Morgunblaðið - 18.03.1980, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
25
Þór frá Akureyri kom
sá og sigraói í 4. flokki
ÚRSLITAKEPPNIN í 4. flokki
karla í íslandsmótinu í hand-
knattleik fór fram i íþróttahús-
inu í Hafnarfirði um helgina.
Alls tóku sjö félög þátt í úrslitun-
um, Þór, Akureyri, HK úr Kópa-
vogi, Valur, Víkingur, KR, Fyik-
ir og Haukar. Keppnin stóð yfir í
tvo daga laugardag og sunnudag
og léku öll félögin saman. Spurn-
ing er hvort ekki hefði verið
betra að skipta hópnum i tvo
riðla. Þrátt fyrir að keppnin
gengi þokkalega vel fyrir sig var
oft of langur timi á milli leikja og
voru ungu piltarnir ekki of
ánægðir með þetta fyrirkomulag
að eigin sögn.
Flestir leikir í úrslitakeppninni
voru bráðskemmtilegir á að horfa
og keppnisskapið skein út úr
hinum ungu áhugasömu keppend-
um. Þarna sáust margir bráðefni-
legir handknattleiksmenn sem ef-
laust eiga eftir að gera garðinn
frægan.
Sigurvegari í 4. flokki varð lið
Þórs frá Akureyri, gott lið og
sýndu piltarnir oft á tíðum mjög
vel leikinn handknattleik. Lið
Þórs skoraði 56 mörk í mótinu en
fékk á sig 32 í þeim sex leikjum
sem liðið lék. Hlutu Þórsarar 10
stig, einu meira en HK úr Kópa-
vogi. Urslitin urðu annars sem hér
segir:
Mörk:
Þór 10 stig 56—32
HK 9 stig 53-30
Valur 8 stig 50—45
Víkingur 7 stig 45—43
KR 5 stig
Fylkir 3 stig
Haukar 2 stig
Úrslit í leikjunum urðu þessi:
KR - Valur 7-9
KR - HK 4-9
KR - Víkingur 5-7
KR — Haukar 8-7
KR - Þór 10-13
KR - Fylkir 8-8
Valur - HK 3-10
Valur — Víkingur 8-5
Valur — Haukar 14-6
Valur — Fylkir 6-9
Valur — Þór 10-8
HK - Víkingur 6-6
HK - Haukar 8-4
HK - Fylkir 14-5
HK - Þór 6-8
HK - Valur 10-3
Víkingur — Haukar 10-6
Víkingur — Fylkir 10-8
Víkingur — Þór 7-10
Haukar — Fylkir 8-6
Haukar — Þór 5-9
Fylkir — Þór 4-8
Eina tap Þórs frá Akureyri var
á móti Val. -ÞR.
Halldór Áskelsson fyrirliði Þórs brýst í gegn og skorar. Halldór var markhæstur
Þórsara með 15 mörk í mótinu.
„Mótsfyrirkomu-
lagið ekki gott“
FYRIRLIÐI Þórs frá Akureyri í
4. flokki er Halldór Áskelsson,
bráðefnilegur handknattleiks-
maður og ekki siðri i knattspyrn-
unni eftir því sem kunnugir
segja. Halldór sagði i spjalli við
Mbl. i mótslok að það hefði fyrst
og fremst verið góður andi í
liðinu og góðir þjálfarar sem
sköpuðu þennan góða árangur.
„Það er ánægjulegt að geta farið
með íslandsbikarinn norður.
Fyrsti leikur mótsins var nokkuð
erfiður, hann var á móti HK, við
þurftum að venjast húsinu. Þá
réðum við ekki við Valsmennina.
Okkur fannst þetta mótsfyrir-
komulag fyrir neðan allar hell-
ur“, sagði Halldór, við höfum
leikið fimm leiki í alan heila
vetur, svo núna á tveimur dögum
leikum við sex leiki. Þessu verður
að breyta.
Eg hef æft hand-
knattleik í sex ár og ætla mér að
halda áfram.
- þr.
