Morgunblaðið - 19.06.1980, Page 20

Morgunblaðið - 19.06.1980, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 Menntaskólanum á Akureyri Mikiö fjölmenni við hátíðlega athöfn í íþróttaskemmunni MENNTASKOLANUM a Akureyri var slitiö í 100. sinn 17. júní sl. í íþróttaskemmunni á Akureyri. 120 stúdentar útskrifuöust en hæstu einkunn á stúdentsprófi aö þessu sinni hlaut Árni Sveinn Sigurðsson úr náttúrufræöideild, einkunina 9,01. Mikiö fjölmenni var viö skólaslitaathöfnina en meðal viöstaddra voru menntamálaráöherra, Ingvar Gíslason, bæjarstjóri Akureyrar, Helgi M. Bergs, Steindór Steindórsson, fyrrum skólameistari, Hulda Stefánsdóttir, elsti núlifandi kennari skólans og rektorar annarra menntaskóla. Margar gjafir bárust skólanum og mörg ávörp voru flutt. Mennta- málaráöherra færöi skólanum af- mæliskveöju í nafni ríkisstjórnar- innar og afhenti honum aö gjöf frá menntamálaráðuneyti, málverk eftir Finn Jónsson, málaö 1933. Guömundur Benediktsson talaöi sem fulltrúi forsætisráöherra og flutti skólanum kveöjur forsætis- ráöherra og konu hans. Þá færöi Ragna Jónsdóttir fyrir hönd Nem- endasambands Menntaskólans á Akureyri skólanum silfurlíkneski af gamla skólahúsinu og Helgi M. Bergs bæjarstjóri afhenti skólan- um málverk frá Akureyrarbæ, mál- aö af Einari Hákonarsyni. Hjörtur Eldjárn formaöur stjórnar Kaupfé- lags Eyfirðinga talaði fyrir hönd Kaupfélagsins og færöi skólanum málverk eftir Þráinn B. Þorleifsson, málað 1899. Þá fluttu ávörp fulltrúar gamalla stúdenta. Trausti Jónsson veöur- fræöingur talaði fyrir hönd 10 ára stúdenta, Halldór Halldórsson læknir fyrir hönd 25 ára stúdenta, séra Siguröur Guömundsson fyrir hönd 40 ára stúdenta og dr. Matthías Jónasson fyrir hönd 50 ára stúdenta. Færöu þeir skólan- um einnig ýmsar gjafir. Næst fluttu ávörp skólameistar- ar annarra menntaskóla, Ingólfur A. Þorkelsson skólameistari M.K., Kristinn Kristmundsson skóla- meistari Menntaskólans aö Laug- arvatni og Kristján Bersi Ólafsson skólameistari Flensborgarskóla og flutti hann skólanum kveöjur frá sínum skóla, Fjölbrautaskólanum á Akranesi og Fjölbrautaskóla Suöurnesja og færöi M.A. fundar- hamar aö gjöf frá þessum þremur skólum. Aö lokum flutti Guðni Guömundsson rektor M.R. kveöjur frá Menntaskólanum í Reykjavík og færöi skólanum aö gjöf frá M.R. bók sem prentuö var 1663 og merkt Hálfdáni Einarssyni sem var rektor Hólaskóla hins forna. Ávarp fyrir hönd veröandi stúd- enta flutti Þorvaldur Þorsteinsson en fyrir hönd skólafélagsins Hug- ins talaöi Gunnar S. Ingimarsson. Áöur en sjálf brautskráningarat- höfnin hófst greindi Tryggvi Gísla- son skólameistari frá fleiri gjöfum sem skólanum hefur borist í tilefni aldarafmælisins. Má þar nefna veggteppi frá Fanny Kristínu Ing- varsdóttur, og höggmynd af Stein- dóri Steindórssyni skólameistara frá Báröi Halldórssyni og Steindóri Gunnarssyni. Er skólameistari haföi afhent hinum 120 nýstúdentum skírteini sín og slitiö skólanum í 100. sinn risu allir úr sætum og sungu MENNTASKOUNN A AKUREYRI 1880-1980 Tryggvi Gíslaaon ávarpar nýatúdanta og aöra aamkomugaati. Myndlr Emllla. Staindör Staindóraaon fyrrvarandi •kólamaiatari flytur óvarp, aftir aö Tryggvi Gíalaaon akólamaiatari aaamir Huldu Stafánadóttur, alata núlifandi hafa varió aaamdur Gulluglunni. kannara akólana, haiöuramarki Manntaakólana á Akurayri, Gulluglunni. skólasönginn. Síöar um daginn var opiö hús í M.A. þar sem gestir gátu skoðað vistarverur skólans og gjafir þær sem hann haföi hlotiö í tilefni afmælisins og þegiö kaffiveitingar. Einn af gömlu nemendum skól- ans, Halldór Blöndal alþingismaö- ur, var m.a. viöstaddur skólaslitin þann 17. júní. Meöan á þeirri athöfn stóö orti hann eftirfarandi vísu: Skóli, þú undarleg örlög hlaust aldargamall með vetur í spori. Þú sáir til þroska sérhvert haust og sjálfsagt uppskerð stúdent [aö vori. Frú Halldóra Eldjárn nalir Gulluglunni í barm foraetana og Tryggvi Gfalaaon fylgiat broahýr maö. Þaö ar aftirvaanting f avip ungu atúndfnanna ar einkunnirnar aru akoöaöar. „Að nema við M.A. er eitthvað það dýrmætasta sem mér hefur hlotnazt“ Rætt við Rögnu Jónsdóttur, for- mann Nemenda- sambands M.A. Nemendafélag Menntaskólans á Akureyri, NEMA, var stofnað í Reykjavík 6. júní 1974 og hefur aðsetur sitt syðra. „Félagið var stofnað til þess að auka sambónd milli M.A.