki við það að
vinna sömu störf en fá mun lægri laun en starfsbræður þeirra
einungis vegna þess, að þeir eru í öðru launþegafélagi. En
hvernig stendur á því, að þessi launamunur hefur orðið til?
Ástæðan hlýtur að vera sú, að forráðamenn Dagsbrúnar hafa
ekki verið nógu vakandi um hagsmuni félagsmanna sinna.
Vafalaust kemur mörgum það spánskt fyrir sjónir, þar sem
Dagsbrún hefur lengi verið í fararbroddi í kaupgjaldsbaráttu
launþega. Það vekur hins vegar athygli, að forráðamenn
Dagsbrúnar hafa tekið þessum fréttum illa og sakað Morgun-
blaðið um að birta rangar fréttir. Þeir félagsmenn Dagsbrúnar,
sem hér eiga hlut að máli geta bezt dæmt um sannleiksgildi
frétta Morgunblaðsins en viðbrögð forystumanna Dagsbrúnar
vekja upp spurningar um það, hvort þeir hafi eitthvað að fela.
Dagsbrún hefur um áratugaskeið verið undir stjórn Alþýðu-
bandalagsmanna og þar áður Sósíalistaflokksins. Það er
alkunna, að baráttuharka Alþýðubandalagsmanna í launþega-
samtökunum fyrir hærra kaupgjaldi fer alveg eftir því, hvort
Alþýðubandalagið er í stjórn eða utan stjórnar. Ef Alþýðu-
bandalagið er aðili að ríkisstjórn eru forráðamenn Dagsbrúnar
og annarra launþegasamtaka reiðubúnir til að framlengja
kaupsamninga óbreytta. Ef Alþýðubandalagið er utan stjórnar
nota þeir launþegafélögin í pólitískan hernað þess á hendur
þeirri ríkisstjórn, sem við völd situr. Nú hefur Alþýðubandalag-
ið verið í ríkisstjórn frá haustinu 1978 með litlum hvíldum og þá
ganga forsvarsmenn Dagsbrúnar ekki of hart fram í kjarabar-
áttunni fyrir hönd félagsmanna sinna. Þetta er líklegasta
skýringin á því, að menn, sem vinna sömu störf, fá hærri laun, ef
þeir eru í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur en í Verkamanna-
félaginu Dagsbrún. Þessi staðreynd leiðir hugann að því, að það
er löngu tímabært, að launþegar hristi af sér ok pólitískra
flokka í launþegafélögunum. Fengin reynsla sýnir, að yfirráð
trúnaðarmanna pólitískra flokka í einstökum verkalýðsfélögum
leiða ekki til velfarnaðar fyrir óbreytta félagsmenn. Mikilsverð-
asta umbótin í starfi almennra verkalýðsfélaga nú er sú, að
hinir almennu félagsmenn taki völdin í sínar hendur frá
pólitískum kommissörum, sem þar hafa hreiðrað um sig um
áratuga skeið. Dagsbrúnarmálið sýnir, að slík umbótahreyfing á
vettvangi verkalýðshreyfingarinnar er orðin tímabær.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins hafa upplýst launþega um
það, að ekki sé grundvöllur til grunnkaupshækkana á þessu
ári. Þeir hafa ennfremur skýrt frá því, að þeir hafi gerzt aðilar
að núverandi ríkisstjórn til þess að verja kaupmátt launa. Það
er lítið samræmi í þessum yfirlýsingum og tillögum þeirra
Alþýðubandalagsmanna um það að hækka útsvarsprósentuna.
