Morgunblaðið - 20.05.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 1980
Landssamband iðnverkafólks:
Stöðva ber verð-
hækkanir með öllu
STJÓRN Landssambands iðn-
verkafólks hefur ályktað um
verðlagsmál, og í ályktuninni
skorar stjórnin á stjórnvöld, að
sjá til þess, að verðbætum á laun
samkvæmt vísitölu 1. júní n.k.
verði ekki velt út í verðlagið og
ríkisstjórnin stöðvi með öllu al-
mennar verðhækkanir frá þeim
tima.
í ályktuninni segir m.a.: „Fund-
urinn telur, að efla þurfi verðlags-
eftirlit og gera það virkt á landinu
öllu. Einnig að settur verði á stofn
verðlagsdómstóll, sem verji lands-
menn fyrir ófyrirleitnu okri.
Fundurinn vill ennfremur lýsa
yfir stuðningi við viðleitni ríkis-
stjórnarinnar til að hefta vaxandi
dýrtíð og skorar á andstöðuflokka
ríkisstjórnarinnar, að styðja þá
viðleitni af fullri einlægni."
Óskar Friðriksson, kosningastjóri Péturs J. Thorsteinssonar, Málfríð-
ur Halldórsdóttir, forstöðumaður skrifstofunnar á Isafirði, og
Kjartan Sigurjónsson, formaður kosninganefndarinnar á Vestfjörð-
um.
Kosningaskrif-
stofa Péturs
opnuð á
STOFNUÐ hefur verið kosninga-
nefnd manna, viðs vegar að af
Vestfjörðum, er vilja stuðla að
kjöri Péturs J. Thorsteinssonar.
Formaður nefndarinnar er
Kjartan Sigurjónsson skóla-
stjóri, varaformaður Guðmundur
Þórðarson bygg.m.
Aðrir í nefndinni eru: Hálfdán
Kristjánsson, Súðavík, Ólafur
Guðbjartsson, Patreksfirði, Erla
Hauksdóttir, Flateyri, Ragnar H.
Ragnar, ísafirði, Messíana Mars-
ellíusdóttir, ísafirði, Einar K.
Isafirði
Guðfinnsson, Bolungarvík, Gunn-
ar Proppé, Þingeyri, Haraldur
Valsteinsson, Isafirði, Einar
Steindórsson, Hnífsdal, Sigurður
Guðmundsson, Bíldudal, Högni
Þórðarson, ísafirði, Sigurður
Jónsson, prentari, ísafirði, Arnór
Stígsson, ísafirði, Geirþrúður
Charlesdóttir, ísafirði, Einar
Árnason, ísafirði og Kristján Sæ-
var Pálsson, Bolungarvík.
Málfríður Halldórsdóttir er for-
stöðumaður skrifstofunnar á ísa-
firði.
Næstkomandi fimmtu-
dagskvöld 22. maí kl. 20.30
verða orgeltónleikar í Há-
teigskirkju.
A efnisskrá eru eingöngu
orgelverk eftir J.S. Bach:
Toccata, Adagio og Fúga í
C—dúr, Choralfantasia: í
dauðans böndum drottinn lá,
Tríósónata í C-dúr, Sálma-
forleikur: Guð miskunni nú
öllum oss, Passacaglia og
Fúga í C—moll.
Við orgelið er dr. Orthulf
Prunner, organisti í Há-
teigskirkju. Hann hefir hald-
ið orgeltónleika bæði er-
lendis og hér á landi og hefur
honum verið boðið að halda
Bach-orgeltónleik-
ar í Háteigskirkju
orgeltónleika í dómkirkjunni avsky, dómorganista í Vínar-
í Gautaborg og í Þýzkalandi. borg, og hins heimskunna
Dr. Orthulf Prunner er Anton Heiller.
einn nemenda Peter Plany- (Frá Háteigskirkju)
Frá opnu húsi stuðningsmanna Guðlaugs Þorvaldssonar.
