Morgunblaðið - 16.09.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
19
Kjartan Norðdahl:
Lausn í sjónmáli?
Félag Loftleiðaflugmanna hefir
nú sent frá sér greinargerð sína
(Mbl. 13/9) um hið mikla hitamál
flugmanna — sameiginlegan
starfsaldurslista.
Þessu ber að fagna, því að í
greinargerðinni er minnzt á mjög
þýðingarmikið atriði, sem vert er
að undirstrika vel og rækilega.
Hér á ég við svokallaðan aðlögun-
artíma. Náist samkomulag um
þetta atriði milli flugmanna, fæ ég
ekki betur séð en að lausn lista-
málsins sé í sjónmáli.
En áður en ég vík að þessu
nánar, langar mig að gera örfáar
athugasemdir við þessa greinar-
gerð þeirra Loftleiðaflugmanna,
þar sem hún virðist vera eins
konar svar við því, sem ég skrifaði
um þetta mál fyrir skömmu.
í fyrsta lagi kvarta þeir yfir því,
að menn skuli vera að skrifa um
þetta mál í blöðunum og segja
svona deilur betur leystar á öðrum
vettvangi. Má vel vera rétt, en það
er nú einmitt það sem ekki hefir
tekizt, að leysa þessa deilu. Og auk
þess — hvers vegna skyldi ekki
mega fjalla um þessa deilu flug-
manna fyrir opnum tjöldum? Eg
hef það alltaf á tilfinningunni að
þeir sem hræðast blöðin hafi
eitthvað að fela.
Flugmenn Flugleiða hafa orðið
fyrir mikilli opinberri gagnrýni
útaf þessu máli og það ber að taka
alvarlega. Afstaða Flugfélagsflug-
manna liggur skýr fyrir, hefir
alltaf gert það og við höfum
ekkert að fela.
Þeir félagar virðast vera mjög
óánægðir með að vera sakaðir um
Hvítur lagði nú niöur vopn enda er
mát eöa stórfellt liöstap fyrirsjáan-
legt.
Aö sóustu læt ég fylgja eina af
vinningsskákum sigurvegarans.
Skákin er aö minni hyggju ágætur
vitnisburöur um léttleikann í
skákstíl Helga.
Hvítt: Helgi Ólafsson.
Svart: Sigurlaug Friöþjófsdóttir.
Frönsk vörn.
1. »4 — e6, 2. d4 — dS, 3. Rd2
— Rf6, 4. e5 — Rfd7, 5.c3 — c5, 6.
Skák
eftir JÓHANNES
GÍSLA JÓNSSON
Bd3 — b6, 7.f4 — f57. Leikur þessi
er í hrópandi ósamræmi viö 6. leik
svarts. Betra framhald er 7. — Ba6
og fá fram hagstæö uppskipti. 8.
exf6 — Rxf6, 9. Rgf3 — Bd6, 10.
Re5 — 0-0,11. De2 — Dc7,12. 0-0
— Rc6,13. Rdf3 — cxd4,14. Rxc6I
En ekki 14. cxd4 — Rb4! — Dxc6,
15. Rxd4 — Bc5, 16. Be3 — Bxd4,
17. Bxd4 — Bd7.
Hvítur hefur náö yfirburöatafli
og gerir nú út um tafliö meö
nokkrum hnitmiöuöum leikjum. 18.
De5l — Hf7, 19. Hf3 — Haf8, 20.
He1 — Bc8, 21. Hh3 — Re47
Styttir helstríöiö. Góöir leikir liggja
ekki á lausu. 22. Hxe4+. Gefiö. Eftir
22. — dxe4, 23. Bxe4 ásamt 24.
Bxh7+ er staöa svarts í molum.
Ólafur Ólafsson varö efstur 7
heimamanna, sem þátt tóku í
mótinu. Ólöf Þráinsdóttir fékk
flesta vinninga af kvenfólkinu.
ósanngirni varðandi lausn þessa
langvinna deilumáls. En í stað
þess að sýna fram á að svo hafi
ekki verið, reyna þeir að gera því
skóna að Flugfélagsflugmenn hafi
nú líka verið ósanngjarnir. Þessu
til sönnunar eru svo tekin 3 dæmi,
sem öll eiga það sameiginlegt að
vera stíluð til rangs aðila.
I fyrsta dæminu kvarta þeir
Loftleiðaflugmenn yfir því að hafa
misst sinn hluta Evrópuflugsins
við sameininguna. Eg á ekkert
erfitt með að skilja þetta sjónar-
mið þeirra, en ég á aftur erfitt
með að skilja hvernig þeir geta
kennt flugmönnum Flugfélagsins
um þetta og ætlast til að þeir leysi
vandamál Loftleiðaflugmanna.
Þeir hefðu átt að snúa sér til
ráðamanna Flugleiða með þetta
mál, því að auðvitað voru það þeir,
sem ráðstöfuðu þessu svona,
sjálfsagt af hagkvæmnissjónar-
miðum.
Hitt er svo annað mál að þetta
er alls ekki sannleikanum sam-
kvæmt, því að flestir, sem eitthvað
vita um flugmálin, vita að Loft-
leiðaflugmenn flugu Evrópuflug
(Scandinavia) bæði í fyrra sumar
og í sumar.
I næsta dæmi kvarta þeir yfir
því, að nokkrir félagar þeirra hafi,
eftir að hafa fengið uppsögn hjá
Loftleiðum, sótt um starf hjá
Flugfélaginu en fengið synjun. Eg
hef ekki vitað það fyrr en nú, að
flugmenn Flugfélagsins hafi líka
verið ráðningastjórar fyrirtækis-
ins, en svo er helzt að skilja á
greinargerð þeirra.
Ólafsvik:
Verkfallsheim-
ild samþykkt
Morgunblaðinu barst i gær
eftirfarandi áiyktun:
„ALMENNUR félagsfundur hald-
inn í Verkalýðs- og sjómannafé-
laginu Jökli, Ólafsvík, sunnudag-
inn 14. september 1980, samþykkir
að veita stjórn og trúnaðarráði
félagsins heimild til að boða til
vinnustöðvunar til að ýta á eftir
gerð nýrra kjarasamninga, enda
verði haft samráð við aðalsamn-
inganefnd Alþýðusambands ís-
lands og í samvinnu við verkalýðs-
félögin á Snæfellsnesi um það
hvenær vinnustöðvun verði látin
koma til framkvæmda og til hvaða
vinnustöðvunar verði boðað.
Ennfremur felur fundurinn stjórn
og trúnaðarmannaráði félagsins
að beita verkfallsheimild ef á þarf
að halda vegna sérsamninga fé-
lagsins við Vinnuveitendasam-
band Breiðafjarðar og Útvegs-
mannafélag Breiðafjarðar."
í þriðja dæminu hneykslast
Félag Loftleiðaflugmanna á því,
að 6 flugmenn frá FÍ hafi verið
ráðnir til Loftleiða og 8 nýir
flugmenn ráðnir til starfa við
innanlandsflug. Þetta er þanka-
gangur, sem ég játa fúslega að
eiga erfitt með að skilja, og vil
einmitt reyna að gleyma, eins og
ég er ásakaður um í greinargerð-
inni. Ég hefði haldið að það væri
fagnaðarefni að svo mikið væri að
gera hjá fyrirtækinu að það gæti
fjölgað starfsfólki. Þessir 6 menn
frá FI tókij heldur alls ekki vinnu
frá neinum Loftleiðaflugmanni.
Það er annað en nú virðist í
vændum. Eins og ég sagði þá eru
þessar kvartanir þeirra félaga
stílaðar til Flugfélagsflugmanna
en ættu augljóslega að beinast að
forráðamönnum Flugleiða. — Og
þá kemur að sjálfu deiluefninu —
starfsaldurslistanum.
I greinargerðinni viðurkenna
Loftleiðaflugmenn óbeint, að þeir
hafi engan áhuga haft á því máli
fyrr en í byrjun árs 1979. Það er
ekki ófróðlegt að bera saman
afstöðu þeirra og forstjóra Flug-
leiða, sem sagði í Sjónvarpinu á
dögunum, að það hefði verið kór-
villa að sameina ekki listana tvo
strax við upphaf sameiningarinn-
ar. En hvað um það, nú er verið að
vinna að lausn málsins og þá
kemur í hugann þetta atriði, sem
ég nefndi í upphafi, þ.e. svonefnd-
ur aðlögunartími.
