Morgunblaðið - 12.04.1980, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.04.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1980 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI '“fr nyvjÆntQi-'Uja'uu lyf og ráð sem þeir hafa aldrei fengist til að viðurkenna og það er dáleiðsla — spara hnífinn og lyfin í staðinn. Þórarinn Björnsson frá Trostansfirði í Arnarfirði. • Skal verða forseti Fyrir kosningar eru alltaf haldnir fundir og taka þar til máls þeir sem í framboði eru, svo kjósendur geti gert upp við sig, hvern sé heppilegast að kjósa. Langt er síðan Jakob Möller og Jón heitinn Magnússon forsætis- ráðherra áttust við á slíkum fundi í Bárubúð. Allir sem þekktu Jón heitinn í sjón vissu, að hann hallaðist talsvert á aðra hliðina og lét Jakob dynja á Jóni að altaf væri hann að hallast meir og meir og svo færi fyrir honum, að hann félli fyrir sér, sem og líka varð. Jakob Möller var kosinn sem utanflokksmaður. Á þessum fundi í Bárubúð var staddur maður, sem hét Þórður og var frá Ráðagerði á Seitjarnar- nesi. Hann var nokkuð við skál, stóð upp og hrópaði: „Jakob skal á þing“, og varð það kjörorð kosn- ingabaráttu hans upp frá því. Nú standa fyrir dyrum kosn- ingar til forseta íslands og kjörorð mitt er „Vigdís skal verða forseti". Sveinn Sveinsson Ásum 14, Hveragerði. Þessir hringdu . . . verzlunarinnar Urðar í Kópavogi. Ég keypti þar blússu fyrir skömmu og smávegis galli kom fram á henni, þannig að ég fór aftur með hana í búðina til að fá leiðréttingu minna mála. Mér var mjög vel tekið og fékk strax leiðréttingu minna mála, án nokk- urra vandræða eða orðalenginga. Ég vil aðeins fá að þakka þessa lipru afgreiðslu, það er oftar bent á það sem miður fer. • Kirkjuhöfðingi á biskupsstóli Helgi Elíasson. Brautarlandi 20, R. hringdi: „Þriðjudaginn 1. apríl sl. sat biskupinn yfir íslandi, herra Sig- urbjörn Einarsson, fyrir svörum í hljóðvarpi. Margar voru spurn- ingarnar, sem lagðar voru fyrir hann varðandi kirkju og kristni. Hann svaraði öllum spurningum af slíkri þekkingu og trúarsann- færingu og næmleika á íslenzka tungu, að unun var á að hlýða. Það væri að mínu áliti full þörf á því að þessi þáttur yrði endurtekinn, svo að ýmsir þeir, sem misstu af honum, fengju að nema það, sem þar var fram borið. Ég tel að íslenzka þjóðin sé lánsöm að eiga slíkan kirkjuhöfð- ingja á biskupsstóli. Ég veit að ég þarf ekki að tíunda hæfileika hans, en minna má á hina víðtæku þekkingu hans í öllum helstu trúarbrögðum heims. Ég ætla ekki að orðlengja mál mitt en þakka biskupnum þetta góða framlag hans og skora á hljóðvarpið að endurtaka þáttinn.". • Lipur þjónusta Dagfriður Halldórsdóttir hringdi: Ég vil fá að koma kæru þakklæti til eigenda og starfsfólks Runnamura (Potentilla fruticosa) Runnamura er fyrirfero- arlítill sumargrænn runni sem fáanlegur mun vera hér og þar í garðplöntustöðvum á vorin, en runni þessi er viljugri til blómgunar en flestir aðrir runnar, sem hér eru á boðstólum. Umrædd tegund tilheyrir rósaætt og á að ættingjum margt fjölærra jurta, sem mikið eru notaðar í stein- hæðir eða á annan hátt. Má t.d. nefna blendingsmurur, blóðmuru, glæsimuru, jarð- arberjamuru, silkimuru o.fl. íslenskir ættingjar runna- murunnar eru t.d. engja- mura, gullmura og tága- mura sem einnig sjást not- aðar í görðum. Runnamuran vex villt víðsvegar á norður- hveli jarðar, bæði í Evrópu, Asíu og N-Ameríku. Ýmist heldur hún sig á þúfnakoll- um í deiglendi eða þá á Smám saman hefur því orð- ið til álitlegur hópur af- brigða og bastarða þeirra í milli, sem ýmist eru jarð- lægár plöntur, allt að því skriðular, eða með meira eða minna uppstæðum greinum, sem síðan jafnvel sveigjast í átt að jörð á ný eftir að hafa náð 6—80 sm hæð eða svo. Blöð sumra afbrigða eru örsmá og oft eru þau silki- hærð bæði á efra og neðra borði, og sýnast þá ýmist grágræn eða grá. Blómin eru í ýmsum gul- um litbrigðum allt frá hvítu eða rjómagulu niður í gul- rautt eða jafnvel rautt eins og á afbrigðinu RED ACE, sem nýlega kom fram í Englandi og vakti óhemju athygli. Til þessa mun tegundin sjálf mest ræktuð í görðum þurrlendum meira eða minna kalkríkum jarðvegi. Tegundin sjálf er mjög al- geng í ræktun, en hún er mjög þéttgreinóttur runni rösklega 1 m á hæð. Greinar runnamuru eru grannar og brúnleitar og þegar þær eldast flagnar börkurinn af. Utan vaxtartímans virkar runnamuran því frekar rytjuleg, á sama máta og ýmsir geitblöðungar gera. Blöðin eru smágerð, stak- fjöðruð og þéttstæð 1—3 sm á lengd og eru dálítið hærð á neðra borði. Blóm runnamurunnar eru skærgul um 2—3 sm á stærð, ýmist stök eða örfá saman. Oftast byrjar blómgun síðast í júní og heldur síðan áfram allt fram á haust uns frysta tekur fyrir alvöru. Að þessu leyti er runnamuran frá- brugðin öðrum runnum sem venjulegast bera blómin að- eins í 2—4 vikur. Er því mikill fengur að henni í görðum. Runnamuran býr yfir fjölbreytilegum erfða- eiginleikum, en þeirra gætir ekki aðeins í vaxtarformi plantna heldur einnig í lit- brigðum blóma og blaða. hérlendis ásamt danska af- brigðinu Mánelys, sem hef- ur skærari blómlit. Ýmis önnur afbrigði hafa verið reynd án þess þó að mark- vissar athuganir hafi verið að ræða. Ennþá er því ekki fyrir hendi full vitneskja um almennt notagildi þeirra við þær breytilegu aðstæður sem hér ríkja. Líkur eru þó fyrir að í vel skýldum görðum ættu sum þeirra að geta spjarað sig. Runnamura mætti gjarn- an sjást meira gróðursett hér eftirleiðis eii hingað til hefur verið gert. Tegundin er furðu harðger og auk þess getur hún talist nægju- söm bæði á jarðveg og næringu. Rétt er þó að ætla henni frekar þurran og sólríkan stað og fyrir það 'mun hún launa ríkulega á hverju sumri með blómaskrúði sínu. Lágvaxin afbrigði hennar í steinhæðir en þau hávaxnari má nota á ýmsa vegu svo sem í gerði, á stalla eða í beð með öðrum runna- gróðri. Runnamuru er auð- velt að fjölga með sumar- græðlingum í reit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.