Morgunblaðið - 13.09.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
3
Játaði ólög-
lega vínsölu
MAÐUR á Ilöfn i Hornafirði
hefur verið ákærður fyrir að hafa
stundað ólöKleKa áfenKÍs.sölu þar
um slóðir ok hefur mál hans nú
verið sent saksóknara.
Að sögn Björgvins Þorsteins-
sonar, fulltrúa sýslumanns á
Höfn, bárust lögreglunni upplýs-
ingar um ólögiega áfengissölu
mannsins í síðustu viku og hefur
hann viðurkennt brot sitt. Sem
fyrr segir verður mál hans nú sent
saksóknara til ákvörðunar.
Brunabíll
árgerð ’47
og liðið illa
búið tækjum
— segir slökkviliðs-
stjóri á Raufarhöfn
— VIÐ vitum það hér á
Raufarhöfn að brunavarnirn-
ar eru ckki í nógu góðu laKÍ
ok fólk veit vel við hvað það
býr. en það er eins ok Kengur
víða, að sveitarfélögin ráða
ekki við aiit i einu og okkur
hefur gengið hægt að fá
endurnýjaðan tækjabúnað
slökkviliðsins, sagði Ilelgi
ólafsson rafvirki á Itaufar-
höfn, en hann er jafnframt
slökkviliðsstjóri þar. En í Kær
var lesin í útvarp tilkynning
frá Brunamálastofnun ríkis-
ins, þar sem m.a. var vakin
athygli á þvi að hrunavarnir á
Raufarhöfn teldust ófullnægj-
andi og menn beðnir að gæta
varúðar af þeim sökum.
— Það er eins konar þegn-
skylduvinna að starfa í
slökkviliðinu hér, eða borgaral-
eg skylda, en menn hafa ekki
sérstakan áhuga á því að gera
það í áraraðir þegar slökkvilið-
ið er svo illa búið, þá vilja
menn helst vera lausir við að
standa í þessu og það er
kannski alvarlegasta málið.
Hitt er annað mál að hér er
mjög fátítt að brenni og þá
sjaldan það verður koma allir
sem einn við sögu til að hjálpa,
sagði Helgi einnig. Hann kvað
lengi búnar að vera í pöntun
nýjar slöngur og að nauðsyn-
legt væri að fá nýjan slökkvi-
bíl, en núverandi bíll er Ford
árgerð 1947.
Fulltrúar Brunamálastofn-
unarinnar voru á ferð nyrðra á
fimmtudag og settu þá á svið
útkall og boðaður var eldur í
barnaskólanum. Kvaðst Helgi
hafa farið á staðinn í eigin bíl
og sagt þar að hann hefði engin
tæki til að ráða við þennan eld
og því fengi slökkviliðið ekki að
gert. Kvað Helgi þetta trúlega
ástæðu tilkynningar stofnun-
arinnar, en með þessu kvaðst
Helgi hafa viljað vekja athygli
á málefnum slökkviliðsins á
Raufarhöfn.
— Hins vegar vil ég þá
spyrja Brunamálastofnunina
að því hvernig menn eigi að
haga sér þar sem brunavarnir
eru í lagi, sagði Helgi. — Á þá
fólk á þeim svæðum að hætta
að hafa áhyggjur af bruna-
vörnum og láta slökkviliðið eitt
um að sjá um þær?
Rætt um Stalin
í sjónvarpssal
UM ÞESSAR mundir sýnir sjón-
varpið þætti um Stalín undir
nafninu „Rauði keisarinn" og
verður hinn síðasti af fimm þátt-
um sýndur föstudaginn 26. sept-
ember. Útvarpsráð tók þá ákvörð-
un á fundi í gær, að í kjölfar
þáttanna yrði þann dag umræðu-
þáttur í Sjónvarpssal líkt og var
að loknum þáttunum „Holocaust".
í þúsundatali hefur lundapysjum verið sleppt í Eyjum að undanförnu.
mest af börnum og unglingum sem safna þeim kvölds og morgna, en
einnig af fullorðnu fólki sem hefur gaman af að rifja upp gamlar
minningar og safnar í bilskottið á siðkvöldum. Pysjan flýgur á Ijósin í
bænum þegar dimmt er orðið, en á meðfylgjandi mynd eru tva>r komnar
í loftið í Klaufinni við Stórhöfða.
Þorskafli 325 þús.
tonn f rá áramótum
ÞORSKAFLINN frá áramótum
var um siðustu mánaðamót orð-
inn um 325 þúsund tonn sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Fiski-
félags íslands, en var í lok
ágústmánaðar í fyrra 25 þúsund
tonnum minni. Þorskafli báta er
mun meiri á þessu ári en því
síðasta. eða 181 þúsund tonn á
móti 160 þúsundum. Mun minni
munur er í þorskafla togara, en
þeir veiddu 144 þúsund tonn af
þorski fyrstu 8 mánuði þessa árs,
en 140 þúsund tonn sama tima í
fyrra.
Botnfiskafli frá áramótum var
um mánaðamótin orðinn tæp 487
þúsund tonn, en var tæp 460
þúsund tonn í ágústlok í fyrra.
Heildarafli landsmanna var um
mánaðamótin rétt innan við 900
þúsund tonn, en 1.066 þúsund tonn
í fyrra og munar þar mestu um að
loðnuafli er mun minni í ár, en
einnig vegur kolmunni þar nokk-
uð.
I ágústmánuði var þorskaflinn
samtals 25.590 tonn, en í sama
mánuði í fyrra 27.896 tonn. Botn- -
fiskaflinn í mánuðinum vár 46.187
tonn í fyrra, en í ár 38.157 tonn.
