Morgunblaðið - 16.09.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
Fyrsti gasolíufarmurinn frá BNOC
Fyrsti farmurinn af brezku Kasolíunni frá BNOC kom til Reykjavíkur sl. sunnudag með þessu
brezka olíuskipi. en hann er um 19 þúsund tonn. AIls verða keypt um 80 þúsund tonn af gasoliu frá
BNOC á þessu ári. MorKunblaöinu tókst ekki að fá uppKefið verð olíunnar þrátt fyrir fyrirspurnir
hjá olíufélögunum og hjá viðskiptaráðuneyti. Ljosmynd Mbi. Ól.K.M.
Vöruflutningar fyrir varnarliðið:
Menntamálaráðherra:
„Valdið er hjá mér“
„Fólk á engan rétt á að vita af hverju mér finnst Hilmar hæfari“
„ÉG VERÐ að segja, að ég er svo
undrandi á ályktun bæjarstjórn-
arinnar. að ég á engin orð.
Verksvið skólanefndar er að
veita umsögn, en valdið er i
höndum ráðherra og ég hef hugs-
að mér að nota það vald. Hvað
varðar það að ég finni orðum
mínum stað um hæfni Hilmars B.
Ingólfssonar fram yfir Eyjólf b.
Jónsson, sem tveir af skólanefnd-
armönnum meiri hlutans krefj-
ast, þá vil ég segja, að umsækj-
endur eru báðir hæfir að mínu
mati, en fólk á engan rétt á að
vita af hverju mér finnst Hilmar
hæfari. Valdið er hjá mér og ég
vil ekki fara opinberlega út i
mannjöfnuð, — þetta er algjör-
lega mitt mál,“ sagði Ingvar
Gíslason menntamálaráðherra,
er Mbl. hafði samband við hann
vegna ályktunar bæjarstjórnar
Garðabæjar og umsagnar tveggja
skólanefndarmanna i tilefni af
ráðningu skólastjóra við Hofs-
staðaskóla í Garðabæ.
Þá sagði Ingvar, að hann teldi
afstöðu meiri hluta skólanefndar
pólitíska og hefði hann fengið
upplýsingar um að svo væri. Ekki
vildi hann gefa upp heimildar-
menn að þeim upplýsingum og
aðspurður sagðist hann hafa aflað
sér upplýsinga um báða umsækj-
endur og sagði báða hafa fengið
góð meðmæli. „Þá vil ég benda á,
að ég var fyrst sakaður um
pólitíska misbeitingu og tveir
skólanefndarmanna mæltu með
Hilmari, þannig að skólanefndin
sjálf var klofin. Einnig vil ég
benda á að aðeins tjá sig tveir af
þremur nefndarmönnum meiri
hlutans í skólanefnd í Mbl. gegn
þessari ráðningu."
— En nú benda þessir skóla-
nefndarmenn á, að Eyjólfur hafi
lengri starfsreynslu en Hilmar og
að hann hafi kennt við barna-
fræðslustigið og hafi háskóla-
menntun, sem Hilmar hafi ekki og
að Hilmar hafi aðeins kennt
stærðfræði við framhaldsstigið.
Hverju viltu svara þessu?
„Að vísu er Eyjólfur eldri mað-
ur með lengri reynslu en Hilmar
hefur einnig langa reynslu sem
kennari. Hins vegar endurtek ég
það að ég vil ekki fara út í
opinberan mannjöfnuð, mér finnst
það ekki eiga við. Þó Eyjólfur sé
hæfur til starfans að mínu mati,
þá tel ég Hilmar einfaldlega betur
að þessu starfi kominn. Hann
hefur fengið mjög gott orð hjá
öllum Garðbæingum sem ég hef
a.m.k. rætt við og einnig þeim sem
þekkja hans störf. Valdið er hjá
mér og ég beiti því á þann hátt
sem mér þykir réttast," sagði
Ingvar Gíslason í lokin.
Gætu orðið ein
ferð í viku
- segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða
„ÞAÐ cru ein þrjú, fjögur ár
síðan við fyrst hreyfðum þeim
möguleika að fá eitthvað af flutn-
ingafluginu fyrir varnarliðið.
Við höfum á undanförnum tveim-
ur mánuðum rætt þessi mál
tvisvar við varnarliðið hér, en
þetta er mál, sem ákveðið er i
Washington,“ sagði Sigurður
Ilelgason, forstjóri Flugleiða, er
Mbl. spurði hann í gær um
viðræður Flugleiða og varnar-
liðsins um flutninga i lofti á
vegum varnarliðsins.
Steingrímur Hermannsson
samgönguráðherra hefur sagt, að
hann telji ekki óeðlilegt, að Flug-
leiðir fái eitthvað af þessu flugi.
„Það hefur engin formleg tillaga
komið fram í ríkisstjórninni um
þetta í þessari lotu,“ sagði Svavar
Gestsson félagsmálaráðherra er
Mbl. spurði hann í gær um afstöðu
hans til þessa máls.
Sigurður Helgason sagði, að í
sambandi við loftflutninga varn-
arliðsins væri um „talsvert rnagn"
að ræða, sérstaklega vöruflutn-
inga, sem gæti orðið ein ferð í
viku. „Varðandi ferðir varnarliðs-
manna sjálfra, þá erum við með
talsvert af þeim flutningum í
okkar reglulega flugi," sagði Sig-
urður.
Hið fræga þýzka knattspyrnulið
FC Köln knm til Rrykjavikur í
gærkvöldi. en liðið lcikur gegn Ak-
urnesingum á Laugardalsvelli í
kvidd og er leikurinn liður i
UEFA-keppninni i knattspyrnu.
Meðfylgjandi mynd er tekin á flug-
vellinum i Luxemborg i ga‘r af
leikmonnum Kolnarliðsins. en
ha'tt er við því, að þeir verði ekki
eins brosmildir þegar leikurinn hefst
18 í kvöld. I.jósm. RA\.
Áfengi hækkar um 9%:
IJagnaður ríkisins af
ATVR 25 milljarðar
ÁFENGI hækkar í dag í verði og
nemur hækkunin yfirleitt um 9%,
en i nokkrum tilfellum er þó um
meiri hækkun að ra^ða vegna
hækkaðs innkaupsverðs. Að sögn
Höskuldar Jónssonar. ráðuneyt-
isstjóra i fjármálaráðuneytinu,
er þessi hækkun í samræmi við
tekjuáætlun, en í henni var gert
ráð fyrir að áfengi ha kkaði i takt
við kaupgjald. Ilöskuldur sagði.
að reiknað væri með að hagnaður
ríkissjóðs af Áfengis- og tóbaks-
verzluninni yrðu um 25 milljarð-
ar króna i ár.
Eftir hækkunina kostar flaska
af íslenzku brennivíni 11.000 krón-
ur, en kostaði fyrir helgi 10.100
krónur. Algeng vodkategund
hækkar úr 14.000 krónum í 15.300
krónur, algengur geniver hækkar
úr 14.600 krónum í 15.900 krónur,
algengt gin úr 13.800 kr. í 15.000
krónur og algengt viský úr 14.000
krónum í 15.300 krónur.
Áfengi hækkaði síðast 10. júní
sl. og þá um 12%. Þann 19. marz
sl. hækkaði áfengi sömuleiðis um
12%, en í bæði þessi skipti hækk-
aði tóbak einnig um sömu hlut-
fallstölu. Þar áður varð hækkun á
áfengi og tóbaki um 13% 10.
desember sl. Fyrir réttu ári síðan,
eða 16. september 1979, kostaði
flaska af brennivíni 7.000 krónur
og hefur brennivín því hækkað um
liðlega 57% síðustu 12 mánuðina.
Á þessu tímabili hefur áfengi
hækkað í verði um 54—58%.
_ r
Stjórn Flugfreyjufélags Islands:
Mótmæla frétt Mbl.
í TILEFNI fréttaflutnings á
baksíðu Morgunblaðsins 12.