-stúdenta syðra og tengsla þeirra við skólann hér nyrðra,“ sagði Ragna Jónsdóttir, formaður NEMA, í samtali við blaða- mann Mbl. „Félagið nær til allra M.A.-stúdenta fyrr og síðar. Haldinn er einn aðalfundur árlega og vorfag- naður í maí, og er hann mjög vel sóttur.“ Ragna var viðstödd hátíðahöldin á Akureyri vegna aldarafmælis M.A., og við útskriftina á 17. júní færði hún skólanum silfurafsteypu af skólahús- inu fyrir hönd NEMA. Eina stúlkan í sínum árgangi Ragna er fædd á Norðfirði en varð stúdent frá Menntaskólanum á Akur- eyri árið 1936. Var hún eini kvenstúd- entinn það árið innan um 18 karlstúd- enta. „Það var ekki mikið um að stúlkur færu í skóla þá, einfaldlega vegna þess að atvinnumöguleikar og launakjör voru ekki þau sömu fyrir stúlkur og drengi á þeim tíma. Þær fóru heldur ekki í skóla nema foreldr- arnir gætu haldið þeim uppi meðan á skólagöngunni stóð. Ég fór í M.A. vegna þess að ég hafði sýnt dugnað í námi og foreldrar mínir hvöttu mig til þess. Ég var líka syo heppin að alast upp við frjálsræði. Ég heyrði aldrei minnst á það, að eitt- hvað væri til sem stúlkur gætu ekki gert aðeins vegna þess að þær eru kvenkyns. öllum þeim sem ég ólst upp með fannst ekkert skrítið í tilver- unni.“ WÁ vorin flýgur hugjirinn norður' Að loknu námi kenndi Ragna einn vetur á Norðfirði, en fluttist síðan til Reykjavíkur. Þar gifti hún sig og átti börn, en tók síðan til við kennslu á ný. Við spurðum Rögnu að því hvort hún ætti ekki margar góðar minningar frá menntaskólaárunum? „Þess vegna er ég nú hingað komin og þess vegna var gleðin svo mikil þegar NEMA var stofnað. Á vorin flýgur hugurinn alltaf norður, og þegar gengið er inn í skólahúsið hellast minningarnar yfir mann, og maður upplifir allt aftur rétt eins og það hafi gerst í gær. Það var lúxus að fá að vera í svona skóla á sínum tíma, en sem betur fer er það ekki svo núna. Maður lifði mikið innan veggja skólans þá. Við sóttum ekki mikið skemmtanir í bænum, en kynntumst samt möri 'i fólki á öllum aldri, því þá voru ekki allir jafn gamlir í bekkjun- um eins og nú. Skólahúsið var því eins og heimili manns, bæði til líkama og sálar. Skólameistari, Sigurður Guð- mundsson, bjó þá með fjölskyldu sinni í skólanum og stjórnaði vistinni. Fótatak hans var alþekkt á ganginum t Ragna Jónsdóttir formaður Nem- endasambands M.A. og þurfti hann ekki mikið að eiga við okkur, því það datt allt í dúnalogn þegar fótatakið nálgaðist. Þá þekktist það ekki að heimavist- arnemendur, langt að komnir, færu heim um jólin. Skólameistarahjónin buðu þá öllum vistarbúum inn til sín kl. 10 á aðfangadagskvöld. Þá höfðum við borðað fínan mat í matsalnum en önduðum nú að okkur jólailmi heimil- is þeirra og fengum ávexti og sungum sálma. En um miðnætti fóru allir upp á sal og voru í jólaleikjum þar til fram undir morgun. Dansleikir voru haldnir í skólanum og skólahátíð, og einnig var kappróður mikið stundaður á þeim árum. Þegar við vorum í 5. bekk vorum við í sundkennslu í Svarfaðardal, því þá var engin sundlaug komin á Akureyri. Það árið fórum við líka í ferðalag suður í Borgarfjörð á hálfkassabíl. Þetta var mikil ævintýraferð og stóð í heila viku. „Sjóndeildarhringurinn víkkaði“ á Akureyri Það má líka segja, að dvöl okkar utanbæjarmanna á Akureyri hafi vikkað sjóndeildarhringinn. Ég man fyrst þegar ég heyrði í Karlakórnum Geysi hvað ég var hrifin. Og þarna sá ég líka leikrit við betri aðstæður en tíðkaðist heima á Norðfirði. — Svo þú hefðir ekki viljað vera án þess að nema við M.A.? „Nei, það er eitthvað það dýrmæt- asta sem mér hefur hlotnast. Það fylgir manni alla ævi allt það glaða og góða sem maður upplifði hér. Því hef ég alltaf reynt að heimsækja skólann hvenær sem ég get,“ sagði Ragna að lokum. rmn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.