3 mörk á 30 sekúndum
tryggðu Val titilinn
— UBK íslandsmeistari í kvennaflokki
Isiandsmótið í innanhússknattspyrnu:
VALUR varð íslandsmeistari í knattspyrnu innanhúss,
er liðið sigraði Akranes í úrslitaleik á sunnudagskvöld-
ið með 5 mörkum gegn 2, eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 1 — 1. Leikmenn liðanna léku mjög rólega og
yfirvegað framan af, ekki á hraða ljóssins eins og
margir leikir í mótinu, þetta var úrslitaleikur og ekkert
mátti út af bregða. Það voru Skagamenn sem brutu
ísinn á 8. mínútu leiksins, þá skoraði Árni Sveinsson
laglega, en nokkru áður hafði Jón Lárusson bjargað
ótrúlega af marklínu er Valsmenn voru komnir í
dauðafæri.
FH—Fylkir 6-:
A-flokkur 3. riðill:
IBI-Þór Ve 7-:
Þór AK-ÍA 4—í:
Þór Ve-ÍA 1-:
ÍBÍ-Þór Ak 5-'
Þór Ak.—Þór VE 3-1
ÍA-ÍBÍ 9-'
A-flokkur 4. riðill:
Ármann—UBK 4—
Fram—KR 4-,
UBK-KR 3-'
Ármann—Fram 6-!
Jón Einarsson jafnaði fyrir Val
á síðustu mínútu fyrri hálfleiks og
var það mikilvægt. Þegar aðeins
tvær mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik skoraði Guðmundur
Þorbjörnsson úr vítaspyrnu, 2—1
fyrir Val. Þrátt fyrir að sókn Vals
yrði æ þyngri, var það ÍA sem
skoraði næst, það gerði Guðjón
Þórðarson á 16. mínútu, 2—2.
Síðan var allt í járnum þar til að
aðeins ein mínúta var til leiksloka,
en þá má með sanni segja, að allur
leikur ÍA hafi hrunið til grunna.
Valsmenn skoruðu þá þrívegis úr
hraðaupphlaupum á síðustu mín-
útu leiksins, Guðmundur fyrst
tvívegis og loks Albert Guð-
mundsson, 5—2 fyrir Val.
í kvennaflokki varð iið Breiða-
bliks, Islandsmeistararnir frá síð-
asta ári, öruggur sigurvegari.
Fjögur lið kepptu í kvennaflokki,
auk Breiðabliks, FH, UMFK og
Valur.
Keppni fór þannig fram í karla-
flokki, að leikið er í þremur
flokkum, A,B, og C-flokki. Er
liðum í hverjum riðli skipt í
flokka, en hér er um nokkurs
konar deildarkeppni að ræða. Úr-
slit leikja í hverjum flokki urðu
sem hér segir:
A-flokkur: 1. riðill
Þróttur R—Þróttur Nk, 8-4
ÍBK—Víkingur 4-6
Þróttur Nk—Víkingur 3-4
Þróttur R—IBK 7-4
ÍBK—Þróttur R 4-4
Víkingur R—Þróttur R 4-7
A-flokkur 2. riðill:
Fylkir—Haukar 4-5
Valur-FH 7-2
Haukar-FH 3-13
Fylkir—Valur 4-12
Valur—Haukar 8-2
KR—Ármann 8—3
B-flokkur 1. riðill:
Óðinn—Völsungur 8—4
Þór Þ—Stjarnan 2—9
Völsungur—Stjarnan 2—10
Þór Þ—Völsungur 4—9
Stjarnan—Óðinn 3—5
B-flokkur 2. riðill:
Víðir-HSÞ 6-3
Reynir—KS 6—7
HSP-KS 8-3
Víðir—Reynir 5—4
Reynir—HSÞ 6-5
KS-Víðir 5-5
B-flokkur 3. riðill:
Grindavík—Skallagr. 7—6
Skallagr,—UMFA 14-7
Grindavík—UMFA 5—5
B-flokkur 4. riðill:
Leiknir—Einherji 6—7
ÍK—Grótta 4-10
Einherji—Grótta 6—6
Leiknir—ÍK 6—4
ÍK—Einherji 2—10
Grótta—Leiknir 9—5
C—flokkur 1. riðill:
Léttir—Efling 7—4
Njarðvík—Leiknir Fá. 4—2
Efling—Leiknir Fá 5—11
Léttir—Njarðvík 5—4
Njarðvík—Efling 9—4
Leiknir—Léttir 4—7
C-flokkur 2. riðill:
Magni—Stefnir 14—3
Vík. Ól-Hekla 2-3
Stefnir—Hekla 6—6
Hekla—Magni 5—7
C-flokkur 3. riðill:
Baldur—Árroðinn 5—6
Austri—Katla 12—2
Árroðinn—Katla 6—4
Baldur—Austri 1—10
Austri—Árroðinn 7—4
Katla—Baldur 3—9
Kvennaflokkur:
FH-UMFK 3-4
UBK-FH 8-3
FH-Valur 1-4
Valur-UMFK 9-1
VBK-Valur 7-5
Þróttur Reykjavík, Valur, ÍA og
KR komust því í undanúrslit úr
A-flokki, Óðinn, Víðir, Grindavík
og Grótta úr B-flokki og Njarðvík,
Magni og Austri úr C-flokki. I
undanúrslitum urðu úrslit leikja
sem hér segir:
Valur-KR 5-2
ÍA—Þróttur Rk 5—4
gg.
• Valsmenn urðu íslandsmeistarar í karlaflokki.
• Breiðablik úr Kópavogi vann sitt annað stórmót í röð i kvennaflokki,
þær urðu íslandsmeistarar nú, einnig í fyrra, utanhúss. Ljósm. — gg.
Fram íslandsmeistari í 5. flokki
— eftir aukaleik gegn Haukum
FRAM varð íslandsmeistari í 5.
flokki á íslandsmótinu i hand-
knattleik um helgina, en þá fór
úrslitakeppnin í þeim aldurs-
flokki fram i íþróttahúsinu að
Varmá í Mosfellssveit. Það var
mikill hasar og spenna í keppni
þessari og þurfti aukaleik milli
Fram og Hauka til þess að skera
úr um hvort liðið skyldi hreppa
titilinn. Sjö lið léku til úrslita og
var leikið með deildarfyrirkomu-
lagi. Þessi lið voru með : Valur,
ÍR, HK, Fram, Þór Ak, Haukar
og Vikingur.
Þegar ein umferð var eftir,
hafði Fram hlotið 9 stig, en
Haukar 8. Það var því mikið í húfi
þegar Haukar mættu Akureyrar-
Þór, sem hafði aðeins hlotið eitt
stig. Haukar mörðu sigur, en
Þórsararnir léku engu að síður
sinn besta leik. Fram varð því að
vinna sinn síðasta leik til þess að
tryggja sér sigur. Mætti liðið
Víkingi sem var með 7 stig fyrir
leikinn.
Sigur Víkings hefði gert
að verkum að Haukar hefðu sigr-
að, Fram-sigur hefði tryggt liðinu
titilinn, en jafntefli liðanna heim-
tað aukaleik. Fram-piltarnir virt-
ust hafa öll ráð í hendi sér lengst
af gegn Víkingi og þegar skammt
var til leiksloka var staðan 7—5.
En Víkingarnir létu ekki deigan
síga og jöfnuðu.
Fram og Haukar léku því
úrslitaleik og kom þar berlega í
ljós, að farið var að draga veru-
lega af piltunum, enda 7 leikir á
tveimur dögum að baki. Framar-
arnir reyndust í betri þjálfun, auk
þess sem liðið virtist verulega
sterkara sem heild. Fram-sigur
varð því ofan á, 11—7. Úrslit
einstakra leikja urðu annars sem
hér segir.
Valur — Haukar 6—9
Fram — Þór 12—4
Víkingur — HK 10—3
Valur — ÍR 5—4
Fram — Haukar 6—6
HK-Þór 7-7
Víkingur — ÍR 6-7
Valur — Fram 7-9
HK — Haukar 6-7
ÍR - Þór 11-8
Víkingur — Valur 12-5
Fram - HK 12-4
Haukar — ÍR 7-5
Víkingur — Þór 13-5
Valur - HK 6-7
Fram — ÍR 11-6
Víkingur — Haukar 4-4
Valur — Þór 10-7
ÍR - HK 7-10
Haukar — Þór 11-8
Víkingur — Fram 7-7
ÍR - Þór 5-4 gg.
