Morgunblaðið - 16.09.1980, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
fHtogtntltfiKfeifr
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280
kr. eintakiö.
Flutningar
varnarliðsins
fyrir Flugleiðir
Bifröst og Eimskip bitust á sínum tíma um flutninga til varnarliðsins.
Þá kom ríkisstjórn ekki nálægt málinu, enda þarf ekkert leyfi fyrir
slíkum flutningum. Þeir eru á frjálsum markaði. En unnið hefur verið að
því að auka flutninga varnarliðsins með Flugleiðum, bæði farþega- og
vöruflutninga, sem það hefur sjálft annazt. Vonir standa til að samningar
náist um það og væri það vel, ef það mætti koma Fjugleiðum að gagni, sem
allt bendir til. Jafnvel aukið við einni ferð í viku til Ameríku.
Steingrímur Hermannsson hefur unnið að þessu máli á raunsæjan hátt.
Hann sagði í útvarpinu um daginn, að engin andstaða væri gegn því í
ríkisstjórninni og var ekki annað að heyra en málið hefði verið rætt.
Svavar Gestsson sagði í útvarpinu í fyrrakvöld, að þeir alþýðubanda-
lagsmenn væru þó á móti flutningum fyrir herinn, en vildi þó alls ekki
segja að málið væri „dautt". Var sem sagt á móti (gæti annars tapað
atkvæðum), en þó ekki á móti (því þá gætu þeir misst stólana).
Steingrímur Hermannsson kom aftur í ríkisútvarpið í fyrrakvöld og
hélt fast fram flutningi Flugleiða fyrir varnarliðið. En nú taldi hann
komna snurðu á þráðinn hjá kommum.
Það verður gaman að fylgjast með þessu máli. Og fróðlegt fyrir flugfólk,
sem á afkomu sína undir skjótri og g<W)ri lausn, og þá ekki sízt samhentri
rikisstjórn, sem leggur það af mörkum, sem úrslitum getur ráðið.
Tvö mál: Flug-
leiðir og
kjarnorkan
r
Itilefni af ummælum Arnar Johnsons um fréttastofu ríkisútvarpsins,
svo og þvi, að rétt er, sem Sigurður Helgason hélt fram gagnstætt
fréttastofu útvarpsins, þar til fréttamaður varð að viðurkenna „mistökin",
að forsætisráðherra Luxemburgar hefðu verið lögð orð í munn, bæði í
Þjóðviljanum og fréttum útvarpsins, vaknar sú spurning, hvort hér sé
alfarið um mistök að ræða eða samspil af einhverju tagi. Flugleiðamálið í
útvarpi og Þjóðviljanum minnir á meðferð annars máls sem blásið var upp
og notaðar til þess vafasamar heimildir, svo að ekki sé meira sagt, þ.e.
þegar ekki alls fyrir löngu var reynt að sannfæra Islendinga um það (þó að
líf okkar gæti legið við) og auðvitað aðra líka, t.a.m. Rússa, að
kjarnorkuvopn væru geymd á Keflavíkurflugvelli. Þá lék sami maður og
nú hefur blaðrað hvað mest eina höfuðrulluna, Ólafur Ragnar Grímsson.
Málsmeðferð „kjarnorkumálsins" og nú Flugleiðamálsins er harla lík og
það sem einkennir hana ekki sízt eru fullyrðingar, sem ekki eiga við rök að
styðjast, í staðinn fyrir að eingöngu sé byggt á staðreyndum.
