Morgunblaðið - 16.09.1980, Qupperneq 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
■i m a>
Vonandi íá Skagamenn tækifæri til þess að fagna marki
í leiknum á móti F.C. Köln í kvöld.
ÍA mætir Köln
FYRRI leikur Akranes og 1 F.C.
Köln í UEFA-keppninni í
knattspyrnu fer fram á Laugar-
dalsvelli, þriðjudaginn 16. sept-
ember og hefst klukkan 18. Dóm-
ari verður norður-írskur, Jim
Ilaughey og línuverðir eru einnig
norður-írskir. Forsala aðgöngu-
miða að þessum stórleik verður í
verzluninni Óðni á Akranesi á
mánudag og þriðjudag og á
Laugardalsvellinum frá klukkan
13, daginn, sem leikið er.
Akurnesingar hafa áður keppt
við 1 F.C. Köln. Það var í
Evrópukeppni meistaraliða árið
1978. Þá vann Köln fyrri leikinn
úti i Köln 4:1 en jafntefli varð i
seinni leiknum 1:1 á Laugardals-
velli. Þóttu Skagamenn standa
sig mjög vel í leikjunum gegn
Köln.
12 landsliðsmenn
Margir þekktir leikmenn voru í
Kölnarliðinu þegar það kom
hingað 1978 en í dag eru enn þá
frægari menn hjá félaginu. Má
sem dæmi nefna að af 26 leik-
mönnum á launaskrá eru 12 iands-
liðsmenn. Kevin Keegan, knatt-
spyrnumaður Evrópu hefur sagt í
blaðaviðtali að hann telji Köln
besta lið Vestur-Þýskalands og
þau orð standa þrátt fyrir slaka
byrjun hjá Köln í deildarkeppn-
inni, sem hefur komið verulega á
óvart.
Frægustu leikmenn 1 F.C. Köln
eru eflaust þeir Reiner Bonho, sem
varð heimsmeistari með liði
Vestur-Þýskalands 1974, enski
landsliðsmiðherjinn Tony Wood-
cock og Bernd Scilster nýjasta
stórstjarnan í þýskri knattspyrnu
og nú þegar einn besti knatt-
spyrnumaður Evrópu, aðeins 20
ára gamall. Schiister var vara-
maður þegar Köln kom hingað
síðast en hann lék með vestur-
þýska landsliðinu á Laugardals-
vellinum í fyrravor, þegar Þjóð-
verjarnir unnu 3:1. Annar kappi í
Kölnarliðinu lék þá sinn fyrsta
landsleik, markvörðurinn Harald
Schumacher. Hann kom inn á í
hálfleik í stað grínfuglsins Sepp
Maier.
Kölnarliðið er talið dýrasta
knattspyrnulið Evrópu og það má
einnig nefna, að fyrir auglýsinga-
samning sinn við Pioner fær Köln
meiri peninga en nokkuð annað
þýskt lið fær fyrir auglýsingar,
eða 300 milljónir ísl. kr. á ári.
Aldrei neðar en í 6. sæti
1 F.C. Köln var stofnað fljótlega
eftir seinni heimsstyrjöldina eða í
febrúar 1948. Hefur félagið því
starfað í rúm 30 ár. Félagið
haslaði sér fljótlega völl meðal
beztu liða Þýskalands og hefur
það um langt árabil átt sæti í 1.
deild, sem nefnist Bundesliga. 1
F.C. Köln hefur yfirleitt vegnað
vel í deildarkeppninni undanfarin
ár og hefur aldrei hafnað neðar en
í sjötta sæti sl. níu keppnistíma-
bil, sem er mjög jafn og góður
árangur. Félagið hefur þrisvar
orðið þýzkur meistari, árin 1962,
1964 og 1978 og þrisvar þýskur
bikarmeistari, árin 1967, 1977 og
1978. Köln hefur aldrei unnið í
Evrópukeppninni en veturinn
1978—1979 þegar Köln keppti við
Akranes, komst félagið í fjögurra
liða úrslitin en tapaði þá fyrir
Nottingham Forest á heimavelli
1:0 eftir að hafa gert jafntefli 3:3 í
Englandi. Nottingham vann síðan
FF Malmö í úrslitunum 1:0.
