Morgunblaðið - 13.07.1980, Page 1
48 SÍÐUR
155. tbl. 67. árg.
SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Flugræn-
ingi yfir-
bugaður
Scatllo. 12. júll. Al’.
SAUTJÁN ára piltur. Glen Kurt.
rændi BoeinK 727 farþeKaþotu á
fluKvellinum í Seattle í Kær.
Ilann var yfirbuKaður eftir að
hafa haft vélina á valdi sínu í 10
klukkutima. aA söKn talsmanns
bandarísku alrikislöKreKlunnar.
Pilturinn, sem sagðist hafa
sprengju í fórum sínum, rændi
vélinni skömmu fyrir flugtak.
Hann sleppti öllum farþegunum
eftir fjóra klukkutíma, en hélt
tveimur flugmönnum í gíslingu.
Hann krafðist 600 þúsund Banda-
rikjadala og tveggja fallhlífa. Síð-
ar bað hann um eins hreyfils
flugvél til að komast í burtu en
loks um bílaleigubíl. Er pilturinn
var á leiðinni út í bílinn var hann
handtekinn og færður til yfir-
heyrslu. í samtali við lögregluna
úr flugvélinni, sagðist pilturinn
vinna fyrir ákveðinn mann og
verkefni hans væri að drepa fólk.
Hann sagðist ekki ætla að gefast
upp fyrr en einhver hefði drepið
yfirmann hans en ekki er vitað
hver hann er né heldur hvers
vegna pilturinn vildi hann feigan.
11 Sovétmenn
falla í Ghazni
— stöðugt barist víðs vegar um Afganistan
Islamahad. 12. júlí. AP.
í IIÖRÐUM bardögum í borginni Ghazni í suð-austurhluta Afganistan
felldu frelsissveitir Afgana 11 sovéska hcrmenn og auk þess skutu
þeir niður þyrlu. Islamska bandalagið til frelsunar Afganistan skýrði
frá þessu í Islamahad i dag. Frelsissveitir gerðu árás á Ghazni.
Þá segir í fréttum frá Afganist-
an að víða sé barist. Bardagar
hafa undanfarið staðið í borginni
Jalalabad, en ekki hafa borist
fréttir um hve umfangsmiklir þeir
bardagar eru né um mannfall. í
Paktiahéraði í suð-austurhluta
Afganistan náðu frelsissveitir
Afgana tveimur skriðdrekum á
sitt vald. En vegna þess, að engir
meðal þeirra kunna að nota slík
verkfæri, voru skriðdrekarnir
eyðilagðir. í Parwanhéraði, norð-
ur af Kabúl, felldu frelsissveitir
Queen til
V-Þýskalands
Zilrich. 12. júll. AP.
RICHARD Queen, sem látinn var
laus úr bandariska sendiráðinu i
Teheran. fór í dag frá Sviss til
Vestur-Þýskalands. Hann mun fá
meðhöndlun bandariskra lækna i
Wiesbaden, að sögn talsmanns
bandarisku stjórnarinnar. Hann
sagði að ástand Queen væri álitið
þó nokkuð gott en gat ekkert
sagt um það nákvæmlega. Queen
hefur gengið undir rannsóknir
vegna hreyfilömunar i vinstri
handlegg en sýnir, að söKn tals-
mannsins, engin merki um and-
leKa vanheilsu.
Afgana sjö sovéska hermenn og
tóku fimm fasta auk þess að þeir
eyðilögðu þrjár vígvélar fyrir Sov-
étmönnum.