Fjölmenni á opnu húsi
stuðningsmanna Guðlaugs
Stuðningsmenn Guðlaugs
Þorvaldssonar höfðu opið hús í
Súlnasal Hótel Sögu sl. sunnu-
dag, með þeim Guðlaugi og Krist-
inu konu hans. Mikill fjöldi kom
á fundinn og var talið að þar
væru um 1500 manns. Margir
urðu að standa og hópur fólks
varð frá að hverfa vegna
þrengsla.
í ávarpi sínu til fundargesta
minntist Guðlaugur á m.a. hvaða
þjóðfélagsmál honum væru hug-
stæðust um þessar mundir, en það
væru verndun lífríkisins í lofti, á
láði og í legi annars vegar og hins
vegar ræktun félagsanda og sam-
hjálpar meðal manna.
Þá ræddi Guðlaugur og um
verksvið og vald forseta íslands.
Jón Sigurbjörnsson stjórnaði
samkomunni og stýrði fjöldasöng.
Ávörp fluttu Kristbjörg Kjeld,
leikkona og Jóhanna Kristjóns-
dóttir, blaðamaður. Guðbjartur
Gunnarsson sagði stuttlega frá
kosningaundirbúningnum, þ.á m.
að seinnipart vikunnar kæmi út
fyrsta blað stuðningsmanna Guð-
laugs og yrði það prentað í 80
þúsund eintökum. Blaðið heitir
FRAMBOÐ Guðlaugs Þorvalds-
sonar og áformað að út komi 4—5
blöð fram að kosningum.
Óperusöngvararnir Sieglinde
Kahman og Sigurður Björnsson
skemmtu gestum með söng við
undirleik Carls Billich, en á milli
atriða lék Gunnar Axelsson á
píanó.
Kristín Kristinsdóttir, kona
Guðlaugs, ávarpaði gesti í lokin og
sleit samkomunni.
fréttatilkynning.
Stuðningsmenn og starfsfólk kosningaskrifstofunnar.
Stuðningsmenn Péturs J. Thorsteinssonar:
Kosningaskrifstofa
opnuð í Njarðvík
OPNUÐ hefur verið að Grund-
arvegi 23 í Njarðvík kosn-
ingaskrifstofa stuðningsmanna
Péturs J. Thorsteinssonar. Er
hún opin kl. 20—22 mánudaga til
föstudaga og um helgar kl. 14—
18.
Forstöðumaður skrifstofunnar
er Jóhanna Björgólfsdóttir, en
kosninganefnd svæðisins skipa:
Arnbjörn Ólafsson læknir
Keflavík, Margeir Margeirsson
framkvstj. Keflavík, Oddný Björg-
ólfsdóttir flugfreyja Keflavík,
Eyjólfur Sverrisson bílstjóri
Keflavík, Þorsteinn Jóhannesson
útgm. Garði, Nína Sveinsdóttir
húsm. Sandgerði, Kristinn Daní-
valsson bifreiðastj. Keflavík og
Sigríður Jakobsdóttir húsm. Vog-
um.
Opinberir starfsmenn, Vestmannaeyjum:
Mótmæla tregðu ríkis-
valdsins til samninga
MORGUNBLAÐINU barst í gær
svofelld ályktun frá BSRB, en
henni fylgdi, að hún hefði verið
samþykkt með öllum greiddum
atkvaéðum:
„Almennur fundur hjá opinber-
um starfsmönnum í Vestmanna-
eyjum mótmælir harðlega tregðu
ríkisvaldsins og bæjarstjórna að
ganga til samninga við BSRB.
Fundurinn lýsir fullum stuðn-
ingi við kröfur samtakanna og
skorar á alla félagsmenn BSRB að
fylkja liði og sýna fyllztu sam-
stöðu í þeim aðgerðum, sem stjórn
og samninganefnd BSRB telja
nauðsynlegar til að fylgja kröfun-
um eftir.“