Morgunblaðið - 19.06.1980, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980
Mikið um land-
anir erlendis
STÖÐUGT fleiri útKerðarmenn
sýna áhuga á að láta skip sin sigla
með afla og speglar það í raun það
ástand, sem við er að KÍima i
fiskvinnsiunni. Allmar»{ir togarar
hafa landað að undanfðrnu og fleiri
eru nú á veiðum með siglingu i
huga. Hjá LÍÚ fengust þær upplýs-
ingar i gær, að Iðndunarpláss i
hðfnum i Englandi og Þýzkalandi
hefur nú verið bðkað fram i júlí.
I fyrradag seldi Oddgeir ÞH 52.2
tonn í Hull fyrir 31.6 milljón,
meðalverð 604 krónur. Þórir seldi
einnig í fyrradag, 51.5 tonn í Fleet-
weod fyrir 24.8 milljónir, meðalverð
482 krónur.
Sporður RE seldi 57.8 tonn í Hull í
gær fyrr 29.5 milljónir, meðalverð
510 krónur. Votaberg SU seldi 30
tonn í Grimsby fyrir 13.6 milljónir,
meðalverð 510 krónur. Bylgja VE
seldi 58.4 tonn í Grimsby fyrir 28.7
milijónir, meðalverð 491 króna.
Form. Félags isl. flugumferðarstjóra:
Mikil rigning setti
strik í reikninginn
MIKIL rigning var á Akureyri á
17. júní og varð að færa hátiða-
holdin inn i hús þegar leið á
daginn.
Iþróttafélagið Þór sá um há-
tiðaholdin að þessu sinni og
hófust þau með skrautsiglingu á
Akureyrarpolli kl. 10 um morg-
uninn.
Eftir hádegið var farið í skrúð-
göngu frá Ráðhústorgi að íþrótta-
vellinum, þar sem fram fóru
hefðbundin hátíðahöld, fánahyll-
ing, heigistund, ávarp fjailkonu,
ávarp nýstúdents og fleira. Þá
var börnum gefinn kostur á að
fara á hestbak á svæði við hliðina
á íþróttavellinum. Mikil rigning
var og því færra fólk við hátíða-
höldin en venja er til á Akureyri.
Fjölskylduskemmtun sem hefj-
ast átti á Ráðhústorgi kl. 16.30
var færð inn í æskulýðsheimilið
Dynheima, og útiskemmtun sem
vera átti um kvöldið á torginu féll
niður, en þess í stað var fjöl-
skylduskemmtunin endurtekin í
íþróttaskemmunni um kvöldið.
Er líða tók á kvöldið stytti upp.
Var því útidansleikur á Ráðhús-
torgi eins og gert hafði verið ráð
fyrir. Nýstúdentar komu á torgið
um miðnætti eins og venja er og
dönsuðu þar nokkra stund og
gengu fylktu liði kringum torgið
með skólameistarahjónin í broddi
fylkingar. Dansað var til kl. 2
eftir miðnætti og fór allt vel fram
að sögn lögreglunnar.
Ekki stórt peninga-
spursmál fyrir ríkið
en mikið réttlætismál
„VIÐ verðum með allsherjaratkvæðagreiðslu seinni part vikunnar eða
um helgina og persónulega er ég ekkert efins um það, að
flugumferðarstjórar skilji nauðsyn samstöðunnar.“ sagði Baldur
Ágústsson, formaður Félags islenzkra flugumferðarstjóra i samtali við
Mbl. i gærkvöldi. Baldur sagði. að i atkvæðagreiðslunni myndu
félagsmenn taka afstöðu til þess, hvort þeir tækju samningi um
sumarvinnu óbreyttum eða ekki og hvort þeir ættu þá að beita
yfirvinnubanni til frekari þrýstings i málinu.
„Ég verð að segja það eins og er,
að mér finnst ríkið ekki hafa notað
frestinn í málinu að neinu gangi,“
sagði Baldur. „Yfirvinnubann okk-
ar kom til framkvæmda 1. júní og
stóð í 3 daga, en þá frestuðum við
því að beiðni fjármálaráðherra. Sá
frestur hefði átt að renna út 14.
júní en við ákváðum að framlengja
hann þar til félagsmenn hefðu allir
sagt sitt í atkvæðagreiðslu.
Þetta mál snýst um það, hvort
flugumferðarstjórar á þremur
stöðum úti á landi, Akureyri,
Egilsstöðum og Vestmannaeyjum,
eigi að fá sams konar greiðslur
fyrir hluta af sinni vinnu og
starfsbræður þeirra í Reykjavík.
Málið snýst um aukaálag fyrir
vinnu frameftir kvöldi, sem greitt
hefur verið í Reykjavík, en ekki á
þessum stöðum úti á landi. Þetta
er ekki stórt peningaspursmál
fyrir ríkið, en mikið réttlætismál
fyrir okkur."
Félagar í Félagi íslenzkra flug-
umferðarstjóra eru um 80 talsins
og vinna á 5 stöðum.
Regnhlifar og rigning settu svip slnn á hátiðahöldin á Akureyri á þjóðhátiðardaginn. Ljónm. Emiha.
Hátíðahöld 17. júní á Akureyri:
Miðar á Clash
seljast vel
RÚMLEGA 1000 miðar voru þeg-
ar seldir á hljómlcika Clash í
Laugardalshöllinni 21.6. nk., þeg-
ar Mbl. hafði samhand við Lista-
hátið á hádegi i gær.