Stöðugt berast fréttir af póli-
tískum morðum í Kabúl. í síðustu
viku var fyrrum fylkisstjóri Bag-
hlanhéraðs myrtur á skrifstofu
sinni í Kabúl. Vopnaðir menn fóru
inn á skrifstofu hans og skutu á
hann úr vélbyssum. Hann beið
samstundis bana. Tilræðismenn-
irnir komust undan. Þá segir að í
gær hafi illa limlest lík eins
stuðningsmanna Kabúlstjórnar-
innar fundist í tré — á baki þess
stóð, litað með blóði: „Rússar farið
heirn". Stöðugt berast fréttir af
morðum á stuðningsmönnum
stjórnarinnar og er talið að á milli
5 og 10 séu felldir daglega. Stjórn-
völd hafa haft þungar áhyggj-
ur og skipað öllum flokksfélögum,
að ferðast saman í hópum undir
vopnavernd og hafast við heima
hjá sér að næturlagi. I „nætur-
bréfi" sem hinir heilögu stríðs-
menn Múhameðs „Mujahideen"
sendu út, segjast þeir hafa fellt 32
Parchama en það er ættflokkur,
sem hefur stutt við bakið á
Karmalstjórninni. Þeir eru sagðir
hafa gengið hvað ötullegast fram í
morðum á ungum stúlkum í mót-
mælagöngum í Kabúl fyrir
skömmu.
Rainbow
Warrior
er enn í
E1 Ferrol
El Fcrrol. 12. júll.
RAINBOW Warrior. skip
Greenpeacesamtakanna er enn
i haldi i spænsku horginni El
Ferrol. Spænsk herskip færðu
Rainbow Warrior til hafnar
19. júni síðastliðinn eftir að
skipverjar reyndu að koma í
veK fyrir veiðar spánskra
hvalafangara. Mál skipverja
er fyrir herdómstól en skip-
stjóri Rainbow Warrior. Jona-
than Castle hefur verið
ákærður fyrir að brjóta
spænsk lög.
Spænska blaðið Ideal Galleco
birti í morgun frétt um, að
yfirvöld hyggist fara fram á
250 þúsund dollara lausnar-
gjald á Rainbow Warrior. Þessi
frétt hefur ekki fengist stað-
fest, né hafa spænsk heryfir-
völd neitað fréttinni. í fréttum
frá E1 Ferrol segir, að þessi
upphæð virðist miðuð við það
sem spænska hvalveiðifyrir-
tækið segist hafa tapað vegna
aðgerða skipverja Rainbow
Warrior.
Segist ætla að
myrða Carter
Umfangsmikil leit að „velvopnuðum
og mjög hættulegum“ morðingja
Dallas Tcxas 12. júli. AP.
UMFANGSMIKIL leit að manni sem segist hafa skipun
um að myrða forseta Bandaríkjanna Jimmy Carter
hefur engan árangur borið. að sögn yfirvalda.
í s.l. mánuði sagði mað-
urinn við vitni að hann
væri meðlimur í frelsis-
samtökum Palestínumanna
og hefði myrt meira en 100
manns. Hann sagðist einn-
ig hafa skipanir um að
myrða Jimmy Carter for-
seta, Edward Kennedy öld-
ungadeildarþingmann eða
hvern þann sem kosinn
verður næsti forseti Banda-
ríkjanna. Maður þessi er
álitinn vel vopnaður og
mjög hættulegur.
Talsmaður leyniþjónust-
unnar sagði að maðurinn
hefði tekið vitnið með sér
og sýnt því tösku fulla af
vopnum og veggspjald með
mynd af Carter. Sagðist
hann æfa sig í að kasta
hnífum á spjaldið. Carter
forseti mun koma til Dallas
21. júlí n.k.
Kim fyrir herrétt
Scoul. 12. júli. AP.
KIM Dae-Jung. andófsmaðurinn kunni í S-Kóreu verður
leiddur ásamt 8 öðrum fyrir herrétt í Seoul. Ilann er
ákærður fyrir tilraun til að steypa stjórn landsins og á
yfir höfði sér dauðadóm. Ekki var tilkynnt hvenær
réttarhöldin yfir Kim hefjast.
Kim var ásamt 37 öðrum
handtekinn í maí síðast-
liðnum eftir umfangsmikl-
ar óeirðir í landinu. Kim
var nærri að vinna Park í
forsetakosningunum 1971.
Hann sat í fangelsi i
S-Kóreu frá 1976 til 1978
fyrir andstöðu við stjórn-
völd. Eftir morðið á Park
var hann látinn laus úr
fangelsi.