Morgunblaðið - 13.09.1980, Side 29

Morgunblaðið - 13.09.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1980 29 Jón frá Pálmholti, formaður Leigjendasamtakanna: í Reykjavíkurbréfi Morgun- blaðsins sunnudaginn 31. ágúst sl. er meðal annars fjallað um mál- efni leigjenda. Það er fagnaðar- efni þegar rætt er um þessi mikilvægu mál á málefnalegan hátt, eins og gert er í fyrrnefndu bréfi. Ég vil því nota þetta tæki- færi til að svara nokkrum atriðum sem þar koma fram og hafa sum reyndar heyrst víðar. Bréfritari fullyrðir að lögin um húsaleigusamninga frá í fyrra, taki mest tillit til hagsmuna leigjenda. Ég vil í því sambandi benda á að frumvarpið til þessara laga var samið af nefnd þriggja manna, þar sem leigjendur og húseigendur áttu hvor sinn full- trúa en ráðherra skipaði þann þriðja. Leigjendasamtökin áttu því aðeins einn fulltrúa af þrem í nefndinni, jafnt og Hús- og Land- eigendasamband íslands. Sam- komulag var í nefndinni um gerð frumvarpsins. Ég tel það býsna hæpna fullyrðingu að lögin taki „mest tillit til leigjenda". Eg tel að þau taki tillit til beggja aðila, enda er húsaleigusamningur gagnkvæmur viðskiptasamningur aðila og sjálfsagt að lög séu í gildi um svo þýðingarmikil viðskipti sem þessi, eins og tíðkast um annað sem máli skiptir í samfél- aginu. Þeir sem halda því fram að umrædd lög dragi einkum taum leigjenda, hljóta að taka mið af því ástandi sem ríkt hefur í þessum málum og hefur sannast að segja ekki verið mönnum bjóð- andi að búa við. Leigjendur hafa alloft verið nánast réttlausir og orðið að lúta í flestu vilja leigu- sala. Ég á ekki von á að leigusalar eða íbúðareigendur yfirleitt vildu búa við það öryggisleysi og þau kjör sem leigjendur á svonefndum frjálsum markaði hafa oft orðið að sæta. Er hlutskipti húsbyggj- enda eða kaupenda þó ekki alltaf öfundsvert, en það er önnur saga, eða önnur hlið á vitleysunni. Við gerð laganna um húsaleigu- samninga var höfð nokkur hlið- sjón af lagasetningu um þessi mál í nálægum löndum. Eðlilegt þykir mér að svipuð stefna ríki í hús- næðismálum hér og annarsstaðar í löndum sem okkur eru skyldust í flestu tilliti. Bréfritari segir að heimti hús- eigandi til dæmis árs fyrirfram- greiðslu" sé hann þar með að leigja íbúðina til fjögurra ára. Hér á bréfritari við að ákvæði 51. gr. laganna, þar sem segir að óheimilt sé að krefja um leigugreiðslu fyrirfram til lengri tíma en eins fjórða af leigutímanum. Orðalagið „húseigandi heimti" segir raunar sitt um afstöðu höfundar til leigu- samninga. Það er víst að miklar fyriframgreiðslur hafa verið leigj- endum erfiðar. Það er og ljóst m.a. af þeim könnunum sem gerðar hafa verið að leigjendur eru að stórum hiuta lágtekjufólk. Margt gamalt fólk er þar í hópi, einnig ungt fólk að byrja búskap eða sem eru nemendur. Svo eru allir ein- stæðu foreldrarnir. Arsfyrir- framgreiðsla getur numið einni til hálfri annarri milljón og það er mikil upphæð fyrir heimili með þrjú hundruð þúsund krónur rúm- ar á mánuði í tekjur. En hvað er fyrirframgreiðsla og hvers vegna krefjast menn henn- ar? Það liggur þó í augum uppi að sé leigusali búinn að taka við leigugreiðslu úr hendi leigjanda fyrirfram fyrir árið, hlýtur að vera erfitt fyrir leigusalann að losna við leigjandann á tímabil- inu, þótt hann brjóti grófiega af sér. Varla er leigusölum sama um hvernig leigjandi nýtir hið leigða, aðeins ef hann fær nóg fé á borðið. Ég tel reyndar kröfuna um árs fyrirframgreiðslu dæmi um sið- lausa viðskiptahætti. Slík fyrir- framgreiðsla er ekkert annað en vaxtalaust lán til leigusalans, og það er vafalaust helsta ástæða þess að hennar er krafist í svo ríkum mæli og verið hefur. Leigj- andinn verður kannski að taka lán með venjulegum vöxtum og af- henda það síðan leigusala vaxta- laust. Það er fróðlegt að fá að vita hvort slíkir viðskiptahættir stand- ast. Mitt álit er að húsaleigu eigi að réttu að greiða fyrir hvern mánuð eftir á, líkt og tíðkast um laun. Ætli það yrði upplit á launagreiðendum ef starfsmenn krefðust árskaupsins