Útsvarið er brúttóskattur, sem kemur auðvitað þyngst niður á
láglaunafólki. Útsvarshækkun nú þýðir auðvitað minnkandi
ráðstöfunartekjur. Vissulega skortir sveitarfélögin fé en þau
verða eins og aðrir að draga úr rekstrarútgjöldum sínum. Það er
ekki endalaust hægt að ganga í vasa almennings. Útsvarshækk-
un nú þýðir 4—5 milljarða skattahækkun. Alþingi ætti að hugsa
sig vel um áður en það samþykkir slíka skattalækkun. Og
víst er um það, að sjálfstæðismenn, hvort sem þeir eiga aðild að
þessari ríkisstjórn eða ekki, hljóta að snúast gegn skattahækk-
un af þessu tagi.
s-
Utsvarshækkun?
p|iírsr0fM Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræu 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 230
kr. eintakiö.
Sigurbjörn Einarsson biskup:
Innhverf íhugun
og verðbólgan
í síðustu viku var kynnt áætl-
un um miklar umbætur á högum
íslendinga. Meðal annars er ætl-
unin að lækka verðbólguna.
Það atriði vakti að vonum
sérstaka athygli. Ekki af því, að
menn séu óvanir að heyra verð-
bólgu nefnda eða sjá hennar
getið á stefnuskrám. En hérlend
pólitísk snilli hefur ekki kunnað
þau brögð að finna, er dugi gegn
henni. Því er von menn taki
eftir, þegar úr annarri átt birt-
ast einföld ráð til lausnar á
þessum flókna vanda.
Fleira er í þessari áætlun
höfðinglegt, svo >sem það, að
Islendingar geti „lagt fram skerf
til sköpunar heimsfriðar", ef
þeir víkjast sæmilega undir
þetta mál. En málið er það, að
hálft hundrað íslendinga læri
„innhverfa íhugun", íhugunar-
tækni Maharishi Mahesh Yogi.
Þessi tækni kallast Trans-
cendental Meditation í útlöndum
og hafa íslenzkir boðendur henn-
ar kosið að kalla hana Innhverfa
íhugun, sem er íslenzka í sjálfu
sér en engin þýðing á útlenda
nafninu. Bæði eru nöfnin nokkuð
dularfull. Það er ekkert kyn. En
hitt er undarlegt, að þessi leið til
lækkunar verðbólgu skuli ekki
hafa verið kynnt rækilega fyrr
en nú, svo lengi sem verðbólgan
er búin að hrjá þjóðina og svo
ótæpilega sem Innhverf íhugun
hefur verið auglýst hér á landi
árum saman sem flestra meina
bót. Hvað um það: Nú hefur
þessi áætlun verið kunngjörð og
lögð bæði fyrir Norðurlandaráð
og forsætisráðherra Islands. En
góð ráð eru dýr. Það kostar þó
ekki meira en 60 milljónir að
kenna 50 Islendingum „inn-
hverfa íhugun Sidhikerfisins".
Aðeins 1,2 millj. á mann. Það eru
lítil björgunarlaun, ef heil þjóð
bjargast. Og allt verður endur-
greitt með verðbótum, ef í ljós
kæmi, að engin áhrif yrðu af
tilrauninni.
Þetta er stórmannlegt tilboð.
Enda engin smæð á bak við. Það
er „íslenzka stofnunin fyrir vís-
indi skapandi greinar og norræn
friðarnefnd heimsstjórnar tíma-
skeiðs uppljómunar.“ Þetta eru
glæsileg orð og dulmögnuð.
Seiðþrungin eins og nafn meist-
arans Maharisfci Madesh Yogi.
Og andlit hans, sem allir kann-
ast við. Hann situr í Sviss. Ég
veit ekki hvort margir geta
fengið að líta hann augliti til
auglitis en oft birtast myndir af
honum með auglýsingum um
Innhverfa íhugun og sem fyrir-
heit um uppljómun undir heims-
stjórn hans.
