Morgunblaðið - 12.04.1980, Side 18

Morgunblaðið - 12.04.1980, Side 18
 18 TÓNLEIKAR: Árnesingakórinn og Samkór Sel- foss i Bústaðakirkju i dag ÁRNESINGAKÓRINN í Reykja- vík og Samkór Selfoss halda tónleika í Bústaðakirkju kl. 17 í dag, laugardag. Söngstjóri Sam- kórs Selfoss er Björgvin Þ. Valdi- marsson og undirleikari Geirþrúð- ur Bogadóttir. Söngstjóri Árnes- ingakórsins er Helga Gunnars- dóttir. Árnesingakórinn fer í söng- ferðalag um Snæfellsnes um næstu helgi og kemur fram í Stykkishólmi þann 18. apríl kl. 21 og í Röst á Hellissandi í boði Tónkórsins og syngja kórarnir þar saman á laugardeginum kl. 21. Kórinn lýkur vetrarstarfi sínu með þessum tónleikum á Snæfells- nesi. LEIKHÚS: Þjóöleikhúsiö: Stundarfriður í síðasta sinn í kvöld í KVÖLD fer fram síðasta sýning- in á hinu vinsæla leikriti Guð- mundar Steinssonar, Stundarfriði. Ekkert íslenzkt leikrit hefur verið sýnt jafn oft í Þjóðleikhúsinu til þessa og hefur verkið og sýningin vakið áhuga erlendra leikhús- manna, svo Þjóðleikhúsið hefur fengið boð um að koma með uppfærsluna á hina frægu BIT- EF-leiklistarhátíð í Júgóslavíu í haust. Leikstjóri er Stefán Baldursson, en leikmynd gerði Þórunn Sig- ríður Þorgrímsdóttir. I helstu hlutverkum eru Kristbjörg Kjeld, Helgi Skúlason, Sigurður Sigur- jónsson, Guðrún Gísladóttir, Lilja Þorvaldsdóttir, Guðbjörg Þor- bjarnardóttir og Þorsteinn Ó. Stej)hensen. Á morgun, sunnudag, sýnir Þjóðleikhúsið Óvita kl. 15 og Sumargesti kl. 20.00. LEIKHÚS: Kópavogur. Þorlákurþreytti á fjölunum í Kópavogi í Kópavogsleikhú.sinu sýnir Leikfélag Kópavogs „Þorlák þreytta“ i kvöld kl. 20.30. LEIKHÚS: Leikfélagiö: „Klerkar í klípU“ á miðnœtur- sýningu í kvöld LEIKFÉLAG Reykjavíkur sýnir „Klerka í klípu“ á miðnætursýn- ingu í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 23.30. Á fjölunum í Iðnó verður „Ofvitinn“ bæði í kvöld og annað kvöld, sunnudagskvöld. NORRÆNA HÚSIÐ: PICASSO og fleiri heimsþekktir listamenn á sýningu Hjónin Sonja Henie og Niels Onstad fyrir framan byggingu listasafnsins í Ósló er nefnt hefur verið eftir þeim. Mörg málverk eftir heimsfræga listamenn hafa verið fengin að láni úr safninu og verða á sýningu sem opnuð verður í Norræna húsinu á morgun kl. 17. Kynning á fœreyskri tungu og bókmenntum í Norræna húsinu NORDISKT SPRÁKÁR í TILEFNI norræna málaársins hefur Norræna félagið beitt sér fyrir kynningu á granntungum okkar. I dag, laugardag, er efnt til kynningar á færeysku í Nor- ræna húsinu kl. 16.00. Þar flytur Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri ávarp, en hann er starfandi formaður íslenzku málaárs- nefndarinnar. Stefán Karlsson handrita- fræðingur flytur einnig stutt erindi um færeyskt mál, Vé- steinn Ólason lektor fjallar um færeyska sagnadansa. Rubek Rubeksen, færeyskur háskóla- nemi, talar um upphaf fær- eyskra nútímabókmennta. Þá verður stiginn færeyskur dans. Eru allir velkomnir á fundinn meðan húsrúm leyfir. Norræna húsið efnir einnig til sýningar á færeyskum bókum í bókasafni sínu. VÍSNASÖNGVAKYNNING: Frægustu visnasöngvarar Frakka í NÚ STENDUR yfir í franska bókasafninu á Laufásvegi 12 í Reykjavík vísnakynningarsýn- ingin „La chanson francaise". Á sýningunni gefst gestum tækifæri til að hlusta á ýmsar tegundir fransks vísnasöngs, s.s. nýbylgjusöng, þjóðvísur, alda- tónum og mótavísur, barnavísur o.fl. Sér- stök kynning er á frægustu vísna- söngvurum Frakka og einnig eru kvikmyndasýningar um þennan þekkta kafla í sönglist Frakka. Sýningin stendur yfir fram á n.k. miðvikudag og er opin daglega frá kl. 17.00-19.00. myndum Sendiherra Frakka á íslandi, hr. Desbans, stendur hér hjá vegg- myndum af nokkrum frægum frönskum vísnasöngvurum. Það er franska sendiráðið sem stendur að kynningunni. SíMON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.