fyrirfram? Ég á ekki von á að höfundur Reykjavíkurbréfs vilji verja slíka kröfu og lái ég honum það ekki. Þarna verður þó að telja að um sambærilegan hlut sé að ræða. í lögunum er farið bil beggja um þetta atriði eins og fleira og ákvæðinu um takmörkun á fyrir- framgreiðslum er einnig ætlað að stuðla að meiri stöðugleika í leiguviðskiptum og örva til samn- inga um lengri leigutíma. Það er alkunna að flutningar á heimili eru dýrir og hafa oft í för sér röskun á högum. Tíðir flutningar koma oft illa niður t.d. á skóla- börnum. Bréfritari nefnir forleiguréttinn og segir hann afdráttarlausan. Svo er þó ekki. í 8. gr. umræddra laga segir m.a. „Forleigurétturinn fellur niður ef leigusali lætur íbúðarhúsnæðið í té til a.m.k. eins árs skyldmenni í beina línu, kjör- börnum eða fósturbörnum og systkinum sínum og börnum þeirra eða tengdaforeldrum, eða tekur húsnæðið til afnota fyrir sjálfan sig. Forleiguréttur leigutaka skv. I. mgr. gildir ekki, ef hið leigða íbúðarhúsnæði er í sama húsi og leigusali býr í sjálfur." Af þessu má sjá að forleigurétt- ur er ekki afdráttarlaus. Hitt þykir mér sjálfsagt að leigusali geti ekki rekið leigjanda út úr húsi með heimili sitt, til þess eins að taka inn annan leigjanda sér vandalausan, hafi fyrri leigutaki ekkert brotið af sér. Þetta hefur þó verið talsvert tíðkað, til þess helst að reyna að kría meiri leigu út úr nýjum leigjanda. Mér þykir rétt að setja skorður við slíku. Sem hliðstæðu má hér minna á ábúðalögin er taka til leigu á bújörðum. Enn segir í bréfinu að menn verði að gæta vel að hverskyns tímamörkum og hafa i huga skriflegar yfirlýsingar miðað við margvíslegan fresti. Mér þykir bréfritari gera full mikið úr þessu, þó þarna geti verið umdeilanleg atriði. Ég hygg að höfundur hafi helst í huga 7. gr. umræddra laga, er svo hljóðar: „Leigumála má ýmist gera til ákveðins tíma eða ótímabundna. Sé leigumáli tímabundinn lýkur honum án uppsagnar, en senda skal leigusali tilkynningu til leigu- taka samkv. 16. gr.“ Um ótímabundna leigusamn- inga gilda hins vegar ákvæði 13. gr. um uppsagnarfrest og auk þess ákvæði 15. gr. um fardaga ef hið leigða er íbúðarhúsnæði." Það ákvæði 16. gr. sem hér er vísað til, er á þá leið að minnst einum mánuði og mest þrem mánuðum áður en leigutíminn er útrunninn, skai leigusali senda leigutaka skriflega tilkynningu um að hann hyggist ekki fram- lengja leigumálann. Þótt sumum kunni að þykja þetta umdeilanlegt, verð ég þó að segja að ég tel tvímælalaust til bóta að hvetja aðila leigumála til að hafa með sér samband áður en leigumála lýkur, svo báðir aðilar viti hvar þeir standa. Oft er tímabundinn samningur endurnýj- aður og til bóta að ákvörðun um slíkt verði að taka áður en komið er að lokadegi samnings. Einnig má vera að leigjandi vilji ekki Jón frá Pálmholti endurnýja samninginn og er þá trúlega betra fyrir leigusala að vita það í tíma. Sé umrædd tilkynning ekki send, telst hafa stofnast til ótímabundins samn- ings milli aðila. Kemur þá til uppsagnarfrestur í samræmi við það. Þá vil ég víkja að þeirri fullyrð- ingu, sem ég hef heyrt áður, að húseigendur séu tregari að leigja húsnæði sitt eftir gildistöku lag- anna. Ég tel þetta ósannaða full- yrðingu og ef til vill setta fram í áróðursskyni gegn lögunum. Viss- ir aðilar hafa alltaf staðið gegn húsaleigulögum. Ég kannast ekki við að meira sé um autt húsnæði nú en verið hefur. Alltaf hefur verið eitthvað um íbúðir sem staðið hafa auðar um skeið, eink- um vegna sölu. Þetta hefur annars of lítið verið kannað. Það er dýrt að hafa íbúðir auðar lengi og ég hef litla trú á að meira sé um slíkt en verið hefur. Þeir sem leigja út íbúðir og fara að lögum þar um, eiga ekki að þurfa að lenda í vandræðum laganna vegna. Þvert á moti eiga lögin að tryggja leigusölum að þeir geti sagt upp leigjendum er sannanlega brjóta leigusamning gróflega og ítrekað. í 20. gr. laganna eru talin upp 9 atriði er geta varðað uppsögn af hálfu leigusala og 4 af hálfu leigutaka. Ef einhverjár íbúðir eru ekki í leigu vegna