Morgunblaðið - 19.06.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 19.06.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980 I Á ferð með forsetaframbjóðanda: Það hefur ekki farið fram hjá landsbygjíðar- húum að forsetakosningar eru á næsta leiti. Forseta- frambjóðendurnir fjórir hafa á síðustu vikum gert víðreist um landið og sótt heim fólk á vinnustöðum og haldið kynningar- fundi. Hvort frambjóðend- urnir hafa erindi sem erfiði kemur í ljós síðar, en víst er að margur hittir þarna forsetaframbjóð- endurna í fyrsta sinn augliti til auglitis og gefst því fremur en ella tæki- færi til að mynda sér skoðun, byggða á per- sónulegri reynslu. Mbl. fylgdi frambjóð- endunum fjórum eftir í einn dag í ferðum þeirra um landið og birtist hér lýsing á ferð Péturs Thorsteinssonar og eig- inkonu hans Oddnýjar Thorsteinsson til Vest- mannaeyja s.l. fimmtu- dag. Pétur ok Oddný ásamt Holiía Jónssyni fluKstjóra fyrir framan fluKvél hans á fluKvellinum í Hornafirði. Ljósm. Mhl. Friða Proppí. um. Þar hitti Pétur gamlan vinnu- félaga frá því hann vann í vega- vinnu á Holtavörðuheiði og rifj- uðu þeir upp gamlar vísur og m.a. eina sem heimfærð var upp á læknastéttina. A leiðinni út sagði Pétur læknunum og fylgdarliði sögu, sem heimfærð er upp á lögfræðinga og skildu síðan full- trúar stéttanna jafnir. „Ég var að kjósa þig“ sagði öldruð kona, er Pétur gekk inn fyrir dyr eliiheimilisins. Kom í ljós við nánari athugun að á heimilinu stóð yfir utankjörstaða- fundur og yfirgáfu Pétur og fylgd- arlið hans þegar í stað heimilið til að fyrirbyggja að litið yrði á komu hans á staðinn sem áróður á kjörstað. Þaðan var haldið niður á bryggju. Var þar fyrir hópur manna að vinna við viðgerð á skipi, einnig nokkrir hressir Eyja- peyjar við málningarvinnu. Á bryggjunni fékk Pétur spurningu um, hvernig hann liti á niðurstöð- ur framkominna skoðanakannana síðdegisblaðanna. Hann sagðist álíta að þessar kannanir hefðu komið fram of snemma til að þær gætu talist marktækar um úrslit kosninganna. „En þær hafa áhrif á skoðanamyndun fólks og það er of áberandi að fólk hefur í huga að greiða atkvæði gegn þeim, sem það vill sízt. Ég tel skoðanakann- anir sem þessar varasamar og t.d. „ Kannanir nar ekki marktækar — en þær haf a áhrif á skoðana- myndun fólks“ — sagði Pétur Thorsteinsson m.a. í Vestmannaeyjum Pétur rifjaði upp undirbúningsför sína fyrir komu Svíakonungs. þegar flogið var meðfram Jökulsárlóni. Var auðheyrt að hann átti góðar minningar frá þeim tíma. i,josm. Mhl. f.p. Helgi Jónsson flugmaður sótti Pétur og Oddnýju á nýrri flugvél sinni um hádegisbilið til Hafnar í Hornafirði og fékk blaðamaður Mbl. að slást með í förina. Pétur og Oddný birtust eftir skamma bið á flugvellinum og höfðu þau nýtt morguninn til að heimsækja elli- heimilið á Höfn og heilsa upp á dvalargesti þar. Frá Höfn var flogið sem leið lá til Vestmannaeyja. Veðrið var fagurt og Vatnajökull skartaði sínu fegursta í sólskininu. Oddný hafði orð á að hún væri ákveðin í að fara einhvern tíma með snjó- bifreið yfir Vatnajökul. Pétur rifj- aði upp ferð sína um Suðaustur- land, er hann undirbjó komu Svíakonungs til landsins. Þau hjón sögðust aðspurð vera ánægð með viðtökur, sem þau hafa fengið á ferðum sínum um landið og hafði Pétur á orði, að honum fyndist fjölmiðlar og sér í lagi þeir ríkisreknu hafa brugðist skyldu sinni við að kynna frambjóðendur og því væru ferðir þessar enn nauðsynlegri. Ágætt að láta ráðstafa sér Á flugvellinum í Vestmanneyj- um tóku nokkrir stuðningsmenn Péturs á móti þeim hjónum og var þeim boðið til hádegisverðar á heimili eins þeirra. Pétur hafði komið til Vestmannaeyja í upp- hafi kosningabaráttunnar og heimsótti þá velflesta vinnustaði. Þó var ákveðið að sækja nú heim nokkra þeirra aftur, a.m.k. þá sem fáliðað hafði verið á í fyrri heimsókninni. Pétur hafði á orði að hann léti stuðningsmenn sína um þetta allt saman og sagði einnig aðspurður, að sér fyndist ágætt að láta ráðstafa sér, þegar svo gott fólk ætti í hlut. Klukkan var orðin þrjú síðdegis, er haldið var af