Og nú voru síðdegisblöðin bæði notuð með fimmdálka risafyrirsögnum á
forsíðunni. Ritstjóri Vísis hefur af heilindum látið að því liggja að blað
hans hafi verið notað með þessum hætti, en það muni ekki gerast aftur:
„Hvað sem þessu líður, þá mun Víslr ekki taka þátt í þeim Ijóta leik að
níða niður einstaklinga í pólitísku skyni, og Alþýðubandalagið þarf ekki
að búast við því að síður Vísis verði notaðar til þjónkunar fyrir þau öfl,
sem vilja einkarekstur feigan. Blaðið gerir ekki upp á milli þeirra
stjórnmálamanna sem eitthvað hafa til málanna að leggja, án tillits til
flokka eða skoðana, en það mun vissulega gera sitt til að standa vörð um
frjálsan atvinnurekstur hér eftir sem hingað til.“
Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins hringir í „kontaktmenn" sína
á þessum fjölmiðlum, ekki siður en útvarpinu. En hvað sem því líður ættu
góðir fréttamenn ekki að láta nota sig með þeim hætti. En ekki er hægt að
verjast þeim grunsemdum, að óprúttnum alþýðubandalagsmönnum hafi
tekizt að sveigja fjölmiðla undir vilja sinn og þá í báðum þessum málum
— ekki sízt ríkisútvarpið. Þessi samræmdu vinnubrögð eru svo keimlík, að
fæstir trúa því, að um einskærar tilviljanir geti verið að ræða.
En spyrja má: hvað gekk fréttamanni ríkisfjölmiðils til að reyna að
koma því inn hjá fólki, að hér séu kjarnorkusprengjur — en til þess var
leikurinn gerður?
Og hvað gengur fréttamönnum nú til að draga taum þeirra, sem líta
Flugleiðir hornauga — þó að því verði að sjálfsögðu ekki trúað, að
fréttamenn útvarps vilji koma Flugleiðum á kné eins og kommúnistar.
En er ástæða til að vekja athygli á sér með þessum hætti?
Vonandi verður þessi leikur ekki endurtekinn. Góðir fréttamenn eru á
verði gagnvart þeim, sem ætla sér að nota þá. Og nú ættu íslenzkir
blaðamenn, ekki sízt fréttamenn útvarps, að vera vel á verði. Þeir og
ríkisútvarpið eiga annað skilið en slíka misnotkun.
Ritstjóri Vísis segir í grein í blaði sínu sl. laugardag, að upphlaup Ólafs
Ragnars Grímssonar hafi „afhjúpað hann sem lýðskrumara". Og hann
bætir við:
„Frjáls dagblöð hafa jafnframt aðstöðu til að draga ályktanir af þessum
leik, og hafa skoðanir á pólitískum hvötum þeirra loddara, sem hann
stunda.
Hinsvegar er það öllu verra ef Ríkisútvarpið bítur æ ofan í æ á agnið, og
gleymir þeirri frumskyldu sinni að taka ekki afstöðu til málsaðila.
Fréttastofa ríkishljóðvarps á ekki að hafa skoðun á því, hvort fyrirtæki er
vel eða illa rekið, hvort stjórnendur þess séu vondir menn eða góðir.
Fréttamenn ríkisrekins fjölmiðils eiga ekki að gerast málaliðar í
rógsherferð pólitískra skæruliða."
STARFSEMT FLUGLEIÐA í LL
Ernst Moyen, við vinnu sina á flugvellinum i Luxemborg i gær.
Ljósm. RAX.
„Stöðuna hefði
mátt gera betri,
með réttum aðgerðum á réttum tíma“
l.uxrmborK 15. xeptrmber. Frá Árna Johnxen, blaðamanni MorKunblartsins.
„VIÐ HÖFUM heyrt að íslensk
stjórnvöld vilji þriggja ára áætlun
f þessum flugrekstri og við von-
umst til þess að eitthvað gerist,
mér sýnist einnig að hugmyndir
um nýtt flugfélag fái jákvæðari
undirtcktir,“ sagði Ernst Moyen,
stöðvarstjóri Flugleiða í Luxem-
borg.