umræddra laga, er nokkuð víst að þar' er fyrst og fremst um að ræða íbúðir sem leigðar myndu í fremur skamman tíma og fyrirframgreiðslu krafist fyrir allt tímabilið, og leigðar dýrt. Þarna er oft um að ræða aðila sem eru að kaupa íbúð eða ljúka byggingu, eða gera einhvern annan bissness" og vill þá láta leigjandann redda sér yfir ein- hvern hjalla og reka hann síðan út. Þess eru dæmin að fólk hafi neyðst til að færa heimili sitt á milli slíkra leigusala á nokkurra mánaða fresti. Lögin um húsaleigusamninga frá í fyrra, eru fyrst og fremst miðuð við leigu til lengri tíma og hafa m.a. það markmið að breyta því sem of ríkt hefur verið í þessum viðskiptum, að leigt sé til skamms tíma og öll leigan greidd fyrirfram. Ég vona að flestir geti verið sammála um að slík breyting sé æskileg og verði til bóta. Ég tel að húsnæðisvandinn hér eigi sér aðrar orsakir en lögin um húsaleigusamninga. Þær orsakir eru fyrst og fremst þrjár. í fyrsta lagi aukin aðsókn í leiguhúsnæði, bæði vegna aðstreymis utan af landi vegna ótryggara ástands í sjávarútvegi og landbúnaði og trúlega einnig vegna fjölgunar námsmanna. Margir leigjendur hér eru skráðir utanbæjar. Einnig virðist aukin ásókn ungra Reyk- víkinga í leiguhúsnæði. Margt ungt fólk vill síður búa í foreldra- húsum. Fólk lætur sér ekki nægja eitt herbergi undir súð eða í kjallara í sama mæli og áður og minna er líka um slíkar vistarver- ur víða í nýrri hverfum en fyrrum tíðkaðist. I öðru lagi, vaxandi slæm nýting íbúða i einkaeign. Sífellt fleiri hverfi verða að half- gerðum elliheimilum. Þarna er mikið um lítt arðbaera fjárfest- ingu eins og víðar. I þriðja lagi hefur hið félagslega kerfi íbúða- bygginga verið hálf lamað síðustu árin. Þar hefur of lítð verið byggt og byggingar verkamannabústaða dregist óhæfilega á langinn. Leigu- htisnæði hefur alls ekki verið byggt. Trúlega vega síðustu atrið- in þarna þyngst. Er raunar merki- legt rannsóknarefni hvers vegna félagslegar íbúðarbyggingar hafa dregist svo hrikalega saman síð- ustu árin. Fróðlegt væri og ef einhver tæki sig til og kannaði áhrif ríkjandi stefnu í húsnæðis- málum á verðbólguþróun síðustu ára. Leigjendasamtökin reyna að vera þeim innan handar, sem vilja gera leigusamninga á löglegan hátt. Sumir eru í hálfgerðum vandræðum að skilja lögin, enda óvanir því lagamáli sem á þeim er. Trúlega vex þetta einhverjum í augum. Nauðsynlegt er að gefa út bækling í líkingu við pésa Trygg- ingarstofnunar, þar sem fólk er upplýst betur um rétt sinn og það hvernig lögin taka til hinna ýmsu þátta í leiguviðskiptum. Leigjenda- samtökin vinna að slíkum bækl- ingi, en vantar fjármagn til út- gáfu. Af sömu ástæðu kemst skrifstofa samtakanna ekki yfir öll þau verkefni sem hún þyrfti að sinna. Samkvæmt lögunum sjálf- um er það hlutverk ráðuneytis að kynna lögin. Það verk hefur ekki verið unnið sem skyldi, því miður. Æskilegt væri að geta tryggt öllum sem vilja og þurfa leigu- húsnæði sem eðlilegan valkost. Leigjendum heimilisöryggi og friðhelgi á borð við það sem aðrir njóta og leigusölum góða leigjend- ur. Lausnin á húsnæðisvandanum nú, er meira húsnæði, fyrst og fremst á félagslegum grundvelli, og ekki síst meira leiguhúsnæði. Raunverulegt leiguhúsnæði í fé- lagslegri eign. Lögin um húsaleigusamninga er sjálfsagt rétt að endurskoða þegar meiri reynsla er af þeim fengin. Vera má að þar megi eitthvað færa til betri vegar þegar frá líður og þessi mál eru komin í annað og betra horf. Nú mun unnið að frekari lagasetningu um þessi mál, það er um leiguna sjálfa. Þá samþykkti síðasta þing ný lög um húsnæðismál. Við bindum miklar vonir við að allt þetta komi til með að vinna gegn húsnæðisskortinum og er sannarlega ekki vanþörf á, slikt böl sem hann er. Jón frá Pálmholti, formaður Leigjendasamtakanna. Blómlegt við elliheimilið Garöurinn við Elliheimilið Grund við Hrinjíbraut hefur verið einstaklesa fallegur í sumar og stendur enn í blóma (ljósm. ólafur K. Magnússon). Húsaleigumál

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.