Morgunblaðið - 18.03.1980, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1980
Matthías Á. Mathiesen í f járlagaumræðu:
F immtánf öldun
verðlags ’70—’80
Hækkun frumvarps meiri en áður, þó að útgjaldaliðum sé sleppt
VerðlaKshækkun frá upphafi til loka árs 1979 var 61%. sagði Matthías
Á. Mathiesen (S) alþingismaður i fjárlagaumræðu á Alþinj?i í K*r. Ljóst
er að ekki á að beita stjórnun rikisfjármála 1980 í baráttu ge«?n
verðbúljíu. Ljóst er að áfram stefnir í hallarekstur hjá ríkissjóði. Ljóst er
að skattabyrðin 1980 verður þyngri en skattmetaárið 1979. Viðhalda á
öllum nýsköttum vinstri stjórnar og nýir eru boðaðir. Útgjaldahlið þessa
fjárlagafrumvarps er 63.3% hærri en fjárlaga 1979, þó í það vanti
veigamikia útgjaldaliði.
Verðlagsþróun áratugarins 1960 til 1970, frá upphafi árs 1960 til
upphafs árs 1970, var 200% — eða þreföldun á verðlagi. Sambærileg
verðþróun áratugarins 1970 til 1980 var 1400% — eða fimmtánföldun á
verðlagi. Þetta eru hrikalegar tölur sem tala sinu máli og nauðsynlegt er
að draga rétta lærdóma af.
Stjórnmál
og cfnahagsmál
Ýmsar ytri aðstæður komu við
sögu, er þessi verðlagsþróun varð.
Að mínu mati er meginorsök stöð-
ugleika í íslenzkum efnahagsmál-
um, 1960—1970, þó að finna í
stöðugleika íslenzkra stjórnmála á
þessum áratug, sem settu að sjálf-
sögðu svip sinn á stjórnun ríkis-
fjármála, peningamála og annarra
þátta, er verðþróun varða. 1971
tekur vinstri stjórn við af viðreisn-
arstjórn, sem tryggt hafði jafnvægi
í íslenzku efnahagslífi í 12 ár, og þá
hófst hrunadans verðbólgunnar,
sem hefur verið stiginn síðan. Rakti
MÁM síðan verðlagsþróun, sem hafi
tckið stökk upp á við með hverri
vinstri stjórn, og náð hafi hámarki,
61% verðbólgu, í árslok 1979.
Engin stefna
— engin stefnuræða
Ríkisstjórn sú, sem nú hefur setzt
á valdastóla, hefur ekki sett fram
neina stefnu í efnahags- og peninga-
málum, atvinnumálum né launa-
málum. Forsætisráðherra hefur
heldur enga stefnuræðu flutt sem
venja er. í stjórnarsáttmála er
heldur ekki fast land undir fótum
um viðbrögð gegn verðbólgu. Hug-
myndir um lögfestingu verðlags eru
ekki í samræmi við raunveruleikann
og munu leiða til óviðráðanlegra
erfiðleika hjá atvinnuvegunum, sem
aftur heggur að verðmætasköpun í
þjóðarbúskapnum og vinnuöryggi.
Meginþörf er þó á því að auka
þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur.
Ljóst er að núverandi ríkisstjorn
var ekki mynduð til að tkast á við
vandmálin, heldur undir yfirskini
þingsæmdar, sem þó vegur lítt, ef
ekki verður snúizt við hættuboðum
efnahagslífsins. Ekki dugir það eitt
að leiða upplausnaröfl í valdastóla
þjóðfélagsins.
Hrakspár
og staðreyndir
MÁM minnti á staðhæfingar
sínar um að milljarðatug skorti til
að ná endum saman, er frumvarp að
fjárlögum ársins 1979 var til um-
ræðu. Þá hafi orð sín verið kölluð
hrakspár. Nú liggja niðurstöðurnar
hins vegar fyrir sagði hann. Þrátt
fyrir alla nýju skattana, sem lagðir
voru á þjóðina á liðnu ári, var frávik
frá rekstrarjöfnuði upp á 9Vii millj-
arð krúna. Hann var áætlaður
jákvæður upp á 6,6 milljarða en
reyndist neikvæður um tæpa 3.
