Morgunblaðið - 19.06.1980, Side 3

Morgunblaðið - 19.06.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 3 „Ilinn mikli afli hef ur í f ör með sér aukna hroðvirkni44 - segir Hjalti Einarsson, frkv.stj. SH í VIÐTALI við Morgun- blaðið á þriðjudag vék Steingrímur Hermanns- son, sjávarútvegsráðherra, nokkrum orðum að því, að gæði íslenzkra sjávaraf- urða hefðu minnkað. Sömu- leiðis kom fram í þjóðhátíð- Höfðu flutt inn fíkni- efni fyrir tólf millj. UNDANFARIÐ hefur Fikni- efnadeiid loxrexlunnar haft til rannsóknar fikniefnainnflutn- injf tvejTKja manna. Vegna rannsóknarinnar var þessum mönnum gert að sæta gæslu- varðhaldi og sat annar inni i 40 daga en hinn í 20 daga. Við rannsóknina upplýstist um inn- flutning þessara manna á 1 kilói af hassi og 50 grömmum af amfetamindufti. Er söluverðmæti þessara fíknilyfja að sögn starfsmanna Fíkniefnadeildarinnar talið vera um 12 milljónir íslenskra króna. Báðum mönnunum hefur nú verið sleppt úr gæsluvarðhaldi og er rannsókn málsins því sem næst lokið. arávarpi Gunnars Thor- oddsen, forsætisráðherra, að vöruvöndun væri ekki næg í fiskvinnslunni. Af þessu tilefni hafði Mbl. samband við Hjalta Einarsson, framkvæmd- astjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, og spurðist fyrir um þetta mál. Sagði Hjalti það vera rétt, að vöruvöndun væri ekki næg og hefði hroð- virkni farið vaxandi í fisk- vinnslunni. — Þrátt fyrir að Framkvæmda- stofnun segi, að nýtingin á húsun- um sé aðeins um 35%, þá eru flest húsin í fullri vinnslu alla daga ársins og þau komast ekki yfir hráefnið, sem stundum berst, sagði Hjalti. — Fiskurinn bíður of lengi og hinn mikli afli hefur í för með sér aukna hroðvirkni til að koma fiskinum frá. Það hefur mikið verið talað um samræmingu veiða og vinnslu, en hingað til hefur það ekki verið annað en orðin tóm. Fiskiskipaflotinn ræð- ur algjörlega ferðinni. Við fáum alltaf eitthvað af athugasemdum frá kaupanda vegna ófullnægjandi gæða og það er erfitt að meta hvort það fer vaxandi, en ég tel þó að svo sé, og þá bæði vegna hráefnisins og vaxandi hroðvirkni, sagði Hjalti Einarsson. Aðstoðarmenn ráðherra fá yfirvinnu greidda samkvæmt reikningi 17. júni-dansleikur i Laugardalshöllinni. Ljósm. Mbl. Kristinn Mætzt á miðri leið og samið um 775 þús. tonn Fiskifræðingum þykja tillögur um loðnuafla of háar Á FUNDI fiskveiðinefndar ís- lendinga og Norðmanna á þriðju- dag var ákveðið að loðnuaflinn á vertiðinni i sumar og haust og vetrarvertíðinni 1981 færi ekki yfir 775 þúsund tonn. Af þessu aflamagni hafa Norðmenn heim- ild til að veiða við Jan Mayen og Grænland eða sem nemur um 116 þúsund tonnum. í nefndinni eiga sæti ráðuneytisstjórnarnir Jón Arnaids og Gunnar Gundersen, en þeim til aðstoðar voru embætt- ismenn. fiskifræðingar og full- trúar sjómanna. und tonn og má því segja að þjóðirnar hafi mætzt á miðri leið. Ekki hefur verið ákveðið hvenær íslenzku skipin byrja þessar veið- ar, en það verður varla fyrr en undir lok ágústmánaðar eða í byrjun september. Um það verður tekin ákvörðun á næstunni. Á loðnuvertíðinni í sumar og haust verður afli tekinn í efna- hagslögsögu EBE við Grænland eins og áður. Efnahagsbandalagið lætur þessar veiðar óátaldar í sumar, en samningar verða vænt- anlega gerðir við bandalagið áður en loðnuvertíðin 1981 hefst. Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðingur sagði í gær, að þar sem allar upplýsingar um árganginn frá 1978, sem bera mun uppi veiðarnar í sumar og næsta vetur bentu til að hann væri slakur, þætti fiskifræðingum talan 775 þús. tonna aflahámark vera of há. Að loknum sameiginlegum leið- angri Islendinga og Norðmanna í október yrðu tillögur um aflahá- mark endurskoðaðar. AÐSTOÐARMENN ráðherra fá laun eins og deiidarstjórar i ráðuneytum og taka laun sam- kvæmt 113. launafiokki Banda- lags háskólamanna. Byrjunar- laun i þeim flokki eru nú 561.084 krónur á mánuði og efsta iauna- þrepið, laun eftir 6 ára starf eða að viðkomandi sé 32ja ára eða eldri, er nú 651.361 króna. Samkvæmt upplýsingum Þor- steins Geirssonar, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu munu að- stoðarmenn ráðherra ekki fá ómælda yfirvinnu, heldur senda þeir reikninga fyrir yfirvinnu sinni, sem greidd er samkvæmt þeim. Þorsteinn bað Morgunblaðið að leiðrétta, að ómæld yfirvinna hafi fyrst komið inn í kjarasamn- inga árið 1970. Það hafi ekki verið rétt, heldur hafi þetta fyrst átt sér stað 1963. Hjálmar Vilhjálmsson sagði í gær, að fiskifræðingum þætti 775 þúsund tonn of há tala, en hún yrði væntanlega endurskoðuð í haust. Um það sagði Jón Arnalds, að þessari tölu um heildarafla yrði aldrei breytt til lækkunar. Norðmenn hyggjast byrja veið- ar 6. ágúst og þeir höfðu farið fram á 900 þúsund tonna há- marksafla. Tillaga íslenzkra fiski- fræðinga var hins vegar 650 þús- Þess eru dæmi að þingmenn taki ekki við öllum greiðslum RÁÐHERRAR fá eins og kunn- ugt er þingfararkaup ásamt ráð- herralaunum. Aðrar greiðslur fá ráðherrar ekki, sem almennir þingmenn fá, nema húsaleigu- styrk, sé lögheimili þeirra úti á landi. Þessi húsaleigustyrkur er eins og kunnugt er 120 þúsund krónur á mánuði. Morgunblaðið spurð; í gær Frið- Allsherjaratkvæðagreiðsla hef- ur farið fram i Grafiska sveinafé- laginu og liggja úrslit nú fyrir. 78,7% þeirra, sem atkvæðisbærir voru, greiddu atkvæði. Já sögðu 73%, en nei 23,5%. Auður seðlar voru 3,5%. í fréttatilkynningu frá Grafiska sveinafélaginu segir m.a.: „Úrslit þessarar atkvæðagreiðslu er ótví- ræður stuðningur við stjórn og samninganefnd félagsins og sýnir jón Sigurðsson, skrifstofustjóra Alþingis, hvort einhver brögð væru að því að þingmenn nýttu ekki þær heimildir, sem þeir hefðu til þess að fá húsaleigustyrk, dvalarkostnað og ferðakostnað greiddan, en eins og kom fram í Morgunblaðinu 17. júní fá þing- menn kjördæma úti á landi, sem lögheimili eiga í Reykjavík greidd- eindreginn vilja félagsmanna til að fylgja kröfum félagsins eftir." Allsherjaratkvæðagreiðslan fór þannig fram, að sendir voru seðlar á alla vinnustaði. Á kjörskrá voru 108 félagsmenn. Ársæll Ellerts- son, formaður félagsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að framvindan myndi nú fara eftir stöðu samningamálanna. Til þessa hafa verið haldnir 3 sáttafundir og nýr hefur ekki verið boðaður. an M dvalarkostnað á meðan þeir eru í kjördæmi sínu og þing situr ekki. „Það er sjálfsagt til, vegna þess að þetta er aðeins greitt gegn framvísun reikninga," sagði Frið- jón, en hann kvaðst ekki hafa litið svo á málið, að hann myndi eftir dæmi þess, að þingmaður hafi ekki tekið þær greiðslur, sem honum bæri. „Að minnsta kosti minnist ég þess ekki um þessar aðalgreiðslur." Morgunblaðið spurði Friðjón, hvort þingmenn t.d. fyrir Reyicja- neskjördæmi fengju þessar greiðslur. Hann kvað þá hafa fengið dvalarkostnað greiddan og „við höfum látið þá fá ferðakostn- að sem svarar húsaleigunni í staðinn." Þeir fá ekki húsaleigu- styrk, en fleiri ferðir á móti greiddar. Friðjón kvað þingmann, sem byggi á Seltjarnarnesi, sitja við sama borð og reykvískan þingmann, þar sem Seltjarnarnes væri slíkt nágrenni, að ekki væri unnt að greiða dvalarkostnað eða húsaleigustyrk. Þingmenn hafa ekki orlofs- greiðslur. Grafiskir gáf iu yerkfallsheimild Örnólfur Thorlacius settur rektor M.H. Menntamálaráðherra hefur sett Örnólf Thorlacius menntaskóla- kennara rektor Menntaskólans við Hamrahlið frá 1. september 1980. | örnólfur Thorlacius er 48 ára. Hann varð stúdent frá Menntaskól- anum í Reykjavík og stundaði síðan náttúrufræðinám við háskólann í Lundi 1952-60, fil. kand. 1958. Hann var aðstoðarkennari við háskólann í Lundi vorið 1955-60 og kennari við Menntaskólann í Reykjavík varð hann 1960. Síðustu árin hefur Örn- ólfur kennt við Menntaskólann við Hamrahlíð. Örnólfur Thorlacius hefur stjórn- að útvarps- og sjónvarpsþáttum um vísindi og tækni og einnig ritað kennslubækur og greinar í blöð og tímarit. Eiginkona Örnólfs er Guðný Ella Sigurðardóttir og eiga þau 4 syni. örnólfur Thorlacius Leikhúskvöld um Jóhann Sigurjónsson FIMMTUDAGINN 19. júní eru hundrað ár liðin frá fæðingu Jó- hanns Sigurjónssonar skálds frá Laxamýri. Þá um kvöldið verður flutt dagskrá i Þjóðleikhúsinu um lif og skáldskap Jóhanns. Ber dagskrá þessi heitið Væri ég aðeins einn af þessum fáu. Flytjendur eru: Arnar Jónsson. Guðbjörg Þorbjarn- ardóttir, Gunnar Eyjólfsson. Helga Bachmann. Helga E. Jónsdóttir. Herdis Þorvaldsdóttir. Jón S. Gunn- arsson. Kristbjörg Kjeld, Randver Þorláksson og Þórunn Magnea Magnúsdóttir, en umsjón hafa Þór- hallur Sigurðsson og Arni Ibsen. Dagskránni er ætlað að gefa mynd af manninum Jóhanni Sigurjónssyni og er hún sett saman úr sendibréfum skáldsins, ljóðum, blaðaviðtölum og frásögnum annarra. Auk þess eru fléttuð inn atriði úr þremur leikrit- um Jóhanns og úr Fjallkirkjunni eftir Gunnar Gunnarsson. Leikritin sem atriðin eru tekin úr eru Skugg- inn, æskuverk sem hvergi hefur komið á prent, Fjalla-Eyvindur, sem er það leikrit Jóhanns er mesta frægð hlaut meðan hann lifði, og Frú Elsa. Dagskráin verður flutt aðeins þetta eina sinn og hefst hún kl. 20.30 á stóra sviðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.