Morgunblaðið - 20.05.1980, Blaðsíða 33
fólk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 1980
41
Með
fingurinn
á gikknum
+ Með líf undir belti
og hríðskotariffil um öxl
mun þykja mótsagna-
kennt. En meðal Vestur-
bakkalandnema, Gyð-
inganna, sem tekið hafa
sér bólfestu á vestur-
bakka árinnar Jórdan,
er þetta ekki tiltöku-
mál, aðeins eðlileg ör-
yggisráðstöfun fyrir alla
hvort heldur þeir eru
ófrískir eður ei. í bæn-
um, þar sem þessi mynd
er tekin, Kiryat Arba,
voru nokkrir landnemar
drepnir fyrir skömmu.
Og þessi unga, verðandi
móðir vill vera við öllu
búin og heldur fingrin-
um á gikk Uzi-
hríðskotariffilsins.
+ Þetta er nýjasta
fréttamyndin sem AP-
fréttastofan hefur sent frá
sér af hinum landflótta
Iranskeisara, sem er til
hægri á myndinni. Hann er
hér í Kubbeh-höllinni, sem
Sadat forseti Egyptalands
lét hann hafa er hann
kom þangað til dvalar í
boði Sadats. Það er sjálfur
Sadat, sem hér er að ræða
við gest sinn keisarann.
Því má bæta við að myndin
var tekin um miðjan maí
síðastl.
Fatafella
í öngviti
+ Fatafellusýning karlmanna vestur
í Los Angeles í Bandaríkjunum, líklega
hin fyrsta, komst í heimsfréttirnar á
dögunum, enda hafði hún mikla athygli
vakið og verið svo fjölsótt af konum,
að húsnæði klúbbsins rúmaði ekki
nærri alla. Karlpeningurinn, sem þátt
tók í sýningunni, lét ágóðann ganga til
„menningarmála“ kvenna í borginni.
Voru það um 55.000 dollarar. Verður
þeim varið til menntunar- og jafnrétt-
ismálabaráttunnar, sem kvenfólkið í
bænum stendur fyrir. í hita sýn-
ingarinnar, rismiklu dansatriði, féll
einn úr fatafelluhópnum í öngvit. Er
myndin tekin er honum var draslað út
af senunni í klúbbnum. En því má
bæta við, að 55.000 dollarar eru um 25
milljónir ísl. krónur.
U/\i»v^ílío4i'v\lxi Uí