Morgunblaðið - 16.09.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
15
urðu því Loftleiðamenn undir og
áhrif þeirra á stjórn fyrirtækisins
því ekki meiri en raun ber vitni og
hefur verið svo æ síðan.
Hvað telur þú að sé framundan í
starfi Flugleiða ?
Starfsandinn
tapaður
— Núna virðist stefnan ein-
göngu sú að loka og draga saman
og það er engu líkara en menn hafi
ekki lengur áhuga á því að reyna
að halda úti flugrekstri þar sem
ekki verður lengur reynt að selja
sætin. Flugleiðir eru stórt fyrir-
tæki og starfsandinn virðist far-
inn að tapast, menn eru ekki
lengur haldnir sama áhuganum og
var og kannski er það þess vegna
sem menn ætla að gefast upp.
Loftleiðaarmurinn hefur ekki völd
eða áhrif til að breyta stefnunni
og því ekki hægt að sjá að hann fái
að gert. Eðlilegast væri að halda
áfram flugrekstri héðan yfir Atl-
antshafið vegna þeirra atvinnu-
tækifæra, sem slíkt flug skapar í
ferðamannaiðnaði. Væri þá æski-
legt að vera i samvinnu við
Luxemborgara þar eð þeir eru lítil
þjóð eins og við og vel staðsettir í
hjarta Evrópu.
Vel ætti að vera hægt að stofna
annað félag um þess konar rekst-
ur, — það er að minnsta kosti búið
að segja upp nógu mörgu fólki til
að starfa við það, sagði Kristjana
Milla Thorsteinsson að lokum.
Stjórnin víða
gagnrýnd
Nánast er sama við hvérja af
starfsmönnum Flugleiða er talað
meðal flugliðsins, alls staðar kem-
ur upp gagnrýnistónn á stjórn
félagsins. Erfitt er að gera sér
grein fyrir því hvort sú gagnrýni
er aðallega sprottin upp nú þegar
öllu flugliðinu hefur verið sagt
upp eða hvort hún hefur búið lengi
um sig. Margir segja stjórnina
hafa endurnýjast of lítið þessi ár
og telja að starfsmenn félagsins
geti ekki fylkt sér um hana fyrr en
þar hafi farið fram mannaskipti
og jafnvel forstjóraskipti. Nefna
sumir að erlendur forstjóri verði
að koma til svo að hann nái til
manna og jafnvægi haldist. Þá
telja menn að þeir sem nú sitja í
stjórn fylgist ekki nægilega vel
með daglegum störfum fyrirtæk-
isins til að geta tekið stefnumark-
andi ákvarðanir, þarna séu ekki
lengur menn sem eigi lífsafkomu
sína alla og starf undir því að
félagið gangi vel.
Á yfirborðinu virðist stjórnin
slétt og felld. Mál eru þar sögð
afgreidd samhljóða og einhugur er
sagður ríkja um hvaðeina sem þar
er ákveðið. Hins vegar kemur ekki
fram sá undirtónn, sem oft kveður
við á stjórnarfundum. Þar er öll
umræða trúnaðarmál og tekst lítt
að draga hana fram í dagsljósið,
en þó greina heimildir að á
stjórnarfundum séu málin oft lögð
fram einungis til að fá þau
samþykkt og þar dugi lítil um-
ræða. Minnihlutinn, sem ber fram
breytingartillögur eða biður um
frest til að athuga ýmis mál, fær
ekki vilja sínum framgengt. And-
mæli eða umræður ná ekki út fyrir
stjónarfundaherbergið og því lítur
út fyrir að málin séu afgreidd
samhljóða. Gamlir Loftleiðamenn
telja að Sigurður Helgason hafi
nánast svikist undan merkjum
þegar hann snýst á sveif með
Flugfélagsmönnum, en þeir ásamt
fulltrúum Eimskipafélagsins hafa
nú undirtökin í stjórninni. Minni-
hlutinn má sín ekki mikils og lítið
dugar fyrir hann að hafa í hótun-
um um að ganga úr stjórn, því
meirihlutinn myndi einungis
fagna því og þá yrðu áhrif Loft-
leiða orðin lítil. HL/jt
I næsta fimmtudagsblaði:
SAMKEPPNIN
í FLUGHEIMINUM
Auk þess fjallað um flugflota Flugleiða og hvað framundan er í
flugvélakaupum, fjallaö um samkeppnina í ferðamannaiðnaðinum og
erfiðleika flugheimsins
Flugslys voru tíð i fyrstu árum flugsamgangna. Því réöu ófullkomin tæki og erfiðar aðstæður. Á þessu var
ráðin mikil bót um miðjan sjötta áratuginn þegar radíóvitakerfið var sett hér upp. Á þessari mynd er
hópurinn sem vann þaö verk. Myndirnar tók ÓI.K.M.
Frá komu annarrar Boeing 727-þotu Flugfélags íslands til Reykjavíkur 1971. Þotan var skýrð Sólfaxi.
Innritun i
skólana hefst
fimmtudaginn
september
Dansskóli
Siguröar Hákonarsonar.
Dansskóli Sigvalda.
Dansskóli
Heiðars Ástvaldssonar.
\ ___
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
TRYGGING fyrir réttri tilsögn í dansi
fyrsta aökoman.
Huröir hf. kynna útihurðir úr Hemlock, bandarískum
harðviði.
Vandaðar hurðir, útskornar á mismunandi hátt.
Hurðaflekarnir afhendast tilbúnir undir meðferð (olíu,
fúavarnarefni e. þ. h.).
Mjög hagstætt verð.
HURÐIRHF
Skeifan 13 •108 Reykjavík-Sími 816 55
Akureyri: Akurvík
Sími: 96-22233
títi-
hnrðin
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU