Morgunblaðið - 20.05.1980, Síða 2

Morgunblaðið - 20.05.1980, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAI 1980 Ragnar Jónsson í Smára: Styð Pétur Thorsteins- son til forsetaembættis RAGNAR Jónsson í Smára lýsti því yfir í K»‘r, þegar hann hitti Pétur Thorsteinsson að máli. aó hann hefði ákveðið að styðja hann til forsetaembætt- is. Mbl. spurði Rajjnar Jónsson, hvað hann vildi segja frekar um afstóðu sína. Hann sa>íði: „Nú er vor í lofti og fujíla- sönfíur í öllum görðum hér í Vesturbænum ok ástæða til að gleðjast yfir ýmsu því, sem leitar á hugann, t.a.m. fimmtíu ára afmæli Tónlistarfélagsins og heimsókn píanósnillingsins Rudolfs Serkins og fjölskyldu hans af því tilefni. Það er því vel við eigandi að taka af skarið og lýsa yfir stuðningi við Pétur Thorsteinsson, listrænan húm- anista, sem mundi skipa for- setaembættið með sóma. Mugg- ur frændi Péturs er minn uppá- haldsmáiari og það sem hann hefur bezt gert er öðru betra í íslenzkri myndlist. Mér finnst þeir frændur vera þó nokkuð líkir og þykist vita, að Pétur Thorsteinsson eigi eftir að flytja með sér inn á Bessastaðaheimil- ið það látlausa listræna and- rúm, sem fylgir þessu fólki." Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins: Ekki mögulegt að ljúka þingi fyrr en eftir hvítasunnu Frá slökkvistarfinu við Framnesveg. I.josm.: Júllus Maður fórst í eldsvoða Á LAUGARDAG kom upp eldur í húsinu Framnesvegur 25 í Reykjavík. Einn maður var sofandi í risherbergi þegar eld- urinn kom upp. Náðist maður- inn út en var látinn þegar komið var með hann á slysa- deild Borgarspítalans. Maður- inn hét Guðmundur Helgason, 62 ára gamail og átti heima í húsinu sem brann. Það var klukkan 15.40 að slökkviliðið var hvatt að Fram- nesvegi 25. Var þá mikill eldur logandi í húsinu, en það er gamalt timburhús. Þegar var ráðist til atlögu við eldinn og í Reykjavík reykkafarar könnuðu hvort ein- hver væri í húsinu. Fundu þeir Guðmund heitinn meðvitundar- lausan í risherberginu. Guð- mundur bjó þarna með dóttur sinni en hún var ekki heima þegar eldurinn kom upp. Talið er að kviknað hafi í út frá eldavél. Ríkisreikningurinn 1979: 10 milljarða mín- us frá fjárlögum Á FUNDI þingflokks sjálfstæð- ismanna síðdegis í gær var sam- þykkt svohljóðandi ályktun, sem Rafknúin járnbraut á íslandi? LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsálvktunar um raf- knúna járnhraut. I tillogunni felst að rikisstjórninni verði falið að kanna hagnýtt gildi þeirra hug- mynda sem upp hafa komið um raf knúna járnhraut til notkunar á mestu þéttbýlissva'ðum suðvestan- lands og austur fyrir fjall. í greinargerð með tillögunni segir að í þeirri miklu orkukreppu sem skollið hefur yfir þjóðina á undan- förnum árum hafi æ betur komið í ljós nauðsyn þess að nýta beri innlenda orkugjafa í stað innfluttra. Með þetta í huga telja flutnings- menn, sem eru Þórarinn Sigurjóns- son, Guðmundur G. Þórarinsson og Jóhann Einvarðsson, brýnt að kanna í hve miklum mæli Islendingar geti notfært sér rafknúin farartæki. Talið er að fullkomin hagkvæmnis- athugun muni kosta 450.000 vestur- þýsk mörk en það jafngildir um 112 milljónum ísl. kr. Flutningsmenn telja rétt að byrja á viðaminni áætlun, til að sjá hvort rétt sé að ráðast í svo kostnaðarsama rannsókn. í greinargerðinni segir ennfremur að hér sé um að ræða mál sem stuðli að auknu öryggi og sjálfstæði þjóðarinnar með því að gera hana minna háða erlendum innfluttum orkugjöfum. send var formönnum þingflokkanna og forsetum þingsins: „Á fundi neðri deildar Alþingis síðastliðið laugardagskvöld var frumvarpi til laga um Húsnæðis- málastofnun ríkisins vísað til félags- málanefndar deildarinnar. Var það á grundvelli samkomulags flokkanna um að 1. umræða yrði mjög stutt, en málið ítarlegar rætt við 2. og 3. umræðu að lokinni vandlegri athug- un í nefnd. Við afgreiðslu frv. í efri deild voru samþykktar um 70 breyt- ingartillögur við frv., þannig að hér er raunverulega um nýtt frv. að ræða. Sjálfstæðisflokkurinn telur að hér sé um svo viðamikið og stórt mál að ræða að ekki verði við það unað að það verði afgreitt án þess að það fái eðlilega athugun og umræðu í deild- inni. Lágmarkstími er ein vika að mati flokksins og því telur hann ekki mögulegt að ljúka þingi fyrr en eftir hvítasunnu, ef ljúka á þessu máli. Ef sú verður niðurstaðan, teljum við einnig nauðsynlegt að taka til af- greiðslu ýmis önnur mál, sem nú virðist ekki unnt að gera, ef stefnt er að þinglausnum á þriðjudag eða síðar í vikunni. „ÞAÐ er ljóst af þeim fundum, sem við höfum haldið, að fólk telur að það hafi dregizt úr hófi fram, að ríkisstjórnin settist af alvöru að samningaborðinu. Er Á REKSTRARJÖFNUÐI A-hluta ríkisreiknings 1979, sem Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, lagði fram á Alþingi í gær, kemur fram, að ríkissjóðsgjöid umfram ríkissjóðstekjur reyndust 1.110 milljónir króna á liðnu ári. Fjár- lög 1979 gerðu hins vegar ráð fyrir 6.664 milljónum króna tekjuafgangi. Hér skakkar því 7.774 milljónum króna í mínus frá þeirri útkomu, sem verða átti samkvæmt fjárlögum. Að auki kemur fram að skuldir við Seðla- banka jukust um 2.600 milljónir króna á árinu, þann veg, að fólk mjög undrandi á þeirri starfsaðferð og ætlazt það til að þar verði á breyting,“ sagði Kristján Thorlacius, formaður stjórnar Bandalags starfsmanna mínusinn frá fjárlaganiðurstöðu er rúmlega 10 milljarðar króna. Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra sagði halla ríkissjóðs heldur lægri en 1978. Hann sagði greiðsluafkomu ríkissjóðs við bankakerfið í heild hagstæða um 2250 m. kr. 1979 en hún hefði hins vegar verið neikvæð um 3795 m.kr. árið 1978. Að teknu tilliti til gengismunar og verðbóta á lánum við Seðlabankann hækkaði skuld ríkissjóðs við bankann um 2.332 m.kr. á árinu. Ráðherra sagði skuldir umfram eignir A-hluta ríkisreiknings í árslok 1979, 60.931 ríkis og bæja, en nú stendur yfir fundaherferð sambandsins, sem ljúka mun á fimmtudag. „Það er greinilegt," sagði Kristján, „að fólk ætlazt til þess af BSRB, að það breyti afstöðu ríkis- stjórnarinnar. Það vill velja tíma til verkfallsaðgerða, ef til þess þarf að koma. Auðvitað vill fólk ekki verkfallsaðgerðir, en það kemur mjög áberandi fram á fundunum, að ef til þess þyrfti að koma, þá vill það velja tíma, sem bæði er sterkust aðstaða og sem kemur fólki bezt. Fólk er að vega þetta og meta, en er orðið mjög óþolinmótt. Met ég það svo, að menn séu smátt og smátt að komast í baráttuhug. Má brýna menn svo til baráttu, að þeir telji ekki aðrar leiðir færar. Á það við um kjaramálin, menn hafa sýnt þolinmæði og verið að vona, að rættist úr með kaupmátt launa á annan veg. Mér heyrist á fundun- um, að endirinn muni verða sá, að ekki verði komizt hjá því, að beitt verði þeim tiltæku ráðum, sem lög gera ráð fyrir.“ „Þessir fundir hafa verið sæmi- lega vel sóttir að mínum dómi,“ sagði formaður BSRB. Þeim verð- ur fram haldið nú fram eftir vikunni, en síðasti fundardagur- inn í þessari lotu er 22. maí. m.kr., hafa hækkað á árinu um 30.162 m.kr. og þar af um 26.267 m.kr. vegna uppfærslu vísitölu- bundinna lána vegna margra ára. Ráðherra sagði að „efnislegir fjár- munir A-hlutans, eins og fasteign- ir, vélar og áhöld, teljist ekki með eignum í þessu uppgjöri". Þá vék ráðherra að rekstrar- jöfnuði ríkissjóðs í lok aprílmán- aðar þessa árs, þ.e. fyrstu fjögurra mánaða 1980, sem var neikvæður um 6.600 milljónir króna. Þetta væri heldur hagstæðari jöfnuður en á sama tíma í fyrra. Tvennt ylli þessari útkomu nú öðru fremur: sérstakar aðstæður fyrstu mánuði árs þar sem fjárlög vóru ekki samþykkt fyrr en komið var fram að páskum. Ýmis útgjöld sem venja væri að greiða á fyrstu mánuðum árs komu ekki til greiðslu fyrr en fjárlög vóru afgreidd. Þá hefði markvisst verið unnið að því í ráðuneytinu „að draga úr árstíðabundnum halla ríkissjóðs en hann hefur á undan- förnum árum verið mestur fyrstu mánuði ársins". Gjöld ríkissjóðs á 4 fyrstu mánuðum ársins reyndust 102,3 milljarðar króna en tekjur námu 95.7 milljörðum. Skulda- aukning ríkissjóðs við Seðla- bankann nam 7,6 milljörðum króna (11.4 milljörðum á sama tíma 1979). Matthías Á. Mathiesen (S) minnti á í umræðu um niðurstöðu ríkisreiknings, að við afgreiðslu fjárlaga 1979 hefði hann haldið því fram, að 10 milljarða skekkja væri í fjárlagadæminu, eins og það var lagt fram og samþykkt. Þá hefðu orð sín verið kölluð „hrakspá". En þau hefðu, því miður, rætzt. Útfærsla á föstudag? Frá fróttaritara Mbl. í ÓnIó í gær. NORSKA rikisstjórnin lýsir trú- lega yfir útfærslu fiskveiðilög- sögunnar við Jan Mayen á fundi á föstudaginn að sögn norska útvarpsins í dag. Sendiherra Noregs á íslandi, Annemarie Lorentzen, mun þegar hafa skýrt íslenzku ríkisstjórninni fráþessu. _ Lauré. Kristján Thorlacius, formaður BSRB: Menn eru smátt og smátt að komast í baráttuhug

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.