Morgunblaðið - 19.06.1980, Side 35

Morgunblaðið - 19.06.1980, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ1980 35 Níræð: Frú Jónína Sæborg Frú Jónína Sæborg frá Ólafs- firði á níræðisafmæli 19. júní 1980. Níræð, og einhverjum kemur í hug gömul og södd lífdaga en það á ekki við hér. Hún er hress og ern og fylgist með því sem er að gerast og henni finnst heimurinn þrátt fyrir allt ekki svo slæmur, það er gott að lifa, lífið er þrátt fyrir allt besta gjöfin. Nei, það eru ekki margir sem standa sig eins vel og Jónína Sæborg frá Sögueyjunni íslandi, hún er í hópi þeirra sem lifa lífinu á þann hátt að allar kenningar um elli og kör verða að hjómi. Árið 1923 kynntist hún í Reykjavík Norðmanninum sem varð eiginmaður hennar. Hann starfaði við norska fyrirtækið „Norgas" en það fyrirtæki metur hún mikils, enda veitti það henni af rausn myndarleg eftirlaun. Þau hjónin áttu 5 börn, tvö þeirra fæddust á íslandi en hin í Noregi. Fósturdóttur á hún, bú- setta á íslandi, sem hún er tengd sterkum böndum, sambandið við hana styrkir tengslin við ættjörð- ina sem hún ann svo heitt, landið sem hún er stolt af. Hún ferðaðist mikið um Dan- mörku, Svíþjóð og Noreg á söng- og fyrirlestraferðum sínum, þar sem hún kynnti land sitt með íslenskum söngvum. Á ferðum sínum öðlaðist hún margháttaða þekkingu og lífs- reynslu. Jónína Sæborg hefur átt við- burðaríka ævi og gjöfula. Hún bjó í Danmörku í tvö ár og þar notaði hún tímann til að sækja hús- mæðraskóla. Frá Danmörku flutt- ist hún til Noregs árið 1943. Fyrir störf í þágu föðurlands síns var hún sæmd riddarakrossi Fálkaorðunnar. Frú Jónína dvelst nú að loknum starfsdegi á Lamertseter elli- og hjúkrunarheimilinu þar sem hún hefur búið undanfarin 8 ár. Megi ellin verða henni, sem er svo skaplétt og hjartahlý, góður og hamingjuríkur tími, þess óskum við henni af heilum hug hér á Lambertseter hjúkrunarheimil- inu. 1,6Í júní 1980, Trygve Lamberg-Dahl, Elli- og hjúkrunarheimilinu á Lambertseter. Varar Carter Schmidt við? Bonn, 16. júní. AP. STAÐFEST var í Bonn í dag að Carter Bandaríkjaforseti hefði ritað Helmut Schmidt kanzlara bréf, þar sem hann hefði hvatt Schmidt til að gera enga þá samninga við Sovétmenn er kynnu að hafa það í för með sér, að frestur yrði á því að meðal- drægum eldflaugum af banda- rískri gerð yrði komið fyrir í Evrópu. Ráðherra í stjórn Schmidts sagði, að ekki væri bréfið skoðað sem viðvörun á einn eða neinn hátt, en tímaritið Stern sagði um helgina að sterkur viðvörunartónn væri í bréfinu. Væri Schmidt sterklega varaður við nokkurs konar makki við Sovétmenn, er breytt gætu áætlunum um vígbún- að NATO-ríkja í Evrópu, einkum er varðaði eldflaugakerfið. Sagði blaðið að stjórn Carters óttaðist að Schmidt kynni að slaka á afstöðu sinni til eldflauganna, þar sem kosningar væru fyrir dyrum í V-Þýzkalandi í október. Schmidt hefur nýverið skorað á ríki NATO og Varsjárbandalagsins að leggja á hilluna áætlanir um framleiðslu meðaldrægra eldflauga og taka upp viðræður, er hafi það að markmiði að leggja niður núver- andi eldflaugar. Klaus Bölling utanríkisráðherra sagði í dag, að skoðanir Schmidts og Carters varðandi endurnýjun eldflaugakerfis NATO færu í einu og öllu saman. Orðuveitingar í Bretlandi I^ondon. 