Morgunblaðið - 13.09.1980, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
HLAÐVARPINN
Glatt á hjalla
hjá Frömurum
ÞAÐ VAR nlatt á hjalia hjá
leikmonnum Fram þegar þeim
hafði tekizt að verja bikarmeist-
aratitil sinn á dóKunum. Þáver-
andi fslandsmeistarar. ÍBV,
hðfðu verið lanðir að velli í
æsispennandi leik þar sem fram-
lengingu þurfti til að knýja fram
úrslit. Stjórn Knattspyrnudeild-
ar Fram hauð leikmönnum liðs-
ins. þjálfurum allra flokka. eÍKÍn-
konum, vinum ok velunnurum í
veKle^a sÍKurveizlu í ÁtthaKasal
Hótel Söku.
Bjarni Friðriksson, hirðljós-
myndari Fram, smellti þá þessari
skemmtileKu mynd af þeim Mar-
teini Geirssyni fyrirliða Fram og
íslenzka landsliðsins, Hugrúnu
Pétursdóttur, Dagmar Maríus-
dóttur og Hólmbert Friðjónssyni,
þjálfara Fram 2 síðastliðin ár, en
á því tímabili hafa Framarar
unnið bikarkeppnina bæði árin og
hafa þegar tryggt sér silfursætið í
Islandsmótinu. Það eru eiginkon-
urnar, sem halda á bikarnum góða
á myndinni og sjálfsagt hafa þær
barizt fyrir honum á sinn hátt
ekki síður en kallarnir. í dag eru
Framarar á leið yfir Atlantshafið
til Kóngsins Kaupmannahafnar,
þar sem þeir leika á miðvikudag
gegn danska liðinu Hvidovre í
Evrópukeppni bikarmeistara.
Slegið hinsta sinni
IIÚSAVÍK var um miðja þessa
öld þjóðþekkt þorp, fyrir víða
velli og fögur tún — milli húsa —
þvi byggðin var þá all dreifð.
Nú hafa tímarnir breyst og á
meðfylgjandi mynd er Jónas H.
Hagan (sem um áratugi ók flutn-
ingabílum milli Husavíkur og
Reykjavíkur) — að hirða Hjarðar-
holtstúnið og bera upp hey af því,
en það mun í síðasta sinn, sem það
er gert, því túnið er fallið undir
bæinn eins og sagt er og hafa þar
verið reistar stórar byggingar og
það sem eftir er á að nýta sem
barnaleikvöll.
Sorptæknar?
Eftirfarandi hugleiðingar gat nýlega að líta í Akureyrarblaðinu
Degi:
Á þessari tölvu- og tækniöld hefur það orðið hálfgerð tíska að
breyta starfsheitum manna til samræmis við aldarháttinn. Nú er
ekki lengur talað um sæðingamenn eða -meistara heldur frjótækna
og um daginn gat að lesa í dagblaði einu, starfsheitið trétæknir.
Þess verður sjálfsagt ekki langt að bíða að afgreiðslufólk nefni sig
verslunartækna, iðnaðarmenn iðntækna, blaðamenn blaðtækna,
öskukarlar sorptækna o.s.frv. Eða hvað?
Vandinn fundinn!
Nú er loks upplýst, hvað það er sem veldur íslenskum
stjórnmálamönnum svo miklum erfiðleikum í sambandi við
verðbólguna. Nú er vandinn fundinn, eða svo er að minnsta kosti að
sjá á þessum ummælum dr. Gunnars Thoroddsens forsætisráð-
herra í fimmdálka frétt í Vísi í gær:
„Að mínu mati eru peningamálin veikasti hlekkurinn í
baráttunni gegn verðbólgu."
Karphúsið
Samningaviðræður aðila vinnumarkaðarins hafa nú staðið vikum
og mánuðum saman, án þess að mikið virðist hafa miðað í
samkomulagsátt. Flestir fundir fara fram í húsakynnum ríkis-
sáttasemjara að Borgartúni 22 í Reykjavík, undir stjórn Guðlaugs
Þorvaldssonar.
Sín á milli eru samningamenn farnir að kalla húsið „karphúsið",
og munu það vera orð að sönnu, því óvíða er karpað og deilt meira
þessa dagana. — Vonandi er bara að Guðlaugur fari að taka menn
í karphúsið, svo eitthvað fari að ganga!
íslendingar
í Lundúnum
+ EINS ok fram hefur
komið í fréttum halda ís-
lendingar í Lundúnum
uppi töluverðri félags-
starfsemi. starfrækja m.a.
barnaskóla svo að engin
hætta ætti að vera á því að
börnin týni niður ástkæra
ylhýra málinu, þótt á er-
lendri grund séu, um
lengri eða skemmri tíma.
Verður skólinn til húsa í
íslenska sendiráðsbústað-
num í vetur, en var áður
starfræktur í húsakynnum
Fluííleiða í borginni.
Minna er að sjálfsögðu
um mannamót á sumrin en
veturna, en þjóðhátíðar-
dagurinn var haldinn há-
tíðlegur með tvennu móti,
þ.e. móttöku í sendiráðsbú-
staðnum þann seytjánda og
útiskemmtun fyrir börn og
fullorðna þann fimmtánda
júní. A meðfylgjandi mynd
sem tekin var á úti^kemmt-
uninni, má sjá formann
Islendingafélagsins, Jónínu
Olafsdóttur í blómum
skrýddum ræðustól og ung-
an íslending hlýða á, einn
af mörgum, því skemmtun-
in var fjölsótt að vanda.
l.jOHm.: Spb.