„Flestir starfsmenn Flugleiða hér
á flugvellinum eru frá Luxemborg
og af þeim 18 sem sagt var upp
störfum fyrir skömmu eru fjórir
komnir í vinnu annarsstaðar nú
þegar. Það hefur reynst auðvelt
fyrir alhliða þjálfað fólk að skrif-
stofustörfum að fá vinnu því hér
hefur verið gott starfsfólk en það er
verra fyrir hina. Sjálfur hef ég
starfað í 15 ár hér hjá Loftleiðum og
siðan Flugleiðum og hér hef ég
öðlast mikla sérhæfingu sem kemur
mér ekki að notum í öðru starfi,
hvað svo sem verður, en maður
vonar það besta og stjórnvöld hér
hafa lagt á það áherslu að sérhæfð
þekking leggist ekki niður. Með
auknum flugrekstri og starfi hér
hefur byggst upp þekking sem
hlýtur að skipta máli að minnsta
kosti fyrir Luxemborg. Það er erfitt
að skilja þessa stöðu hjá Flugleiðum
því þótt margt hafi hjálpast að í því
að skapa neikvæða stöðu eins og
eldsneytishækkanir, mikil sam-
keppnisaukning, Tían úr leik siðast
liðið ár og fleira og fleira, þá tel ég
að það hefði mátt hafa stöðuna betri
með réttum aðgerðum á réttum
tíma. — Það hefði átt að lækka
fargjöldin í Bandaríkjunum í maí sl.
þegar ekki var hægt að selja þær og
það bjargaði stöðunni hjá mörgum
sem brugðu skjótt við og náðu
nýtingu. Þá hefði átt að taka þetta
föstum tökum í tölvuafgreiðslunni
og keyra samkvæmt þeim. Það er
einnig algjört stórmál að gefa ferða-
áætlanirnar út tímanlega, þær hafa
komið allt of seint út og stöðvað
eölilega sölustarfsemi. Evrópumenn
panta til dæmis með mjög löngum
fyrirvara og þrátt fyrir seina út-
komu ferðaáætlana erum við með
mjög hagstætt söluhlutfall í Evrópu
hvað þá ef hægt hefði verið að vinna
markvissara fyrr á árinu. Við höf-
um sýnt að það er hægt að selja
Luxemborg og ég tel að umrætt tap
hefði ekki komið til ef menn hefði
verið samtaka í að taka fast á
vandamálunum til þess að sigrast á
þeim. Horfurnar eru ekki góðar eins
og nú er komið en allt fer það þó
eftir vilja hinna ýmsu aðila til þess
að leysa málið og einnig eru horfur
á að nýtt flugfélag komi til en þar er
það mín hugmynd að skapa nýjar
leiðir og möguleika tii ýmissa átta.
Ég held að Luxairport geti ennþá
selst á leiðinni, New York-ísland-
Luxemborg, kerfið er gott og Lak-
er-formið á þessu og Capitol-kerfið
getur ekki gengið til lengdar því
þessi rekstur verður ekki rekinn
með því að hafa fluglvélarnar eins
og strætisvagn sem týnir upp far-
þega.“
Rekstur Flugleiða:
Skila
millj(
frari
efnaha
i.uxemhorK 15. Noptember. Frá Árna Johns<
„ÞAÐ ER mjög jákvæður vilji
stjórnvalda hér að stuðla að þvi
að Atlantshafsflugið haldi áfram
og stjórnvöld hafa sýnt þann
vilja með því að bjóða 90 milljón-
ir franka til stuðnings Atlants-
hafsfluginu og forsætisráðherra
landsins hefur þrýst á að aðilar,
sem málið snertir i Luxemborg,
leggi jákvæðar tillögur fram I
málinu. en það hefur verið mjög
neikvætt hér fyrir framþróun
mála að islenzk stjórnvöid hafa
ekki getað ákveðið hvað þau vilja
gera i málinu,“ sagði Einar
Aakrann sölustjóri Flugleiða i
Luxemborg i samtali við Morgun-
blaðið i gærdag.
Einar Aakrann hefur starfað í
25 ár í Luxemborg fyrir Loftleiðir
og síðan Flugleiðir, en hann er
norskur. „Það býr stríðsvilji í
Islendingum og Norðmönnum,"
sagði hann, „enda víkingablóð á
ferðinni. Fólk þessara landa er því
dugmikið og það er góður starfs-
kraftur, en það er mikilvægt að
standa saman þegar það skiptir
máli á alþjóðamarkaði. Einnig er
það mikilvægt að íslendingar
haldi þeirri reisn sem þeir hafa
áunnið sér í flugrekstri á alþjóð-
amarkaði. Góður vilji er auðsjáan-
legur en hér spyrja margir: Hví
skyldum við í Luxemborg gera
Páll Andrésson, flugumsjónarmaður i Luxemborg.