14. )úni. AP. ORÐUM af ýmsum stigum og gráðum var i dag úthiutað aí Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretiands, i tilefni hins opinbera afmælis drottningarinnar. Meðal þeirra heiðruðu var Soames lávarður, fv. landsstjóri í Rhodesíu, sem sleginn var til riddara, og kona hans Mary, sem hlaut titilinn herforingi breska heimsveldisins. Mjólkurpóstur forsætisráðherrans, Cousins, sem komið hefur með mjólkina til Downingstrætis 10 í 10 ár, fékk heiðurspening breska heimsveld- isins (BEM). Aðrir, sem slegnir voru til riddara, voru m.a. John Acland, yfirmaður samveldisherjanna í Rhodesíu, Larry Lamb, blaðaút- gefandi, Ian Trethowan, forstjóri BBC og Augus Wilson, rithöfund- ur. Aðlaðir voru Victor Matthews, blaðaeigandi og milljónamæring- ur, Frank McFadzean, forstjóri Rolls-Royce-verksmiðjanna, og Arnold Weinstock, framkvæmda- stjóri General Electric co. Orðu breska heimsveldisins (OBE) fengu m.a. gítarleikarinn John Williams og krikketleikmað- urinn Geoffrey Boycott, og að lokum hlaut léttvigtarboxarinn Jim Watt titilinn MBE. Launmorð í Istanbúl Istanbúl. 16. júni. AP. SKYTTUR, sem álitið er að séu á snærum vinstrisinnaðra hermdarverkamanna skutu til bana liðsforingja og hermenn úr fyrirsátri nærri Istanbúl á sunnudagskvöld. Sérstök her- deild var send til fátækra- hverfis í borginni til að sporna við ólöglegum mótmælum vinstrimanna, sem halda vildu hátíðlegt tíu ára afmæli verka- lýðshreyfingar í Istanbúl. Hundrað manns voru teknir höndum eftir stutt átök hers og mótmælenda. Spell í skipi ZccbruKKe. BcIkíu. 16. júnl. AP. TIU andróðursmenn kjarnorku klifruðu ' í dag um borð í holienskt flutningaskip og eyðilögðu stýrisútbúnað og fjarskiptatæki í brú skipsins. Til stóð að flytja geislavirkan úrgang út í hafsauga með skipinu í vikunni. Fimm skemmdarvarganna voru handteknir í bækistöðvum þeirra í bænum Knokke. Skemmdirnar munu hafa kostað meira en þrjá milljarða íslenzkra króna. Eldur af slysni Trípólí, Líhýu, 16. júní. AP. HIN opinbera fréttastofa Líb- ýu, Jana, neitaði í dag að gerð hefði verið sprengjuárás á brezka sendiráðið í borginni á föstudag. Sagði fréttastofan að eldur hefði orðið af slysni. Atburðurinn varð sama dag og diplómatískur sendimaður frá Líbýu var rekin frá Bretlandi eftir að hann lagði blessun sína yfir morð á tveimur útlögum frá landi hans. ERLENT Frostheldar flísar Uti og inniflísar meö veðrunarþol Eftir margra ára reynslu á íslenskri veöráttu getum viö mælt sérstaklega meö frostheldu flísunum frá | Nýborg. Flísarnar eru hannaðar til aö standast ströngustu gæðaprófanir á ítalíu, íslandi og í Þýskalandi. Nú er rétti tíminn til aö leggja útiflísarnar, leggiö leiðina í Nýborg og lítið’ á úrvaliö. Nýborg?# Ármúla 23 - Sími 86755 Allar íþróttavörur á einum stað Eigum nú glæsilegt úrval af æfingagöll- um í öllum stæröum og litum. Tökum aö okkur merkingar á búningum fyrir íþróttafélög og fyrirtæki. Verð frá aðeins kr. 13.900.- Póstsendum. Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar, Klapparstíg 44. Sími 11783. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 14., 17. og 20. tölublaöi’ Lögbirtingablaðsins 1980, á Neðstutröð 2 — hluta —, þinglýstri eign Ara Jóhannessonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 26. júní 1980 kl. 10:00. Bæjarfogetinn i Kopavogi. KOSNINGAHÁTIÐ stuóningsmanna Guólaugs Þorvaldssonar í LAUGARDALSHÖLL mánudaginn 23. júní kl. 21 f

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.