Morgunblaðið - 12.04.1980, Síða 19
HVAÐ EB AÐ 6ERAST I BÆNUH
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1980 1 9
STYRKTARTÓNLEIKAR:
Yfir 100 ungmenni styrkja
byggingu hjúkrunarheimilis
um á aldrinum 16—21 árs. Stjórn-
andi hans er Þorgerður Ingólfs-
dóttir. Stjórnandi Hornaflokksins
er Björn Guðjónsson.
Á efnisskrá Hornaflokks Kópa-
vogs verða lúðrasveitarmarsar,
beat-tónlist og margt fleira. Hjá
Hamrahlíðarkórnum er m.a. að
finna íslenzka tónlist, madrigala,
negrasálma og þjóðlög frá ýmsum
löndum.
Allur ágóði rennur til byggingar
Hjúkrunarheimilis aldraðra. Með-
fylgjandi myndir eru af Horna-
flokknum og kórnum.
SYNINGAR:
Á MORGUN, sunnudag kl. 19.00
verða haldnir tónleikar í Háskóla-
bíói til styrktar byggingu Hjúkr-
unarheimils aldraðra í Kópavogi.
Eru það' yfir 100 ungmenni í
Hornaflokki Kópavogs og Hamra
hlíðarkórnum sem efna til þessara
tónleika og ganga þannig til liðs
við söfnun þessa í Kópavogi.
Hornaflokkur Kópavogs er skip-
aður fyrrverandi nemendum
Skólahljómsveitar Kópavogs og
eru hljóðfæraleikarar um 40 tals-
ins. Á þessu skólaári er Hamra-
hlíðarkórinn skipaður 57 nemend-
Sýningu Gríms í F.Í.M.-
salnum lýkur á morgun
GRÍMUR M. Stein-
dórsson sýnir í sýn-
ingarsal F.Í.M. á Laug-
arnesvegi 112. Sýn-
ingunnilýkur á
morgun, sunnudag,
en er opin í dag og á
morgun frá kl. 14—
22.
Á sýningunni eru
65 myndir, úr vatns-
lit, olíu og skúlptúr-
myndir. Mörg
verkanna eru þegar
seld.
Eitt af skúiptúrverkunum á sýn ingunni.
SÝNINGAR:
Forvarsla textíla
í BOGASAL Þjóðminjasafns-
ins stendur yfir sýning, sem
ber heitið „Forvarsla textíla".
Sýningin fjallar um hvernig
fornminjar eru varðar, er þær
koma inn á söfn. Hér eru á
ferðinni að þessu sinni munir
úr vefnaðarvöru.
Sýningin er opin í dag og á
morgun frá kl. 13.30 til 16.00.
fORUHRSCH
Stórhátíð Útsýnar sunnudagskvöld
FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn er
25 ára um þessar mundir. í tilefni
þessa verður efnt til stórhátíðar
að Hótel Sögu á sunnudagskvöld.
Húsið opnað kl. 19, afmælisveizlan
hefst stundvíslega kl. 19.30.
Á matseðlinum er „Paillarde
D’agneau Maitre Durand" og í
eftirrétt „Poires Útsýn". Til
skemmtunar verður m.a. að Jón
Þorsteinsson tenór syngur íslenzk
og erlend lög, undirleikari Agnes
Löve, íslenzki dansflokkurinn
kemur fram, Ómar Ragnarsson
skemmtir. Auk þess verða undan-
úrslit í ungfrú Utsýnarkeppninni,
stór-bingó þar sem vinningar
verða Útsýnarferðir fyrir sex, þá
spurningaleikur með verðlaunum,
tízkusýning, þá diskótek og í lokin
verður dansað við undirleik
hljómsveitar Ragnars Bjarnason-
ar, ásamt söngkonunni Mariu Hel-
enu.
SÝNING FRÉTTALJÓSMYNDARA:
Fólk, fólk og aftur fólk er efni sýningarinnar
Ljósmyndasýningin „Fólk“ sem ljósmyndarar dagblaðanna í Reykjavík standa að er opin um helgina frá kl.
14—22 báða dagana. Sýningin er í Ásmundarsal og stendur til 18. þ.m.
Fjölmenni var við opnun sýningarinnar en þá var meðfylgjandi mynd tekin.
HLJOMLEIKAR:
Dordinglar, Frœbbblar og fleiri
á hljómleikum í Kópavoginum
FJÓRAR hljómsveitir koma fram
á hljómleikum í Félagsheimili
Kópavogs í dag og er viðbúið að
rokk af ýmsum gerðum verði í
algleymi. Hljómleikana kenna að-
standendur við Heilbrigða æsku.
Hljómsveitirnar, sem koma
fram, eru Dordinglar, en hana
skipa piltar á aldrinum 14—15
ára, Judah, sem skipuð er 17—18
ára piltum og býður upp á þyngra
rokk, Bubbi Morthens og Utan-
garðsmenn láta því næst í sér
heyra og loks eru Fræbbblarnir
með sína dagskrá.