Morgunblaðið - 12.04.1980, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1980
Minning:
Ófeigur Eiríksson, bœjar-
fógeti og sýslumaður
Fæddur 14. ágúst 1927.
Dáinn 27. mars 1980.
Kær vinur minn og náinn sam-
starfsmaður um árabil, Ófeigur
Eiríksson, sýslumaður og bæjar-
fógeti á Akureyri og Dalvík er
látinn, langt um aldur fram,
aðeins 52 ára að aldri.
Við fráfall hans er svo margs og
margs og alls góðs að minnast frá
samveru okkar og nánu samstarfi
á Siglufirði forðum daga, að ég get
ekki orða bundizt, nú er hann er
allur, þótt samskipti okkar hin
síðari ár hafi ekki verið jafnnáin
og áður var, en þó alltaf góð og
ánægjuleg, og vík hafi verið milli
vina um langa hríð.
Eg minnist þess nú, að er ég
fluttist til Siglufjarðar fyrir nærri
28 árum, voru í sumarlögregluliði
bæjarins allmargir ungir og
glæsilegir menn, flestir náms-
menn. Einn þessara ungu manna
var Ófeigur Eiriksson, með hæstu
mönnum vexti, grannur og spengi-
legur, með fjaðurmagnaðan lima-
burð íþróttamanns. — Ég komst
að því, að hann var þá tiltölulega
nýlega fluttur til Siglufjarðar frá
Akureyri og kvæntur ungri og
myndarlegri stúlku, siglfirzkri,
Ernu Sigmundsdóttir, en kynnzt
hafði ég föður hennar, Sigmundi
Einarssyni, er ég starfaði á sumr-
um á Siglufirði á námsárum
mínum. — Svo þróuðust mál, að er
Ófeigur hafði lokið lögfræðiprófi
vorið 1953 réðst hann sem fulltrúi
við bæjarfógetaembættið á Siglu-
firði og hófust þá fyrir alvöru
kynni okkar, sem með árunum
urðu að einlægri vináttu. Varð
mér brátt ljóst, að ráðning hans í
það starf, sem áður er nefnt hefði
verið vel ráðin og að ekki myndi
hann láta sinn hlut eftir liggja í
önn dagsins, enda var hann
víkingur til vinnu, skjótráður og
skarpur og samvizkusamur með
afbrigðum.
Ófeigur Eiríksson var fæddur
14. ágúst 1927 að Breiðagerði í
Lýtingstaðahreppi í Skagafirði ög
ólst upp þar í sveit með foreldrum
sínum, þeim hjónum Eiríki Ein-
arssyni og Rut Ófeigsdóttur.
Eiríkur lézt skyndilega langt
fyrir aldur fram árið 1952, en Rut,
móðir Ófeigs er á lífi áttræð að
aldri. — Stúdentsprófi lauk Ófeig-
ur vorið 1948 og kandidatsprófi í
lögum vorið 1953, svo sem áður
segir. — A Siglufjarðarárum
sínum var hann oft og langtímum
saman settur bæjarfógeti í fjar-
veru minni um þingtímann. Vissi
ég vel, að engar áhyggjur þyrfti
ég, í fjarveru minni, að hafa af
rekstri embættisins, meðan hann
veitti því forstöðu, vegna starfs-
hæfni hans og öryggis, þótt naum-
ast gerðist nokkuð svo, sem við
kom embættinu, að ekki léti hann
mig vita, hvað í efni væri og ræddi
málin við mig. Virti ég þetta mjög
við hann, þótt ég vissi vel, að allra
manna bezt væri honum sjálfum
treystandi til að ráða svo fram ur
því, sem að höndum bar, að ekki
yrði á betra kosið. — Svo háttaði
til á Siglufirði öll þau ár, sem ég
bjó og starfaði þar, að í því sama
húsi, sem skrifstofur bæjarfógeta-
embættisins voru í, var einnig
embættisbústaður bæjarfógeta. —
Af því leiddi, að náin og ánægju-
leg kynni stofnuðust milli þess
ágætisfólks, sem þá starfaði á
bæjarfógetaskrifstofunum og okk-
ar hjóna og barna okkar. Má
raunar segja, að við, íbúar hússins
og starfsfólk embættisins hafi
litið á sig sem eina og sömu
fjölskyldu. — I því heimilislífi
komu aðrir mannkostir Ófeigs vel
í ljós. Hann var allra manna
háttprúðastur og hafði geðfellt og
vingjarnlegt viðmót við hvern sem
var. Skemmtilegur var hann í
viÖræðum, fyndinn og orðheppinn,
enda gæddur góðri greind. —
Hann var fastur fyrir í skoðunum
sínum á mönnum og málefnum, en
aldrei ósanngjarn og lét ekki, svo
ég viti til, mismunandi skoðanir
sínar og annarra manna bitna á
þeim á nokkurn hátt, enda gerðist
hann, hvar sem hann dvaldi vin-
sæll og vinmargur og var vinahóp-
ur hans ekki bundinn neinum
sérstökum hópi eða flokki. — Á
Siglufirði tók Ófeigur all-mikinn
þátt í félagsmálum, einkum þeim,
sem að íþróttum lúta, enda var
hann á yngri árum sínum áhuga-
samur og snjall íþróttamaður. —
Hann var öruggur liðsmaður
Sjálfstæðisflokksins í sókn og
vörn og munaði vel um liðyeizlu
hans, þar sem hann tók til hendi.