stað. Únnið var í bónusvinnu við söltun í nokkrum fiskiðjuverunum og starfsfólk ný- farið heim á fyrsta áfangastaðn- um, en í Vinnslustöð Vestmanna- eyja var verið að vinna við síðustu vigtunina. Pétur og Oddný gengu meðal starfsfólksins og spjölluðu við það. Spurði Pétur m.a. á hvaða markað fiskurinn færi og kom í Ijós að hann fer á Brasilíumarkað. I Fiskiðjuna komu Pétur og fylgdarlið í kaffitíma og vegna góða veðursins voru starfsmenn „tvist og bast“ úti við, eins og einn starfsmannanna orðaði það. Dok- að var við á skrifstofunni og þar rætt um vanda frystiiðnaðarins, markaðshorfur, fjármálin og fleira. Er flautað var til vinnu á ný gengu þau hjónin í gegnum vinnusalinn, heilsuðu starfsfólk- inu og ræddu málin. Sá franski varð hálfklumsa Farið var í fleiri fiskiðjuver, enda byggja Eyjar allt á afla úr sjó og velflestir íbúarnir á ein- hvern hátt tengdir fiskvinnslu og útgerð. í einni saltfiskverkunar- stöðinni hitti Pétur fyrir ungan mann, franskan, sem hafði dvalist í Eyjum í eina viku. Pétur ávarp- aði unga manninn og ræddi við hann á móðurmáli hans og varð sá franski hálfklumsa, enda átt í erfiðleikum með að tjá sig fram að þessu. Er haldið var út í sólskinið á ný hafði Pétur á orði við einn fisk- iðnaðarstarfsmanninn að þó sólin skini, þá væri annað sem viðraði ekki eins vel, — en þeir höfðu rætt sín á milli vandamál fiskiðnaðar- ins, birgðir hrönnuðust upp, markaðir væru ótryggir o.fl. Þá var haldið til sjúkrahússins. Þar tóku á móti hópnum Einar Valur yfirlæknir, Eyjólfur Páls- son framkvæmdastjóri o.fl. Eyj- ólfur spurði Pétur hvað átt væri við með því að kjósa bæri þann hæfasta, „þ.e.,“ sagði Eyjólfur „hvafþættir gera menn hæf- asta?“ Pétur svaraði því til m.a., að eins og ástandið væri nú í heimsmálunum og einnig innan- lands í efnahagslegu tilliti og fleiri málum væri mjög áríðandi að til starfans veldist aðili, sem hefði þekkingu á stjórnsýslu og utanríkismálum. Þá fjallaði hann í svari sínu nokkuð um völd forsetans og sagði áberandi að fólk hefði áhyggjur af rótleysi því sem nú væri í íslenzkum stjórn- málum og treysti því að forsetinn gæti orðið ankeri til festu í þjóðmálunum. Þá fékk hann einnig spurningu um, hvort hann væri sammála því sem einn meðframbjóðandi hans hefði sagt, að forsetinn yrði að hafa persónulega reynslu af stjórnmálum og að ástæða þess, hversu Viðreisnarstjórnin hefði setið lengi væri sú, að Ásgeir Ásgeirsson hefði þá verið í for- setastól og hann verið pólitíkus. Pétur sagði það ákaflega góðan hlut að forsetinn hefði stjórn- málalega reynslu, en hann sagðist einnig telja, að það væri jafn neikvætt, að forsetinn væri tengd- ur einum stjórnmálaflokki fremur en öðrum. „Að Viðreisnarstjórnin sat þetta lengi hef ég aldrei heyrt tengt því fyrr, að Ásgeir Ásgeirs- son hafði afskipti af pólitík, áður en hann settist í forsetastól" sagði Pétur. Starfsbróðir í vegavinnu Þau hjón gengu síðan um ganga spítalans og heilsuðu sjúklingun- hefur verið rætt um það í Banda- ríkjunum að banna þær. — Það þarf a.m.k. að setja reglur." Þá sagði Pétur einnig álit sitt á þætti ríkisfjölmiðlanna, sem hann taldi að hefðu brugðist þjóðinni og líkti fyrirhuguðum kynningarþætti sjónvarpsins við það að skóla- krökkum væri raðað upp við borð til að spyrja þá út úr lexíum sínum. Frá bryggjunni var haldið til kosningaskrifstofu Péturs og rætt um kosningabaráttuna og skipu- lag fundarins, sem halda átti um kvöldið. Síðan héldu Pétur og Oddný til kvöldverðar og hvíldar. Fundurinn var haldinn í félags- heimilinu og var þar hvert sæti skipað og komust færri að en vildu. Töldu fundarboðendur að um 170 manns hefðu verið í salnum. Fundarstjóri var Magnús H. Magnússon, ræðumenn fyrir -utan Pétur voru Sigrún Þorsteins- dóttir og Helgi Bernódusson. Einnig ávarpaði Oddný fundar- menn. Eru það þínar skoðanir? í lok framsöguerinda sagði Pét- ur frá fyrirspurnum sem hann hefur fengið á fundum og svörum sínum við þeim og bauð mönnum að spyrja sig spurninga. Stóð upp einn fundarmanna og bað Pétur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.