Morgunblaðið - 13.07.1980, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1980
Engin náð fyrir
,,Auga Davíðs“
Leyniþjónusta hefur æ verið snar þáttur sjálfstæðisbaráttu Israelsríkis
CIA er stærri og KGB reyndari, en engin
leyniþjónusta í veröldinni er ógnvænlegri en
Mossad, leyniþjónusta ísraelsmanna. Hún starfar
markvisst og samvizkulaust. Svo nefnd séu tvö
alþekkt afreksverk útsendara Mossads: Þeir þef-
uðu uppi tug meintra tilræðismanna eftir ólympíu-
leikana í Munchen og drápu þá alla og það voru sömu
aðilar sem flugu árið 1976 til Entebbe og frelsuðu
þar 103 gísla.
Leyniþjónustan dregur nafn sitt af Mossad Le
Aliyah Beth (Innflytjendastofnunin), sem stofnuð
var 1937 sem angi ísraelska andspyrnuhersins
(Ilaganah) gegn Bretum. Stofnunin greiddi götu
ólöglegra innflytjenda af Gyðingaættum og safnaði
vopnum til undirbúnings baráttunni gegn Aröbum.
Arið 1945 var svo komið að þeir fluttu sjóleiðis
hundruð Gyðinga frá Evrópu til Palestínu. Á
öndverðum dögum Ísraelsríkis kepptu nokkrar
leyniþjónustur hver við aðra, unz David Ben-Gurion
sameinaði þær undir ægishjálm Mossads árið 1953.
Uraníumrán
í svaðilförum um árabil hefur
Mossad tekizt hvaðeina á hend-
ur. Hún hefur m.a. færzt í
búninK sjóræningja — eins og
„Plumbat aðgerðin" djarflega
ber vitni um, en þá komust
ísraelsmenn yfir úraníumbirgðir
sem gerðu þeim kleift að fram-
leiða kjarnorkuvopn.
Á sjötta áratugnum óx það
ísraelsmönnum mjög í augum að
vera umluktir öflugum Araba-
ríkjum og komust að þeirri
niðurstöðu að eina mótsvarið
væri að smíða atómsprengju.
Með aðstoð Frakka reistu þeir
síðan kjarnakljúf í Negev eyði-
mörkinni árið 1958.
farmurinn brottnuminn á hafi
úti og fluttur til Israel.
Málningarframleiðandi í Míl-
anó, sem ekki vissi nákvæmlega
hvaðan á sig stóð veðrið, ákvað
að veita Schulzen liðsinni er
hann vakti máls á því við hann.
Mossad keypti aflóga flutninga-
dall til að flytja efnið frá
Antwerpen til Genúa. Öll áhöfn-
in voru starfsmenn leyniþjón-
ustunnar. S'-hulzen fór til Ant-
werpen til að fylgjast sjálfur
með fermingu 560 tunna, sem
allar voru merktar „Plumbat".
Skipið kom aldrei til Ítalíu. í
staðinn átti það stefnumót við
förin hlaut heitið „Stórhöggsað-
gerðin“.
Þremenningarnir dreifðu sér á
þrjú annars flokks hótel í Toul-
on. Á slaginu ellefu yfirgáfu þeir
hver um sig hótel sín, ráfuðu
stefnulaust um stund til að
ganga úr skugga um að þeim
væri ekki fylgt eftir, og hittust
síðan á myrku öngstræti. Þar
beið þeirra Renault bifreið, sem
flutti þá á einangrað sveitarset-
ur.
Félagarnir grufluðu um stund
yfir korti í dagstofu hússins, er
sýndi skipalægi fyrirtækisins
Constructions Navales et Ind-
ustrielles de la Méditerranée
(CNIM), í skipasmíðabænum La
Seyne-sur Mer í nágrenninu. í
vöruhúsinu einu gat þar að líta
„Nók til að fram-
leiða tuttuKU kjarn-
urkusprenjf jur á við
Iliroshima . . .“
kjarnann úr kjarnaofnunum
Tamuz I og II, er Frakkar voru
um það bil að senda sjóleiðina til
írak. Ofnarnir, ásamt mögnuðu
úraníum, sem þeim fylgdi, hefðu
skipað írökum í hóp skæðustu
andstæðinga ísraelsmanna.
Njósnari nokkur hafði frætt
þremenningana um hvenær
flytja ætti útbúnaðinn í her-
vögnum til hafnar í Marseilles,
þar sem honum yrði komið í
Þegar inn kom höskuðu þeir
sér framhjá kjarnaofnsstykkjum
ætluðum Beígum og Vestur-
Þjóðverjum og sviptu síðan
segldúk ofan af sendingunni til
íraks. Þeir hófust þegar handa
við að taka ofnstofninn í sundur
en áttuðu sig þá á að tími yrði of
naumur unz verðir kæmu á
vettvang á ný. Var því ákveðið
að beita sprengiefni. Nokkrum
hylkjum var fyrir komið, tími
stilitur, hörfað frá og staðurinn
yfirgefinn.
