Morgunblaðið - 20.05.1980, Síða 40

Morgunblaðið - 20.05.1980, Síða 40
ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 1980 10100 Síminn á afgreiöslunni er 83033 JH«rjjtmbIttt>it> Síminn á rilstjórn og skrifstofu: Pétur heilsar unnustu sinni Petrinu á Kefiavíkur- flugvelli í gær. Ljúsm. Mbl. Kristján. Ráðherrar í eldhúsdagsumræðum: Yísitöluhækkun launa ,,milduð“ um 2—3% Geir Hallgrímsson: Á að skerða vísitölu með bráðabirgðalögum, þegar Alþingi er farið heim? TALSMENN ríkisstjórnarinnar í cldhúsdagsumræðum í gærkvöldi lýstu því yfir að stefnt væri að því að gera ráðstafanir til að „rnilda" vísitöluhækkun launa hinn 1. júní nk. Ingvar Gíslason menntamálaráð- hcrra sagði í ræðu sinni, að ef kaupgjaldsvísitala hækkaði svo mikið, sem stefndi i um mánaðamótin yrði crfitt fyrir ríkisstjórnina að standa við markmið sín í verðbtilgumálum. Steingrímur Hermannsson sjáv- arútvegsráðherra sagði að ríkis- stjórnin stefndi að því að lækka vísitöluhækkun launa um 2—3% með því að auka niðurgreiðslur og dreifa hækkun húsnæðiskostnaðar siðustu 12 mánuði yfir lengri tímabil. Báðir ráðherrar Fram- sóknarflokksins tóku fram, að þess- ar ráðstafanir ætti að gera í samráði við verkalýðshreyfinguna, bændur og sjómenn. Svavar Gestsson félagsmálaráð- herra sagði í sinni ræðu, að til þess að tryggja kjör láglaunafólks ætti að skerða kjör tekjuhæstu launþega og þeirra aðila, sem sópað hefðu til sín gróða á undanförnum árum. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að laga- breytingar þyrfti til að dreifa hækkun húsnæðiskostnaðar sl. 12 mánuði, sem nú kæmi fram á vísitölu eftir á, yfir lengri tíma og Ræddu um flutning á fiski með flugi FUNDUR var i gær haldinn á skrifstofu Sölumiðstöðvar Hrað- frystihúsanna, þar sem mættir voru fulltrúar 12 frystihúsa í Reykjavik og á Reykjanesi. Rætt var um hugmyndir um hugsanlega fiskflutninga flug- leiðis til Bandaríkjanna. A fundinum var ekki tekin endan- leg ákvörðun um hvurt þetta verður gert eða ekki, en ákveðið að allar hliðar þessa máls yrðu kannaðar áfram í samráði við fyrirtæki SII i Bandarikjunum, Coldwater Seafood. Ef farið verður út í slíkan útflutning verður væntanlega um fiskflök af öllum helztu tegundum að ræða, en ekki eingöngu karfa eins og mest hefur verið rætt um að undan- förnu. Framhaldsfundur verður haldinn um þetta mál er öll meginatriði varðandi skipulag þessa máls liggja fyrir. einnig þyrfti lagabreytingar til að láta auknar niðurgreiðslur land- búnaðarvara koma til lækkunar verðbótavísitölu þótt launþegar fengju ekki verðbætur vegna hækk- unar búvöru um næstu mánaðamót fyrr en að þremur mánuðum liðn- um. Geir Hallgrímsson spurði Gunnar Thoroddsen, hver væri fyrirætlan ríkisstjórnarinnar í þessum efnum. A að senda Alþingi heim til þess að ríkisstjórnin geti gefið út bráðabirgðalög um skerð- ingu á veröbótavísitölu, spurði Geir Hallgrímsson. I ræðu sinni svaraði forsætisráðherra ekki fyrirspurn Geirs Hallgrímssonar en sagði að þingi mundi ljúka á næstu dögum. Þá beindi Geir Hallgrímsson einnig þeirri fyrirspurn til forsætisráð- herra, hvað ríkisstjórnin hygðist gera í hækkun á ávöxtun sparifjár um næstu mánaðamót. I ræðu forsætisráðherra kom heldur ekki fram svar við þeirri fyrirspurn. Sverrir Hermannsson sagði í þessum umræðum, að Sjálfstæðis- flokkurinn mundi ekki standa að því að afgreiða frumvarp um hús- næðismál á næstu dögum. Með því væri stefnt í 10 þúsund milljóna aukin útgjöld án þess að nokkur tilraun væri gerð til að afla þess fjár. Nægur tími væri til stefnu, þar sem lögin ættu ekki að taka gildi fyrr en um áramót. Þá gagn- rýndi Sverrir Hermannsson einnig þann undirlægjuhátt að ASÍ fengi að tilnefna tvo fulitrúa í Húsnæð- ismálastjórn. „Mikið er gott að vera kom- inn heim“ „MIKIÐ er gott að vera kominn heim,“ sagði knattspyrnukappinn Pétur Pétursson þegar blaða- maður Mbl. hitti hann að máli við komuna til Keflavíkurflugvallar síðdegis í gær. Pétur er kominn heim í frí eftir langt og strangt keppnistímabil í Hollandi. Því lauk á glæsilegan hátt hjá Pétri á laugardaginn þegar félag hans Feyenoord sigraði Ajax 3:1 í úrslitaleik hollensku bikarkeppninnar og Pétur skoraði tvö af mörkum liðsins. Var hann því mjög í sviðsljósinu í leiknum. „Ég hef aldrei upplifað neitt þessu líkt áður,“ sagði Pétur. „Fagnaðarlætin voru svo mikil að ég gleymi því aldrei. Það var ekki hægt að enda keppnistímabilið betur," sagði þessi mikli marka- skorari, sem skorað hefur 32 