Morgunblaðið - 20.05.1980, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ1980
25
Ljfem. Mbl. KrÍHtján.
óti KR. Hreiðar markvörður kemur engum vörnum við.
iraði þrennu
kr- f»
Valur w O
Bestu tækifæri KR komu á 26.
mínútu er Sverrir Herbertsson
átti gott skot og á 35. mínútu
þegar þrumuskot frá hinum bráð-
efnilega Sæbirni Guðmundssyni
sleikti þverslána.
Matti skorar
tvívegis
KR-ingar byrjuðu síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og á 52.
mínútu skall hurð nærri hælum
við mark Vals. Sæbjðrn hafði
brotist í gegn, renndi boltanum út
á Jón Oddsson sem náði góðu skoti
en Sævar Jónsson bjargaði naum-
lega á línu. Ekki er gott að segja
hvernig leikurinn hefði þróast
hefði KR-ingum tekist að skora
þarna.
A 55. mínútu skorar Matthías
sitt annað mark. Fékk hann góða
sendingu frá Þorsteini og lék upp
að hliðarlínu vítateigsins. Var eins
og Hreiðar markvörður reiknaði
með fyrirgjöf þar sem hann kom
aðeins út úr markinu. En Matthí-
as skaut föstu og glæsilegu skoti á
stöngina nær og í netinu small
boltinn, glæsilegt mark.
KR-liðið gafst ekki upp þrátt
fyrir mótbyrinn og barðist vel.
Birgir Guðbjörnsson átti gott
tækifæri á 69. mínútu en var
fullseinn til að skjóta og Sigurður
hljóp á móti og varði. Á 87.
mínútu komst Sæbjörn einn inn-
fyrir en gott skot hans var varið.
Á markamínútunni miklu, eða
43. mínútu síðari hálfleiksins, ná
Valsmenn góðri sókn. Ólafur
Danivalsson nær að senda góðan
bolta á Matthías sem er inni í
vítateig. Hann snýr varnarmann-
inum sem valdaði hann snyrtilega
af sér og nær að skjóta boltanum í
bláhorn marksins á stöngina fjær.
Og náði þar með hinni eftirsóttu
þrennu.
Valsmenn sterkir
Lið Vals hefur fengið sannkall-
aða óskabyrjun í íslandsmótinu.
Hafa fjögur stig og skorað sjö
mörk gegn engu í tveimur leikjum.
Það er barist um hvert sæti í liði
Vals og kemur það greinilega
fram á leik liðsins. Allir leikmenn
standa vel fyrir sínu, vinna af
dugnaði og berjast vel. Liðið er í
heildina afarjafnt og ekki er gott
að gera upp á milli leikmanna.
Matthías Hallgrímsson átti
mjög góðan leik og var nú allur
annar en móti FH. Albert Guð-
mundsson vann vel og hafði mikla
yfirferð. Aftasta vörn Vals var
sterk. Óttar Sveinsson hefur kom-
ið mjög vel frá leikjum sínum sem
bakvörður. Magnús Bergs og
Þorgrímur eru klettar á miðjunni
og Sævar einstaklega traustur og
sókndjarfur. Þá var Sigurður Har-
aldsson öruggur í markinu.
Lið KR barðist vel, en það fer
ekki langt á baráttunni einni.
Liðinu gekk ekki nægilega vel að
ná samleik, og of oft var um
langspyrnur að ræða, í stað send-
inga á samherja. Sæbjörn Guð-
mundsson var besti maður liðsins
og skapaði ávallt hættu er hann
fékk boltann.
I stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild. Laugardalsvöllur. 17. maí.
KR - Valur 0-3 (0-1).
Mörk Vals: Matthías Hall-
grímsson á 20, 55 og 88 mínútu.
Gult spjald. Albert Guðmundsson
Val, Hörður Júlíusson Val.
Dómari Óli Olsen.
Áhorfendur: 1961. Ágóðahlutur
knattspyrnudeildar KR af leikn-
um varð krónur 2.399.705. — Þr.
Tvö mörk á 6 mín-
útum færðu ÍBK sigur
ÍBK hreppti tvö stig gegn FH á
Kaplakrika, er liðin áttust við á
íslandsmótinu í knattspyrnu þar
um helgina. Og FH-ingar gerðu
gestum sínum svo auðvelt fyrir
að með ólíkindum mátti heita.
Lokatölur leiksins urðu 2—1
fyrir ÍBK, eftir að staðan i
hálfleik hafði verið 0—0. Verður
að segjast eins og er, að allt þar
til að fyrsta mark leiksins var
skorað snemma i síðari hálfleik,
var FH heldur sterkari aðilinn í
slökum leiknum, eða a.m.k. sá
aðili sem fékk fleiri tækifæri til
að skora, en þá opnuðust nægi-
lega margar flóðgáttir í vörn
liðsins til þess að ÍBK náði að
svara með tveimur mörkum og
verjast síðan auðveldlega allt til
leiksloka.