Sat hann um skeið og þar til hann
flutti frá Siglufirði í bæjarstjórn
og bæjarráði Siglufjarðar og mun
þar sem annars staðar hafa unnið
störf sín af skyldurækni og dugn-
aði. Ófeigur Eiríksson var mikill
embættismaður, hvar sem hann
starfaði og gegndi embættisverk-
um öllum af öryggi, reisn og
myndugleika. — í tómstundum
sínum stundaði hann ferðalög og
útivistir var t.d. áhugasamur og
heppinn laxveiðimaður, en á því
sviði áttum við litla samleið, mér
kannske til lasts, en ekki honum.
— Haustið 1960 hvarf Ófeigur frá
Siglufirði, þá orðinn bæjarfógeti í
Neskaupstað í Norðfirði. Þótti
mikil eftirsjá að honum, er hann
flutti frá Siglufirði sem vonlegt
var, og tómlegra þótti mér lengi
eftir það á bæjarfógetaskrifstof-
unum þar og á heimilinu er ég
naut ekki lengur nærveru hans og
daglegra samvista við hann. I
Neskaupstað mun hann sem ann-
ars staðar hafa notið vinsælda og
trausts, bæði sem yfirvald og
borgari og ekki mun svo síður
hafa verið eftir að hann fluttist á
heimaslóðir sínar til Akureyrar
haustið 1967, en skipaður var
hann bæjarfógeti þar og sýslu-
maður í Eyjafjarðarsýslu í júní
það ár og gegndi hann því embætti
til dauðadags.
Fyrir nokkrum árum kenndi
Ófeigur þess sjúkdóms, sem nú
hefir leitt til þess, sem orðið er.
Varð hann hans vegna að leggjast
all oft á sjúkrahús, einkum hin
síðari ár. Sjúkdóm sinn mun hann
hafa borið af karlmennsku, þótt
starfslöngun hans og meðfædd
skyldurækni og samvizkusemi
muni á stundum hafa valdið
honum nokrum óróleika. — Síðast
sá ég Ófeig vin minn fyrir um 1
ári. Hafði þá sjúkdómsþreyta og
endurteknar sjúkrahúslegur ber-
sýnilega sett mark sitt á útlit hans
og fas sem vonlegt var. Sagði hann
mér við þennan síðasta fund
okkar, að þá yrði þess skammt að
bíða, að hann þyrfti enn að
leggjast á sjúkrahús. Þó var hann
léttur í máli sem fyrr og hélt fullri
andlegri reisn sinni. — Eftir
langvarandi og efiða veikindabar-
áttu hlotnaðist honum að lokum
sú náð, sem margir óska sér, þegar
þar að kemur,að deyja í svefni.
Svo sem áður er að vikið var
Ófeigur kvæntur Ernu Sigmunds-
dóttur frá Siglufirði, sem lifir
mann sinn ásamt 4 börnum þeirra.
