Morgunblaðið - 16.09.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
21
• íslenska landsliöiö í kraftlyftingum, sem keppti á Norðurlandameistaramótinu í kraftlyftingum um síðustu
helgi, vann tvenn gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Kraftajötunninn Skúli Óskarsson sigraði í 75 kg flokki
og Jón Páll Sigmarsson í 125 kg flokki. Er þetta mjög góður árangur hjá lyftingamönnunum.
Góður árangur hjá
kraftlyftingamönnum
• Sigurvegarar i ísalskeppninni i golfi sem fram fór um
siðustu helgi. Frá vinstri: Ragnar Ólafsson. Jón Hallgrímsson,
Jóhannes Sveinsson, Franz Sigurðsson, Lóa Sigurbjörnsdóttir.
Ljósm Óskar S.
Ragnar setti
vallarmet
íslendingar tryggðu sér
tvenn gullverðlaun og tvenn
bronsverðiaun á Norðurlanda-
meistaramótinu í kraftlyfting-
um sem fram fór í Noregi um
helgina. Það voru þeir Skúli
óskarsson og Jón Páll Sig-
marsson sem hrepptu gullpen-
ingana, Skúli fyrir sigur í 75 kg
fiokki og Jón Páll fyrir sigur í
yfirþungavigt. Bronsgripina
hrepptu þeir Sverrir Hjaltason,
sem varð þriðji i 82,5 kg flokki
og ólafur Sigurgeirsson, sem
varð þriðji í 90 kg flokki. Eitt
Evrópumet var sett á mótinu,
það gerði Sviinn Conny Nilson í
90 kg flokki, er hann lyfti
samtals 847,5 kg.
Vestur-Þýski umboðsmaðurinn
Wiily Reinke er nú staddur hér
á landi i þeim tilgangi að
fylgjast með og ræða við efni-
lega islenska knattspyrnumenn
með það fyrir augum að sjáif-
sögðu, að koma þeim á mála hjá
knattspyrnufélögum í Evrópu.
Sem kunnugt er, fór Reinke
þessi með mál Atla Eðvaldsson-
ar á siðasta vori. Rcinke hefur
þegar átt viðræður við ýmsa
isienska knattspyrnumenn og
má þar nefna Sigurð Grétars-
son, framherjann snjalla hjá
Breiðabliki.
Skúli Óskarsson jafnaði eigið
íslandsmet í réttstöðulyftu er
hann lyfti 305 kg. Síðan átti
hann góða tilraun við nýtt
heimsmet, 315,5 kg, en mistókst.
Samtals lyfti Skúli 715 kíló-
grömmum og nægði það til
sigurs. Jón Páll lyfti samtals 845
kílógrömmum. Annars urðu
helstu úrslit sem hér segir.
67,5 kg flokkur:
1. Thomas Sjöström Sv. 630 kg
2. Bo Alhross Finnl. 615 kg
3. Björn Halmsen Nor. 567,5 kg
4. Kári Elíasson ÍS. 565 kg
76 kg flokkur:
1. Skúli Óskarsson ís. 715 kg
2. Conny Ulldin Sví. 712 kg
Önnur nöfn hafa verið nefnd,
til dæmis Ragnar Margeirsson
hjá Keflavík, Lárus Guðmunds-
son hjá Víkingi og fleiri. Keppn-
istímabilinu er svo gott sem
lokið hér á landi, aðeins fáir
Evrópuleikir eru eftir. Það má
því fastlega búast við því að
einhverjir íslendingar gangi til
liðs við „útlendingaherdeildina",
enda óvenjulega mörg góð efni í
íslensku knattspyrnunni um
þessar mundir. Verður fróðlegt
að fylgjast með framvindu mála.
3. Kjell Skybakk Nor. 645 kg
82,5 kg flokkur:
1. Jari Tathinen Finnl. 767,5 kg
2. Lars Backlund Sví. 765 kg
3. Sverrir Hjaltason Is. 740 kg
90 kg flokkur:
1. Conny Nilson Sví. 847,5 kg
2. Sverre Nyhus Nor. 775 kg
3. Ólafur Sigurgeirsson 655 kg
100 kg flokkur:
1. Kenneth Mattson Sví. 867,5 kg
2. R. Kirviranta Finnl. 842,5 kg
3. Rolf Carlsen Sví. 790 kg
110 kg flokkur:
1. Ray Yivander Sví. 877,5 kg
2. Reidar Steen Nor. 847,5 kg
3. Jan Kalleberg Nor. 810 kg
125 kg flokkur:
1. Roger Edström Sví. 900 kg
2. H. Saarelainen Finnl. 897,5 kg
3. Kjell Wien Nor. 815 kg
Yfirþungavigt:
1. Jón Páll Sigmarsson 845 kg
Af öðrum íslendingum í
keppninni er það að segja, að
Víkingur Traustason varð fjórði
í 125 kg flokkinum, lyfti samtals
730 kg. Viðar Sigurðsson varð
fjórði í 110 kg flokkinum með
samtals 700 kíló. Hörður Magn-
ússon og Magnús E. Sigur-
björnsson lyftu báðir 740 kíló-
grömmum í 100 kg flokkinum og
höfnuðu í 4.-5. sætunum. Og
loks varð Kári Elísson fjórði í
67,5 kg flokkinum, lyfti samtals
565 kílógrömmum.
Ragnar Ólafsson sigraði með
yfirburðum í ÍSAL—keppninni
í golfi sem fram fór á Grafar-
holtsvellinum um helgina. Setti
Ragnar nýtt vallarmet á Graf-
arholti, er hann lék 18 holur á
71 höggi. 34 holurnar lék hann
samtals á 144 höggum. Næsti
maður var Hannes Eyvindsson
sem lék samtals á 153 höggum,
76 höggum fyrri umferðina og
77 höggum síðari umfrrðina.
Þeir óskar Sæmundsson og
Sigurður Hafsteinsson öttu
kappi saman i bráðabana um
þriðja sætið, en báðir léku
samanlagt á 155 höggum. Ilafði
Óskar betur í bráðabananum
og hreppti þriðja sætið.
Lóa Sigurbjörnsdóttir sigr-
aði i mristaraflokki kvenna, en
þar var leikið með forgjöf. Lék
Lóa á 147 höggum nettó. Sama
gerði Guðrún Eiriksdóttir, en
þar sem frammistaða Lóu á
siðustu þremur holunum var
betri, bar hún sigur úr býtum.
Þriðja varð siðan Ásgerður
Sverrisdóttir sem lék á 150
höggum nettó.
Reinke ræðir við leikmenn