Nú er þess að bíða, hvernig
ríkisstjórnin tekur þessu tilboði
eða veðmáli. Henni til léttis,
þegar til ákvörðunar kemur, er
sú upplýsing, sem „stofnunin
fyrir vísindi skapandi greinar
o.s.frv." hefur látið henni í té:
Töfrar Maharishi Mahesh Yogi
hafa borið árangur í fylkinu
Rhode Island. Þar fjölgaði sól-
skinsdögum að mun, fækkaði
umferðarslysum og morðum, dró
úr atvinnuleysi. Þess er ekki
getið, hvað áætlunin á Rhode
Island hefur kostað, enda má
ráða í það af því, sem farið er
fram á að íslenzka ríkið leggi í
sjóð Maharishi Mahesh Yogi til
þess að hans óbrigðuli elixír
megi bæta náttúru lands og
þjóðar norður hér. Og hér er sem
sagt verðbólgan nokkuð ofarlega
á meinaskrá. Miðað við það sem
til tíðinda varð á Rhode Island,
ætti nú að vera fært að kveða
hana niður, loksins.
Það er reyndar ekki nýtt, að
auglýsendur Innhverfrar íhug-
unar fullyrði mikið um árangur-
inn af þessari íþrótt. Hvað eftir
annað hafa þeir staðhæft, að ef
nægilega margir kosti þessari
iðkun upp á sig (námsskeiðin í
„tækninni" kosta nokkurn pen-
ing), þá hafi það ekki aðeins
áhrif til bóta á sjálfa þá ein-
staklinga, sem í hlut eiga, heldur
á þjóðlíf og veðurfar. Þeir segja
þetta „margsannað". Ýmsir
munu telja þann málstað lítt
trúverðugan, sem styðst við slík-
ar staðhæfingar. Hér liggja eng-
ar sannanir fyrir, ekki einu sinni
sennilegar líkur.
En fjárþörf þessa trúboðs
virðist töluverð. Nýlega gerði
Innhverf íhugun snarpa atrennu
í Danmörku til þess að fá
viðurkenningu sem heilsubótar-
tækni eða læknisráð og komast
með því móti inn á sjúkratrygg-
ingar ríkisins. En auðvitað mis-
tókst það að koma þessu inn á
almannatryggingar. Danska
heilbrigðisstjórnin gaf út það
álit, að Innhverf íhugun væri
ekki nein vísindi né vísindalega
rökstudd tækni, trúarlega hlut-
laus, heldur trúariðkun, ind-
versk eða hindúísk í öllum
grundvallaratriðum. Þetta álit
er byggt á einróma greinargerð
þejrra trúnaðarmanna danskra
lækna, sem falið var að kanna
málavexti.
Sama niðurstaða liggur fyrir í
skýrslu, sem gefin var út í
Svíþjóð 1977 (Ottoson-skýrslan).
Sigurbjörn Einarsson
Hún byggist á rannsókn, sem
félagsmálastjórnin sænska lét
gera. Þar er gerð vísindaleg
grein fyrir aðferðum og eðli
Innhverfrar íhugunar og fyllsta
áherzla lögð á það, að hún geti
ekki með neinu móti talizt hlut-
laus tækni, hún verði að flokkast
undir átrúnað og trúariðkun,
hún sé í raun og framkvæmd
bundin indverskum guðum og
trúarhugtökum.
Það er óhjákvæmilegt að vekja
athygli á þeirri staðreynd, að
Innhverf íhugun er trúarhreyf-
ing. í öllum áróðri er þetta
aldrei látið koma fram, það er
alltaf talað um tækni aðeins og
vísindi. En Innhverf íhugun er
trúariðkun, hindúísk að uppruna
og eðli, hún byggir á indverskum
trúarforsendum og leiðir inn í
trúarlegan hugmyndaheim, sem
er ekki kristinn.
Enginn misskilji mig svo, að
ég telji ekki hverjum manni
frjálst að leita á slík mið til
fanga. Ég vil aðeins að menn viti
þetta og geri sér grein fyrir því,
hvað þeir eru að gera, ef þeir
fara að stunda þessa íhugunar-
aðferð. Þeir sem gangast undir
handleiðslu Maharishi Mahesh
Yogi og safnaðar hans, verða að
taka „vígslu" og hún felur í sér
fórnarathöfn, þar sem indversk-
ir guðir eru ákallaðir. Og þeir fá
s.n. „mantra", orð, sem þeir eiga
að styðjast við í iðkun sinni, það
er einskonar lykilsorð, sem á að
ljúka upp þeim djúpsviðum, sem
leitað er að. Og þetta „mantra"
er líka nafn á indverskum guði.
