Morgunblaðið - 13.07.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1980
21
Utigrill:
Lostætur og fljót-
lagaður matur
MATUR. Krillaður á kolum eða á sérstökum jjastækjum úti
undir beru loíti. er fljótlagaður ok lostætur. A markaðnum
eru marKar tegundir tækja til þessara nota ok litum við inn í
tvær verzlanir til að kanna úrvalið.
Við kaup á útigrilli ber aðallega
að hafa í huga, — að sögn þeirra
sem grillin selja, — hvort grillið
er ætlað til heimanotkunar eða til
notkunar á ferðalögum. Annars
vegar eru til grill, sem auðveldlega
er hægt að pakka saman og gera
úr einfalda tösku eða stærri grill,
sem í staðinn eru með þægilegri
hæðarsetningu, — ekki þarf að
bogra yfir þeim.
Þá eru tvenns konar grill á
markaðnum, viðarkola-grill og
svonefnd gas-grill. Viðarkolagrill-
in eru meira tekin, enda ódýrari.
Þau eru annars vegar til úr potti
og hins vegar venjulegu járni og
að sögn halda pott-grillin betur
hita og eru þar af leiðandi fljótari
að hita upp kolin, en það getur
tekið nokkurn tíma.
Gas-grillin eru mun dýrari en
fljótvirk. í stað kola er notað
hraun og hægt að byrja steikingu
um leið og búið er að kveikja upp.
Gaskúta þarf með slíkum grillum.
Viðarkol fást í misjafnlega stór-
um pakkningum og kostar poki af
þeim frá rúmum þrjú þúsund kr.
upp í tíu þúsund. Þá má benda á,
að í stað þess að láta kolin brenna
upp að lokinni notkun, má hella
þeim f járnílát með þéttu loki og
deyr þá í þeim og síðan má nota
þau aftur við næstu steikingu.
Gott er að nota sérstakan vökva,
þegar kveikt er í kolunum, einnig
má nota ísvara, kolin og vökvinn
fást í flestum sportvöruverzlun-
um, einnig á benzínstöðvum.
A meðfylgjandi myndum, sem
Emilía Björg tók, má sjá nokkrar
tegundir útigrilla.
I verzluninni Útilifi i Glæsibæ
var að finna ýmsar tegundir
viðarkolagrilla. en einnig þetta
gasgrill, sem kostar rúmar 50
þús. kr., en ekki fylgir með því
gaskútur.
Þessi grill eru svonefnd pottgrill og halda mjög vel hita. Þau kosta frá
rúmum tiu þúsund krónum, og fást i verzluninni Geysi.
Lengst til vinstri er gasgrill af fullkomnari gerð og kostar það 258
þús. kr.. gaskútur fylgir og einnig hraun. þá hentugt heimagrill. með
fylgja vélknúnir teinar og grillgrindin er stillanleg. Lengst til hægri
er siðan ferðagrill. sem pakka má saman í handhæga tösku. Þau kosta
frá ta-pum 10 þús. kr. Þessi grill fást einnig í verzluninni Geysi.
Fílar og geisjur
úr f ílabeini
FÍLABEIN er vinsadt til ýmis
konar skrautmunagerðar. en
ekki að sama skapi auðvelt að
verða sér úti um hráefnið. og
verðlag á filabeinsmunum i
samræmi við það.
I verzluninni Corus í Hafnar-
stræti er að finna nokkra fíla-
beinsmuni, þar á meðal eru tveir
litlir fílar, skreyttir túrkis-
steinum, og kostar stykkið litlar
317.820 kr. eða parið 635.640. Þá
eru einnig til geisjustyttur, tvær
litlar á 225.875 kr. stk. og ein
stór á 254.645 kr. Lítið ker,
einnig skreytt túrkis-steinum,
er að finna meðal fílanna og
geisjanna og kostar það 169.115
kr. Allir eru munir þessir frá
Kína og handunnir.
Ljósm. Mbl. Emiiía.
Lokaútsala
allt á að seljast
Fatnaöur og vefnaðarvara á stórlækkuðu verði
Dömu og herrabuxur frá kr. 8.900,-
Barnabuxur frá kr. 4.900.-
Sumarjakkar
á dömur, herra og börn frá kr. 6.900.-
Efni: Flauel, denim, poplín, flannel, fóöur o.fl., o.fl.
Komið snemma og náið því besta.
Verksmiðjusala
Skipholti 7.
rilÍiMii.iijk'x
naiailliBr ■laiHM
i iMiaiaa aiMM
Allthrann
IBI
■ ■I
■rsa
I !■
•trn
Foröist stórtjón meö AUTRONICA brunaviövörunarkerfi
AUTRONICA brunaviðvörunarkerfi
• Henta fyrir sjúkrahús, skóla,
hótel, söfn og allar stærri
byggingar
• Tæknilega fullkomin
• Fallegt útlit
• Hagstætt verö
• Tryggingaiögjöld lækka
• Samþykkt af Brunamála-
stofnun Ríkisins
• Mjög góö reynsla
• Tæknimenn sjá um ráögjöf
og þjónustu
mmm ■0
mm mmm ■□
um mmm ■■ mmm ■■
mm mmm ■■ ■■
■■ ■■ mmm ■■
■ ■■■ ■ m m
heimilistæki hf
TÆKNIDEILD — SÆTÚNI 8 — SÍMI 24000