Morgunblaðið - 12.04.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1980
11
alltof sjaldan af þeim virðuleik
sem sæmir þeim sem að finnur.
Oftar en ella segir það meira um
hugarfar, tilfinningar og skoðanir
gagnrýnandans en þess, sem verið
er að gagnrýna ...“
„Því miður eru allt of mörg
eyru, sem það kitlar að heyra
misjafnt um náungann, enda ótrú-
legt að menn leggi á sig slíka iðju
nema von sé um einhvern árang-
ur...“
„Gagnrýni okkar innbyrðis á
hvert annað væri okkur öllum til
meiri sóma ef hún væri háttvísari
og jákvæðari, vekti fleiri spurnir,
efldi forvitni og hvetti menn til að
kynna sér málin af eigin rammleik
í stað þess að hamra á slagorðum
og höfða endalaust til trúgirni
manna. Ég er nefnilega sannfærð
um, að það sé hið jákvæða, sem
eflir okkur til dáða, og hið nei-
kvæða brýtur okkur niður. Og af
því að mér er málið skylt sem
leikhúsmanneskju get ég ekki lát-
ið hjá líða að vekja athygli á því,
að framangreindar athugasemdir
mínar um óbilgjarna gagnrýni og
særandi ummæli um menn á jafnt
við á öðrum vettvangi en í stjórn-
málaheiminum ...“ (Tilvitnun
lýkur.)
Vissulega eru þetta falleg orð.
Hver skyldi trúa því að sá sem
þannig mælir sé nýbúinn að leggja
blessun sína yfir mestu rógs- og
svívirðingaherferð í sögu íslenskr-
ar blaðamennsku.
Húsráðandinn
Árið 1976 er Vigdís Finnboga-
dóttir ennþá leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Það ár
tekur hún til sýningar leikritið
Æskuvinina (öðru nafni Húsráð-
andann) eftir Svövu Jakobsdóttur,
og er leikritið frumsýnt 29. októ-
ber. Hinn 4. nóvember ritar Jó-
hann Hjálmarsson leikdóm í Mbl.
pg segir m.a.: „Verkið er pólitískt.
I senn er vikið að undirokun konu
innan fjögurra veggja heimilisins
og hvernig þjóð verður ósjálfstæð
vegna lítilþægni við framandi
vald. Ymis dæmi úr samtímanum
eru dregin fram, til dæmis undir-
skriftir Varins lands ... ég sé ekki
betur en í Æskuvinum sé alþingi
flutt inn í leikhúsið, þingmaðurinn
og rithöfundurinn saman í eitt ...
Leikararnir lögðu sig fram eins og
þetta væru orð úr innstu hjarta-
fylgsnum þeirra ..." I Tímanum
30. nóvember birtist leikdómur
eftir Jónas Guðmundsson undir
fyrirsögninni: „Að hefna þess í
leikhúsi sem hallaðist á alþingi.“
Jónas segir m.a.: „Mér hefur verið
tjáð, að nokkur hluti þessa verks
hafi orðið til í leiksmiðju, þ.e. í
sjálfu Ieikhúsinu. Alþingi er á
vissan hátt líka leiksmiðja, þar
verða hlutirnir til, breytast í
meðförum og taka á sig endanlega
mynd, og þá afstaða þingmanna
líka eins og til að mynda Svövu
Jakobsdóttur, og þá er bara að
hefna þess í leikhúsi sem hallaðist
á alþingi." Jónas drepur á nokkur
atriði leiksins, þar á meðal há-
punktinn, þegar æskuvinirnir
nauðga „fjallkonunni". Til þess að
þeir lesendur, sem sáu ekki leikrit-
ið, fái gleggri mynd af anda
verksins, leyfi ég mér að vitna
orðrétt í texta þess:
KARL: Við skulum vekja hana.
KARL S: Já, vekjum hana.
KARL: Vekjum hana. (Ræðst á
hana fyrstur og síðan allir
þrír).
KARL S: Djöfull, hún slær.
KARL K: Og klórar. (Konan æp-
ir).
KARL: Æpirðu, kvikindið. (Tekur
fyrir munninn á henni).
Haldið henni. (Karl S. og
Karl K. halda henni þann-
ig að stelling hennar
minnir á kross meðan
Karl gerir sig líklegan til
að nauðga henni fyrstur).
HANN (birtist í dyrunum): Djöf-
ull. Djöfull. (Rýkur til og
hrifsar í Karl og öskrar á
þá þangað til þeir komast
til sjálfra sín; konan ligg-
ur kyrr á gólfinu en þeir
staulast upp og standa í
röð frammi fyrir honum
með hönd á pung). Þetta
er ljóta helvítis goddam
aðkoman. Konan á gólfinu
og þið standið stjarfir
með hönd á pung...
Síðustu orðin, sem höfundur
leikritsins hefur sýnilega mætur
á, eru fengin að láni úr vísu, sem
Þórarinn nokkur Eldjárn orti um
mynd af forgöngumönnum Varins
lands. Vísan vakti svo mikla
hrifningu á Þjóðviljanum, að hún
var birt í því blaði, ekki einu sinni,
heldur mörgum sinnum. Bæði
vísan og leikritið heyra sjálfsagt
undir það sem leikhússtjórinn
kallar „eðlileg viðbrögð". Um
smekkinn ætla ég ekki að fjölyrða,
en undarlega er hann líkur hjá
Þjóðviljanum og leikhússtjóran-
um.