þ.m., vill stjórn Flugfreyjufélags
Islands taka fram eftirfarandi:
Á fundi með Arnmundi Back-
man, aðstoðarmanni félagsmála-
ráðherra, 1. þ.m., kom aldrei
neitt til tals um aðgerðir af
hálfu flugfreyja eftir 1. desem-
ber nk. Fullyrðingar þess efnis
að Arnmundur hafi bent flug-
freyjum á einhvern möguleika
að tilkynna veikindi 1. desember
eru ósannindi og algjörlega úr
lausu lofti gripnar.
Það er hins vegar ljóst að
grein þessi er af pólitískum toga
spunnin og virðist nú hagur
þeirra starfsmanna Flugleiða
hf., sem eru að missa atvinnu
sína eigi skipta máli lengur.
Þessi leiðrétting á fyrrgreind-
um fréttaflutningi óskast birt á
baksíðu Morgunblaðsins 16. þ.m.
og á jafn áberandi hátt.
Reykjavík, 15. sept. 1980.
Stjórn Flugfreyju-
félags Islands.
Vísað á bug
Aths. ritstj.:
Morgunblaðið vísar á bug
ásökunum stjórnar Flugfreyju-
félagsins um að frétt blaðsins
síðastliðinn föstudag sé „ósann-
indi og algerlega úr lausu lofti
gripin". Morgunblaðið byggði
frétt þessa á traustum heimild-
um og stendur við hana. Vera
má að túlka megi ummæli að-
stoðarmanns félagsmálaráð-
herra með eitthvað mismunandi
hætti, en þar er aðeins um
blæbrigðamun að ræða, sem
breytir engu um efni málsins.
Mbl. vísar einnig á bug ásökun-
um stjórnar Flugfreyjufélagsins
um að frétt blaðsins sé af
pólitískum toga spunnin og að
hagur starfsmanna Flugleiða
skipti ekki máli í þessu sam-
bandi. I fréttum Mbl. hefur verið
leitazt við að skýra rækilega frá
því, sem gerzt hefur á vettvangi
Flugleiða. Sá fréttaflutningur
kemur pólitík ekki við. í rit-
stjórnargreinum blaðsins hefur
verið snúizt gegn tilraunum Al-
þýðubandalagsins til þess að
koma Flugleiðum á kné, það m.a.
er framlag Mbl. til þess að
tryRRja atvinnuöryggi starfs-
manna Flugleiða, sem er í stór-
kostlegri hættu ef hlaupamenn
Alþýðubandalagsins ná vilja sín-
um fram.
Það væri fremur í anda þeirra
fjölmörgu brautryðjenda, sem á
undanförnum áratugum hafa
byggt upp flugrekstur á íslandi,
að stjórn Flugfreyjufélagsins
tæki þátt í þessari baráttu í stað
þess að láta undan þrýstingi
aðstoðarmanns félagsmálaráð-
herra, sem nú hefur í fjóra daga
reynt að knýja flugfreyjur til
þess að gefa frá sér einhverja
yfirlýsingu um mál þetta.
Sá sem samdi yfirlýsingu
Flugfreyjufélagsins ákveður
ekki hvar slíkar yfirlýsingar
birtast í Morgunblaðinu.
Hann sagði bandarísk lög kveða
svo á um, að svona flutningar yrðu
að fara fram í bandarískum loft-
förum. Hið sama hefði gilt um
vöruflutninga á sjó, að þá hefðu
bandarísk skip orðið að annast, en
frávik hefði verið veitt, þegar
Eimskipafélag íslands fékk flutn-
ingana. „Við erum að vona, að það
sama geti gerzt nú varðandi flutn-
ingana í lofti," sagði Sigurður
Helgason. „Þetta er ekkert afger-
andi atriði, en gæti orðið viss
stuðningur."
Þrjú tonn af
krækiberjum
til víngerðar
GÓÐ berjaspretta var á ýms-
um stöðum á landinu í sumar
og þá m.a. á Vestfjörðum, þar
sem krækiber voru með meira
móti. Áfengisverzluninni buð-
ust því í ár ber til víngerðar, en
slíkt hefur ekki gerzt undan-
farin ár. Var reiknað með að
keypt yrði allt að 3 tonnum af
krækiberjum og geta menn því
reiknað með krækiberjalíkjör í
hillum í Ríkinu einhvern tíma í
vetur, jafnvel fyrir jólin.