Morgunblaðið - 20.05.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ1980
35
Bílasalan
Á ÞESSU ári má gera ráð fyrir svipuðum bílainnflutningi
og á síðasta ári eða um 7000 bílum. Hins vegar má
jafnframt gera ráð fyrir því að sala á nýjum bílum verði
öllu meiri þar sem birgðir af 1979 modellum voru óvenju
miklar um síðustu áramót. Eins og áður virðist
straumurinn liggja til sparneytnari bíla og hefur
hlutdeild japönsku bílanna aukist úr 46% í 61% á mjög
skömmum tíma.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs nam salan á vörubílum 44
stk. og skiptist hún þannig milli tegunda: Volvo 16, Scania
11, Hino 8, Benz 6, International 2, Bedford eitt stk.
Bætið umhverfið
RÉTT er að taka undir ábendingu frá Félagi ísl.
iðnrekenda um að fyrirtæki hugi nú að umhverfi
sínu og reyni að betrumbæta það sem aflaga hefur
farið. Texti félagsins hljóðar svo:
Vart hefur það farið framhjá nokkrum, að árið í
ár hefur verið lýst ár trésins hér á landi. F.Í.I. vill af
því tilefni hvetja iðnrekendur til að hyggja að
umhverfi fyrirtækja sinna og athuga hvort ekki
megi betrumbæta það með trjáplöntum og öðrum
gróðri.
Skipasmíðin:
Sex skip í smíðum
NU munu vera í smíðum sex skip af stærri gerðinni hjá
skipasmíðastöðvum hér á landi. Tvö á Akureyri og Stálvík
í Garðabæ og eitt á Akranesi og einn línubátur á
Seyðisfirði.
Hinar fjölhæfu
scheppach
trésmíðavélar fyrir verkstæði og heimavinnu
Verzlunin
Laugaveri 29.
Símar 24320, 24321, 24322.