Frávik frá greiðslujöfnuði reyndist
13 milljarðar. Skuldaaukning í
Seðlabanka nam 2,4 milljörðum í
stað niðurgreiðslu um 5 milljarða,
sem stefnt var að. Bráðabirgðáyfir-
lit rikisfjármála 1979 sýna að um-
framgreiðslur voru 20%. Svo virðist
sem ríkisútgjöldin hafi reynzt um
30% af þjóðarframleiðslunni. Og
lánsfjáráætlunin kom út með 43%
hækkun, þegar gengisbreyting árs-
ins nam 25%. Þessi er niðurstaðan
af Ólafslögum og stefnunni í ríkis-
fjármálum hjá vinstri stjórninni.
Haldlítið
pappírsgagn
Mér sýnist framlagt fjárlaga-
frumvarp haldlítið pappírsgagn,
Matthías Á. Mathiesen
sagði MÁM. Það hækkar í senn
meira en nokkru sinni áður — en þó
eru veigamiklir póstar, eins og
oliustyrkurinn, og fjármögnun
stórra gjaldaþátta. eins og vega-
mála, orkumála, landbúnaðarmála
og iðnaðarmála, teknir að hluta út
úr fjárlagadæminu. Þessum vanda á
að velta á undan sér — en látið að
því liggja, að leysa eigi í lánsfjár-
áætlun.
Allir vinstri stjórnar skattarnir
skarta áfram í þessu frumvarpi.
Þeir verða nú ekki 20 milljarðar
króna, heldur má gera ráð fyrir
tvöföldun þeirrar fjárhæðar. Auk
þess er gert ráð fyrir nýrri skatt-
heimtu til ríkisins, sem getur farið
langleið í tug milljaðrða króna. Gert
er ráð fyrir að útsvör geti hækkað
samtals um 4*/i—5 milljaða króna.
Það er því ljóst að skattbyrði fólks
fer fram úr því, sem hún hefur mest
áður verið, þ.e. á liðnu vinstri
stjórnar ári.
Til þess að ná endum saman í
þessu frumvarpi er, eins og ég gat
um, frestað afgreiðslu stórra út-
gjaldaliða, hætt viö umsamdar af-
borganir á lánum og tjaldað stór-
felldum vanáætlunum. — Þá er
niðurskurður á framkvæmdafram-
lögum til fjárfestingarsjóða, allt til
þess að auka ríkisútgjöldin, líkleg-
ast yfir 30% markið sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu.
Hvar er
lánsíjáráætlunin?
MÁM rakti gang mála á liðnum
árum varðandi framlagningu láns-
fjáráætlunar, sem nauðsyn bæri til
að sjá og afgreiða samhliða fjár-
lagafrumvarpi. Nú er sagt að láns-
fjáráætlun verði ekki tiltæk fyrr en
eftir þann tíma, sem ætlaður er til
afgreiðslu fjárlaga. Hér er ekki vel
að málum staðið, því heildarmynd
rikisfjármála fæst ekki nema þessi
stjórnunartæki ríkisfjármála eigi
samleið gegn um þingið, enda tvær
hliðar sama dæmisins.
í lok ræðu sinnar ræddi MÁM
vanda verðbólgu, heima og heiman,
og markmið í efnahagsmálum, fylgi-
kvilla hagvaxtar, aukna framleiðslu
sem leið til útrýminga fátæktar í
heiminum. Skilyrði alls þessa væri
heilbrigt atvinnulíf, þar sem vinnu-
semi og framtak fengju að njóta sín
og eðlileg arðsemi nyti viðurkenn-
ingar.
Ekki er hægt að tryggja atvinnu
til langframa, nema takist að vinna
bug á viðskiptahallanum og verð-
bólgunni. Fátækt verði ekki útrýmt
í heiminum, nema með verulegri
framleiðsluaukningu á heildina lit-
ið. Bezta leiðin til þess sé heilbrigt
atvinnulíf, knúið hvata ávinnings.
Hófsemd í ríkisútgjöldum og skatt-
heimtu er ein af forsendum árang-
urs í verðbólguhjöðnun, enda séu
háir skattar í vissum tilfellum
uppspretta verðbólgu.
Fjármálaráðherra:
„Ekkert svigrúm
til skattalækkana“
Getur orðið óhjákvæmilegt að leggja á viðbótarskatta
Breyttar verðforsendur frá því
fjárlagafrumvarp Tómasar Árna-
sonar var lagt fram hafa leitt til
10,6 milljarða króna útgjaldaaukn-
ingar, sagði Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra í f járlagaræðu á Al-
þingi í gær. t meginefni er frum-
varpið byggt á frumvarpi Tómasar,
en frumvarp Sighvats Björgvins-
sonar var byggt á kosningastefnu-
skrá Alþýðuflokksins. Meginatrið-
ið er, sagði ráðherra, að ríkissjóður
verði rekinn með greiðsluafgangi
og að því er stefnt.