17. Evrópuleikur
Akurnesinga
Leikurinn við 1 F.C. Köln verður
17. Evrópuleikur Akurnesinga.
Skagamenn voru lengi vel fremur
óheppnir með drátt í keppninni en
síðustu þrjú árin hafa þeir haft
heppnina með sér, drógu Köln
1978, Barcelona 1979 og nú Köln
Hart barist í Svíþjóð
HINN kunni knattspyrnumaður úr Val, Hörður Hilmarsson sem nú
leikur i Svíþjóð, hefur sent Mbl. pistla frá Sviþjóð en eins og kunnugt
er leikur Hörður með sænska liðinu AIK. Hér á eftir fer bréf frá Herði
sem okkur var að berast.
Stokkhólmi. 9. september. '80.
Hej.
Þá er það stuttur (?) pistill úr 2. deildinni, sem er vægast sagt
geysihörð. Fyrir utan það sem minnst er á í sjálfri greininni má
minnast á sögusagnir þess efnis að þeir leikmenn ísl. sem ekki hafa
náð sér á strik hér i Svíþjóð og komist í lið, virðast allir vera á leið
heim. Á ég þá við Sigurð Björgvinsson (örgryte) frá Keflavík og
Skagamanninn Sveinbjörn Hákonarson (Grimsás), sem að vísu kom
inná í siðari hálfleik á sunnudaginn. Og svo eru það náttúrulega
áfram. Viðtal við Öminn á leið-
inni.
Af sjálfum mér er það að frétta,
að mjög vel hefur gengið síðustu
6—7 vikurnar og hef ég a.m.k.
verið í landsliðsformi!!
Fyrir viku varð ég svo fyrir því
óláni að meiðast á æfingu (lær-
tognun, sama sælgætið og í vor),
en það var ekki talið alvarlegt og
ég byrjaði inná gegn Forward,
aðeins til að haltra útaf eftir 10
mín.
Læknir félagsins, dr. Friðfinnur
Sigurðsson frá Hafnarfirði, ákvað
í samráði við þjálfara að ég skyldi
hvíla alveg í tvær vikur, svo ég
yrði 100% „fit“ í lokaslaginn. —
Það á sem sagt ekki að gera sömu
vitleysuna og í vor er ég æfði og
spilaði hálfmeiddur og ómögu-
legur.
Keflvíkingarnir i Forward.
Örn Óskars stendur aftur á móti
í samningum og verður örugglega
■K--.Í swm.
P , J0
Hórður Hilmarsson hefur staðið
sig mjög vel með AIK i sumar.
Nú er það meðferð daglega og
maður vonar það besta.
Á morgun leika Svíar HM-leik
við Skota á Rásunda og eru alveg
að gera í buxurnar úr hræðslu.
Þeir vita sem er að tap þýðir „no
final in Spain ’82.“ Og það er
mikið mál fyrir Svíana sem hafa
verið í síðustu þrem HM-úrslitum,
og líta á sig sem mikla knatt-
spyrnuþjóð.
Tímabili knattspyrnunnar fer
senn að ljúka hér í Svíþjóð, og
vetraríþróttirnar að taka við, með
íshockey og handknattleik sem
helstu greinar ásamt skíðaíþrótt-
inni.