Leiðin til list-
rænnar tjáningar
I Morgunblaðinu 16. nóvember
1977 er frá því greint, að blaðinu
hafi borist fréttatilkynning og
ávarp undirritað af 78 mönnum.
Fréttatilkynningin hefst með
þessum orðum:
„Stofnaður hefur verið sjóður til
verndar málfrelsi á íslandi. Til-
gangur sjóðsins er að tryggja
fyllsta frelsi til umræðu um mál-
efni, sem varða almannaheill og
til óheftrar listrænnar tjáningar
... Eins og fram kemur í ávarpi
stofnenda er hið beina tilefni þess,
að sjóðurinn er stofnaður nú,
dómar kveðnir upp í Hæstarétti
nýlega vegna ummæla sem fallið
hafa í umræðu um herstöðva-
mál...“
Morgunblaðið birtir nöfn stofn-
enda sjóðsins. Þar er að finna
leikhússtjórann sem flutti hug-
vekjuna um daginn og veginn
þremur árum fyrr, Vigdísi Finn-
bogadóttur. Nú er öldin önnur, og
svo mikið liggur nú við, að ekki
þykir nægja að styðja óhróð-
ursmenn með orðunum einum.
I Alþingistíðindum 10. hefti
1978 segir frá kosningu 7 manna í
úthlutunarnefnd listamannalauna
hinn 22. desember það ár. Þar er
fyrst talin Vigdís Finnbogadóttir
leikhússtjóri, fram borin af Al-
þýðubandalagi að því er best
verður séð (væntanlega til að
tryggja framgang „óheftrar list-
rænnar tjáningar"). Það er því
tæpast við mig að sakast, ef búið
er að „setja fólk í einhverja
viðtekna bása“, svo að vitnað sé í
orð Vigdísar hér í upphafi. Þar
hafa aðrir orðið fyrri til.
(HLÉ)
F erOaskrif stof-
an Urval 10 ára
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval
hf. varð 10 ára 13. febrúar sl.
Skrifstofan hefur, auk þess að
selja flugfarseðla og sólarlanda-
ferðir, boðið til sölu járnbraut-
arfarseðia um alla Evrópu. Þá
hefur Úrval söluumboð fyrir
færeysku milliiandaferjuna
Smyril.
Á sl. hausti tók skrifstofan við
Fegurðarsamkeppni Islands
ásamt Hljómplötuútgáfunni og
munu þessir tveir aðilar efna til
skemmtanahalds um landið á
næstunni þar sem kosnar verða
fegurðardrottningar landsfjórð-
unganna. Einnig verður boðið
upp á skemmtiatriði, ferðakynn-
ingu, bingó, dans o.fl.
Fréttir úr Reykhólasveit
Miðhúsum. 8. apríl.
VORVEÐUR hefur verið hér
um páskana og meira um ferða-
fólk en oft áður um þessa helgi.
Á páskadag var guðsþjónusta
í Reykhólakirkju og var kirkjan
þétt setin.
I páskavikunni var sýnt hér
þrisvar sinnum leikritið Lína
langsokkur, eftir Astrid
Lindgren, við mjög góða aðsókn
undir ágætri leikstjórn Þóru
Lovísu Friðleifsdóttur.
Hlutverkaskipting var þann-
ig: Lína langsokkur/ Bryndís
Kristjánsdóttir, Gautsdal,
Anna/ Inga Hrefna Jónsdóttir,
Mýrartungu, Tommi/ Einar Tr.
Kristinsson, Gufudal, Kennslu-
konan/ Þórunn Játvarðsdóttir,
Reykhólum, Kalli (lögreglu-
þjónn)/ Sigurgeir Tómasson,
Mávavatni, Lalli (lögreglu-
þjónn)/ Jón Árni Sigurðsson,
Skerðingsstöðum, Ari (þjófur)/
Valdimar Hreiðarsson, Reyk-
hólum, Kári (þjófur)/ Jón Þór
Þórólfsson, Reykhólum, Negra-
kóngur/ Vilhjálmur Sigurðs-
son, Miðjanesi, Brúnklukka/
Karlotta Jóna Finnsdóttir,
Skerðingsst., Leiðindaskjóða/
Svanhildur Sigurðardóttir,
Reykhólum, Slúðurbjalla/
Hafdís Héðinsdóttir, Reykhól-
um. Nemendur: Ásta Isafold
Mannfreðsdóttir, Reykhólum
og Elías Már Hallgrímsson,
Skálanesi. Hvíslari: Vaka Ól-
afsdóttir, Reykhólum.
Eins og nafnalistinn ber með
sér voru leikendur úr þremur
hreppum Austursýslunnar og
mun samvinna hafa verið með
ágætum. Formaður leikfélags-
ins hér er frú Margrét Ágústs-
dóttir, Mýrartungu.
-Sveinn
lar þú
mála
r •
Glæsileg málíungarsymng
í ByggingaþjVnustunni,
sem sýnir umlteið flest til
húsbygginga og ð^nréttinga
Sunnui
kl. 2-6
í salarkynnum Byggingaþjónustunnar,
Húsi iðnaðarins við Hallveigarstíg
Við sýnum m.a. Decadex
- langþráða og örugga lausn við sprungumyndun í steinsteypu.
Einnig fjöldi annarra athyglisverðra málningarefna.
Skemmtilegur og fróðlegur sunnudagur fyrir alla húseigendur.
Decadex - málningarefni
í algjörum sérflokki
nrri
Liquid Plastics umboöiö '—i ^
Laugavegi 178 - Reykjavík - sími 30760 * l