Ilalli 1979
Ráðherra sagði ríkissjóð hafa ver-
ið rekinn með halla allar götur síðan
1973. Á síðasta ári hafi hallinn á
greiðslugrunni numið 3 milljörðum
króna.
Ekki svigrúm
til skattalækkana
Ráðherra sagði ekki svigrúm til
skattalækkana eins og ástatt væri í
ríkisfjármálum. Ýmsir verulegir út-
gjaldaliðir hefðu bætzt við og millj-
arða tekjutap væri hjá ríkissjóði
vegna tollalækkana í framhaldi af
viðskiptasamningum.
Ráðherra sagði að 4—5 milljarðar
króna þyrftu til að koma í niður-
greiðslu húshitunar með olíu. Frum-
varp um fjáröflun til þessara
greiðslna er ekki fullmótað. Ef til
vill verður tekjum og gjöldum hér að
lútandi haldið utan fjárlaga.
Ráðherra sagði heildarskuld ríkis-
sjóðs við Seðlabanka vera 28,5 millj-
arða króna. Áform væru um að
greiða 8,1 milljarð á þessu ári en
mörg ár tæki að borga skuldina upp.
Verðhækkunum verða sett ákveðin
mörk, sagði ráðherra. Gildir það
einnig um búvöru. Niðurgreiðslur
þeirra verða ákveðið hlutfall af
útsöluverði 1980 og 1981. Þó verður
sú undantekning fram til 1. maí nk.,
að afgreiða á sérstaklega hækkun-
arbeiðnir fyrirtækja og stofnana.
Þetta verða strangar reglur, sagði
ráðherra, sem ekki verður auðvelt að
framfylgja. Um 24,4 milljarða króna
þarf í niðurgreiðslur búvöru. Þá er
áætlað að 10% landbúnaðarfram-
leiðslu (útflutningsbætur) nemi um
8,4 milljörðum króna. Má og búast
við að ríkið verði að veita Fram-
leiðsluráði viðbótar fyrirgreiðslu til
að bæta bændum tjón af óverð-
tryggðum útflutningi búvöru.
Þá ræddi ráðherra um aðlögun-
argjald til Iðnrekstrarsjóðs, greiðsl-
ur vegna félagslegra framkvæmda
RARIK, fjárveitingar til menning-
armála og námslána o.fl.
Erlendar lántökur
100 milljarðar króna
Ráðherra sagði lánsfjáráætlun
ekki fylgja fjárlagafrumvarpi nú en
yrði væntanlega lögð fram upp úr
páskum. En miðað við kröfur fram-
kvæmdaaðila er útlit fyrir, að er-
lendar lántökur á árinu kunni að
fara yfir 100 milljarða króna. Það er
úr hófi fram, sagði ráðherra, og enn
þarf að skera niður, velja og hafna,
því greiðslubyrði af erlendum skuld-
um má ekki fara fram úr u.þ.b. 15%
af útflutningstekjum. Erlendu lán-
Ragnar Arnalds
tökurnar eru einkum vegna raforku-
framkvæmda, aðallega Hrauneyja-
fossvirkjunar, og hita- og fjar-
varmaveituframkvæmda.
Erlendar skuldir jukust um 24
milljarða á liðnu ári, námu rúmlega
280 milljörðum í árslok, sem er u.þ.b.
þriðjungur af þjóðarframleiðslu.
Verðbreytingar
Ráðherra sagði að á mælikvarða
framfærsluvísitölu hefði verðlag
hækkað um 45% að meðaltali á liðnu
ári — en rúmlega 60% frá upphafi
til loka árs. Byggingarvísitala hafi
hins vegar hækkað um 46% að
meðaltali, en frá upphafi til loka árs
um 54%. Undir árslok má ætla að
hraði verðbreytinga hafi svarað til
55—60% verðbólgu á ári. Kauptaxt-
ar hækkuðu heldur minna — vegna
áhrifa versnandi viðskiptakjara.
