Morgunblaðið - 16.09.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
25
korar sitt 15. mark í mótinu og jafnframt það síðasta fram
Ljósm.: Guðjón. j
Valssigur
því sterku í framtíðinni. Þeir
Lárus og Heimir áttu góðan leik
og ná vel saman. Þá vann Jóhann-
es Bárðarson vel. Gunnar Gunn-
arsson og Ómar Torfason voru og
traustir.
Lið Vals er án alls vafa
jafnasta og besta knattspyrnulið
okkar í dag. Leikmenn vinna
saman sem ein sterk heild og
útkoman eftir því. Sigurður mjög
öruggur í markinu og eftir góða
frammistöðu sumarsins ætti hann
að fá tækifæri til þess að spreyta
sig í landsleik. Varnarmennirnir
Óttar og Grímur léku vel og
Sævar og Dýri voru sem klettar á
miðjunni. Traustir leikmenn sem
erfitt er að komast framhjá.
Guðmundur, Albert, og Magnús
Bergs, sem nú lék sinn síðasta leik
með meistaraflokki Vals, voru
sívinnandi á miðjunni og byggðu
upp hverja sóknina af annari.
Magni Pétursson er leikmaður
sem vex með hverjum leik, og
Hermann og Matthías gefa hinum
yngri ekkert eftir nema siður sé.
Sem sagt valinn maður í hverri
stöðu og góðir leikmenn á vara-
mannabekknum.
í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1.
deild. Laugardalsvöllur
Valur—Víkingur, 3—1 (1—1).
MÖRK VALS: Matthías Ha-
llgrímsson á 45. og 60. mínútu, Jón
Einarsson á 80. mínútu.
MARK VÍKINGS: Heimir Karls-
son á 43. mínútu.
GULT SPJALD: Enginn.
DÓMARI: Rafn Hjaltalín.
- ÞR.
Valsmenn fagna sigri, Jón, Sigurður og óttar.
Litlaus leikur í
Vestmannaeyjum
KR-ingar kræktu sér í stigið
sem þá vanhagaði um i leiknum
við ÍBV i Eyjum á laugardaginn.
Þegar þeir flugu til Eyja var
staðan sú. að til að fulltryggja
áframhaldandi veru gamla góða
KR i 1. deildinni varð að nást stig
úr leiknum. Leiknum þeim arna
lauk síðan með jafntefli, 1 —1. og
KR-ingar fögnuðu i leikslok eins
og gömlu KR-ingarnir gerðu i
gamla daga þegar þeir voru
árvissir bikarhafar i mótslok.
KR liðið, sem svo lengi hefur þótt
efnilegt án þess að ná nokkrum
bókfærðum árangri, fær því enn
tækifæri til þess að láta til skarar
skriða i 1. deildinni næsta keppn-
istimabil
Leikurinn í Eyjum á laugardag-
inn var ákaflega litlaus og lítt
skemmtilegur á að horfa. Eyja-
menn voru ákaflega daufir og
áhugi margra leikmanna á leikn-
um var í lágmarki. KR-ingar léku
eins og búast mátti við af liði sem
var að berjast fyrir lífi sínu í
deildinni. Gamalkunn KR-spörk
út í buskann voru ekki óalgeng
sjón í leiknum. Annars voru Eyja-
menn frísklegir fyrsta korterið og
léku þá skínandi vel en þrátt fyrir
góð tækifæri tókst þeim eigi að
skora, Stefán Jóhannsson mark-
vörður KR og þeirra besti maður í
leiknum sá ávallt við Eyjamönn-
um. En síðan tóku KR-ingar gott
viðbragð og á 24. mín. skora þeir
mark svona alveg upp úr þurru.
Guðjón Hilmarsson stal þá bolt-
anum af dútlandi Eyjamönnum,
lék upp í hægra hornið bg gaf
boltann vel fyrir markið, beint á
koll Jóns Oddssonar sem skallaði
laglega yfir Pál Pálsson og í netið.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks
skeði bókstaflega ekkert það
markvert að það kæmist á blað
minnisbókarinnar.
Heldur var líflegra yfir seinni
hálfleiknum þó svo knattspyrnan
sem liðin buðu uppá hafi ekki
verið þess lags að hægt væri að
hrópa fyrir henni húrra. Að vísu
léku liðin á köflum ágætlega úti á
vellinum en þegar koma átti
boltanum fram á sóknarmennina
var oft á tíðum um meira en
vafasamar sendingar að ræða. Var
þar nokkuð jafnt á komið með
liðunum. Eyjamenn voru nær því
að skora í hálfleiknum en lengi vel
var Stefán Jóhannsson Eyjamönn-
um sú hindrun í vegi sem ekki var
yfirstigin. M.a. varði Stefán hreint
snilldarlega þegar Sigurlás Þor-
leifsson komst einn innfyrir með
góða sendingu Tómasar. Stefán
kom út á móti Lása, kastaði sér
fyrir fætur honum og gómaði
boltann. Besta færi KR í hálf-
leiknum fékk gamla kempan Sig-
urður Indriðason en Páll Pálma-
son varði glæsilega.
En svo jöfnuðu Eyjamenn á 82.
mín. Þeir náðu upp góðri sókn og
Kári Þorleifsson gaf góða send-
ingu upp i vinstra hornið á Ómar
Jóhannsson sem lék að vítateigs-
horninu og skaut þaðan góðu og
hnitmiðuðu skoti sem hafnaði
innan á hliðarnetinu, algjörlega
óverjandi fyrir Stefán markvörð.
Jafntefli var því niðurstaðan úr
þessari viðureign og geta það
talist viðunandi úrslit fyrir bæði
liðin. Hvorugt átti skilið vinna
leikinn, né heldur að tapa honum.
Réttlát úrslit.