Það mættu ekki margir Hafn-
firðingar í Kaplakrika til þess að
fagna liði sínu í 1. deild og er ekki
frá því að maður velti því fyrir sér
hvort að stúka sú sem er byrjað að
grafa fyrir, verði nokkurn tíma
þéttsetin. Ef einhvern tíma hefði
verið grundvöllur fyrir sæmilegri
mætingu áhorfenda á Kaplakrika,
þá var það nú, FH nýkomið upp úr
2. deild og með þrjá nýja leikmenn
innanborðs, liðið því til alls
líklegt. En nei, nei, rúmir 300 létu
sjá sig og er hætt við að félagið fái
ekki miklar tekjur af heimaleikj-
um sínum.
Fyrri hálfleikur var ákaflega
tíðindalítill og einu skiptin sem
eitthvað var um að vera uppi við
mörkin, annað en hnoð og mark-
spyrnur, þá voru það FH-ingar
sem fundu sér eitthvað sem hægt
hefði verið að moða úr. T.d. átti
Pálmi Jónsson eina afbrennslu á
18 mínútu eftir að Gísli Eyjólfsson
miðvörður ÍBK hafði látið knött-
inn renna í gegn um klofið á sér og
rakleiðis til Pálma. Pálmi, sem
var skæðasti framherji FH, var
aftur á ferðinni 6 mínútum síðar,
fékk þá góða stungusendingu inn
fyrir vörn ÍBK, en skot hans telst
varla hafa heppnast, knötturinn
hafnaði í fangi Jóns Örvars mark-
varðar ÍBK, án þess að hann
þyrfti að bera sig eftir knettinum.
Um miðjan hálfleikinn braust
miðvörður FH, Guðjón Guð-
mundsson fram völlinn og sendi
knöttinn síðan firnafast yfir mark
ÍBK, en að öðru leyti töldust
atburðir fyrri hálfleiks ekki til
tíðinda.
Fyrsta markið kom síðan á 58.
FH- 1_____o
IBK I t
mínútu. Heimir Bergsson komst
þá inn í afleita sendingu til
markvarðar ÍBK, hugðist leika á
hann, en var við það felldur
gróflega. Helgi Ragnarsson skor-
aði fyrsta mark FH i 1. deild úr
vítinu, en spyrna hans var slök og
hefði Jón Örvar ekki staðið í
rangan fót, hefði hann ekki þurft
annað en að reka út tána til þess
að verja. En FH-ingar hafa oftar
en einu sinni reynst vera litlir
bógar að halda forskotum og svo
var einnig nú, ÍBK jafnaði aðeins
tveim mínútum síðar. Það var
glæsilegt mark. ÍBK fékk auka-
spyrnu rétt utan við vítateigshorn
FH hægra megin. Einn Keflvík-
inga kom sér fyrir við enda
varnarveggs FH, svona svipað og
sjónvarpsáhorfendur sáu Jimmy
Greenhoff gera í leik Man. Utd. og
Coventry fyrir skömmu.
Áhorfendur á Krikanum voru
fljótir að rifja það upp og biðu
þess að IBK-maðurinn hlypi úr
stað með FH-ing í eftirdragi er
Ólafur Júlíusson tæki spyrnuna.
Er menn einbeittu sér fast að
þessu, gerði Óli Júl það sem
enginn reiknaði með, hann vippaði
knettinum inn í teiginn þar sem
Sigurjón Sveinsson, ungur nýliði í
liði ÍBK, kom aðvífandi og skallaði
glæsilega í netið.
6 mínútum síðar var staðan
orðin 2—1 fyrir ÍBK, en þá skoraði
Þórir Sigfússon óvænt mark eftir
að knötturinn hafði borist fyrir
mark FH frá vinstri. Skallaði
Þórir fram hjá úthlaupandi mark-
verði FH, en vörn liðsins svaf
svefni hinna réttlátu. Ragnar
Margeirsson stýrði knettinum
síðustu sentimetrana, en að sögn
vel staðsettra aðila, átti Þórir
markið. Sókn FH var nokkuð þung
í lokakafla leiksins og var sömu-
leiðis alveg ljóst að leikmenn ÍBK
voru meira en ánægðir með feng-
inn hlut. Þeir pökkuðu í vörn og
gáfu aðeins einu sinni verulegt'
færi á sér, en þá lyfti Pálmi
knettinum yfir mannlaust markið
eftir að Jón Örvar, óöruggur
markvörður ÍBK hafði misst frá
sér fyrirgjöf. Pálmi var hins vegar
ekki í jafnvægi er færið gafst og
því heldur mikið sagt að um
dauðafæri hafi verið að ræða.