Enn er þó sex umferðum ólokið í
2. deildinni og hart barist um
efsta sætið bæði í norður- og
suðurdeild, og eru ýmsir isl. leik-
mannanna hér í eldlínunni. Um
síðustu helgi fór 20. umferðin
fram og urðu úrslit m.a. þessi:
Norðurdeild:
Forward — A.I.K. 0—1
Suðurdeild:
GAIS — Grimsás 2—0
Halmia — örgryte 1—1
Jönköping — Kalmar AIK 0—0
Karlskrona — Kristianstad 3—0
Grimsás tapaði loks, eftir mjög
góða frammistöðu undanfarið, 18
stig úr síðustu 10 leikjum. Leikur-
inn við GAIS frá Gautaborg var
virkilega góður og mega Eiríkur
Þorsteinsson og félagar vel við
una þrátt fyrir tapið.
Fyrri hálfleik „átti“ GAIS með
sína þrjá Englendinga (þar af eru
tveir lánsmenn frá Tottenham
Hotspurs) sem aðalmenn, en
Grimsás gekk mun betur í síðari
hálfleiknum, sem var jafn og
skemmtilegur. Jönköping tókst
ekki að sigrá botnliðið Kalmar
AIK þrátt fyrir umtalsverða yfir-
burði. Ársæll Sveinsson hafði lítið
að gera í leiknum, sem þótti
slakur. Örn Óskarsson misnotaði
vítaspyrnu í leik Örgryte gegn
Halmia í Halmstad. Örn hefur
verið vítaskytta liðs síns undan-
farið með góðum árangri, gert
þrjú mörk úr vítaspyrnum í bik-
arleikjum Örgryte. En markvörð-
ur Halmia sá við Erni og varði
vítaspyrnuna, þá sjöttu sem farið
hefur forgörðum hjá Örgryte. —
Örn var að vanda sterkur í
leiknum, en lið hans virkar vera í
öldudal um þessar mundir, og er
ólíklegt að því takist að vinna
deildina.
Útlitið er orðið dökkt hjá
Kristianstad eftir 0—3 tap gegn
Karlskrona. Stefán Halldórsson
hefur verið í tímabundinni lægð
og hóf ekki leikinn, en kom inná í
síðari hálfleik. Stefán á yfir höfði
sér leikbann vegna útafreksturs
fyrir nokkru og missir að öllum
líkindum af tveim eða þrem leikj-
um.
Kristianstad er komið í mikla
fallhættu eftir gott gengi framan
af sumri, og bendir margt til þess
að félagið sé á leið aftur niður í 3.
deild.
í norðurdeildinni bar það helst
til tíðinda að A.I.K. átti í miklum
erfiðleikum með Forward í örebro
og þrátt fyrir að heimaliðið léki
einum færri í 40 mín. Sá er þessar
línur ritar lék fyrstu 10 mín.
leiksins, en tognaði illa og verður
frá æfingum og keppni næstu
tvær vikurnar a.m.k. Keflvíking-
arnir Einar Á. Ólafsson og Rúnar
Georgsson eru ekki í náðinni hjá
þjálfara Forward og leika nú
eingöngu með varaliði félagsins.
Rúnar átti við þrálát meiðsli að
stríða fram á mitt sumar, en er nú
orðinn heill heilsu. Þeir félagar
gerðu samning til eins árs við
Forward, og fara örugglega heim
aftur að loknu keppnistímabilinu,
enda fellur félag þeirra niður í 3.
deild, ef að líkum lætur.
Svíþjóð 9. sept. H.H.
i
í kvöld
aftur. Leikirnir við Köln og fyrri
leikurinn við Barcelona teljast
með bestu leikjum Akranesliðsins
en leikurinn gegn Barcelona tap-
aðist 0:1 og mátti hið heimsfræga
spænska lið teljast heppið með
þau úrslit. Leikmenn Ákraness
eru staðráðnir í því að standa sig
jafnvel nú og undanfarin tvö ár.
Einn leikmaður, Jón Alfreðsson
hefur leikið alla 16 Evrópuleiki í A
en hann er ekki með að þessu
sinni. Leikreyndasti maður Akra-
nesliðsins nú er Jón Gunnlaugsson
með 309 leiki, þar af 15 Evrópu-
leiki, Guðjón Þórðarson með 215
leiki, þar af 12 Evrópuleiki og
Árni Sveinsson með 193 leiki, þar
af 12 Evrópuleiki.
