Morgunblaðið - 12.04.1980, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
83. tbl. 67. árg.
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Khaddafysýnt
banatilræði?
TúnisborK. Tripoli. 11. april. AP.
MOAMMAR Khaddafy, lciðtuga
Líbýu. var sýnt hanatilræði hinn 4.
þessa mánaðar. að því er diplóma-
tískar heimildir hermdu í dag í
Túnis. Libýustjórn neitaði þessum
sögusögnum í dag.
Samkvæmt fréttum, var Khaddafy
sýnt banatilræði, þegar hann var að
koma af fundi með helstu hernaðar-
ráðgjöfum sínum í Banghazi. Skotið
var á hann og fékk Khaddafy skot í
öxi. Hann á að hafa verið til
meðferðar í Bab A1 Azizia her-
sjúkrahúsinu síðan. Á sunnudag
hefst ráðstefna leiðtoga Araba í
Tripoli og að sögn hafa læknar hans
reynt að koma honum á fætur fyrir
sunnudaginn.
Samkvæmt heimildunum á
Khaddafy ekki að hafa sést opinber-
lega síðan honum var sýnt banatil-
ræöið. Líbýustjórn sagði þetta hins
vegar rangt. Líbýustjórn ásakaði
Túnisbúa um að vera valda að
þessum söguburði, en grunnt er á því
góða með þessum tveimur þjóðum.
Khaddafy
Atvinnuleys-
ingjum í Sví-
þjóð fækkar
Siokkholmi. 11. apríl. AP.
ATVINNULEYSINGJUM í Svíþjóð
fækkaði i marz, samanhorið við
febrúar. að því er sænska hagstofan
skýrði frá í dag.
1,8% -vinnufærra manna í Svíþjóð
eru nú á atvinnuleysisskrá, saman-
borið við 1,9% í febrúar. Alls eru
atvinnuleysingjar í Svíþjóð rétt um
76 þúsund. Búist er við að atvinnu-
leysingjum muni fækka fram á
haust.
Ginzburg
hvetur til
fjarveru
frá Moskvu
Denver, Colorado Springs.
ll.apríl. AP.
SOVÉSKI rithöfundurinn Al-
exander Ginzburg sem er nú
búsettur í Bandaríkjunum
sendi i dag frá sér áskorun þar
sem hann hvatti Bandaríkja-
mcnn til að hundsa Ólympiu-
leikana í Moskvu á sumri
komanda.
Sagði hann að leikarnir væru
of mikilsháttar til að Sovétríkin
fengju að nota þá sem áróðurs-
tæki. Ginzburg kom til Color-
ado Springs, þar sem banda-
ríska ólympíunefndin situr á
fundi, til að leggja áherzlu á
þetta mál. Frá Washington
sendi Carter forseti Walter
Mondale varaforseta til að
ávarpa nefndarmenn og hvetja
þá til að fara að þeirri beiðni
forsetans að Bandaríkin sendi
ekki keppendur á leikana.
Barist um N’Djamana
N'Djaraona. 11. apríl. AP.
NÚ ER barist af hörku um N'Djam-
ena. höfuðborg Afríkuríkisins
Chad, eins fátækasta ríkis heims.
Samkvæmt fréttum hafa hersveitir
hliðhollar Wadal Kamaougue, hins
kristna varaforseta landsins, tekið
þátt í bardögunum um höfuðborg-
ina síðustu tvo dagana. Að sögn er
mannfall mikið.
Þátttaka hinna kristnu hersveita
Kamaougue hefur enn aukið á þá
óvissu sem í landinu ríkir en svo
virðist sem hersveitir Hissene
Habre, varnarmálaráðherra lands-
ins, eigi nú undir högg að sækja.
Hinar múhameðsku hersveitir
Habre hafa barist gegn her Queddi,
forseta landsins, sem einnig er
múhameðstrúarmaður. Fimm sinn-
um hefur vopnahlé verið samið en
það jafnoft verið rofið. Um 100
þúsund manns hafa flúið yfir landa-
mærin til Kamerún.
íranskur námsmaður kveður unnustu sína með trega í Pennsylvaníu.
Simamynd AP
Bani-Sadr hótar
írökum styjöld
— ef ástandið á landamærum írans og íraks versnar
Teheran, 11. april. AP.
ABOLHASSAN Bani-Sadr, íorseti
írans. hótaði írökum stríði ef
ástandið á landamærum ríkjanna
versnaði. „Við munum fara í stríð,"
sagði Bani-Sadr á fjölmennum
fundi í Teheran í dag. íranska
útvarpið sagði að 3 milljónir
manna hefðu sótt fundinn í Teher-
an en vestrænir fréttamcnn áætl-
uðu að innan við milljón manns
hefði verið á fundinum. Bani-Sadr
hélt harðorðustu ræðu sína til þessa
og var ómyrkur í máli. Ilann sakaöi
íraka um að vera leikbrúðu Banda-
ríkjanna og hvatti íraka að steypa
Saddam Hussein, forseta landsins.
af stóli. En forsetinn hvatti íraka
til að láta af ögrunum í garð íran.
