Morgunblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.06.1980, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1980 Nauðlendingin á Keflavíkurflugvelli „Ég var ekki hræddur, hafði eiginlega ekki tíma til þess“ - segir Guðjón Ólafsson flugstjóri „VIÐ UPPGÖTVUÐUM lyrst að ritthvað var að. þcjcar aðalhjólin fóru ekki niður i aðflugi að Vestmannaeyjum,“ sagði Giiðjón Ólafsson fluKstjóri i samtali við Monrunblaðið. en hann nauðlenti einni Fokker-fluKvél Fluideiða á KeflavíkurfluKvelii í K*rkveldi. ..í fyrstu voru hæði hjólin uppi. en um siðir tókst okkur að koma ha'Kra hjólinu niður. en þá vorum við yfir Keykjavik. Vinstra hjólið fór aldrei niður. en orsök þess er talin hiiun í vökvacylinder. Við eyddum tímanum í það að brenna upp olíunni til að vera með sem minnst eldsneyti í lending- unni. A meðan reyndum við vara- kerfin í vélinni, en ekki tókst heldur að ná hjólinu niður með þeim hætti. Þá var slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli undirbúið og reynt var að róa farþegana. Þeir tóku þessu öllu vel, höguðu sér eins og best verður á kosið," sagði Guðjón. „Þegar við lentum, þá rann vélin um 400 metra eftir flugbrautinni, þangað til hún stöðvaðist. Um síðir rak hún vænginn niður og snerist og rann út af brautinni. Vélin er auðvitað dálítið skemmd, en það er of snemmt að segja nákvæmlega til um það.“ — Hræddur? „Eg var ekki hræddur, hafði eiginlega ekki tíma til þess. Ég hef aldrei lent í neinu samhærilegu við þetta, aðeins í smávægilegum bilunum. Það er ekki nein stór- hætta í þessu, önnur en sú, að það komi upp eldur. Það er ekki mikil hætta á því á Fokker-vélunum, þær eru háþekjur og með elds- neytið í vængjunum og því minni hætta á, að þeir verði fyrir hnjaski," sagði Guðjón Ólafsson að lokum. Guðjón ólafsson flugstjóri og Baldur Ingólfsson aðstoðarflugmaður, en þeir flugu véiinni sem nauðlenti á Keflavikurflugvelii. „Ekkert oísalega skemmtilegt“. „Þetta var ekkert ofsalega skemmtilegt," sagði 11 ára Eyja- stúlka, Hafdís Kristjánsdóttir, í samtali við Mbl., en hún ásamt vinkonu sinni, Ingibjörgu Jóns- dóttur, var á heimleið til Eyja eftir dvöl í Vindáshlíð. „Ég var svolítið hrædd því að mér brá svo ofsalega þegar ég heyrði hvað var að,“ sagði Ingi- björg, „og mér leið ekkert vel þegar vélin var að lenda, þvi hún hristist svo mikið. En þetta er allt í lagi og við ætlum heim með næstu vél.“ „Eins og bíll á malar- hrygg“ „Þegar okkur var sagt að hjólin kæmu ekki niður, vorum við stödd yfir Vestmannaeyjum. Þá var klukkan um hálf sjö,“ sagði Brynja Traustadóttir, en hún var einn farþeganna í vélinni sem nauðlenti á Keflavíkurflugvelli í gærkveldi. „Eftir að við fréttum þetta tók vélin margar dýfur niður að sjó og var reynt að ná hjólunum niður, en það tókst ekki,“ sagði Brynja. „Farþegarnir tóku þessu með ró, aðeins börnin voru volandi þegar þeim var haldið niðri, þau höfðu ekki vit á að vera hrædd. Vélin lenti rúmlega átta og hafði þá verið á flugi í rúma tvo tíma. Það heyrðust skruðningar þegar hún lenti, en þó furðu lítið, miðað við það sem ég átti von á. Það má segja að þetta hafi ekki verið meira en þegar bíll tekur niðri á malarhrygg. Flugmenn og flug- freyja æðruðust ekki og stóðu sig með mikilli prýði. Allir voru furðu rólegir, nema þá helst börnin," sagði Brynja Traustadóttir. Bara skruðningar og högg „Ég var ekki sérlega hrædd, en hálf kvíðin," sagði Guðrún Sam- Rætt við far- þega og flug- áhöfn á slysstað „Allt lék í hendi flugfreyjunnar“ „Flugfreyjan stjórnaði af svo mik- illi prýði í farþegasal að einsdæmi er, hún gat ekki gert það betur," sagði Jón Hjaltason hæstaréttar- lögmaður í samtali við Mbl. á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi, en Jón var á leið til Éyja í sinni vanalegu vikureisu. „Það er nú ekki hægt að kalla þetta hrakninga," svaraði Jón, „en það var óþægilegt þegar gerðar voru tilraunir með snöggum rykkj- um til þess að ná hjólinu niður. Ég hef einu sinni verið í flugvél sem hjólbarði sprakk á í lendingu og þetta var ekki ósvipað, en það var sérstakt hvað flugstjórinn lenti vel við þessar aðstæður. Hræddur? Sleppum því alveg, ég er að bíða eftir næstu vél og vona að hún fari í kvöld. Það var hins vegar skemmtilegt að fylgjast með því hvað allt lék í hendi flugfreyj- unnar meðan þetta gekk yfir, hún var einstök með sinni framkomu enda varð enginn æsingur um borð hvorki fyrir eða eftir nauðlend- ingu. Þessi lending varð raunar eins og æfing. Flugfreyjan fylgdist fullkomlega með öllu í lendingunni og þetta gekk allt eins og í sögu.“ „Fólkið samvinnuþýtt og yfirvegað“ „Þetta gekk í alla staði mjög vel fyrir sig,“ sagði Elísabet Hákonar- dóttir flugfreyja í samtali við Mbl. „Fólkið tók Ijúfmannlega tilsögn varðandi nauðlendingu og var mjög samvinnuþýtt og yfirvegað. Flugstjórinn sagði fólkinu hvað um var að vera og í sameiningu kynntum við farþegunum allar öryggisráðstafanir. Auðvitað var um ótta að ræða hjá fólkinu, en aðeins eðlilegan ótta þar sem það var í fyrsta skipti að gera það sem það þekkti ekki. Farþegarnir stóðu sig mjög vel, sýndu fyllsta æðru- leysi." Guðrún Samúelsdóttir. nýkjörin fegurðardrottning Vestmannaeyja. og Brynja Traustadóttir. ásamt Tinnu dóttur sinni. i.jósmyndir Mbt: kax Ingibjörg Jónsdóttir og Hafdís Kristjánsdóttir, báðar eilefu ára. Jón Hjaltason hæstaréttarlögmaður, fremst til vinstri, i farþegasal á Keflavíkurflugvelli. að biða eftir næstu vél til Eyja. Reyndu að ná hjólinu nið- ur með snöggum rykkjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.