Morgunblaðið - 18.03.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
7
Aö bregöast
fyrirfram
Ekki fer á milli mála að
fyrstu viöbrögð almenn-
ings er ný ríkisstjórn var
loks mynduö var lóttir.
En grunnt var á efasemd-
um. Tvennt olli því öðru
fremur: hvern veg var að
verki staðið — og að
sömu verðbólguprinsarn-
ir sátu áfram á ráðherra-
stólum og í vinstri
stjórninni 1978—79, sem
sprakk í 61% verðbólgu.
Fyrsta fjárlagafrum-
varp þessarar stjórnar
breytti efasemdum í ótta.
Ekki er ráðist gegn verð-
bólgu, heldur sætzt á
hana. Meginforsenda
frumvarpsins er 46,5%
meðaltalshækkun inn-
lends verölags milli ár-
anna 1979—1980. Frum-
varpið gerir ráð fyrir því
að halda öllum 19 ný-
sköttum og skattaukum
vinstri stjórnar og — að
auki — yfir 60% hækkun
tekjuskatts einstaklinga
1980, í krónum talið, frá
fyrra ári. Þá er í skatt-
smiðju stjórnvalda unnið
að nýsmíöi: orkuskatti
(ofan á heitavatnsverð
eða í formi söluskatts-
hækkunar), hækkun út-
svara og e.t.v. fleira
áþekku.
Stjórnarsáttmálinn
gerir ráð fyrir þenslu
ríkisútgjalda, sem hlýtur
að leiða til rekstrarhalla á
ríkissjóði og/eöa aukinn-
ar skuldasöfnunar, ef við
fyrirheit verður staðið.
Með öðrum orðum er
haldiö fast viö þá stefnu í
ríkisfjármálum og pen-
ingamálum, sem verið
hefur helzti hvati verö-
bólgu í efnhagslífi okkar.
í forsendum fjárlaga-
frumvarpsins er gert ráð
fyrir 3—4% rýrnun kaup-
máttar 1980, sem stang-
ast á við stóru orðin
fjármálaráðherrans,
„kosningar eru kjarabar-
átta“ og allt það. En þaö
verður oft lítiö úr því
högginu sem hátt er reitt.
Menn í
lykilaðstööu
Frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokks, þar á með-
al þrír núverandi ráðherr-
ar, lofuðu því í liöinni
kosningabaráttu, að af-
nema nýskatta og skatt-
auka fyrri vinstri stjórnar,
nítján að tölu. Þeir lofuðu
að halda skattheimtu rík-
isins innan viss hlutfalls
af þjóðartekjum, til að
rýra ekki um of ráöstöf-
unartekjur almennings —
eða rekstraraðstöðu at-
vinnuvega. Fjárlagafrum-
varpið gengur þvert á
þessi fyrirheit.
En hvort tveggja er að
skattstiginn, sem mælir
mönnum tekjuskatt, hef-
ur enn ekki verið ákveð-
inn og að fjárlagafrum-
varpið getur tekið breyt-
ingum t meðferð. Það er
því ekki öll nótt úti enn
fyrir ráöherra, sem kjöri
náðu út á þessi fyrirheit í
skattamálum, að efna lof-
orð sín. Þeir sitja í lykil-
aöstööu um mótun
skattastefnunnar, ráða í
raun úrslitum um ákvörö-
un hennar. Bæði þing-
flokkur Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks hafa lýst
yfir ákveðinni skatta-
lækkunarstefnu. Spurn-
ingin er aðeins, hvorum
megin hryggjar lenda
þeir, sem hafa úrslita-
aðstöðuna í hendi sór, í
efndum eigin fyrirheita —
eða öndverðum megin?
Eftir svari viö þeirri
spurningu bíöur allur al-
menningur í landinu.
Kjörin og
skattarnir
Skattarnir, eöa skatta-
stefnan, ræður því, hve
miklu heimilin í landinu
halda eftir af aflafó í
ráðstöfunartekjur — til
að mæta öðrum fjár-
hagsskuldbindingum og
framfærslu. Fátt er því
áhrifameira um kjara-
stöðu einstaklinganna en
ríkjandi skattastefna
hverju sinni.
Skattastefnan skiptir
ekki síður máli fyrir at-
vinnuvegina. Rekstrar-
staöa fyrirtækja er hin
hliðin á atvinnuöryggi al-
mennings. Eiginfjár-
myndun í atvinnurekstri,
sem skattastefnan setur
mörk, ræður hvað mestu
um eflingu, tækniþróun
og uppbyggingu atvinnu-
vega. Iðnþróun, svo
dæmi só tekið, til að
mæta vinnuþörf vaxandi
þjóðar, byggist ekki hvað
sízt á þeirri eiginfjár-
myndun, sem fyrirtæki í
iönaði búa við. Þannig er
hófleg skattastefna ekki
aðeins liöur í því að
mæta atvinnuþörf í
næstu framtíð, eða
byggja fyrirtæki upp til
að standa undir sam-
bærilegum lífskjörum hór
og í nágrannalöndum,
heldur jafnframt nauð-
synleg forsenda til að
auka þá skattstofna, er
tekjur ríkis og sveitarfó-
laga byggjast á.
Páskaferð —
Beiúdorm
15 dagar
Brottför 3. apríl
Verð frá kr. 267.000.-
Nokkur sæti laus.
SELJUM FARSEÐLA UM ALLAN
HEIM Á HAGSTÆÐASTA VERÐI
lj|§t Ferðamiðstöðin hf.
Aöalstrætí 9 — Símar 11255 - 12940
Verksmiðjusala
Buxur
denim, flaueli, kakí og flannel.
Góö efni, fjölbreytt sniö, fallegir litir, gott verö.
Úlpurogjakkar
Margar stæröir og geröir. Gott verö.
Gerið góð kaup í úrvalsvöru.
Nýjar vörur teknar upp í dag.
Opið virka daga kl. 9—18. Föstudaga kl. 9—22.
Laugardaga kl. 9—12.
Skipholti 7.
Sími 28720.
Tann
ENSKIR
PENINGASKÁPAR
eldtraustir — þjófheldir
heimsþekkt
framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888
Kassettur
beztu kaup landsins
.... Á
C°A/,
■9.
f'ONCEKTONE
■" "Hi
iD* M?Jf /ew*... *
1 epóta 5 epólur
60 mínútur kr. 800.- kr. 3.800.-
90 mínútur kr. 1.000.- kr. 4.800.-
Heildsölu
birgðir
Verslióisérverslun með | _ , Lbúðin 29800 Skipholti19
'S....
ii
,IÓTE>
ttOlT.
ODYR GISTING
IHJARTA
BORGARINNAR
Bergstaöastræti 37, Reykjavik. Simi 21011.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU