Morgunblaðið - 16.09.1980, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
Stór hæö — Teigahverfi
200 fm. efri hæö sem skiptist í 2 samliggjandi stofur
60 fm. og 3 svefnherbergi 15—20 fm. auk 30 fm. hols
meö arni. Stórt eldhús og baö. Tvennar svalir. Mikiö
útsýni. Upplýsingar aöeins á skrifstofunni.
Fasteignasalan Túngötu 5,
sölustjóri Vilhelm Ingimundarson,
Jón E. Ragnarsson hrl.
Byggingarlóð
2500 fm. byggingarlóö á góöum staö viö Nýbýlaveg í
Kópavogi. Byggingarréttur strax fyrir 2x400 fm.
verslunar- og skrifstofuhæöir. Auk þess aö hluta 3.
hæö fyrir íbúöir. Á lóöinni stendur nú gamalt
íbúöarhús og steyptur bílskúr, sem standa má
meöan byggt er. Seljandi vill taka íbúö uppí
kaupverö.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Fasteignasalan Túngötu 5,
sími 17900, heimasími 30986.
Þjóðleikhúsið:
SNJÓR
eftir Kjartan Ragnarsson.
Lýsing: Páli Ragnarsson.
Leikmynd: Magnús Tómasson.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Stundum er eins og Snjór gæli
við aðferðir ærslaleiksins, en
þetta er ekki áberandi í verkinu.
För ræður alvara, ný þróun á
ferli Kjartans Ragnarssonar
sem leikritahöfundar og mun
eflaust gera hann enn alvarlegri
höfund í framtíðinni. „Ég var nú
ekkert búinn að ákveða fyrir-
fram að þetta yrði alvarlegt
verk. Það einfaldlega varð þann-
ig“. Þannig kemst Kjartan að
orði um Snjó.
Dauðinn og hjónabandið er
það efni sem höfundurinn tekst
á við í Snjó. í fyrsta þætti verður
maður dálítið skelkaður við efn-
istökin. Er þetta einhvers konar
læknaróman á leiksviði, ástir
borgarkonu og læknis og sömu-
leiðis læknis og óbreyttrar al-
þýðustúlku? Þetta má til sanns
vegar færa. En úrslitum ræður
að það sem upphaflega virðist
ætla að bjóða upp á einfalda
Dauðinn
og hjónabandið
Pétur Einarsson og Bríet Héðinsdóttir.
lausn, öðlast dýpt og mannlega
skírskotun í höndum höfundar-
ins. Einna best gerða persónan í
leiknum er Magnús bílstjóri,
dæmigerður íslenskur erfiðis-
maður. Hann er maður seiglu og
lætur ekki bugast þótt hann
missi son sinn ungan úr hvít-
blæði. Sjaldan eða aldrei hefur
Pétur Einarsson leikið betur en í
þetta skipti.
Héraðslæknir sem sjálfur er
veikur, hefur fengið hjartaáfall,
gefur höfundi tækifæri til for-
vitnilegrar umfjöllunar. Honum
til aðstoðar kemur sprenglærður
ungur hjartasérfræðingur frá
Reykjavík og kona hans. Þau eru
bæði gamlir nemendur héraðs-
LelKllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
læknisins. Hvað ástina varðar er
ýmislegt flókið, ekki síst tengsl
héraðslæknisins og konu að-
komulæknisins. Sá síðarnefndi
fær augastað á húshjálp héraðs-
Iæknisins. Allt fer í hnút.
Meðal þess sem Kjartan Ragn-
arsson bendir á að hann sé að
fjaHa um í Snjó, er vanmáttur
mannsins og það að við neitum
að viðurkenna veikleika okkar. í
verkinu verður þetta tilefni
dramatískra átaka sem á köflum
komast vel til skila. Kjartan er
laginn að fást við tákn (saman-
ber Týndu teskeiðina). í Snjó er
það auðvitað snjórinn sjálfur,
snjóflóðið sem grandar skepnun-
um og óttinn við enn geigvæn-
legra.snjóflóð sem er táknmynd
alls. Einnig er hugvitsamlega
farið með þátt taflmannanna
sem drengurinn nýlátni hafði
mótað. Svörtu taflmennirnir eru
stærri en hinir hvítu. Drengur-
inn túlkaði heimsmynd sína með
þessum taflmönnum, gruninn
um dauðann sem varð öllu yfir-
sterkari í lífi hans.
L.A. sýndi „Beðið eftir Godot44 á
Beckett-leiklistarhátíð á írlandi
LEIKFÉLAG Akureyrar er nú
nýkomið úr velheppnaðri leik-
för til Bantry á írlandi. en þar
sýndi Leikfélagið leikrit Sam-
uels Becketts. Beðið eftir God-
ot á fyrstu Beckett-hátíð, sem
vitað er um í heiminum. Þarna
voru ýmsir leikhópar víðsegar
að af Bretlandseyjum og var
Leikfélag Akureyrar eini er-
lendi aðilinn sem boðið var að
taka þátt í hátíðinni.
Þrátt fyrir að leikritið væri
flutt á íslenzku, vakti það mikla
athygli og fékk mjög góða dóma.
Sagt var frá sýningunni í Irish
Times og írska útvarpinu og lokið
þar miklu lofsorði á sviðsmynd,
leikstjórn og var túlkun þeirra
Viðars Eggertssonar og Árna
Tryggvasonar sérstaklega nefnd.
Þá sagði bandarískur gagnrýnandi
að þetta væri bezta Beckett-sýn-
ing sem hún hefði séð í 10 ár.
Nokkuð illa leit út í upphafi með
fjármögnun ferðarinnar, en þegar
til kom fengust styrkir, bæði frá
ríkinu og Akureyrarbæ, auk þess
sem fyrirtækin Árnarflug, Smjör-
líki hf. og Sambandið styrktu
leikfélagið verulega.