Morgunblaðið - 20.05.1980, Síða 41

Morgunblaðið - 20.05.1980, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ1980 21 Frábært afrek Daley Thompsons BRESKI tugþrautarmaðurinn Daley Thompson setti um helg- ina nýtt og stórkostlegt heims- met í tugþraut á móti í Goetzis í Austurriki. Gamla metið hans Bruce Jenner, frá ólympíuleik- unum 1976, steinlá. Met Jenn- ers var 8.618 stig, en Thompson gerði sér litið fyrir og mokaði saman 8.622 stigum. Stigasafn- ið var orðið með ólíkindum eftir fimm fyrstu greinarnar, 100 metra hlaup, langstökk, kúlu- varp, hástökk og 400 metra hlaupið. Eftir þessar greinar var kappinn kominn með 4.486 stig. „Eg kom hingað til að tryggja mér farseðil á ólympíu- leikana í Moskvu,“ sagði Thompson við fréttamenn i Goetzis. Þess má geta að lág- markið i tugþraut í Bretlandi er 7.750 stig. Frábært hjá Arthúri: Setti Evrópumet Norðurhjaratröllið Arthúr Bogason, Þór, náði þeim írábæra árangri á Junior Chamber-mótinu í lyftingum á Akureyri um helgina að setja nýtt Evrópumet í réttstöðulyftu. Arthúr sem keppti í 125 kg flokki gerði sér lítið fyrir og lyfti 335 kg. Hann var sá eini sem keppti í kraftlyftingum en keppendur voru í öðrum greinum. Þar sigraði Freyr Aðalsteins- son, Þór. Hann keppti í 82.5 kg flokki og snaraði 130 kg og jafnhattaði 155 kg. Samanlagður árangur hans því 285 kg. Matthias Hallgrímsson Val skoraði þrennu í leik með liði sínu Val nú um helgina. Hér sést hann fagna einu marka sinna. Ljósm. Kristján. Einvígið var ójafnt! • Frá vinstri: Hannes Eyvindsson, Hilmar Björnsson og Sigurjón R. Gislason. Hannes sigraði í spennandi keppni Hörður Hilmarsson, Svíþjóð. skrifar: SJÖ daga sólskin og sumarveð- ur virðist hafa haft jákvæð áhrif á knattspyrnuna hér í Svíþjóð, leikir helgarinnar í „Alsvcnskan" þóttu flestir all góðir og fleiri mörk voru skor- uð en í fyrri umferðum, eða 16 í leikjunum sjö. Sundsvall — Malmö FF 1—3 Brage — Hammarby 1—0 Djurgarden — Kalmar 0—2 EÍfsborg — Atvidaberg 2—2 Landskrona — Gautaborg 0—3 Norrköping — Mjallby 0—0 Öster — Halmstad 1—1 Öster var vægast sagt óheppið að tapa stigi gegn meisturunum frá í fyrra, Halmstad. Hluti leiksins var sýndur í sjónvarpinu og þar sást m.a. mark það sem Öster gerði á 30. mínútu. Það kom eftir frábæran einleik Teits Þórðarsonar, sem síðan gaf góða sendingu á landsliðsmanninn Peter Nielson sem gat ekki annað en skorað. Öster átti 6—7 önnur dauðafæri í leiknum, t.d. komst Teitur eitt sinn einn í gegn, ætlaði að vippa yfir markvörðinn, en hann sá við honum og varði glæsilega. En Öster þarf ekki að örvænta þó liðið hafi tapað stigi, liðið leikur góða knattspyrnu og er eitt best leikandi lið Svíþjóðar í dag. Blöðin í Landskrona gerðu mikið veður út af viðureign íslensku landsliðsmarkvarðanna Arna Stefánssonar og Þorsteins Ólafssonar, sögðu að einvígi þeirra myndi ráða úrslitum í leiknum. Ekki reyndist það satt vera, því yfirburðir Gautaborg- arliðsins voru umtalsverðir. Lít- ið reyndi á Þorstein að þessu sinni, en Árni hafði nóg að gera. Lengst af stóð Árni vel fyrir sínu, en hann hefði átt að koma í veg fyrir eitt marka Gautaborg- ar, en mörk Thorbjörns Nilsonar voru hins vegar óverjandi með öllu fyrir Árna. Meiðsl lykil- manna settu svip sinn á leik Landskrona sem má ekki við slíku og er greinilegt, að liðið kemur varla til með að blanda sér í toppbaráttuna. Öðru máli gegnir um Gautaborg, sem var að flestra áliti besta lið Svíþjóð- ar í fyrra og virkar mjög sterkt um þessar mundir. Liðið hefur unnið tvo síðustu leiki sína 3—0, þannig að Steini hefur haft það náðugt, en verið þó traustur og öruggur þegar á hefur þurft að halda. Forward, lið Rúnars Georgs- sonar og Einars Ásbjörns 01- afssonar gerði jafntefli á útivelli gegn Jevle, 0—0. Við hjá AIK lékum 12. þessa mánaðar í Jevle með sama árangri og leikum í kvöld gegn Broma. I þriðju deildinni er það helst að frétta, að Örgryte vann Ny- köping 2—1 og Örn Óskarsson var mjög góður í leiknum, Afton- bladet í