Morgunblaðið - 13.09.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980
23
Sigurgeir ljósmyndari okkar i Eyjum hitti þessar ungu stúlkur suður
á Eyju þar sem þær voru að tína sumarblóm í haustbliðunni og
einhver hlýtur gróskan að vera i Eyjum úr því að veður er svo gott
víða um land, en samkvæmt veðurskýrslum síðustu 60 ár eru
Vestmannaeyjar hlýjasti staður á landinu i hitamælingum þótt ekki
verði sagt að þær séu í hópi lygnustu staða landsins.
Norrænir stanga-
veiðimenn þinga
ÞING Norðurlandasambands
stangaveiðimanna var haldið i
Norræna húsinu i Reykjavik ný-
verið, en N.S.U. eru samtök
félaga stangaveiðimanna á Norð-
urlöndum. Formaður N.S.U., Há-
kon Jóhannsson, gaf skýrslu um
starfið á yfirstandandi kjörtíma-
bili. Þar kom fram að starfsemin
hefur farið mjög vaxandi og að
aukið hefur verið samstarf við
alþjóðlegar stofnanir með svipuð
áhugamál og N.S.U., svo og við
Norðurlandaráð.
Prófessor Norling frá Svíþjóð
flutti erindi um þróun og viðgang
stangaveiði og alþjóðleg sam-
skipti. Friðrik Sigfússon, formað-
ur Landsambands Stangaveiði-
manna flutti erindi um leigu
erlendra veiðimanna í ám hér-
lendis. Kom fram i ræðu hans að
alls munu veiðileyfi í 17 ám vera
boðin til sölu, að hluta til eða öllu
leyti á mörkuðum erlendis. Má þar
nefna Grímsá, Norðurá, Laxá í
Kjós, Leirársveit, Aðaldal og
fleiri.
Að loknum umræðum var sam-
þykkt ályktun þar sem þing Norð-
urlandssambans stangaveiðim-
anna staðhæfir að stangaveiði,
einangruð við vissa hópa í norr-
ænum laxveiðiám, sé stöðugt
vandamál fyrir almenning á Norð-
urlöndum.
Samþykkt var að danska
stangaveiðisambandið færi með
stjórnarstörf næsta kjörtímabil
1981-83.
Samkeppni á
vegum SYR
BLAÐINU hefur horist eftirfar-
andi athugasemd frá Sam-
keppnisnefnd AÍ.
Vegna greinar Ernu Ragnars-
dóttur um samkeppni um gang-
stéttarbiðskýli SVR, birt í Morg-
unblaðinu 6. sept.: Þar sem
greinarhöfundur telur Arki-
tektafélag íslands vera að stuðla
að einokun á sviði umhverfis-
hönnunar, skal eftirfarandi tek-
ið fram:
Það er vissulega stefna Arki-
tektafélags íslands að stuðla að
því að þeir sem hanni hús og
umhverfi skuli hafa til þess
fullgilda menntun.
Öllum arkitektum eru kunnir
þeir afreksmenn á borð við Le
Corbusier og fleiri, sem juku
hróður starfsgreinarinnar með
framlagi sínu. Slíkir menn eru
þó frekar fáir og verða að teljast
til undantekninga og gefur eng-
anveginn tilefni til að gefa öllum
jafnan þátttökurétt í samkeppn-
um.
Engu að síður telur Arkitekta-
félag íslands að oft sé tilefni til
að heimila fleirum þátttöku í
samkeppnum. Samkeppni um
strætisvagnabiðskýli í Reykja-
vík er einmitt eitt slíkt tilfelli,
en þar sem Bygginganefnd borg-
arinnar telur að þeir sem hanna
biðskýli skulu hafa rétt til að
leggja uppdrætti af þeim fyrir
nefndina, miðaði dómnefnd síð-
ari hluta samkeppninnar við það
skilyrði.
Ef sjónarmið yfirvalda og
dómnefndar breytast er ólíklegt
að Arkitektafélag íslands muni
standa í vegi fyrir breiðri þátt-
töku.
— O-
ÞÁ hefur blaðinu borist eítir-
farandi frá dómnefnd i sam-
keppni um gangstéttarbiðskýli
fyrir SVR:
Skv. III. kafla Byggingar-
reglugerðar, gr. 3.1.1., er skylt að
skila til byggingarnefndar teikn-
ingum af „... mannvirkjum, sem
hafa áhrif á útlit umhverfis",
Svar við
grein
Ernu
Ragnars
dóttur
þar með talin gangstéttarbið-
skýli í Reykjavík. Þessu gátu
hvorki útbjóðandinn, SVR, dóm-
nefnd né samkeppnisnefnd Arki-
tektafélags Islands breytt.
Þar sem það var eindregin ósk
allra hlutaðeigandi aðila, þ.m.t.
ARKITEKTA í dómnefnd, að
gefa farþegum SVR og lands-
mönnum öllum kost á að spreyta
sig á verkefni þessu var ákveðið
að efna til tveggja þrepa sam-
keppni. Fyrra þrepið. var almenn
hugmyndakeppni, opin öllum, og
var skilafrestur til 15. apríl sl.
Tilgangur hennar var að fá fram
verulega góðar hugmyndir að
gangstéttarbiðskýli, sem síðar
væru lagðar til grundvallar við
gerð útboðslýsingar fyrir þann
hluta keppninnar, sem nú stend-
ur yfir, en hann er hugsaður til
að fá fram uppdrætti.sem full-
nægja kröfum byggingarnefndar
Reykjavíkur og þörfum útbjóð-
andans. Báðir hlutar þessarar
samkeppni hafa verið kynntir í
fjölmiðlum.
Svo sem Ijóst er af framan-
sögðu og skv. 2. gr. samkeppnis-
reglna AÍ, er unnt að heimila
öðrum en félögum í Arkitektafé-
lagi Islands þátttöku í sam-
keppni á vegum félagsins, en sú
heimild var einmitt notuð að
þessu sinni. Einnig þykir rétt að
taka fram að samstarf SVR og
ARKITEKTA hefur ætíð verið
til fyrirmyndar.
Allt þetta vissi Erna Ragnars-
dóttir mæta vel.
+VÓfJi<W-S<roie- 'Æltéue. SOní(\JL)DA<*I/Un|
iA- 66PTeNS«.EF ue-vf1'^ o<s b«-Í»ao
C>& L-AtíéT Æ SÍI<_n| -
+þÍI-í><Sr<&TO , U-L- .13- OO
F&LAócWTL J D06Tie> Nlo A.T drtfcMí-U SiluNOM C>Cr
Liomiö MT-E> 1 -tfATit> /+e-B>Te^T>iS líiapti o& po' AlT>
Vefac>oR A pAacuM •&tAÆ> .
Ar+f. E-T \iefeur >JeFí>og vont, v/ie> m/esta -^cvMMor>A6r
FORNBÍLAKLÚBBUR
ÍSLANDS
Gestir á þinginu.