Hljómleikar þessir verða enda-
punkturinn á Evrópuferðalagi
þeirra, sem staðið hefur í nær átta
mánuði, en þess má geta, að Clash
léku á tvennum hljómleikum fyrir
troðfullu húsi í Hammersmith
Odeon í London 16. og 17. júní, og
komst framkvæmdastjóri Lista-
hátíðar ekki að, þegar hann ætlaði
að kanna hljómsveitina annað
kvöldið, en hann var í London til
að undirrita samninga við þá.
Eftir þessa hljómleika munu
Clash taka sér smá frí, en halda til
Bandaríkjanna seinni hluta
sumars.
Ekiðá
staura
r
ÁRLA i gærmorgun var Fiat-
fólksbifreið ekið á ljósastaur á
Reykjavikurvegi. ökumaðurinn,
sem var ölvaður, var einn f bifreið-
inni og slasaðist hann talsvert.
Bifreiðin er mikið skemmd.
Um miðjan dag í dag var fólks-
bifreið ekið á ljósastaur í Arnarnes-
hverfi. Öldruð kona, sem var farþegi
í bifreiðinni slasaðist en ekki var í
gær vitað hversu alvarieg meiðsli
hennar voru.
Norræn ráðstefna
um þjóðbúningamál
DAGANA 19. og 20. júní 1980 verður þingað í Norræna húsinu
i Reykjavík um þjóðbúningamál á Norðurlöndum. Þessi fundur
verður haidinn á vegum islenskrar samstarísnefndar um
þjóðhúninga, sem hefur starfað i allmörg ár á vegum
Heimilisiðnaðarfélags íslands, Kvenfélagasambands íslands
og Þjóðdansafélags Reykjavikur i samstarfi við Þjóðminjasafn
íslands. í nefndinni eiga sæti Gerður Hjörleifsdóttir, Sigríður
Thorlacius. Dóra Jónsdóttir og Elsa E. Guðjónsson.
Til fundarins koma fulltrúar ið komið fyrir í bókasafni
frá Finnlandi, Danmörku,
Noregi og Svíþjóð; Færeyingar
sáu sér því miður ekki fært að
senda fulltrúa.
í tilefni af ráðstefnunni hef-
ur lítilli sýningu á íslenskum
þjóðbúningum, einstökum flík-
um og myndum af búningum,
og kvensilfri ýmiss konar, ver-
Norræna hússins, og er ætlun-
in að hún verði eitthvað fram
eftir sumri. Þar liggja einnig
frammi bæklingar um íslenska
þjóðbúninga, meðal annars tvö
leiðbeiningarit um nútíma
upphlut og peysuföt, sem ís-
lenska þjóðbúninganefndin
hefur séð um útgáfu á 1974 og
1978.
Kastaði sér út um
glugga á þriðju hæð
LAUST fyrir klukkan fimm í
gærmorgun féll maður út um
glugga á þriðju hæð húss við
innanverðan Laugaveg í Reykja-
vík. Maðurinn var fluttur á
Slysadeild Borgarspitalans en
hann hlaut slæm bcinbrot.
Tildrög atburðarins voru eftir
því, sem næst verður komist, að
samkvæmi stóð yfir í húsinu og
risu þá deilur milli kvenna þar.
Hótaði maðurinn að kasta sér út
um gluggann hættu konurnar ekki
að rífast. Konurnar héldu hins
vegar áfram að rífast og lét þá
maðurinn verða af hótun sinni og
kastaði sér út um gluggann.
Fengu eigur sínar
EINS OG skýrt var frá í Morgun-
hiaðinu á þriðjudag tapaði
sænskt ferðafólk meðal annars
myndavélum og erlendum gjald-
eyri og þar á meðal ferðatékkum
við heita lækinn i Nauthólsvik
síðastliðinn laugardag. Ferða-
fólkið fékk eigur sinar á ný seint
á mánudag en þá hafði Rann-
sóknarlögrcgla rikisins haft
hendur i hári þess, sem stal
eigum fólksins.
Rannsóknarlögreglunni var til-
kynnt um að maður væri að reyna
að selja ferðatékka og var maður-
inn handtekinn. Fundust þá eigur
Svíanna í fórum hans. Rannsókn-
arlögreglan hafði hins vegar ekki
upp á eigendunum, þrátt fyrir
eftirgrennslan á hótelum borgar-
innar.
Það var því ekki fyrr en
Svíarnir rákust inn hjá Rannsókn-
arlögreglunni, að lögreglumönn-
unum tókst að koma eigunum til
skila.
Fótbrotnaði við
17. júni^kemmtiin
PatrekHÍirAi, 18. júní.
PATREKSFIRÐINGAR héldu upp
á þjóðhátiðardaginn með hefð-
hundnum hætti, en það setti nokk-
urn skugga á að ungur maður
fótbrotnaði, er hann stökk ofan af
slökkvibiðfreið staðarins. Hann
var fluttur flugleiðis til Reykja-
vikur.
Meðal skemmtiatriða dagsins var
knattspyrnuleikur milli slökkviliðs-
ins og björgunarsveitarinnar.
Markvörður slökkviliðsins hafði
slökkvibifreiðina sér til halds og
trausts og varði markið með því að
beita vatnsslögunni á mótherjana.
Ungur maður fór upp á bifreiðina
til að taka ljósmyndir og síðan
stökk hann niður af bílnum, en kom
þá svo illa niður, að hann hlaut opið
beinbrot á fæti.
Fréttaiitarl