Verðirnir höfðu vart snúið
aftur er sprenging gall við í
kyrrð næturinnar og gereyði-
lagði sextíu prósent af farminum
til íraks. Skaðinn nam tólf
milljörðum íslenzkra króna.
Franskir sérfræðingar gátu vart
orða bundizt yfir aðdáun sinni á
fagmannlegum vinnubrögðum.
Svo nákvæmlega hafði sprengi-
efnið verið skammtað að ekkert
tjón varð á öðrum pökkum í
skýlinu.
Franska ríkisstjórnin, sem
verið hafði tvístígandi út af
sölunni í byrjun, tilkynnti
stjórnvöldum í Baghdad að þau
yrðu að bíða í að minnsta kosti
tvö ár þar til nýr útbúnaður væri
til reiðu. Árið 1981 vonast
Frakkar til að hafa tekið í
þjónustu sína „hreint" kjarna-
ofnseldsneyti, óhentugt til
vopnagerðar. Irakar voru því
síður en svo ginnkeyptir fyrir
hugmyndinni og tóku pöntunina
reiðilega aftur.
— Skýlið I La Seyne í Frakklandi. þar sem kjarnofn íraka var
Að sex-daga stríðinu loknu
hættu Frakkar að selja ísraelum
hergögn og ollu því viðbárur
Araba um „árásarhneigð" Isra-
ela. Þar með var einnig endi
bundinn á alla úraníumflutn-
inga, en án kjarnaefnisins gátu
Israeiar ekki fullgert sprengj-
una. Er ísraelski varnarmála-
ráðherrann, Moshe Dayan, hafði
gert það upp við sig að valkost-
irnir væru annað hvort að láta
áformið fyrir róða eða að komast
yfir úraníum ólöglega, þá sagði
hann við víni sína: „Við verðum
þá bara að stela því“. Mossad var
samstundis falin framkvæmd
verksins og hóf hún undirbúning
í kyrrþey. Áætlunin hlaut nafnið
„Plumbat aðgerðin“.
Starfsmenn leyniþjónustunn-
ar urðu þess áskynja að belgískt
fyrirtæki, Société Générale des
Mincrai.s (SGM) hefði yfir ríf-
legum úraníumbirgðum að ráða
og hefði þeim verið komið fyrir í
jaðri Antwerpen. Einnig rak þá
minni til þess að bandaríska
leyniþjónustan, CIA, hefði bent
á „athyglisverðan" vestur-
þýzkan kaupsýsiumann, Herbert
Schulzen, meðeiganda í efnafyr-
irtækinu Asmara í Wiesbaden.
Þessum þýzka ævintýramanni
var boðið til Israel undir því
yfirskini að timburverksmiðja í
Tel Aviv hefði áhuga á að kaupa
af fyrirtæki hans málningu.
I mars 1968 pantaði Asmara
200 tonn af úraníum frá SGM í
Brussel. Kom fram að fyrirtækið
hygðist nota efnið sem hvata við
málningarframleiðslu, og þyrfti
þess vegna að vinna úr málm-
grýtinu annars staðar áður en
það gæti orðið Þjóðverjunum að
gagni. Samkvæmt áætlun
Mossads skyldi svo úraníum-
„Fagmannlegt skemmdarverk“
eyðilagður.
ísraeiskt tankskip í nánd við
Kýpur. Skipin tvö lágu samsíða í
fjórar klukkustundir og var öll-
um farminum umskipað. Tank-
skipið lagðist síðan að bryggju í
Haifa, þar sem flutningabifreið-
ar tóku við og óku kjarnaefninu
til Ncgcv. ísrael átti nú nægan
forða til að framleiða tuttugu
kjarnorkusprengjur á stærð við
þá sem varpað var á Hiroshima.
Strandhögg
En önnur kjarnorkuævintýr
Mossads hafa einnig verið varn-
arlegs eðlis. Þannig var einmitt
mál með vexti er þrír ungir
menn héldu flugleiðis til Toulon
í Frakklandi í apríl 1979. Sendi-
skip. Þeir "issu einnig að verð-
irnir við CNIM tækju ekki vakt-
göngur milli lágnættis og klukk-
an þrjú að nóttu. í lágskýjuðu
næturhúmi, fjörtíu og átta
klukkustundum áður en ferming
skyldi fara fram, kiifu þremenn-
ingarnir varnarvegg, hlupu í átt
„ÁbyrKur fyrir
forsætisráðherra
einum . . .
að birgðaskýli, opnuðu hlið þess
með afsteypu viðeigandi lykils
og tóku strauminn af viðvörun-
arkerfi.
Grimmdaraðferðir
En aðförin í La Seyne var í
rauninni smáræði fyrir Mossad
og hefur leyniþjónustan aðhafzt
ýmislegt frækilegra. Á sjöunda
áratugnum kom hún „kampa-
vínsnjósnaranum" Wolfgang
Lotz fyrir í Kaíró. Þar sem
auðsýnt þótti að hann hefði verið
fyrrverandi nazisti, átti hann
þegar upp á pallborðið í hópi
þýzkra eldflaugasérfræðinga og
egypzkra hershofðingja er með
þeim unnu. Mossad hafði hendur
í hári Adolf Eichmanns í Arg-
entínu árið 1960 og laumaðist
með hann úr landi til ísraels þar
sem hann sætti réttarhöldum.
Árið 1969 pakkaði Mossad sam-
an rússneskum ratsjárútbúnaði í
Sinai eyðimörk og fór með hann
heim!
En aðdáun manna hetjudáð
leyniþjónustunnar er blandin
ótta við grimmdaraðferðir sem
hún vílar ekki fyrir sér að beita.
Saklausar konur og börn hafa
týnt lífi er Mossad hefur látið til
skarar skríða gegn meintum og
raunverulegum hryðjuverka-
mönnum PLO-samtakanna. I
júlí 1972 sprengdu flugmenn
Mossads bifreið Hassans Kana-
fani, skálds og stjórnmálaskör-
ungs, í loft upp í Beirut, þrátt
fyrir að þeir vissu af sautján ára
gamalli bróðurdóttur hans við
hlið hans.
Árið 1976 rændu útsendarar
Mossads í Kenya vestur-þýzku
háskólanemunum Birgitte
Schulz og Thomas Reuter. Voru
þau nauðug færð til Israels og
barin og byrluð ólyfjan þar til
þau undirrituðu „játningar".
Voru þau að lokum dæmd til tíu
„Skrúfuðu sundur
ratsjána ok tóku
heim . . .“
ára tugthúsvistar fyrir hermd-
arverk. Þegar þetta er ritað sitja
skötuhjúin enn bak við lás og
slá, þrátt fyrir að sakir hafi ekki
verið sannaðar á hendur þeim.
Áhrifaaukning
Þeir, sem nánast þekkja til
starfsaðferða leyniþjónustunn-
ar, hafa stundum nefnt hana
„Auga Davíðs". En fyrsti yfir-
maður Mossads, Isser Harel, er
þjónaði embættinu frá 1953 til
’63 og lagði m.a. á ráðin um
Eichmann förina, vísar öllum
slíkum hróðurlýsingum á bug.
„Það er tími til kominn að menn
hætti að spinna goðsögur um
Mossad", segir hann. „Okkur er
brýnni nauðsyn en nokkru öðru
ríki á fullkominni öryggisþjón-
ustu, þar sem við erum umkring-
dir fjandmönnum og höfum ekk-
ert stjórnmálasamband við þau
ríki sem reyna að ógna okkur
með hryðjuverkum".
Af þeim níu hundruð
mönnum, sem starfa fyrir
Mossad um heimsbyggð alla
(samanborið við 6500 í vestur-
þýzku leyniþjónustunni og 20000,
sem vinna fyrir CIA) hafa um
eitt hundrað aðsetur í höfuð-
stöðvum stofnunarinnar í út-
jaðri Tel Aviv. Núverandi yfir-
maður Mossads, Yitzak Hofi,
skiptir um bifreiðir daglega, en
notar venjulega skotheldan
Volvo, sem sjaldan ber fyrir með
sama skrásetningarnúmeri. Hofi
er ábyrgur gagnvart forsætis-
ráðherra og gefur honum einum
skýrslu. Ekki einu sinni varn-
armálaráðherra landsins hefur
minnsta vald yfir athöfnum
hans.
Síðan Menachem Begin tók við
embætti forsætisráðherra árið
1977 hefur áhrifa Mossads gætt í
auknum mæli. Andspyrnuher-
maðurinn fyrrverandi, sem Bret-
ar lögðu tíu þúsund Bandaríkja-
dali til höfuðs, er eldheitur
áhugamaður um njósnastarf-
semi. Begin og Hofi bera saman
bækur sínar vikulega og er Hofi
eini ráðamaðurinn sem hefur
nær óhindraðan aðgang að for-
sætisráðherranum.
Hofi, fimmtíu og eins árs
gamall og innfæddur, slóst í hóp
strandhöggshersveita ísraelska
andspyrnuhersins þegar hann
var sautján ára að aldri. Eftir að
ísrael varð sjálfstætt ríki 1948,
lagði Hofi þegar til atlögu með
sveitum sínum gegn Aröbum.
Hann kenndi við herskóla, starf-
aði um skeið sem liðsforingi með
Moshe Dayan og barðist í Sinai-
stríðinu 1956 sem aðstoðarher-
foringi með fallhlífaherdeild.