í þessu sambandi ber mér lík-
lega að biðja þá félaga afsökunar,
því að ég hafði ætlað þeim aðra
skoðun á þessu máli, eða réttara
sagt hélt ég að þeir hefðu engan
áhuga á aðlögunartíma. En nú
hefur annað komið í ljós. I grein-
argerð sinni taka Loftleiðaflug-
menn nefnilega skýrt fram, að
þeir vilji aðlögunartíma. Um það
sé enginn ágreiningur.
Ég verð nú að segja alveg eins
og er, að það fer að verða erfitt að
átta sig á um hvað þarf að deila
lengur í þessu máli öllu. Báðir
aðilar segjast nú vera samþykkir
því að láta lögmæta fastráðn-
ingardaga ráða niðurröðun á hinn
sameiginlega lista og báðir aðilar
eru samþykkir því að semja um
eðlilegan aðlögunartíma. Um hvað
þarf þá að deila? Hvers vegna þarf
að fá erlenda „sérfræðinga" (og
hverjir eru þeir?) til að leysa ekki
flóknara mál en þetta starfsald-
urslistamál? Það hefir oft heyrzt
undanfarið að um mjög djúpstæð-
an ágreining milli flugmanna væri
að ræða. Sá ágreiningur gæti
fljótlega orðið úr sögunni, ef unnt
væri að semja um þennan aðlög-
unartíma.
Svo sem dæmi um hvernig
mögulegt væri að semja um þetta,
langar mig til að viðra hérna
hugmynd, sem ég heyrði einhvern
tíman í sumar, en hún var á þessa
leið: Aðlögunartími vegna samein-
ingar starfsaldurslista Loftleiða-
flugmanna og Flugfélagsflug-
manna skal vera sem hér segir:
1. árið. Verði aukning á flugi
Flugleiða skulu 90% þeirra flug-
manna, sem stundað hafa það flug
þar sem aukningin verður, hljóta
stöðuhækkanir (og endurráðn-
ingar), en 10% hinna, sem ekki
hafa stundað það flug. Verði
samdráttur á flugi Flugleiða skulu
90% þeirra flugmanna, sem
stundað hafa það flug þar sem
samdrátturinn verður, taka á sig
stöðulækkanir (og uppsagnir), en
10% hinna, sem ekki hafa stundað
það flug.
2. árið. Sami formáli en hlutfall-
ið 80% á móti 20%. 3. árið 70% á
móti 30%. 4. árið 60% á móti 40%
og loks 5. árið 50% á móti 50% og
þar með væri aðlögunartíma lokið
og málið endanlega úr sögunni.
Ég get vel tekið undir þessa
hugmynd, hvaðan sem hún kemur,
og vona aðeins að svo sé um fleiri.
Ég skil ekkert í þeim Loftleiða-
flugmönnum að hafa verið að
draga það svona að láta skoðanir
sínar í ljós varðandi þennan að-
lögunartíma. Hefði þetta legið
ljóst fyrir fyrr, væri sennilega
fyrir löngu búið að leysa þetta
vandamál, öllum til ánægju og
hugarléttis. Og til að undirstrika
mikilvægi þeirrar nýju stefnu,
sem málið hefir nú tekið, langar
mig í allri vinsemd að biðja þá
Loftleiðaflugmenn að taka af all-
an hugsanlegan vafa um afstöðu
þeirra til fyrrnefnds aðlögunar-
tima með því að birta skoðanir
sínar á prenti (t.d. hér í Mbl.) og
þar með að flýta fyrir gangi mála.
Með þökk fyrir birtinguna,
TOYOTA
saumavéla-
fjölskyldan
TOYOTA saumavélar fyrir alla.
Á veröi fyrir alla.
Á greiöslukjörum fyrir alla.
2ja ára ábyrgö og saumanámskeið
innifaliö í veröi.
Fullkomin viögeröar- og varahlutaþjónusta.
TOYOTA
VARAHLUTAUMBOÐIÐ
Ármúla 23, sími 81733.
TOYOTA
5500
með
saumaarmi
Fullkomin þægileg vél
sem leikur í höndun-
um á þér. Sjálfvirkur
teygjusaumur, fjöl-
sporasaumur, kapp-
mellusaumur,
blindföldun og
hnappagatasaumur.
Zig-zag allt að 7
mm.
Verð
kr.
198.300.