mörk fyrir Feyenoord á nýliðnu keppn- istímabili. Pétur er reyndar ekki alveg kominn í frí ennþá því á fimmtu- dagskvöld mun hann leika með landsliði íslands, sem skipað er leikmönnum 21 árs og yngri, gegn Noregi á Laugardalsvelli. Sjá nánar um Pétur og úrslita- leikinn á bls. 22. Frá Murmansk til Reykjavíkur: Sérstakt skip með símakerfi fyrir rússneska sendiráðið ÞANN 5. mai s!. kom rússneska flutningaskipið Atlantica tii Reykjavikur, en það er skráð rúmlega 5.800 brúttólestir að stærð. Erindi þess hingað var að flytja til Reykjavíkur innan- hússsimakerfi fyrir rússneska sendiráðið. Samkvæmt pappírum Tollgsezlunnar i Reykjavik var skipað upp úr þvi i Sundahöfn tveimur kössum, samtals 900 kg að þyngd, en aðrar heimildir Garðar Sigurðsson um Jan Mayen samkomuiagið: Sætti mig ekki við með- ferðina í mínum f lokki SAMÞYKKT var á Alþingi í gær tillaga til þingsáiyktunar um heimild fyrir ríkisstjórnina að staðfesta samkomulag milli íslands og Noregs um fiskveiði og landgrunnsmál. Tillagan var samþykkt með 45 atkvæðum gegn 10. Þeir sem andvigir voru samkomulaginu voru þingmenn Alþýðuhanda- lagsins. að ráðherrum þess mcðtöldum, en einn þingmaður Alþýðuhanda- lagsins sat hjá við atkvæðagrciðsluna, Garðar Sigurðsson, cn hann er formaður sjávarútvegsnefndar neðri deildar. Athygli vakti að Garðar Sigurðs- son, þingmaður Alþýðubandalagsins, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Hann sagði í umræðum að hann sætti sig ekki við meðferð þessa máls í flokki sínum, en myndi ekki gera grein fyrir því áliti sínu „nema eftir því verði leitað af ábyrgum aðilum í flokkn- um“. Hann sagði að þrátt fyrir galla í samkomuiaginu væru þar inni sterk atriði og taldi hann háskalegt, „ef margir málsmetandi menn leggja sig í framkróka og túlka samkomulagið okkur í óhag á opinberum vettvangi“. Hann tók það einmg fram að þessar athugasemdir væru ekki vantraust á fulltrúa Alþýðubandalagsins í samn- ingaviðræðunum við Norðmenn. Geir Hallgrímsson formaður Sjálf- stæðisflokksins talaöi fyrir áliti meirihluta utanríkismálanefndar, en meirihluti nefndarinnar lagði til að heimildin yrði samþykkt. Ólafur Ragnar Grímsson talaði fyrir áliti minnihlutans, sem hann skipar einn og taldi hann óráðlegt að veita heimildina að svo stöddu. Hann lagði fram breytingartillögur en sam- kvæmt þeim var óskað eftir því að viðræðunum við Norðmenn yrði haldið áfram. Tillögur þessar voru felldar. Mbl. segja þennan farm aðeins hafa vegið 160 kg. Siðdegis mánudaginn 5. maí hélt Atlant- ica héðan áleiðis til Havana, en hingað kom skipið frá Murm- ansk. Hannes Hafstein skrifstofu- stjóri í utanríkisráðuneytinu sagði í gær, að langur aðdragandi væri að komu þessara tækja hingað til lands. Um það bil eitt ár væri liðið síðan sovézka sendiráðið hefði beðið um leyfi til að mega flytja þau inn. Það leyfi hefði verið veitt með þeim skilyrðum, að Tollgæzl- an og Póstur og sími skoðuðu tækin áður en þau yrðu afhent sendiráðinu og gengju úr skugga um að tækin væru þau, sem óskað hefði verið eftir að fá að flytja til landsins. Það hefði verið gert og ekki verið gerðar athugasemdir við tæki þessi eða innanhússsíma- kerfi. Sigurður Þorkelsson forstjóri tæknideildar Pósts og síma kvað starfsmenn Pósts og síma hafa skoðað umrædd tæki, sem væri innanhússsímakerfi, svipað því sem í notkun væri hjá ýmsum fyrirtækjum og Landssíminn gæti útvegað. Sendiráðið hefði hins vegar óskað eftir að fá að flytja sín tæki hingað, það væri senni- lega ódýrara. Væri notkun þeirra bundin við ákveðnar byggingar sovézka sendiráðsins. Einar Thoroddsen yfirhafnsögumaður sagði í gær, að fyrst hefði Atlant- ica verið skráð sem rannsóknar- skip, en skráningunni síðan breytt í flutningaskip. Skipið hefði verið hluta dags í Sundahöfn, en verið á leið til Havana á Kúbu hlaðið ýmissi ótiltekinni vöru. Einar sagðist hafa frétt, að rafeinda- tæki, 160 kg að þyngd, hefðu verið í kössunum tveimur, sem losaðir voru úr skipinu, en sagðist ekki vita nánar um tækin. Einar hafði það eftir skipstjóra Atlantica, að skipið væri allajafna birgðaskip fyrir fiskiskipaflota Sovétmanna á úthöfunum. Mbl. ræddi við einn af starfs- mönnum Eimskipafélagsins í Sundahöfn í gær og sagðist hann hafa heyrt að búnaður Rússanna hefði vegið 160 kíló. Þeir hefðu sjálfir „skutlað" þessu í land Rússarnir, og síðan ekið á brott með varninginn í Rússajeppa, en áður hefði búnaðurinn verið skoðaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.