Stokkhólmi sagði hann besta mann leiksins. Stefán Halldórsson og félagar hans hjá Kristianstad töpuðu heima 0—1 fyrir Jönköping. Samkvæmt út- varpinu sótti heimaliðið mjög í síðari hálfleiknum, en mark- vörður Jönköping, Ársæll Sveinsson, var þeim erfiður ljár í þúfu og bjargaði stigunum fyrir lið sitt. Stefán átti góðan leik, skapaði stöðugt hættu. Örgryte er nú eitt efst í 3. deild með 7 stig eftir 5 leiki. Jönköping og Halmia, gamla liðið hans Matt- híasar Hallgrímssonar, eru með- al þeirra liða sem hafa fimm stig. Kristianstad hefur 3 stig eftir 4 leiki, Grimsás lék ekki um helgina og er í neðsta sæti með 2 stig eftir fjóra leiki, en það er engin ástæða fyrir þá Eirík Þorsteinsson og Sveinbjörn Há- konarson að örvænta, mótið er rétt byrjað og margt getur enn gerst. MICHELIN-keppnin í golfi íór fram á Ilólsvelli við Leiru um helgina. Voru leiknar 36 holur með og án forgjafar. Keppni tveggja efstu keppenda var tvísýn og spennandi, en þegar upp var staðið hafði Hannes Eyvindsson sigrað á 151 höggi. Lék Hannes á 38, 37, 37 og 39 höggum. Sigurjón R. Gíslason GK varð annar á 152 höggum, 40, 39, 37 og 36. í þriðja sæti hafnaði Hilmar Björnsson á 159 höggum, 37, 38, 42, 42. í keppninni með forgjöf sigr- aði Edward L. Bradford GS á 143 höggum nettó, Hrannar Hólm GS varð annar á 144 höggum nettó og þriðji varð Ingi Stef- ánsson á 147 höggum nettó. Aukaverðlaun voru nokkur og Júlíus R. Júlíusson hreppti tvo Michelin-hjólbarða fyrir að vera næstur holu á 3. braut, eða 34 sentimetra. Golfkúlur og fleira góðgæti hlaut Guðbjartur Jóns- son GK fyrir að bæta sig um 14 högg milli keppnisdaga. Stórtap Arsenal í GÆRKVÖLDI léku Arsen- al og Middiesbrough. og endaði leikurinn með sigri þeirra siðarnefndu sem tóku Arsenal í kennslustund og sigruðu þá 5—0. Þar með á Arsenal ekki möguleika á UEFA-sæti næsta keppnis- tímabil. Real Madrid varð meistari REAL Madrid varð spænsk- ur meistari i knattspyrnu, liðið sigraði Atletico Bilbao 3—1 í síðasta leik sinum og endaði þvi keppnistimabilið með 53 stig. Þetta var allt saman hálf nöturlegt fyrir leikmenn Real Sociedad. Fyrir hálfum mánuði tapaði liðið sinum fyrsta og eina leik á keppnistímabilinu og var það Sevilla sem lagði liðið að velli. Það þurfti ekki meira, Real Madrid hlaut einu stigi meira, Sociedad hreppti 52 stig. Sporting Gijon hafnaði i þriðja sæti með 39 stig. Úrslit leikja um helgina urðu sem hér segir: Almeria — Barcelona 1—1 Zaragoza — R. Vallecano 3-2 Real Betis — Valencia 3—0 Salamanca — L. Palmas 2—0 Real Sociedad — Atl. Madrid 2-0 Hcrcules — Sevilla 0—1 Gijon — Malaga 0—1 Espanol — Burgos 1—0 Paragi sterkur meö spjótiö FERENCE Paragi frá Ung- verjalandi, heimsmethafinn í spjótkasti var í sviðsljósinu um helgina á móti einu miklu í Wales. Paragi kast- aði spjótinu 96,20 metra og er það næstlengsta kast frá upphafi spjótkasts. Sjálfur á Paragi heimsmetið eins og áður segir. það setti hann fyrr í þessum mánuði í heimalandi sinu, kastaði hann spjótinu þá 96,72 metra. Hollywood hlutskarpast VEITINGAHÚSIÐ Holly- wood. með þá Stefán Kon- ráðsson og Gunnar Svavars- son í broddi fylkingar, sigr- aði í firmakeppni í borðtenn- is, sem borðtennisdeild Vik- ings stóð fyrir um helgina. 20 fyrirtæki áttu lið í keppn- inni. Bergiðjan varð í öðru sæti, en fyrir hana kepptu Hjálmar Aðalsteinsson og Olaf Forberg. í 3. til 4. sæti urðu síðan Rafmagnsveita Reykjavíkur, b-lið, og a-lið Landspitalans. Mútumál í Grikklandi ÞAÐ er víðar en á Ítalíu, sem mútustarfsemi er í há- vegum höfð samhliða knatt- spyrnumótum. Forseti og stjórnarmaður hjá griska féiaginu Iraklis sitja nú undir lás og slá vegna meintra tilrauna til að múta leikmanni Paok, _ Filotas Pellios að nafni. Áttu þeir félagar að hafa greitt Pell- ios fyrirfram upphæð sem nam 2500 bandarikjadölum, með loforð um frekari greiðslu eftir kapplcik. þar sem Irakles og Paok áttust við i undanúrslitum grisku bikarkeppninnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.