KOKf&NC/j
KUSI8
il£IKFANG4
IKUSIþ ,
IKFANGA
JUSUU i
fctCFA,H
f
KR-INGAR urðu um helgina ís-
landsmeistarar í 3. flokki í hand-
knattleik en úrslitakeppnin hjá
þessum aldursflokki var háð í
Vestmannaeyjum. íslandsmótið
var nú haldið með nýstárlegu
fyrirkomulagi þannig að keppt
var í „túrneringum“ þar sem
allir léku við alla í þremur
umferðum.
Efstu liðin úr „túrn-
eringunum“ léku siðan til úrslita
um meistaratitilinn og enn með
þessu sama sniði.
Urðu leikirnir því hvorki fleiri
né færri en 21 og varð hvert lið að
leika þrjá leiki á dag þessa tvo
daga sem mótið stóð yfir. Þetta
fyrirkomulag færir yfir á leik-
mennina mikið álag og voru flestir
sem rætt var við, sammála um að
þetta fyrirkomulag væri alls ekki
nógu gott og handknattleikurinn
liði vegna álagsins. Ljóst
var fljótlega að keppnin um meist-
aratitilinn myndi fyrst og fremst
standa milli KR, Fram og FH.
Þessi voru áberandi bestu liðin og
ekki mikill styrkleikamunur á
þeim. KR-ingar gerðu jafntefli við
Þór í sínum fyrsta leik en síðan
litu Vesturbæjarstrákarnir ekki
um öxl heldur héldu ótrauþir fram
sigurbrautina. Var sigur þeirra í
mótinu öruggur og fyllilega verð-
skuldaður. Úrslit í mótinu urðu
annars þessi: ct:_
1. KR 11
2. FH 9
3. Fram 7
4. Stjarnan 6
5. ÍR 4
6. Þór Vm. 3
7. KA 2
Úrslit einstakra leikja:
Stjarnan — Fram 7-16
KR - Þór 10-10
KA - ÍR 12-13
Stjarnan — FH 12-12
KR — Fram 15-14
IR — Þór 14-12
KA —FH 14 -18
Stjarnan — KR 12-16
ÍR — Fram 13-16
FH - Þór 16-14
KA — Stjarnan 16-17
KR — ÍR 15-10
Fram — FH 16-17
KA — Þór 17-13
Stjarnan — ÍR 12-11
KR - FH 18-16
KA — Fram 10-20
Þór — Stjarnan 9-9
FH - ÍR 10-8
KR - KA 18-11
Þór — Fram 12-12 —hkj.
Bjóst ekki við sigri
„ÉG bjóst ekki við þvi að okkur
tækist að vinna mótið og því er ég
að sjálfsögðu himinlifandi
ánægður með að okkur skyldi
takast að hreppa íslands-
meistaratitilinn,“ sagði Ingvar
Guðjónsen, fyrirliði 3. flokks KR.
Blaðamaður Mbl. hafði af að
hrifsa Ingvar úr höndum sigri-
hrósandi félaga hans í KR-liðinu
strax eftir að liðið hafði tryggt
sér sigurinn i mótinu og við
spjölluðum lítillega við fyrirlið-
ann.
Ingvar var heldur óhress með
hið nýja fyrirkomulag á mótinu.
„Þetta „túrneringa“-fyrirkomulag
er hrein vitleysa. Það er alltof
mikið á okkur lagt að leika tvo til
þrjá leiki á dag. Ef þetta á að
halda áfram verður að dreifa
leikjunum á fleiri daga.“
— Það vakti athygli að þið
voruð aðeins 8 í KR-liðinu og því
aðeins með einn skiptimann.
„Já, okkur hefur illilega vantað
mannskap í vetur. Við vorum 14
þegar við byrjuðum í haust en
síðan fór fækkandi í hópnum og
hafa aðeins 8—9 mætt á æfingar
upp á síðkastið. Liðsandinn hjá
okkur hefur samt sem áður verið
mjög góður og þetta var sigur
liðsheildarinnar. Þá höfum við
haft mjög góðan þjálfara í vetur,
Ólaf Lárusson."
„Ég reiknaði með að Fram
myndi vinna mótið og því kom það
mér á óvart hvað þeir áttu erfitt
uppdráttar í úrslitakeppninni,"
sagði Ingvar Guðjónsson, fyrirliði
íslandsmeistara KR í 3. flokki.
- hkj
• Islandsmeistarar Fram í 5. flokki karla.