Útvarpsráð mælir með
Rúnari í starf
dagskrárgerðarmanns
Á FUNDI útvarpsráðs í gær
mælti meirihlutinn með Rúnari
Gunnarssyni í starf dagskrár-
gerðarmanns hjá Sjónvarpinu. en
sem kunnugt er var starfið aug-
lýst laust til umsóknar fyrir
skömmu. þar sem Egill Eðvarðs-
son sagði stöðu sinni lausri. Við
atkvæðagreiðslu í útvarpsráði
fékk Rúnar 4 atkva>ði. Björn
Emilsson 2 og Kristín Pálsdóttir
1.
Aðrir umsækjendur um stöðuna
voru Edda Andrésdóttir, Geir
Rögnvaldsson, Geirlaugur Óli
Magnússon, Guðmundur Þór Sig-
urðsson, Ingveldur Sveinbjörns-
dóttir, Sigurður Vilberg Dag-
bjartsson og Viðar Víkingsson.
Þess má geta að Starfsmannafélag
sjónvarps mælti með Birni Emils-
syni í starfið, en Hinrik Bjarna-
son, forstöðumaður Lista- og
skemmtideildar, mælti með Rún-
ari. Það er útvarpsstjóri, sem
hefur síðasta orðið í sambandi við
ráðninguna.
Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins:
Flokkurinn á allt sitt undir
gagnkvæmu trausti og samstarfi
„VIÐ þetta tækifæri er mér efst
i huga að þakka það traust sem
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
hefur sýnt mér með því að ráða
mÍK í þetta starf, sem éK tel
rnikiö ábyrKðarstarf,“ seKÍr
Kjartan Gunnarsson nýráðinn
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins. í samtali við MorKun-
blaðið.
„Víst er, að það er að mörgu
leyti erfitt að taka við þessu
starfi af fráfarandi fram-
kvæmdastjóra, Sigurði Hafstein,
sem hefur getið sér sérstakt og
einstakt orð í sínum störfum og
hefur á allan hátt reynst flokkn-
um hinn nýtasti maður. Ég vona
að ég muni í mínum störfum
vinna mér jafn mikinn trúnað og
stuðning flokksins og fráfarandi
Kjartan Gunnarsson.
framkvæmdastjóra tókst, en það
er að mínu mati forsenda þess að
maður nái árangri í starfi, að
hann njóti góðs samstarfs og
trausts samflokksmanna sinna.
Án þess er allt hans starf unnið
fyrir gíg,“ sagði Kjartan.
„Mér er það ljóst, að Sjálf-
stæðisflokkurinn á um þessar
mundir allt - sitt undir gagn-
kvæmu trausti flokksmanna og
heiðarlegu samstarfi þeirra.
Flokkurinn hefur ávallt verið
lang stærsti stjórnmálaflokkur
landsins og þar með tryggt
ákveðinn stöðugleika í stjórn-
málalífinu. Þetta er mikilvægt
atriði sem þjóðarnauðsyn ber til
að ekki breytist. Ég vona að mér
takist að gegna mínu starfi með
þetta að leiðarljósi," sagði
Kjartan.
„Þau verkefni sem ég kem til
með að vinna að eru margbreyti-
leg. Framkvæmdastjóri er
starfslegur yfirmaður allra
starfsmanna flokksins, stjórnar
og skipuleggur starf á skrifstofu
hans, heldur uppi sambandi við
samtök flokksins um allt land og
annast framkvæmdastjórn
þeirra mála sem miðstjórn
ákveður að framkvæmd skuli á
vegum flokksins. í þessu sam-
bandi er ástæða til að fagna
sérstaklega samþykkt mið-
stjórnar, að stofna sérstaka
fræðslu- og útbreiðsludeild á
skrifstofu flokksins og ráða sér-
stakan starfsmann sem alfarið
mun sinna þeim verkefnum,"
sagði Kjartan Gunnarsson að
lokum.
Inga Jóna Þórðardóttir:
• •
Oflugt starf Sjálfstæðisflokksins
hefur sjaldan verið mikilvægara
„ÞETTA starf sem ég hef
verið ráðin til að gegna
er til komið í beinu fram-
haldi af þeirri deilda-
skiptingu sem gerð var
með stofnun fræðslu- og
útgáfunefndar flokksins
á síðasta ári,“ sagði Inga
Jóna Þórðardóttir, ný-
ráðinn framkvæmda-
stjóri fræðslu- og útgáfu-
mála Sjálfstæðisflokks-
ins, í samtali við Morgun-
blaðið.
„í þessu starfi felst að
Inga Jóna Þórðardóttir
vinna að því að stefnumótun
flokksins skili sér betur í
gegnum starf þingflokksins
en verið hefur. Einnig er það
mikilvægur þáttur í starfinu
að sjá um útbreiðslumál
flokksins, upplýsingaöflun og
að kynna baráttumál hans á
hverjum tíma og koma þeim
á framfæri. Þá mun ég vinna
með málefnanefndum flokks-
ins og þingflokki að stefnu-
mótuninni og tengja saman
störf þeirra," sagði Inga
Jóna.
„Þegar litið er til þeirrar
þróunar sem átt hefur sér
stað að undanförnu, að þjóð-
félagið færist æ lengra í
burtu frá þeim hugmyndum
sem sjálfstæðismenn berjast
fyrir, er ljóst að öflugt starf
Sjálfstæðisflokksins hefur
sjaldan verið mikilvægara.
Ég mun því í mínu starfi
leggja mitt af mörkum til
þess að Sjálfstæðisflokkur-
inn geti orðið það afl í
landinu, sem frjálshuga ís-
lendingar vænta og framtið
landsins krefst," sagði Inga
Jóna Þórðardóttir.