Þess i stað sagði forsetinn, ættu
þjóðirnar að berjast gegn isralesku
herliði i S-Líbanon.
ísraelskir hermenn
á brott úr Líbanon
Tcl Aviv, Bcirút, 11. apríl. AP.
BROTTFLUTNINGUR herliðs
ísraels í S-Líbanon hófst í dag. í
stuttri tilkynningu israelsku
herstjórnarinnar sagði, að haf-
inn væri „flutningur þeirra her-
manna í S-Líbanon, sem lokið
hafa hlutverki sínu." Ekki var
minnst á, hve langan tima
brottflutningur hermannanna
tæki. Utanríkisráðuneytið í
Washington skýrði svo frá, að
ísraelsmenn hefðu tilkynnt
bandarísku stjórninni, að
brottflutningum yrði Iokið á
næstu dögum.
ísraelskir hermenn fóru yfir
landamærin til Líbanons á mið-
vikudag eftir að fimm palestínsk-
ir skæruliðar myrtu þrjá gyðinga
á samyrkjubúi á mánudag.
Bandaríkjamenn höfðu hvatt
ísraelsmenn til að flytja herlið
sitt á brott úr Líbanon.
í dag var skotið á friðargæzlu-
sveit Sameinuðu þjóðanna í
Líbanon. Næst æðsti maður frið-
argæzlusveitanna var meðal
þeirra, sem skotið var á. Að sögn
hæfðu fimm kúlur bíl hershöfð-
ingjans en enginn særðist. Vest-
rænn sendiráðsmaður í Beirút,
sagði að írskir friðargæzlumenn
hefðu svarað skothríðinni. Talið
er að kristnir falangistar hafi
skotið á gæzlumennina.
Undanfarið hafa orðið skærur á
landamærum traks og írans. íranir
hafa ásakað íraka um að eiga
upptökin að þessum átökum. Sendi-
herra írans í Moskvu hvatti Sovét-
menn til að láta af vopnasendingum
til íraks en í landinu eru um 2000
sovéskir skriðdrekar og flestar or-
ustuþotur landsins eru sovéskar.
Jafnframt þessum harðorðu yfir-
lýsingum hafði forsetinn í hótunum
við Japani og ríki V-Evrópu. Hann
sagði að íranir væru reiðubúnir að
hætta sölu á olíu til Japans og
V-Evrópu, ef þessar þjóðir tækju
þátt í refsiaðgerðum Bandaríkja-
manna gegn íran. Japanir fá 10% af
olíu sinni frá íran og V-Evrópa um
5%. „Við höfum það i hendi okkar að
umbylta Evrópu,“ sagði forsetinn en
skýrði það ekki nánar. Japanir
tilkynntu í dag, að þeir myndu fara
að dæmi V-Evrópuríkja og krefjast
þess, að íranir slepptu gíslunum í
sendiráðinu í Teheran úr haldi. Þessi
ríki hafa hins vegar ekki viljað taka
þátt í beinum refsiaðgerðum.
Bandaríkjamenn tilkynntu í dag,
að ferðahömlur hefðu verið settar á
íranska sendiráðsmenn hjá Samein-
uðu þjóðunum. Þeim er bannað að
ferðast lengra en 40 kílómetra frá
heimilum sínum. Ásamt írönum
hafa sendiráðsmenn Kúbu, Albaníu,
Mongólíu, N-Kóreu, Víetnams og
Kambódíu skert ferðafrelsi. Svo er
einnig um áheyrnarfulltrúa Pale-
stínumanna.
Sjá einnig „Bani-Sadr hættir af-
skiptum af gislamálinu" bis. 23.
í það heilaga:
En hann var
látinn fyrir
þremur árum
Nantcs. 11. april. AP.
KONA nokkur í Nantes gekk í
dag í það heilaga. Það í sjálfu
sér þykir ekki í frásiigur fær-
andi nema hvað konan. sem
ekki var nafngreind. gekk að
eiga mann. sem lést í slysi fyrir
þremur árum síðan.
Valery Giscárd D’Estaing
Frakklandsforseti gaf sérsfakt
leyfi til hjónavígslunnar. Hann
studdist við lög frá árinu 1959,
sem heiniila hjónavígslu, þó
annar aðili hafi fallið frá, sé
greinilegt að vilji hans eða
hennar sé að ganga í hjónaband
með viðkomandi.
Sadat til Kairó
Kairó, 11. apríi. AP.
ANWAR Sadat, forseti Egypta-
lands, kom í dag til Kairó úr för
sinni til Bandarikjanna þar sem
hann átti viðræður við Jimmy
Carter forseta.
Til þess var tekið, að leiðtogar
kristinna manna voru ekki við komu
Sadats sem vani hefur verið. Til
átaka kom milli kristinna stúdenta
og múhameðskra í Alexandríu í
síðasta mánuði.