Ég tek það fram, að jóga-
iðkanir geta verið hlutlausar
trúarlega. Það er unnt að stunda
jóga sem einbera tækni. Einnig
getur kristinn maður tileinkað
sér marga jóga-aðferð og fellt
inn í trúariðkun sína. En það eru
til margar leiðbeiningar um
innri þjálfun, sem eru kristnar
alls kostar. Hinn kristni arfur er
auðugri en svo, að manni endist
ævin til að hagnýta sér hið
bezta, sem þar er geymt og
tiltækt, hvað þá að menn komist
yfir meira. Kristin íhugun, krist-
in hugleiðsla býr að ríkri reynslu
og þarf enginn langt að leita yfir
skammt til þess að sækja sér
svölun og blessun í þann nægta-
brunn.
Þetta er sagt í allri vinsemd í
garð þeirra, sem halda indversk-
um hugmyndum svo fast að
þjóðinni. Ég mun ekki þreyta
deilur við fulltrúa Innhverfrar
íhugunar. Ég vil aðeins í eitt
skipti fyrir öll benda á það, sem
hér hefur komið fram: Hér er
um trúboð að ræða. Eina grein
af þó nokkuð umsvifamiklu og
margþættu indversku trúboði.
Þetta er ekki sagt í niðrunar
skyni. Nema ef vera skyldi, að
menn hafi fallið fyrir þeirri
freistingu að hafa ekki uppi
réttan fána. Það er ámælisvert,
ef vísvitandi er gert. Sízt kæmi
mér til hugar að lítilsvirða
indverskar trúarhugmyndir.
Þær eru auðvitað misjafnar og
ýmislega notaðar af misjöfnum
mönnum. En enginn skyldi láta
lauma framandi trúarhugmynd-
um inn á sig undir fölsku
yfirskini. Dönsku læknarnir,
sem ég gat um, taka það einmitt
fram í áliti sínu, að fæstir þeir,
sem taka „vígslu" og fá „mantra"
hjá kennurum Innhverfrar íhug-
unar viti, hvað hin dularfullu orð
þýða, þeir haldi, að þeir séu
aðeins að fara með hlutlausar
samstöfur, án tengsla við
trúarbrögð. En það hafi oft
komið fyrir, að þegar menn
komust að hinu sanna í þessu, þá
hafi það orðið þeim andlegt
áfall, þeim hafi fundizt, að þeir
hefðu selt sig undir áhrif og
gengið máttarvöldum á hönd,
sem þeir ætluðu sér ekki að
„vígjast" og lúta. Og ýmsir
minntust þess þá, að þeir höfðu
ekki ætlað sér að hverfa frá
sinni kristnu trú, ekki vitandi
vits snúið baki við Jesú Kristi.
Þeir tóku það nærri sér að
uppgötva, að þeir höfðu í
grandaleysi tekið aðra trú, ját-
ast óþekktum, indverskum forn-
guðum.
Margir fleiri en dönsku lækn-
arnir hafa beint athygli að þessu
og ýmsum öðrum neikvæðum
staðreyndum sem fyrir verða í
slóð margra mjög auglýstra og
umsvifamikilla nýmóðins
trúhreyfinga. Meðal manna, sem
hafa látið til sín heyra í viðvör-
unar skyni, eru þó nokkrir, sem
hafa slitið sig úr neti þeirra
kerfa, sem þeir höfðu fest sig í,
og þótti sem þeir væru leystir úr
álögum. Til er í þessum hópi
fólk, sem hefur lagt stund á
Innhverfa íhugun Maharishi
Mahesh Yogi, en miklu fleiri,
sem sætt hafa verri afdrifum í
öðrum veiðiklóm.