Viðskiptakjör 1980 verði sennilega
4—6% lakari en 1979, miðað við
olíuverð, skráð í febrúar. Versnandi
viðskiptakjör hafi m.a. orðið til þess,
að kaupmáttur kauptaxta á fyrsta
ársfjórðungi 1980, sé 3—4% minni
en á ársmeðaltali 1979. Búast megi
því við að heldur dragi úr einka-
neyzlu á líðandi ári.
9,5 milljörðum lakari
Ráðherra sagði að gjöld umfram
tekjur ríkissjóðs 1979 hefðu reynst
2,9 milljarðar króna. Rekstraraf-
koma hefði því reynst 9,5 milljörðum
króna lakari en að var stefnt, skv.
fjárlögum. Skuldaaukning ríkissjóðs
við Seðlabanka nam tæpum 4 millj-
örðum, sagði hann, sem er 2,3
milljörðum meira en fjárlög gerðu
ráð fyrir. Stöðubreyting við Seðla-
banka hafi reynzt 10 milljörðum
króna lakari en að var stefnt.
Afkoma ríkissjóðs á seinasta ári
var ótvírætt lakari en að var stefnt,
og því ljóst, að sú aukna tekjuöflun,
sem ákvörðun ver tekin um í sept-
ember sl. var rétt, en dugði hins
vegar ekki til að jafna metin.
Ströng greiðsluáætlun,
hert innheimta
Ráðherra sagðist myndi beita sér
fyrir strangri greiðsluáætlun innan
fjárlaga ársins — og vinna að hertri
innheimtu opinberra gjalda, enda
væri þar víða pottur brotinn. Jafn-
framt væri brýnt að mæta tíma-
bundnum halla ríkissjóðs með fjár-
mögnun frá viðskiptabönkum.
Heildarútgjöld væru áætluð 38,5%
hærri en bráðabirgðayfirlit 1979 og
65,3% hærri en fjárlög liðins árs.
Launakostnaður hækki um 77% frá
fjárlögum, önnur rekstrargjöld um
53%.
Ráðherra rakti síðan í ítarlegu
máli helztu útgjaldaþætti ríkissjóðs
og gat þess að fjárþörf fjárfesting-
arsjóðs yrði athuguð í tengslum við
gerð lánsfjáráætlunar, svo að tryggt
verði, að þeir gætu gegnt hlutverki
sínu. 1000 m. kr. ætti að verja til
verkamannabústaða og leiguíbúða,
samkvæmt nánari ákvörðun við gerð
kjarasamninga. Kannað verði, hver
yrði fjárþörf Byggingarsjóðs við
gerð lánsfjáráætlunar, þannig að
tryggt væri, að hann gæti staðið við
skuldbindingar sínar.
Innheimtar tekjur ríkissjóðs 1980
eru áætlaðar 340 milljarðar króna,
sem er 63% hækkun frá fjárlögum
1979 en 42% hækkun frá bráða-
birgðayfirliti. Tekjuáætlunin sýnir
tæplega 10 milljarða hækkun frá
frumvarpi Tómasar Árnasonar.
Ljóst er, sagði ráðherra, að verði
tekjur af atvinnurekstri minni en
áætlun gerir ráð fyrir, getur orðið
óhjákvæmilegt að leggja á viðbótar-
skatta, og tel ég persónulega, sagði
hann, að þá komi einkum tvennt til
greina: hækkun eignaskatts eða
veltuskattur á aðstöðugjaldsstofn.
Ráðherra sagði bensíngjald myndi
hækka í samræmi við verðlagsfor-
sendur og væru tekjur af því áætlað-
ar 11.000 m. kr. 1980.
Staðgreiðsla —
virðisaukaskattur
í lokaorðum sagði ráðherra óhjá-
kvæmilegt að áður en unnt yrði að
fastsetja gildistöku samtímaskatts
(staðgreiðslu) væri óhjákvæmilegt
að Alþingi tæki stefnumótandi
ákvörðun um tilhögun hans með
setningu laga. Hins vegar væri að
sinni hyggju miklu meiri óvissa um
kosti og galla virðisaukaskatts. Hins
vegar væri brýnt að herða inn-
heimtu söluskatts og myndi hann
innan skamms skipa nefnd til að
gera tillögur um herta innheimtu
þess skatts.
Skoraði ráðherra á þingmenn „úr
öllum flokkum að taka nú höndum
saman og hrista af höndum okkar
alþingismanna þá skömm sem á
okkur hvílir með því að afgreiða
frumvarpið örugglega fyrir páska“.