Ekki skal fjölyrt um frammi-
stöðu liðanna í þessum leik nema
hvað ástæða er til að hrósa Ómari
Jóhannssyni fyrir góðan leik.
Ómar hefur verulega sótt í sig
veðrið upp á síðkastið og hann
hefur skorað í hverjum leik. í
þessum leik var hann besti maður
vallarins. Þá stóðu markverðirnir
báðir Páll Pálmason hjá ÍBV og
Stefán Jóhannsson KR vel fyrir
sínu.
I stuttu máli:
Hásteinsvöllur 13. sept. 1980 1.
deild. ÍBV - KR 1-1 (0-1)
MARK ÍBV: Ómar Jóhannsson á
82. mín.
MARK KR: Jón Oddsson á 24.
mín.
ÁMINNINGAR: Guðjón Hilmars-
son KR gult spjald.
ÁHORFENDUR: 550. - hkj.
IBV meistarar í 2. flokki
ÍBV TRYGGÐI sér íslandsmeist-
aratitilinn i 2. flokki á föstudags-
kvöldið þegar Eyjamenn sigruðu
Breiðablik, 2—1, i Eyjum í síð-
asta leik þriggja liða úrslita-
keppni. Til úrslita léku sigurveg-
ararnir úr riðlakeppninni.
Breiðablik úr A-riðli, IBV úr
B-riðli og Fylkir úr C-riðli. í
fyrsta leik úrslitakeppninnar
gerðu Fylkir og Breiðablik jafn-
tefli. 0—0, en síðan sigraði ÍBV
Fylki, 3—1, í Reykjavík. Siðasti
leikurinn var siðan i Eyjum milli
ÍBV og Breiðabliks og þá var
ljóst að ÍBV nægði jafntefli til
sigurs i mótinu. Leikurinn á
föstudaginn var mjög jafn og
spennandi, sannkallaður úrslita-
leikur. Bæði liðin tefldu fram
þekktum nöfnum úr 1. deildinni,
Ilelga Bentssyni og Sigurði Grét-
arssyni i liði Breiðabliks, Sig-
hvati Bjarnasyni og Kára Þor-
leifssyni í liði IBV.
Breiðabliksmenn urðu fyrri til
að skora þegar Sigurjón Krist-
jánsson skoraði gull af marki í
fyrri hálfleik en Eyjamenn jöfn-
uðu fyrir hálfleik og var það ekki
síður fallegt mark, Bergur Ágústs-
son skallaði glæsilega í netið eftir
góða fyrirgjöf. I síðari hálfleik var
síðan baráttan í algleymingi,
Breiðabliksmenn reyndu allt hvað
af tók að skora, því þeir urðu að
vinna leikinn til þess að hljóta
meistaratitilinn. Eyjamenn vörð-
ust vel og notuðu skyndisóknir og
úr einni slíkri skoruðu þeir sigur-
mark leiksins. Samúel Grytvik
braust þá í gegn af krafti og skaut
föstu skoti í stöng, boltinn skopp-
aði út í teiginn þar sem Kári
Þorleifsson náði honum og skoraði
af öryggi. 2—1-sigur Eyjamanna.
í leikslok afhenti Jóhann Ólafsson
sigurvegurunum verðlaun sín og
um 300 áhorfendur hylltu ís-
landsmeistarana.
Það var kátt á hjalla í búnings-
herbergi ÍBV eftir sigurleikinn
gegn Breiðablik á föstudagskvöld-
inu, íslandsmeistaratitlinum var
innilega fagnað af leikmönnum
ÍBV, þjálfara liðsins, Úlfari
Steindórssyni, og hinum ötula
Rafni Pálssyni, formanni 2.
flokksráðs ÍBV. Ókkur tókst þó að
ná stuttu tali af fyrirliða ÍBV,
hinum bráðefnilega miðverði, Sig-
hvati Bjarnasyni.
„Við unnum B-riðilinn eftir
harða keppni og þar var Víkingur
erfiðasti mótherjinn. Við gátum
sjaldnast í riðlakeppninni teflt
fram okkar sterkasta liði en samt
tókst okkur að yinna alla leikina,
nema hvað við töpuðum óvænt
fyrir Selfyssingum. Við fengum
svo fljúgandi gott start í úrslitun-
um þegar við unnum Fylki, 3—1,
og vorum svo heppnir að eiga
leikinn við Breiðablik hér heima í
Eyjum. Leikurinn við Breiðablik
var mjög erfiður, jafn og tvísýnn
og gat farið á báða vegu. Við
vorum nokkuð taugaslappir til að
bvria með en síðan lagaðist þetta
og við fundum að við áttum í fullu
tré við þá. Breiðablik er með
skemmtilegt og frísklegt lið sem
erfitt var að eiga við en við unnum
leikinn fyrst og fremst á góðri
baráttu og samheldni. Við vorum
staðráðnir í því að sigra. Ég vil
svo í lokin, fyrir hönd okkar
leikmanna liðsins, þakka þjálfara
okkar, Úlfari Steindórssyni, fyrir
frábærlega góða stjórn á liðinu og
einnig viljum við þakka Rafni
Pálssyni fyrir hans óeigingjarna
og vel unna starf. Það hefur
gengið á ýmsu hjá okkur í sumar
en við höfum staðið vel saman og
nú höfum við öðlast laun okkar
erfiðis." Við þökkum Sighvati
fyrir spjallið og óskum honum og
féiögum hans í ÍBV-liðinu til
hamingju með árangurinn.
— hkj.
Páll Pálmason markvörður ÍBV átti góðan leik með liði sinu og hefur
hann sjaldan leikið eins vel og i sumar, þrátt fyrir að vera orðinn
„nestor“ meistaraliðs ÍBV. i.jósm. SiKunteir.