Lið IA í leiknum gegn 1 F.C.
Köln verður skipað eftirtöldum
leikmönnum:
Bjarni Sigurðsson,
markvörður. 19 ára.
Nemi. Hóf að leika með ÍA 1979,
lék áður með ÍBK. Hefur leikið 44
leiki með ÍA. Hann hefur leikið 2
landsleiki og 6 unglingalandsleiki.
Einar Guðleifsson.
markvörður, 33 ára.
Vélvirki. Hóf að leika með mfl.
ÍA 1966. Hefur leikið 108 leiki og
einn landsleik. Einar er kvæntur
Sigrúnu Rafnsdóttur og eiga þau
þrjú
Guðjón Þórðarson,
varnarmaður, 24 ára.
Rafvirki. Hóf að leika með mfl.
ÍA 1972 og hefur leikið alls 215
leiki og skorað 4 mörk. Hefur
leikið 7 unglingalandsleiki. Guð-
jón er kvæntur Bjarneyju Jóhann-
esdóttur og eiga þau þrjú börn.
Jón Gunnlaugsson,
varnarmaður, 30 ára.
Forstöðumaður. Hóf að leika
með mfl. ÍA 1968 og hefur leikið
309 leiki og skorað 33 mörk. 5
landsleikir. Jón er kvæntur Elínu
Einarsdóttur og eiga þau eitt
barn.
Sigurður Halldórsson,
varnarmaður, 23 ára.
Trésmiður. Hóf að leika með
mfl. ÍA 1975 og hefur leikið 83
leiki og skorað 16 mörk. 6 lands-
leikir og 2 unglingalandsleikir.
Sigurður er kvæntur Lovísu Jóns-
dóttur og eiga þau eitt barn.
Kristján Olgeirsson,
framvörður, 20 ára.
Nemi. Hóf að leika með IA
1979 en lék áður með Völsungi.
Hefur leikið 67 leiki og skorað 8
mörk. 1 landsleikur og 8 ungl-
ingalandsleikir.
Sigurður Lárusson,
framvörður, 26 ára.
Trés.miður. Hóf að leika mað IA
1979, íék áður með Þór og ÍBA.
Hefur leikið 65 leiki og skorað 8
mörk. Kvæntur Valdísi Þorvalds-
dóttur og eiga þau tvö börn.
Arni Sveinsson,
framherji, 24 ára.
Trésmiður. Hóf að leika með
mfl. ÍA 1973 og hefur leikið 193
leiki og skorað 28 mörk. 30 lands-
leikir og 7 unglingalandsleikir.
Sigþór ómarsson,
framherji, 23 ára.
Rafvirki. Hóf að leika með IA að
nýju 1979 eftir að hafa leikið tvö
ár með Þór á Akureyri. Hefur
leikið 85 leiki og skorað 28 mörk. 1
unglingalandsleikur.
Guðbjörn Tryggvason,
framherji, 21 árs.
Rafvirki. Hóf að leika með mfl.
IA 1976 og hefur leikið 44 leiki og
skorað 5 mörk.
Július Ingólfsson,
framherji, 21 árs.
Hóf að leika með ÍA 1980, lék
áður með Grindavík. Hefur leikið
21 leik og skorað 3 mörk.
Ástvaldur Jóhannsson,
framherji, 18 ára.
Nemi. Hóf að leika með mfl. ÍA
1978. Hefur leikið 25 leiki og
skorað 7 mörk. 6 unglingalands-
leikir.
Þjálfari ÍA er Hörður Helgason,
áður leikmaður IA.
Aðstoðarþjálfari er Eyleifur
Hafsteinsson, áður leikmaður ÍA
og landsliðsins.