Er hún dóttir hjónanna Sigmund-
ar Einarssonar, skipstjóra, sem er
fyrir löngu látinn og Soffíu Guð-
bjartsdóttur, sem látin er fyrir
örfáum árum, þá orðin öldruð
kona. Bjó hún um langt skeið hjá
þeim Ófeigi og Ernu dóttur sinni í
öruggu skjóli þeirra. Erna Sig-
mundsdóttir er mikil mannkosta-
kona. Hún stóð með hógværð og
látleysi fast við hlið manns síns í
tignarstöðu hans og dagsins önn
og ekki mun hún síður hafa styrkt
hann og stutt og reynzt honum
sannur verndarengill í langvar-
andi vanheilsu hans. — Börn
þeirra Ernu og Ófeigs eru Rut, gift
Hólmsteini Hólmsteinssyni, fram-
kvæmdastjóra, búsett á Akureyrí
og eiga þau hjón 3 börn, Sigmund-
ur Einar, verkfræðinemi, í heima-
húsum, Soffía, við nám í mennta-
skóla, heitbundin Lárusi R. Blön-
dal frá Siglufirði, einnig í
foreldrahúsum og Ófeigur Örn í
barnaskóla. Öll eru börnin 4
mannvæn og vel gerð svo sem þau
eiga kyn til í báðar ættir.
Þau Rut Ófeigsdóttir og Eiríkur
Einarsson, foreldrar Ófeigs, eign-
uðust 7 börn, en af þeim eru nú
aðeins 3 á lífí, þau Óskar, fyrrum
búnaðarráðunautur, búsettur á
Akureyri, Ragnar, búnaðarráðu-
nautur í Skagafirði og Birna
húsfreyja á Akureyri. Látin eru
nú auk Ófeigs, Helgi, sem dó á
unglingsárum, Bergur, sem látinn
er fyrir fáum árum og Stefán, sem
andaðist fyrir örfáum vikum. —
Mikill harmur er kveðinn að Rut
Ófeigsdóttur á efri árum hennar,
er hún á á bak að sjá þrem sonum
sínum, nú síðast Öfeigi, á fáum
árum, sem allir létust langt um
aldur fram. — Er henni og
eftirlifandi börnum hennar vottuð
innileg samúð vegna his mikla
missis.
Sár er einnig harmur þinn,
Erna, barna ykkar, tengdasonar
og barnabarna við fráfall elsku-
legs eiginmanns, föður, tengdaföð-
ur og afa, á bezta aldri. — Ykkur
öllum get ég ekki óskað neins
betra en þess, úr því sem komið er,
að ykkur megi „innan skamms
skína úr skýjum sólin blíð“ og að í
skini sólar megi endurminning
þess sem var um vammmlausan
öðlingsmann ylja ykkur og verma.
Fari svo minn góði vinur og
gamli samstarfsmaður vel á fund
Herra síns. Þakkir eru honum nú
að leiðarlokum færðar frá mér og
mínum fyrir vináttu hans,
drengskap og hollustu, sem var
slík, að okkur mun aldrei úr minni
líða.
Einar Ingimundarson.
Ófeigur Eiríksson er fallinn frá
langt um aldur fram, aðeins 52ja
ára. Enda þótt fráfall hans bæri
skyndilega að í fjarlægri heims-
álfu kom það þó hvorki ástvinum
hans né þeim er þekktu hann með
öllu á óvart eftir svo langvarandi
veikindi sem Ófeigur hefur átt við
að stríða.
En þó að aldurinn væri ekki
hærri átti Ófeigur að baki langan
embættisferil. Hann var skipaður
bæjarfógeti í Neskaupstað síðla
árs 1960 og hélt þá þangað austur
ásamt fjöiskyidu sinni, þar öllu og
öllum ókunnur, frá Siglufirði þar
sem hann hafði starfað við bæj-
arfógetaembættið sem fulltrúi allt
frá því að hann lauk lagaprófi
vorið 1953. Ófeigur var löngum á
þessum árum settur bæjarfógeti á
Siglufirði. Á námsárum sínum
hafði Ófeigur gegnt lögreglu-
mannsstörfum á Siglufirði nokkur
sumur.
í Neskaupstað kom Ófeigur að
litlu og þægilegu embætti þar sem
aðstæður voru að ýmsu leyti
ákjósanlegar, betri embættisbú-
staður en víðast hvar annars
staðar og skrifstofur embættisins
í hluta sama húss, lítt aðskildar
frá heimili bæjarfógetans. Um-
dæmið var heldur ekki víðlent eða
erfitt yfirferðar þó innilokað væri
oft langtímum saman. í þessu
umhverfi vann Ófeigur störf sín
svo orð fór af og athygli vakti
langt út fyrir umdæmi hans. Það
var á þessum árum sem ég kynnt-
ist Ófegi Eiríkssyni og þá sem
dómara í fjölmörgum landhelg-
ismálum breskra togaraskip-
stjóra.