Sigurjón Sveinsson og Ragnar
Margeirsson hjá ÍBK, báðir dug-
legir, leiknir og ósérhlífnir leik-
menn. Bakverðirnir Guðjón og
Óskar voru að venju traustir, en
að öðru leyti var dálítil flatneskja
yfir liði ÍBK. Hins vegar börðust
þeir allir eins og þeir ættu lífið að
leysa. Flatneskjan var enn meiri
hjá FH og er óhætt að segja að
maður hafi átt von á meiru úr
þeim herbúðum. Pálmi Jónsson
var ógnandi í framlínu liðsins og
sýndi mikla yfirferð. Þeir Heimir
Bergsson og Ásgeir Arnbjörnsson
sýndu góð tilþrif annað slagið, en
fundust ekki þess á milli. Aðrir
tindar voru ekki í liðinu og því fór
sem fór.
í stuttu máli:
íslandsmótið í knattspyrnu,
Kaplakrikavöllur FH—ÍBK 1 —
2(0-0).
Mark FH: Helgi Ragnarsson úr
víti á 58. mín.
Mörk ÍBK: Sigurjón Sveinsson (60.
mín.) og Þórir Sigfússon (66.
mín.).
Gu! spjöld: Atli Mexandersson
FH Áhorfendur: 310. — gg-
_____ wk &
• FH-ingar sækja aft Jóni Örvari Arasyni, markverði IBK. með þeim
afleiðingum, aft hann missir frá sér knöttinn. Hættunni var þó bægt
frá. Ljósm. Mbl. Kristinn
LiðUBK: , Lið Vals: Lið FH:
Guðmundur Ágeirsson 6 Sigurður Haraldsson 7 Halldór Pálsson
Helgi Helgason 7 Þorgrímur Þráinsson 7 Viðar Halldórsson
Einar Þórhallsson 7 Óttar Sveinsson 7 Atli Alexandersson
Benedikt Guðmundsson 7 Sævar Jónsson 7 Valþór Sigþórsson
Vignir Baldursson 6 Magnús Bergs 7 Guðjón Guðmundsson
Þór Hreiðarsson 7 Albert Guðmundsson 7 Magnús Teitsson
Sigurður Grétarsson 7 Ólafur Danivalsson 5 Þórir Jónsson
Helgi Bentsson 7 Matthías Hallgrímsson 8 Helgi Ragnarsson
Ingólfur Ingólfsson 7 Hörður Júlíusson 5 Pálmi Jónsson
Valdimar Valdimarsson 5 Guðmundur Þorbjörnsson 6 Heimir Bergsson
Sigurjón Rannversson 6 Jón Einarsson 5 Ásgeir Arnbjörnsson
Þorsteinn Sigurðsson (vm) 6 Ásgeir Elíasson (VM)
Lið Þróttar: Lið KR: Valur Valsson (VM)
Jón Þorbjörnsson 4 Hreiðar Sigtryggsson 4 ekki nóguI
Ottó Hreinsson 4 Guðjón Hilmarsson 5 Lið ÍBK:
Rúnar Sverrisson 5 Sigurður Pétursson 6 Jón Örvar Arason
Þórður Theódórsson 5 Ottó Guðmundsson 6 Soakr Færset
Sverrir Einarsson 6 Börkur Ingvarsson 5 Guðjón Guðjónsson
Harry Hill 5 Jón Oddsson 6 Kári Gunnlaugsson
Þorvaldur Þorvaldsson 6 Hálfdán Örlygsson 5 Gísli Eyjólísson
Jóhann Hreiðarsson 6 Sverrir Herbertsson 5 Skúli Rósantsson
Ágúst Hauksson 6 Birgir Guðjónsson 6 Þórir Sigfússon
Sigurkarl Aðalsteinss. 5 Sigurður Indriðason 6 Sigurjón Sveinsson
Ólafur Magnússon 5 Vilhelm Fredrikssen (vm) 5 Ragnar Margeirsson
Halldór Arason 6 Elías Guðmundsson (vm) 5 Gunnar Jónsson
Páll ólafsson 7 Örn Guðmundsson 5 óiafur Júlíusson
Dómari Arnþór Óskarsson 7 Dómari: Óli Olsen 6 Þórður Karlsson (VM)
5
4
5
4
5
4
6
4
7
6
6
4
4
6
6
5
5
6
5
7
7
4
5
4