Ófeigur var að eðlisfari hlé-
drægur maður, allt að því feiminn,
en þó ákveðinn svo eigi varð
honum haggað frá því er hann
taldi vera rétt. Með okkur Ófeigi
tókst strax eitthvað annað og
meira en venjulegur kunnings-
skapur. Mér var, er ég kom í
fyrsta landhelgismálið, skipað til
herbergis í bæjarfógeta-
bústaðnum, inn af réttarsalnum.
Þar skyldi sofið á meðan á málinu
stæði eftir því sem réttarhlé
leyfðu. Næturnar urðu tíu því
yfirheyra þurfti alla skipverja
togarans og marga varðskipsmenn
auk mats- og skoðunarstarfa. Frá
því máli og mörgum öðrum er
margs að minnast. T.d frá þessu
fyrsta máli er einn hinna erlendu
sjómanna kvaðst ekki reiðubúinn
að vinna eið nema hann fengi
helga bók. Ófeigur brá eins og
ávallt skjótt við í öllum vanda og
kom að vörmu spori með Biblíu,
sem var lítið eitt snjáð og bar þess
því nokkur merki að hún hefði oft
verið handleikin. Erlendi sjómað-
urinn hafði þá án frekari mót-
mæla eftir dómaranum eiðinn
með lotningu um leið og hann
lagði hönd sína á Biblíu bæjarfó-
getaheimilisins. Slík bók hefði
trúlega ekki verið tiltæk alls
staðar í réttarsölum.
Næturnar voru ekki allar notað-
ar til svefns. Bæði var það að
réttarhöldin stóðu yfirleitt langt
fram á nótt og eftir þau gafst loks
ráðrúm til annarra og skemmti-
legra hluta, félagsskapar við bæj-
arfógetann og fjölskyldu hans með
öðrum sem að málinu störfuðu. Þó
átti Ófeigur þá alla jafna fyrir
höndum vandasöm og krefjandi
störf sem ljúka varð áður en
framhald yrði á málinu næsta
morgun, annaðhvort við undirbún-
ing eða samningu dóms, en engu
að síður gaf hann sér ávallt tíma
til þeirra gleðistunda og var þá
oftast sá sem mest hafði fram að
færa og jafnan hrókur þess fagn-
aðar.
Margar urðu ferðirnar eftir
þetta til Neskaupstaðar á þessum
árum, enda virtust landhelgis-
gæslumenn leitast við að færa þau
skip er þeir stóðu að brotum miklu
oftar þangað en efni stóðu til, því
oftar en hitt var skemmri leið til
annarra hafna. Þeir vissu að í
Neskaupstað var Ófeigur og því
leituðu þeir þangað. Það var
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
STEINUNN ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR ZEBITZ,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 14. apríl kl.
1.30 e.h.
Börn, tengdabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö viö andlát og jarðarför,
SYLVÍU HANSDÓTTUR,
frá Vestmannaeyjum,
Svanur Kristjánsson
og fjölskylda.
+
Kærar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö
andlát og útför,
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR,
Laufey Gottliebsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Hjartans þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og
vinarhug vegna andláts
SVAVARS HERMANNSSONAR,
efnaverkfræöings,
Gnoðarvogí 50.
Frændum og góöum vinum í Borgarfiröi sendum viö sérstakar
þakkir fyrir hlýjar móttökur og vináttu viö útför hans aö Hvammi í
Noröurárdal þann 5. apríl.
Ursula Hermannsson,
Sólveig Svavarsdóttir Foster, Robert Foster,
Bernhard Svavarsson,
systkini hins látna og aörir ættingjar.
+
Við þökkum þé hluttekningu og vinsemd, sem alls staðar mætti
okkur við andlát og útför fööur okkar, tengdafööur og afa
GRÍMS GÍSLASONAR,
' Heiöarvegi 52, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til skipstjóra og stýrimannafélagsins Veröanda,
fyrir þá viröingu er þeir sýndu honum.
Einnig þökkum viÖ læknum og hjúkrunarliöi Sjúkrahúss Vest-
mannaeyja frábæra umönnun meöan hann dvaldi þar.
Magnús Grímsson, Aöalbjörg Þorkelsdóttir,
Anton Grímsson, Svava Jónsdóttír,
ÍAnna Grímsdóttir, Guöjón Magnússon,
Gísli Grímsson, Bjarney Erlendsdóttir,
Guðni Grímsson, Esther Valdimarsdóttir,
■ og barnabörn.